Morgunblaðið - 24.11.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
Steinj;n'mur Hermannsson um tillögur Alþýðuflukks:
Lögbinding andstæð
stjómarsáttmálanum
MIKLAR sviptingar áttu sér stað
innan stjúrnarflokkanna út af
aðgerðum í efnahagsmálum og
skerðingu vísitöluhækkunarinn-
ar 1. desember n.k. eftir að fyrir
liggur, að tillöjíur Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra í
þeim efnum liggja nær tilIÖKum
AlþýðubandalaBsins en tillögum
Alþýðuflokksins. Þingflokkur Al-
þýðuflokksins brást ókvæða við
eftir að afstaða forsætisráðherra
var kunn og samþykkti nýtt
efnahassmálaplaBg, sem lagt var
fyrir ríkisstjórnarfund í jjær-
morgun og þingflokka hinna
stjórnarflokkanna síðdegis.
Þessar tilIÖBur alþýðuflokks-
manna mættu þar verulegri and-
stöðu en þingmenn Alþýðuflokks-
ins stóðu fast á þessum tillögum
þenar Mbl. hafði síðast fregnir.
Það var mál stjórnarþingmanna í
þingsölum í gær, að ekki hefði
komið upp jafn ákafur ágreining-
ur innan stjórnarinnar frá þvi að
hún var mynduð en almennt var
þó álitið að takast myndi að jafna
ágreininginn áður en yfir lyki.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
samþykkti hið nýja efnahagsmála-
piagg á fundi sem stóð til mið-
nættis í fyrrakvöld, en í því felst
m.a., að flokkurihn gengur í
aðalatriðum að tillögum Óláfs
Jóhannessonar gegn því að tryggt
sé að ný hækkunaralda ríði ekki
aftur yfir 2. marz og að stjórnin
lögbindi aðgerðir til að ná fram
markmiðum sínum í baráttunni
við verðbólguna.
Stöðugir fundir voru nailli full-
trúa stjórnarflokkanna í bakher-
bergjum Alþingis til að reyna að
finna lausn á ágreiningsefnunum,
og tóku þátt í þeim Kjartan
Jóhannsson og Vilmundur Gylfa-
son af hálfu Alþýðuflokks, Stein-
grímur Hermannsson og Tómas
Arnason af hálfu Framsóknar og
Ragnar Arnalds og Svavar Gests-
son af hálfu Alþýðubandalags.
Steingrímur Hermannsson sagði í
samtali við Mbl., að hann teldi
kröfu alþýðuflokksmanna um lög-
bindingu efnahagsaðgerða óað-
gengilega vegna þess að hún væri í
andstöðu við samstarfsyfirlýsingu
stjórnarinnar. Svavar Gestsson
sagði um tillögur Ólafs Jóhannes-
sonar, að þegar fengist hefðu
nánari skýringar á því hvað fælist
í skattapakkanum og hinum fé-
lagslegu framkvæmdum og í ljós
kæmi, að þær væru í átt við það
sem Alþýðubandalagið hugsaði
sér, teldi hann kominn viðunandi
grundvöll til lausnar þessu vísi-
tölumáli.
Loftleiðaflugmenn
vilja halda áfram
pílagrímafluginu
FÉLAG Loftleiðaflugmanna sam-
þykkti á félagsfundi sínum fyrr í
vikunni ályktun þess efnis að
hvetja stjórn Flugleiða til að
reyna með öllum ráðum að halda
áfram pilagrimafluginu.
í samtali við Mbl. sagði Baldur
Oddsson formaður félagsins að í
ályktuninni hefði verið skorað á
stjórn Flugleiða að halda píla-
grímafluginu áfram og myndu
flugmenn reyna að leggja sitt af
mörkum til þess að svo gæti orðið.
Sagði Baldur að flugmenn teldu
það nokkurn uppgjafartón að
hætta við svo búið og benti hann á
að flug sem þetta hefði verið að
nokkru leyti atvinnutrygging fyrir
flugliða. Taldi Baldur að reyna
ætti af megni að leita eftir vélurri
til að nota t.d. á áætlunarleiðum
en taka eina DC-8 þotuna í
pílagrímaflugið.
Frá Fiskiþingi.
Ljósm. Kristján.
Fiskiþing:
Afkastageta fiskiskipa hefur
aukizt mun meira en aflinn
FISKIÞINGI var haldið áfram í
gær og á dagskrá þess var m.a.
ræða Jóns Jónssonar forstjóra
Hafrannsóknastofnunarinnar
um langtima afrakstursgetu
fiskistofna. Þá talaði Jónas
Bliindal um afkastagetu fiski-
skipaflotans og kom m.a. fram í
máli hans að afkastagetan
hefur aukizt mun meira síðustu
10 árin heldur en aflamagnið.
Þá fjölluðu þeir Þorsteinn
Gíslason, Ríkharð Jónsson og
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson um
stjórn fiskveiða og fiskvinnslu og
urðu nokkrar umræður að fram-
söguerindum þeirra loknum. Að
þeim umræðum loknum talaði
Hilmar Rósmundsson um af-
komu sjávarútvegsins og voru
síðan á dagskrá Fiskiþings
reikningar Fiskifélags íslands og
fiskeldi, en um það var lögð fram
skýrsla og þá var einnig lögð
KONUR í 156 kvenfélögum af
249 á landinu söfnuðu og gáfu á
árinu 1977 um 68 millj. krónur
til nokkurra þarfra málaflokka.
En þar fyrir utan er það sem
héraðssamböndin gefa til ýmiss
konar málefna.
Kvenfélagasamband íslands
skrifaði kvenfélögunum og spurð-
ist fyrir um þetta, og hafa borist
fram skýrsla um fræðslumál.
Gert er ráð fyrir að Fiskiþing
ljúki störfum á sunnudaginn.
svör frá þessum 156 félögum, að
því er formaður sambandsins,
Sigríður Thorlacius, tjáði blaðinu.
Fé þetta hefur farið til elli-
heimila og í þjónustu við aldraða,
til sjúkrahúsa, barnaheimila og
leikvalla, í skóla, kirkjur og
félagsheimili og til annarra
stofnana og til námsstyrkja.
Einnig til slysavarna.
K venfélög gáf u
68 millj. kr.
Bíða eftir að mega
hefja rækjuveiðar í
Amarfirði og D júpinu
— IIÉR á ísafirði er orðið
nokkuð lítið um vinnu í bili
a.m.k.. sagði Úlfar Ágústsson
fréttaritari Mbl. Rækjuveiðin er
enn ekki hafin þar sem seiða-
gengd er nokkur og hefur rann-
sóknaskipið Dröfn ekki enn
fundið ra*kju. Sjómenn telja þó að
rækjan sé fyrir hendi, en leita
verði að henni á réttum stöðum í
Djúpinu og vilja því gjarnan fá
að senda sjálíir hát til leitar.
Þá sagði Úlfar að tíð hefði verið
leiðinleg að undanförnu, nema
gott í gær og sólin væri nú horfin
úr bænum og kæmi ekki aftur fyrr
en 24. janúar. Ófært hefur verið
vestur yfir heiðar en fært til
Flateyrar og átti í gær og dag að
aðstoða lest flutningabíla á leið
frá Reykjavík til Isafjarðar og
bjóst hann við að þeir myndu ná
til ísafjarðar í kvöld. Að lokum
vildi Úlfar taka fram að loðnu-
bátarnir hefðu legið í höfn að
undanförnu, en væru nú að tínast
út aftur og hefði ekki fylgt
skipverjum nein óregla, þeir hefðu
komið fram á þann hátt sem væri
byggðarlögum þeirra til sóma og
frásagnir af drykkjuskap ættu við
lítil rök að styðjast.
Lítil vinna á Bíldudal
— Heldur er dauft yfir öllu á
Bíldudal, sagði Páll Hannesson
fréttaritari Mbl. Við fáum ekki að
byrja á rækjunni ennþá þar sem
rannsóknarskipið Dröfn er enn við
athuganir á ísafjarðardjúpi. Skip-
ið er þó væntanlegt til okkar öðru
hvöru megin við næstu helgi, Það
kemur sér illa fyrir fólk hér að
ekki veiðist rækja ennþá, milli 7 og
8 bátar stunda veiðarnar og 15—20
manns hafa af henni atvinnu í
landi. Bátarnir hafa enn ekki
fengið að fullu greiddan sumarafla
sinn þannig áð þessi töf á rækju-
veiðunum kemur sér mjög illa. Þá
tók Páll fram að snjór væri og
ófærð á Bíldudal og næsta
nágrenni. Að lokum sagði hann að
þegar svo lítið væri um að vera í
atvinnulífinu væri lítið um félags-
líf og fremur dauft hljóð í
mönnum.
Hvíld eftir törn
— Á Eskifirði eru menn margir
í nokkurri hvíld eftir mikla törn að
undanförnu, þar sem síldveiðum er
nýlega háett og söltun búin, sagði
Ævar Auðbjörnsson fréttaritari
Mbl. á Eskifirði. F'ólk tekur lífinu
því aðeins rólega í bili og er ekki
farið að hugsa til jólanna enn. Hér
hefur snjóað nokkuð mikið en búið
að moka eftir ófærð um síðustu
helgi.
Óvenjumikill snjór
— Hér á Snæfellsnesi hefur
verið óvenjumikill snjór og ófærð,
sagði Árni Emilsson á Grundar-
firði, og muna menn ekki eftir svo
mikilli ófærð á þessum árstíma
lengi. Ófært var yfir heiðarnar og
til Stykkishólms en verið var að
moka í d$g, fimmtudag.
— Veiði j&fur verlð. sæmilfeg
hjá bátuniiferað undanfornu. sagði
Árni ennfremur, og sigla Runólfur
og Haffari með afla sinn utan um
þessar mundir, sem gerir það að
verkum m.a. að vinna hefur
minnkað hér og menn farnir að
skrá sig á atvinnuleysisskrá, sem
ekki hefur gerzt lengi. Runólfur
hefur gert næstum hverja met-
söluna á fætur annarri, sem þó
hafa verið slegnar þegar. En það
að vinna skuli minnka þegar
bátarnir sigla er slæmt og fyndist
mér að útgerðarmenn og fiskvefk-
endur þyrftu að semja um að afli
berist til vinnslu í landi til þess að
menn missi ekki mikla vinnu úr
þegar bátarnir sigla.
Jólaskreytingar byrjaöar
„Veðrið hefur verið gott hér
undanfarna daga og unnið kapp-
samlega að því að hreinsa snjó af
mestu umferðargötum bæjarins,
sagði Sverrir Pálsson, fréttaritari
Mbl. á Akureyri.
Sverrir sagði að lítið hefði bætt
á snjóinn síðustu daga en hann
sagði snjóinn vera óvenju mikinn
miðað við árstíma.
Seinni partinn í október sagði
Sverrir að umgangspest hefði
Loðnuskipin lágu í ísafjarðar-
höfn í nokkra daga, en eru nú að
tínast út aftur, en rækjubátarnir
sem cru milli 40 og 50 þar, bíða
enn eftir leyfi til að hefja
veiðarnar. Ljósm. Úlfar.
.. '
»*«»♦ »rr* !***?*!