Morgunblaðið - 12.12.1978, Page 44
studio-line
l.<iiiiía\eyi <S5
Góö nj(')ieioulls íoildi
Verzlio
sérverziun með
litasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19.
BUDIN simi
y 29800
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
Nær helmingur Eyjaflotans aug-
lýstur til sölu-------------■ -
Taprekstur og hundruð
miUjóna skuldasúpa þrátt
fyrir sæmilegt árferði
Nemendur íþróttakennaraskóla íslands á Laugarvatni brugðu sér til höfuðborgarinn-
ar í gær til þess að leggja áherzlu á kröfur sínar um auknar fjárveitingar til
íþróttamannvirkja á Laugarvatni. Gengu nemendurnir með kröfuspjöld um
miðborgina og áttu viðræður við ráðherra og alþingismenn. Myndin sýnir hluta
hópsins fyrir utan Alþingishúsið. Ljósm RAX.
Hugmyndir um ráóstafanir til stuðnings iðnaði:
Sex mánaða innborgun-
arskylda á ýmsar vörur
—40% tollur á sælgæti
Vestmannaeyjum 11. desember.
Frá Arna Johnsen blm. Mbl.
_UM 10 útvegsbændur í Vestmanna-
eyjum hafa rætt vandamál útKerð-
arinnar á fundum undanfarna daua
og i framhaldi af þeim umra'ðum
hiiíum við auglýst 33 íiskibáta,
25—250 tonn að stærð til sölu í
daií.” sauði Daníel W.F. Traustason
skipstjóri ok útvetfsbóndi. talsmað-
ur þeirra útveifsbænda sem kannað
hafa stiiðu úttferðarinnar undan-
farna daga, í samtali við Mbl.
_Við ráðum.“ satfði hann, _ekki
Truflanir á
æfingaflugi
vamarliðsms
NOKKRAR truflanir urðu á æf-
intfaflutfi varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli í gær og að sögn
hlaðafulltrúa þess stöfuðu þær af
veikindum flugumferðarstarfs-
manna í flugturninum í Reykjavík.
Blaðafulltrúinn sagði að þessar
truflanir hefðu ekki verið alvarlegar,
hér hefði aðeins verið um reglulegt
aefingaflug að ræða sem hægt hefði
verið að fresta til dagsins í dag, en
æfingaflug sem þetta er eitt hið
fyrsta sem truflun verður á vanti
starfsmenn í flugumsjón. Bjóst hann
við að eðlileg starfsemi myndi
komast á aftur í dag.
Samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá flugumferðarstjórum er
erfitt á þessum tíma að ná i menn til
að sinna aukastörfum og einnig
munu þeir reyna að minnka við sig
aukavinnu vegna aukinna skatta,
sem henni fylgdu.
RANNSÓKN hjólharðamálsins á
Keflavíkurflugvelli er vel á veg
komin. Stöðugar yfirheyrslur
voru um helgina vegna málsins
og að kröfu Rannsóknarlögreglu
ríkisins voru þrír íslenzkir starfs-
menn varnarliðsins. þar af tveir
deildarstjórar í birgðadeild
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. úrskurðaðir í gæzluvarð-
hald til 20. desemher n.k.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. fékk í gær hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, hefur
rannsókn málsins leitt í ljós
fjármálamisferlij sem staðið hefur
yfir s.l. tvö ár. Áður hefur komið
fram í fréttum að hjólbarðar hafi
horfið úr sendingum frá Banda-
ríkjunum til Keflavíkurflugvallar
en það er ekki rétt. Meint misferli
var í því fólgið að láta varnarliðið
greiða fyrir fleiri hjólbarða en það
í raun og veru fékk með því að
falsa pappíra og bókhald. Bendir
rannsóknin til þess að varnarliðið
hafi á þennan hátt greitt fyrir
milli 1700 og 1800 fleiri hjólbarða
við þessa miklu erfiðleika scm við
cr að glfma og við blasa, bankinn
hér getur það ekki því honum eru
takmörk sett og við sjáum því ekki
aðra leið en að stjórnvöld taki upp
þráðinn og nái honum saman nema
að það sé ætlan þeirra að knésetja
flotann.”
Daníel sagði að margir bátar færu
á uppboð á næstunni og þorri báta
væri með full útgerðarlán og býsn áf
lausaskuldum þrátt fyrir sæmilegt
árferði. Hin ýmsu þjónustufyrirtæki
í Eyjum hafa því lokað á marga
útgerðaraðila og munu þau eiga
hundruð milljónir króna útistand-
andi, ástandið væri því ekki björgu-
legt og vetrarvertíð í nánd. „Þótt vel
ári í afla er vart hægt að ná endum
saman með eðlilegu viðhaldi báta og
fiskifræðingar boða okkur að ekki
verði um aukningu afla að ræða
næstu árin. Allir vita hins vegar að
allur tilkostnaður mun hækka,"
sagði Daníel.
Könnuð var staða 35 útgerðaraðila
í haust af alls 73 og kom í ljós að
aðeins 6 af þessum 35 aðilum skiluðu
hagnaði, en hina vantaði 228 milljón-
ir króna til þess að endar næðust
saman og er þó yfirleitt um að ræða
ágæta aflabáta sem eru vel reknir.
Þeir útvegsbændur í Eyjum, sem
hafa auglýst báta sína, hafa nú
skipað nefndir til að fylgja málum
sínum eftir og hafa þeir skipt liði í
nefndarstörf; í útvegsnefnd, fjár-
hagsnefnd, miðanefnd, aflanefnd og
tillögunefnd. Þá munu útvegsbænd-
ur í samvinnu við bæjaryfirvöld boða
þingmenn Suðurlandskjördæmis og
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra á fund í Eyjum um næstu
helgi vegna þessa mikla vanda sem
útgerðin býr við.
Sjá grein á miðopnu blaðsins ídag.
en það fékk í hendur. Eru fyrr-
nefndir menn grunaðir um að hafa
staðið af þessu misferli ásamt
innflytjanda hjólbarðanna, sem
eru af gerðinni Mohawk. Var
innflytjandinn yfirheyrður um
helgina.
Ýmsar tillögur eru nú til
umræðu á vegum ríkis-
stjórnarinnar varðandi að-
gerðir til stuðnings inn-
lendum iðnaði og eftir því
Ekki liggur Ijóst fyrir hve mikið
umræddir menn högnuðust á
þennan hátt en trúlega skiptir sú
upphæð milljónum króna. Varnar-
liðið hefur fengíð barðana á
heildsöluverði og sloppið við að
greiða af þeim tolla og gjöld.
sem Mbl. kemst næst er
verið að ræða um hugsan-
lega innborgunarskyldu á
ýmsan innflutning svo og
40% toll á innflutt sælgæti.
Ein hugmyndanna sem til
umræðu mun vera er 50%
innborgunarskylda á hús-
gögn og skófatnað og er gert
ráð fyrir að hún sé bundin
til sex mánaða á sérstökum
reikningi. Þá hefur verið
rætt að lagður yrði 40%
tollur á innflutt sælgæti.
Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri viðskiptaráðu-
neytisins sagði í samtali við
Mbl. að þessar og aðrar
hugmyndir væru til um-
ræðu, en ekki hefði enn
verið tekin nein ákvörðun
varðandi þær en það yrði þó
væntanlega ákveðið mjög
fljótlega.
Tvær sölur
í Fleetwood
TVÖ íslcnzk fiskiskip seldu í
Fleetwood í gærmorgun og í dag
munu væntanlega 6 skip selja
afla sinn i Bretlandi.
Haukaberg SH seldi 47,5 tonn
fyrir 19,9 milljónir, meðalverð 418
krónur, og Jón Þórðarson BA seldi
68 tonn fyrir 25,2 milljónir,
meðalverð 371 króna. Uppistaðan í
afla bátanna var þorskur.
Fáist ekki 14% hækkun fiskverðs um
áramót mun verulega draga til tíðinda
segir Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
Kjaramálaráðstefna Sjómanna-
sambandsins og Farmanna- og
fiskimannasambandsins var
haldin um heigina, og var þar
meðal annars samþykkt svo-
hljóðandi ályktun< „Kjaramála-
ráðstefna Sjómannasamhands
fslands og Farmanna- og fiski-
mannasamhands íslands, haldin
dagana 8. til 9. desembcr 1978,
beinir þeirri áskorun til.
sjómanna að hefja ekki veiðarf
eftir áramótin, fyrr en viðun-
andi fiskverð liggi fyrir."
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að hér væri aðeins
um áskorun að ræða, en ekki
formlega verkfallsboðun, enda
væri slíkt í höndum félaganna
sjálfra, hvers á sínum stað. Með
orðunum „viðunandi fiskverð“
sagði Guðmundur, að átt væri við
um 14% hækkun fiskverðs um
áramót. „Verði ekki orðið við
þessum kröfum, má búast við því
að verulega fari að draga til
tíðinda um áramótin," sagði
Guðmundur. Fiskverð hækkaði
síðast í október, um 5%, og flogið
hefur fyrir að ætlun ríkisstjórn-
arinnar sé að láta fiskverðið
hækka aftur um 5% nú um
áramótin að sögn Guðmundar, en
hann sagði að ríkisstjórnin hefði
ekki haft neitt samband við
sjómenn vegna þessa máls.
Sem kunnugt er, þá er það
Sjómannasambandið sem semur
um kjör undirmanna á fiski-
skipaflotanum, en Farmanna- og
fiskimannasambandið semur
fyrir hönd yfirmanna á fiski-
skipaflotanum.
„Horfnu hjólbarðarnir’, hurfu aldrei:
Varnarliðið látið borga fyrir nær
1800 fleiri hiólbarða en það fékk