Morgunblaðið - 13.12.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978
13
Bændafund-
ur í Midfirdi
Staðarbakka. Miðfirði. 12. des.
AÐ tilhlutan Búnaðarsambands
Vestur-IIúnsnpatnssýslu var al-
mennur bændafundur haldinn í
félagsheimilinu Ásbyrgi s.l. föstu-
dag. Frummælendur á fundinum
voru þeir Steingrímur Hermanns-
son landbúnaðarráðhefra. Gunn-
ar Guðbjartsson formaður
Stéttarsambands bænda og Pétur
Sigurðsson mjólkurfræðingur.
Þeir Steingrímur og Gunnar
ræddu um núverandi vandamál
landbúnaðarins og skýrðu í því
sambandi frumvarp til breytinga á
lögum um Framleiðsluráð land-
búnaðarins, sem nýlega hefur
verið lagt fram á Alþingi af
landbúnaðarráðherra. Pétur sagði
frá framleiðslu og söluhorfum á
mjólkurafurðum.
Að loknum framsöguerindum
voru frjálsar umræður og tóku
margir til máls og komu ýmis
sjónarmið fram. Fundinn sóttu á
annað hundrað manns úr öllum
hreppum sýslunnar og var honum
ekki lokið fyrr en eftir miðnætti.
Fundarstjóri var Sigurður Lindal
á Lækjarmóti. — Benedikt.
Arnarflug:
Flutti um 18.500
farþega til Yemen
ARNARFLUG lauk fyrir skömmu
pflagrímaflugi 'er félagið hefur
annast f Yemen, en flogið var milli
borganna Sana og Jeddah og voru
flutt samtals um 18.500 manns, en
þá eru meðtaldar nokkrar
áætlunarferðir er félagið fór fyrir
flugfélagið Yemenair að loknu
pflagrímafluginu.
Að sögn Halldórs Sigurðssonar
sölustjóra hjá Arnarflugi er sú þota
félagsins er annaðist pílagrímaflug-
ið nú í Englandi þar sem fram fara í
henni mótorskipti, og bjóst hann við
að hún kæmi til landsins um næstu
helgi. Sagði Halldór að hana myndi
skorta verkefni frá miðjum
desember fram í janúar, en verið er
að leita verkefna um þessar mundir.
Þá hefur Arnarflug bætt við
viðkomustað í flugi sínu fyrir
flugfélagið Aviateka í Guatemala,
sem er Mexicó City, og er þá flogið
frá Guatemala City til Mexico og
Loðnuskipin
á heimleið
síðan til Miami. Gert er ráð fyrir að
þessir flutningar standi fram í
febrúar með hugsanlegri fram-
lengingu í 3 mánuði.
Heimdallur:
Fundur um
húsnæðismál
IIEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík.
boðar til almcnns fundar ungs
fólks um húsnæðismál f Sjálf-
stæðishúsinu f kvöld klukkan
20.30.
Frummælendur á fundinum
verða þeir Hilmar Ólafsson, Sig-
urður Ágúst Jensson, Skúli
Sigurðsson og Þorsteinn Pálsson.
— Að sögn stjórnarmanna í
Heimdalli er hugmyndin með
þessum fundi að sjálfstæðismenn
fái þar greinargóðar upplýsingar
um þessi mikilvægu mál.
PARTNER
ER NÝTT VÖRUMERKI
FYRIR VANDAÐAN
OG ÞÆGILEGAN FATNAO
A AUSTURLANDI
VERSLUNARFÉL. AUSTURLANDS
EGILSSTÖÐUM
VERSL. PALÍNU IMSLAND.
NESKAUPSTAD
KAUPFÉL. BERUFJARÐAR
DJÚPAVOGI
KAUPFÉL. HÉRAÐSBÚA
REYÐARFIRÐI
ÞOR.
FÁSKRÚÐSFIRÐI
ALDAN.
SEYÐISFIRÐI
SENN líður að lokum sumar og
haustvertfðar loðnusjómanna, en
loðnuveiðibann gengur f gildi á
miðnætti annað kvöld. Síðustu
daga hefur verið bræla á loðnu-
miðunum úti af Vestfjörðum og
ekkert skip tilkynnt um afla til
loðnunefndar síðan á mánudag.
Mörg skipanna hafa þegar haldið
af miðunum og eru á leið til
heimahafna, en aftur verður byrj-
að að eltast við loðnuna í janúar.
Loðnuveiðin er nú orðin um 495
þúsund tonn á sumar- og haust-
vertíðinni og er þar um metafla að
ræða. í fyrra veiddust um 260
þúsund lestir á þessu tímabili.
„Grease”
sýnd eftir
áramótin
„HIMNARÍKI má bíða“ (Heaven
Can Wait) verður jólamynd
Háskólabíós í ár.
Áætlað hafði verið að um jólin
yrði dans- og söngvamyndin
„Grease" sýnd. En þar sem komu
hennar til landsins seinkaði var
ákveðið að hún yrði fyrsta mynd
bíósins á árinu 1979. Sýningar á
„Himnaríki má bíða" munu hefj-
ast 15. desember og að sögn
forsvarsmanna Háskólabíós má
reikna með að sýningar á „Grease"
hefjist snemma í janúar.
Framleiðandi, leikstjóri og aðal-
leikari í „Himnaríki má bíða“ er
Warren Beatty, en eins og kunnugt
er leika þau Olivia Newton-John
og John Travolta aðalhlutverkin í
kvikmyndinni „Grease".
MÓÐIR MÍN — húsfreyjan
Fyrra bindi þessarar bókar seldist mest allra bóka okkar á síðasta ári.
Hér er að finna eftirtalda fimmtán nýja þætti um nýjar mæður skráða
af börnum þeirra<
Sólveig Þórðardóttir frá Sjöundá eftir
Ingimar Jóhannesson, Jóhanna Kristín
Jónsdóttir frá Álfadal eftir Jóhannes
Davíðsson, Steinunn Frímannsdóttir frá
Helgavatni eftir Huldu Á. Stefáns-
dóttur, Hansína Benediktsdóttr frá
Grenjaðarstað eftir Guðbjörgu J.
Birkis, Björg Þ. Guðmundsdóttir frá
Höll eftir Sigurð S. Haukdal, Hlíf
Bogadóttir Smith frá Arnarbæli eítir
Sigríði Pétursdóttur, Svanhildur Jör
undsdóttir frá Syðstabæ eftir Guðrúnu
Pálsdóttur, Aðalbjörg Jakobsdóttir frá
Húsavík eftir Guðrúnu Gísladóttur,
Jakobína Davíðsdóttir frá Hrísum eftir
Davíð ólafsson, Sigríður Jónsdóttir
Bjarnason eftir Hákon Bjarnason, Ásdís
Margrét Þorgrímsdóttir frá Hvftár-
bakka eftir Þorgrím Sigurðsson,
Kristín Sigurðardóttir frá Skútustöðum
eftir Hall Hermannsson, Þórdís Ásgeirs-
dóttir frá Knarrarnesi eftir Vernharð
Bjarnason, Dóra Þórhallsdóttir frá
Laufási eftir Þórhall Ásgeirsson og
Grethe Harne Ásgeirsson eftir Evu
Ragnarsdóttur.
Móðir mín — Húsfreyjan er óskabók allra kvenna< ömmunnar,
mömmunnar, eiginkonunnar og unnustunnar. Hver þáttur bókarinn-
ar er tær og fagur óður um umhyggju og Ijúfa móðurást.