Morgunblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR
287. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjórn Andreottis
riðar nú til falls
vegna EMS-þátttöku
Róm, Brtlssel, 13. des. — AP — Reuter
ANDREOTTI forsætisráðherra
Ítalíu gerði í dag ítrekaðar
tilraunir til að sannfæra stuðn-
ingsflokka minnihlutastjórnar
sinnar um ágæti þess að taka þátt
í hinu nýja gjaldeyriskerfi
Evrópu, EMS. Kommúnistar og
sósi'aíistar hafa þegar lýst mikilli
andstöðu við þátttöku ítala í hinu
nýja gjaldeyriskerfi svo það er
við ramman reip að draga hjá
Andreotti.
Seint í gærkvöld stóðu fundir
ennþá yfir og ekki var búizt við
neinni niðurstöðu fyrr en á
morgun. Ef kommúnistar og
sósialistar styðja ekki framgang
málsins í þinginu eru dagar
stjórnar Andreottis taldir.
Aðalmarkmiðið með stofnun
hins nýja gjaldeyriskerfis er að
stuðla að meira jafnvægi í gengis-
málum. Sérfræðingar telja miklar
líkur á því að hinir veikari
gjaldmiðlar Evrópu eins og ítalska
líran muni fara halloka við
tilkomu hins nýja gjaldmiðils og í
því sambandi benda ítalskir
kommúnistar og sósíalistar á, að
ítalskur útflutningur þoli vart
meiri álögur en þegar er orðið. —
Andreotti svaraði þessari gagn-
rýni á þann veg, að ítalska
stjórnin hefði þegar farið fram á
aukið svigrúm fyrir gjaldmiðil
Áframhaldandi
skærur í íran
Andreotti.
þeirra, líruna, og hefði hann fengið
staðfestingu á því að gripið yrði til
aðgerða til styrktar lírunni.
Ekki varð nein niðurstaða á
fimmtán klukkustunda löngum
fundi stjórnar Irlands um þessi
mál en Irar tilkynntu í upphafi að
þeir hefðu ekki áhuga á að vera
með í hinu nýja kerfi. — Eins og
fram hefur komið standa Bretar
utan kerfisins og ítrekuðu þeir
þessa ákvörðun sína enn frekar í
dag.
Oliueldarnir:
Gífurlegt áfall
Ródesíumanna
Salisbury 13. september, AP — Reuter.
IAN Smith forsætisráðherra Rhódesíu sagði í kvöld. að eyðileggingin í
olíustöðinni við Salisbury. sem svartir skæruliðar ollu í gærkvöldi
væri mesta áfall stjórnarinnar frá því að átök hófust milli
stjórnarhersins og skæruliða fyrir sex árum.
Skýrt var frá því, að 22 risastórir olíutankar hefðu eyðilagst í
eldsvoðanum og sprengingunum. og að fjórir, sem líklega ættu eftir að
springa. væru alelda. Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eldinum.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að um 77,350 tonn af benzíni,
dísil-olíu og flugvélaeldsneyti hafi
brunnið upp í bálinu í olíustöðinni,
sem er hin stærsta í landinu. Alls
er hægt að geyma 136,500 tonn af
eldsneyti í birgðastöðinni. Tjón
stjórnvalda er tilfinnanlegt vegna
viðskiptabanns og einnig vegna
þess, að erlendan gjaldeyri hefur
lengi skort.
Skæruliðafylkingar þjóðernis-
sinna sögðust bera ábyrgð á
eyðileggingunni og fögnuðu mjög í
tilkynningum sínum. Talið er að
skæruliðar hafi komið eldsvoðan-
um og sprengingunum af stað með
því að skjóta tveimur eldflaugum
og fjölda sprengja á olíustöðina.
I fyrstu gekk erfiðlega að ná
tökum á eldinum þar sem slökkvi-
liðið í Salisbury er illa búið
tækjum. En slökkviliðsmenn með
fullkomin tæki komu til hjálpar
frá Suður-Afríku og von bráðar
tókst þeim að ná yfirhöndinni í
baráttunni við eldhafið.
Isfahan, Teheran, Nýju Dehlf,
13. desember. AP-Reuter.
ÞRÍR létu lífið í óeirðum sem
brutust út í Isfahan í dag
þegar stuðningsmenn keisar-
ans fóru í fylkingum um götur
bæjarins og lömdu á andstæð-
ingum keisarans. Herinn varð
að skerast í leikinn og féllu
þremenningarnir fyrir kúlum
hermanna.
Vestrænir fréttamenn, sem
náðu til Isfahan í dag, sögðu,
að sjúkrahús í bænum væru
full af fólki sem særst hefði í
skothríð hersins og barsmíðun-
um, sem leynilögreglumenn,
hermenn og óbreyttir eru
sagðir hafa staðið fyrir.
Læknar sjúkrahúsanna hafa
skýrt frá því, að a.m.k. 44 hafi
fallið í óeirðum í borginni síðustu
þrjá dagana, og að yfir 700 hafi
særst.
Callaghan
beið ósigur
London, 13. desember, AP.
STJÓRN James Callaghans beið
í kvöld ósigur í brezka þinginu
þegar þingið felldi stefnu
stjórnarinnar í launamálum.
Callaghan fór þess samstundis
á leit, að þingið greiddi á morgun,
fimmtudag, atkvæði um trausts-
yfirlýsingu á stjórnina, en ef
stjórnin bíður þá einnig ósigur er
líklegt að efnt verði til kosninga í
landinu innan skamms.
Stjórnmálafréttaritarar í þing-
inu voru þeirrar skoðunar í kvöld,
að þingið mundi samþykkja
traustsyfirlýsingu á stjórn
Callaghans, en með mjög naum-
um meirihluta.
Veðurofsi
London, 13. desember, AP.
MIKIÐ úrfelli og hvassviðri ollu
víða tjóni á Bretlandseyjum í nótt
og þrír ökumenn létu iífið.
Vindhraðinn komst upp f 160
km á klukkustund. Tré fuku upp
með rótum og skemmdir urðu á
mannvirkjum. Þá voru mörg skip
í hættu undan ströndum Bret-
lands og Frakklands í veður
ofsanum.
Diplómatar í Isfahan skýrðu frá
því í dag, að herinn hefði ráðist að
andstæðingum keisarans þegar
þeir gengu berserksgang í borginni
á mánudagskvöldið. Diplómatar
sögðu og að þúsundir stuðnings-
manna keisarans hefðu síðan
gengið berserksgang um borgina á
þriðjudagskvöldið, og þá m.a.
unnið skemmdir á húsum þar sem
myndir Khomaini, leiðtoga and-
stæðinga keisarans, hengu uppi.
Olíuframleiðsla eykst nú með
degi hverjum í íran eftir að hafa
að mestu legið niðri vegna 10 daga
verkfalls starfsmanna olíúfram-
leiðslustöðva. í dag var framleiðsl-
an orðin um þriðjungur af eðlilegri
framleiðslu og starfsmennirnir
streyma til vinnu á ný. Steinolía er
nú flutt inn til írans vegna skorts í
landinu.
Um 90 íranskir námsmenn í
Nýju Dehlí á Indlandi hertóku í
dag írönsku menningarmiðstöðina
í Nýju Dehlí og tóku starfsfólk
gíslingu. Máluðu námsmennirnir
slagorð gegn Iranskeisara á veggi
hússins og drógu rauðan fána að
húni í stað þjóðfána írans.
Miðausturlönd:
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu íslands var um 10 stiga hiti í Reykjavík um miðjan dag í gær, en
þá var logn og blíða í miðborginni. Klukkan sex um morguninn var hitinn í Reykjavík reyndar 9,6
gráður á Celcius. En meðan þessi blíða helzt hér hefur talsverður kuldi verið í Evrópu og myndin sýnir
hvernig ástandið er nú í hinni suðrænu borg Feneyjum, þar er snjór yfir öllu.
Ólíklegt að sættir tak-
ist fyrir 17. desember
Jerúsalem, Kalro, 13. desember, AP — Reuter.
CYRUS Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna ákvað í kvöld að
fara aftur til Washington frá Miðausturlöndum þar sem hann hefur
gert tilraunir til að jafna ágreininginn sem enn ríkir milli Egypta
og ísraelsmanna. Vance lagði í dag fyrir Menahem Begin
forsætisráðherra ísraels uppkast að friðarsáttmála sem Egyptar
samþykktu fyrir sitt leyti, en nýju tillögurnar hlutu dræmar
viðtökur í Jerúsalem, og hefur Vance tekið þá ákvörðun, eftir
viðræður í síma við Jimmy Carter forseta, að snúa heim til
Washington „til að sinna mikilvægum erindum“.
Þær vonir sem bundnar höfðu
verið við þessar síðustu tilraunir
til að ná sáttum milli Israels-
manna og Egypta brugðust, þegar
ljóst varð að nýju tillögunum var
fálega tekið, en áður en Vance hélt
til Jerúsalem í morgun lét hann
svo um mælt við blaðamenn, að
málið væri „á lokastigi". Eftir
viðræðurnar við Begin síðdegis
lýsti Vance þvi hins vegar yfir, að
ennþá væri ágreiningur með aðil-
um, og að málið væri á „mjög
viðkvæmu stigi". Þykir nú ólíklegt
að sættir takist fyrir 17. desember.
Sadat forseti sagðist í dag vera
reiðubúinn til að undirrita friðar-
samkomulag við Israelsmenn þ. 17.
desember, og lagði hann til að
athöfnin færi fram á Sinai-fjalli.
Hann sagði að áður yrðu Israels-
menn að fallast á hið nýja
uppkast.
Áreiðanlegar heimildir töldu þó
frekar ólíklegt að Israelsmenn
gætu sætt sig við nýju tillögurnar,
þar sem í þeim væri gert ráð fyri
kosningum á Vesturbakkanum
næsta ári og að Egyptar fengj
yfirráð á Gaza. Blaðið A1 Ahrar
hafði þó eftir embættismanni
utanríkisráðuneytinu, að mjö;
miklar líkur væru á því a
friðarsáttmáli yrði undirritaðu
17. desember.
Samkvæmt frásögnum ísraelsk;
sjónvarpsins voru tillögur þæ
sem Vance kom með til Jerúsalen
í dag allsendis óaðgengilegar, þa
sem þær væru svo til samhljóð;
síðustu tillögum Egypta til lausn
ar deilunni.