Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 23 Gott verð f yrir aflann erlendis MIKIÐ er um landanir íslenzkra íiskiskipa erlendis þessa dagana «g tvo síðustu daga hafa 12 skip selt í Bretlandi og V Þýzka- landi.Undantekningalaust hafa skipin fengið gott verð fyrir afla sinn og meðalverðið verið frá 355 krónum upp í 434 krónur fyrir kílóið. í gær seldi Sigluvík 100 tonn í Grimsby fyrir 43,4 milljónir, meðalverð 434 krónur. Arsæll Sigurðsson seldi 49 tonn í Hull fyrir 19.6 milljónir króna, meðal- verð 399 krónur. Gylfi seldi 77 tonn á sama stað fyrir 28,2 milljónir, meðalverð 366 krónur. Gullberg NS 11 seldi 85 tonn í Fleetwood fyrir 32,5 milljónir, meðalverð 382 krónur. Arni í Görðum seldi í gær 58,2 tonn í Cuxhaven fyrir 21.7 milljónir, meðalverð 370 krónur. Geirfugl seldi 41,2 tonn í Cux- haven fyrir 15,2 milljónir, meðal- verð 369 krónur. Þá landaði Gylfi einnig erlendis í gær, en tölur um sölu hans höfðu ekki borizt LÍÚ síðdegis í gær. A mánudag lönduðu fjögur skip ytra. Jón Dan GK 141 landaði 120 tonnum í Hull og fékk 42,5 milljónir króna fyrir aflann, meðalverð 355 krónur. Hvanney frá Hornafirði seldi 42.3 tonn í Grimsby fyrir 16.5 milljónir, meðalverð 391 króna. Rauðinúpur frá Raufarhöfn seldi 97,6 tonn í Grimsby fyrir 40 milljónir, meðal- verð 410 krónur. Guðsteinn GK 140 seldi 169,3 tonn í Grimsby fyrir 62.7 milljónir, meðalverð 370 krónur. I dag landa nokkur skip í viðbót ytra: í Bretlandi selja Gissur hvíti, Ólafur Bekkur, Sigurbjörg, Karls- efni og Gullver. I Þýzkalandi selja Fjölnir, Hrafn Sveinbjarnarson og Bergur. Leiðari í Tímanum í gœr: Alþýðubandalagið ígervi tyftunarmeistarans, en Al- þýðufíokkurinn á miHi vita „Eins og alþjóð er löngu kunnugt og best hefur sannast á undan gengnum mánuðum bregður Alþýðubandalagið sér í ólfklegustu kvikinda líki þegar svo ber undir“. Þannig hefst leiðari í Tímanum í gær, en hann hefur yfirskriftina „Sjöfn í öskuna.“ I leiðaranum er deilt á samstarfsflokka Framsóknar- flokksins í ríkisstjórn og borgarstjórn Reykjavíkur. Um gervi Alþýðubandalagsins seg- ir ennfremur f Tfmanumt Nýjasta lfki Alþýðubandalags- ins er gervi tyftunarmeistarans sem agar óstýrilátt lið í borgar málum Reykjavíkur af nokkru yfirlæti og talsverðum þjósti. Ungri konu varð það f sölum borgarstjórnar að anda helst til frjálslega á einum fundin- um, og fyrir það skal hún sett í öskustó að hefðbundnum hætti vandlátra stjúpmæðra.“ Sfðan er getið fjárhagsvand- ræða Reykjavíkurborgar og kaflanum um Alþýðubandalag- ið f leiðaranum lýkur á eftirfar- andi hátti „Gorgeir og yfirlæti eins og það sem þeir hafa nú sýnt einni af sfnum minnstu systrum í borgarstjórn Reykja- vfkur hlýtur að skilja eftir sig sár og verður varla til þess að styrkja samstarfið í borgar- stjórninni“. Þessu næst er vikið að Alþýðuflokknum og þar segir að vinnubrögð Alþýðuflokks- manna séu með þvflfkum endæmum og slíkum öngþveits- brag að torvelt sé að skilja hvað sé á seyði. Sfðan segir að gaman það sem „alikratar“ stundi á kostnað almennings um þessar mundir sé svo villt og hömlulaust að aðeins geti skaðað flokkinn og fulltrúa hans. Niðurlag leiðarans er svo- hljóðandii „Eins og ástatt er fyrir Alþýðuílokknum verða sam- starfsmenn hans þvf trúlega að taka mjúklega á honum um hrfð og Ieiða hann vináttusam- lega sér við hönd og láta ekki ólíklega að honum meðan hann er milli vita og veit ekki sitt rjúkandi ráð í nokkru efni.“ Mál Thorpes fer fyrir Old Bailey Minehead. Englandi, 13. desember, AP. Veður víða um heim Akureyri 5 alskýjað Amsterdam 10 rígning Apena 15 skýjaó Barcelona 19 skýjað Berlín 10 skýjað Brtlssel 8 > rigning Chicago 12 skýjað Frankfurt 12 rigning Genf 9 skýjað Helsinki -6 skýjað Jerúsalem 11 skýjað Kaupmannah. 4 rigning London 12 skýjaö Los Angeles 23 skýjað Madríd 15 rigning Malaga 21 léttskýjað Maliorca 20 léttskýjaö Míami 19 skýjað Moskva -14 skýjað New York 5 skýjað Ósló -2 skýjað París 12 skýjað Reykjavík 8 léttskýjaö Rio De Janeiro 13 léttskýjað Rómaborg 16 skýjað Stokkhólmur 2 skýjað Tel Aviv 17 skýjað Tókýó 14 léttskýjað Vancouver 6 skýjað Vínarborg 3 boka KVIÐDÓMUR sem íjallað hefur um mál Jeremy Thorpes fyrrverandi leið- toga Frjálslynda flokksins og þriggja annarra manna, sem gefið er að sök að hafa stofnað til samsæris um morð, úrskurðaði í dag, að máli fjórmenninganna skyldi vísað til sakamála- dómstólsins Old Bailey í Lundúnum. Ennfremur var ákveðið að höfðað skyldi mál á olíuframleiðsluríkja von- ast til að þrefalda umsvif sín í olíuhreinsun á næstu tíu árum á sama tíma og olíuhreinsunarstöðvar í Vestur-Evrópu eru að minnka umsvif sín að því er haft er eftir háttsettum arabískum embættismanni í dag. Að sögn þessa embættismanns hendur Thorpe fyrir að hafa hvatt mann til að myrða sýningarmanninn Norman Scott. Þegar kviðdómurinn kynnti nið- urstöður sínar var ekki að sjá nein svipbrigði á fjórmenningunum. Við það tækifæri neituðu þeir enn sekt sinni, og Thorpe sagðist mundu verja sig af hörku þegar málið væri tekið upp í Old Bailey. Málaferlin þykja mesta pólitíska hneyksli sem komið hefur upp á Bretlandseyjum frá því að John Profumo ráðherra varð að segja sig úr stjórn Harolds Macmillan árið 1963 vegna sambands síns við Kristínu Keeler. ættu aukin umsvif OPEC-ríkja í olíuhreinsun ekki að koma svo mjög við efnahag hinna vestrænu ríkja þar sem flestar hreinsunar- stöðvar þeirra væru orðnar úrelt- ar. Samkvæmt þessari áætlun mundu ríki Vestur-Evrópu, Japan og Bandaríkin hugsanlega þurfa að auka mjög viðskipti sín við Arabaríkin. Gert er ráð fyrir því samkvæmt áætluninni að hægt verði að hreinsa 6—7 milljónir tunna á dag á móti 2 milljónum nú, en dagleg framleiðsla OPEC- ríkja er 20 milljónir tunna. OPEC-ríkl: Auka eigin olíuhreinsun Abu Dhabi, 13. desember — AP RÍKI í OPEC samtökum Þetta gerðist 1977 — Undirbúningsviðræður ísraelsmanna og Egypta í Kaíró. 1971 — Samkomulag Nixons og Pompidous um gjaldeyrismál. 1963 — Fyrstu myrkvanir af völdum orkukreppu í Bretlandi. 1%1 — Stórsókn gæzluliðs SÞ til Elizabethville í Katanga. 1954 — Enosis-málið á Kýpur leiðir til óeirða í Aþenu. 1946 — Stofnun aðalstöðva SÞ í New York samþykkt á Allsherj- arþinginu. 1945 — George Marshall sendur til að miðla málum í Kína. 1941 — Bandarískir landgöngu- liðar veita viðnám á Wake-eyju. 1939 — Rússland rekið úr Þjóðabandalaginu. 1918 — Sidonio Paes, forseti Portúgals, ráðinn af dögum. 1916 — Danir samþykkja í þjóðaratkvæði að selja Banda- ríkjamönnum Dönsku Vest- ur-Indíur fyrir 25 milljónir dollara. 1913 — Grikkir innlima Krít. 1911 — Amundsen kemur á Suðurpólinn fyrstur manna. 1877 — Serbar í stríð með Rússum gegn Tyrkjum. 1822 — Ráðstefnunni i Verona lýkur. 1799 — George Washington andast í Mount Vernon, 67 ára 1542 — Valdataka Maríu Skota- drottningar eftir lát Jakobs V. Almæli dagsinst Tycho Brahe, danskur stjörnufræðingur (1545—1601) — James Bruce, Fry, 1934) leik- — Lee Remick, kona (1935— ). Innlenti „Vísir“, fyrsta íslenzka dagblaðið, hefur göngu sína 1910 — „Coot“, fyrsti togari Íílend- inga, strandar á Keilisnesi 1908 — Bændaflokkur stofnaður 1933 — 25 farast í fárviðri 1935 — D. Helgi Helgason tónskáld 1922 — Árni Helgason biskup 1869 — Vígð kirkja á Eyrarbakka 1890 — F. Hannes Pétursson 1931. Orð dagsinsi Blekkingin um betri tima en samtímann hefur trúlega gagntekið alla tíma — Horace Greeley, bandariskur ritstjóri (1811-1872). . TWEED& AFTUR TWEED ADAfflJOfl frá Kóróna BANKASTR/ETI 7. SÍMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SÍM115005.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.