Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 35 Sigurjón Hafdal Guðjónsson Þegar við í dag kveðjum félaga okkar og vin, Sigurjón Hafdal Guðjónsson, „Dalla“ eins og hann var ávallt kallaður af vinum hans, er margt sem kemur upp í hugann. Leiðir okkar lágu saman í Sund- deild Ármanns árið 1950. Var hann þá í mörg ár búinn að vera þar í fremstu röð sem bringusund- maður og þá einnig orðinn stoð og stytta hins frækna sundknatt- leiksliðs félagsins. Þegar ég hóf keppni með liði félagsins, fannst mér Dalli vera orðinn hálfgerður „karl“ í sundinu og hann hlyti að fara að hætta keppni. En það var nú öðru nær. Leikgleði og kunn- átta hans var einstök. Var það góður skóli fyrir okkur sem yngri voru að fá að æfa og keppa með honum. Oft var hart barist bæði í keppni og á æfingum og hrósuðum við þá happi að leika heldur með honum en á móti, því að var engvar vægðar að vænta þar sem honum var að mæta. Fyrirliði Ármannsliðsins var Dalli í mörg ár og fórst það vel úr hendi, enda vann hann það afrek, sem enginn íslenzkur íþróttamað- ur hefur enn náð, en það var að verða 25 sinnum Islandsmeistari í sömu íþróttagreininni og sennilegt að það Islandsmet verði seint slegið. En Dalli var ekki aðeins félagi okkar í leik. í daglega lífinu var hann ávallt fús að rétta okkur hjálparhönd og var þá sama hamhleypan og í íþrótt sinni. Ég veit að við erum margir sundfélag- arnir, sem í dag látum hugann reika til gömlu daganna og þökk- um við honum allar samveru- stundirnar af heilum huga. innilegustu samúðarkveðjur og Við félagar í Sunddeild Ár- biðjum góðan Guð að blessa manns sendum eiginkonu hans, minningu góðs vinar. börnum og öðrum ástvinum, okkar Pétur Kristjánsson. + Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför SIGURÁSTAR G. NÍELSDÓTTUR, Laugavagi141, Kari Guömundaaon Guömundur Guðmundaaon Stoinn Guðmundaaon Maraibil Guömundadöttir. t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför elsku litlu dóttur okkar og systur JENNÝJAR BÁRU Sigríöur Þoratoinadóttir Guölaugur Jónaaon Vaktía Guðlaugadóttir -raunhæfir möguleikará aðiækka byggingarkostnað Við bjóðum húsbyggjendum nýjung sem lækkar byggingarkostnað: Steypumót úr áli og vatnsþéttum krossvið svo létt og meðfærileg að einn maður getur auðveldlega slegið upp fyrir heilli hæð. Stærsta einingin 0.6x2.7 m vegur aðeins 29 kg. Annar ávinningur felst í fljótlegri samsetningu vegna handhægra tenginga, auðveldri hreinsun mótanna og að óþarft er að múra veggina vegna þess hvað flekarnir eru sléttir og falla þétt saman. Kerfið býður einnig upp á auðvelda leið til að festa vinnupalla sem notaðir eru þegar steypt er. Mismunandi flekastærðir og hinar handhægu tengingar gera kleift að nota álformmótin fyrir hinar ólíkustu byggingar: einbýlishús, raðhús, parhús, stigahús sem iðnaðarhús. Kerfið er sænskt og hefur gefið góða raun víða um heim. Notkun þess er nú hafin hér á landi, m. a. við smíði 14 húsa í Seljahverfi fyrir Byggingasamvinnufélagið Vinnuna. Þjónusta tiíboó Við bjóðum fjölbreytta þjónustu: Leigu á mótum, tilboð í að gera hús fokheld eða tilboð í hina ýmsu verkþætti, s. s. verkfræði- og teiknivinnu, jarðvinnu, mótauppslátt, pípulagnir, raflagnir og múrverk. Sé allt verkið á einni hendi tryggir það hámarks hraða og hagkvæmni í framkvæmdum. Höfum vana menn og tilboðin gerum við yður að kostnaðarlausu. Leitið nánari upplýsinga sem fyrst. byrg i H FANNBORG 7, KÓPAVOGI F SÍMI: 43307

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.