Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 7 Þeirra eigin orö Morgunblaðið hefur að undanförnu rifjað upp ýmis ummæli sem svo- kallaðir forystumenn verkalýðshreyfingarinnar eða flokksleiðtogar Alpýðubandalagsins sögðu um „samningana í gildi“ fyrir kosningar og eftir að ríkisstjórn skatt- heimtunnar settist að völdum. Eins og pessi ummæli bera með sér, skiptir algjörlega í tvö horn eftir tímasetning- unni: Fyrir kosningarnar var rauði práöurinn í áróðrin- um pessi: „Við látum ekki bjóða okkur Þá ósvinnu að samningar séu rofnir á okkur“, svo að vitnað sé til Lúðvíks Jósepssonar. „Þeir sem hafa 120—150 Þús. kr. í laun á mánuði neita Því að hlýða á sparnaðarraus Þeirra, sem sjálfir hafa 8—900 Þús. kr. á mánuði", sagði hann ennfremur. Og til Þess að halda sig við Neskaupstað er ekki úr vegi að rifja upp, hvað formaður verkalýðs- félagsins par, Sigfinnur Karlsson, sagöi eftir að ríkisstjórn skattheimt- unnar var mynduð: „Gagnvart láglaunafólki tel ég Það ekki koma til greina að hleypa Þeirri 12—14% kauphækkun, sem koma á 1. des. n.k., út í verðlagið. í kjölfarið myndi svo koma hol- skefla af hækkunum og svo 15—20% gengisfell- ing í janúar. Verra gæti varla komið fyrir lág- launafólk. ... Ég óttast pað, að ef Þessi 12—14% kaup- hækkun fer út í verðlagið, kalli pað á 20—25% fisk- verðshækkun, sem aftur á móti Þýðir, að frystihús- in stöðvast og atvinnu- leysi heldur innreið sína og síðan, eins og ég sagði áðan, gengisfelling enn á ný. Þess vegna tel ég Það betra fyrir verka- fólk aö gefa eitthvað lítillega eftir nú, heldur en að fá á sig holskeflu verðhækkana." Ekki pólitík, sagöi Guö- mundur J. Það er auðvelt verk að halda áfram að láta orðin fyrir kosningar tala til Þess aö afhjúpa enn frekar mestu svik kosn- ingafyrirheita borið sam- an við efndirnar eftir á. En einhvers staðar verö- ur að láta staðar numið. Þó er óhjákvæmilgt að rifja upp skírskotun Guðmundar J. Guðmundssonar til Þess, að hinn almenni verka- maður og verkakona væri heiðarlegt fólk, orðheldið og mætti ekki vamm sitt vita. Þetta sagði hann fyrir kosningar og tók sérstaklega fram, að hann skildi ekki Það fólk, sem héldi, að pólitískar hvatir lægju að baki and- stööu sinni við efnahags- aðgeröirnar í febrúar. Nú liggur Það fyrir svart á hvítu, aö Þessi sami maður beitti sér sérstaklega fyrir Því, að Verkamannasamband is- lands lýsti yfir stuðningi sínum viö efnahags- aðgerðirnar 1. desember, sem fólu í sér 8% skerð- ingu á kaupgjaldsvísitölu, og lét pess jafnframt getiö á AlÞingi, að hann væri „ákaflega ósmeykur við aö koma fram fyrir“ sína „félaga með pessa réttindalöggjöf". Þaö er ekki að ófyrir- synju að Guðmundur J. Guðmundsson hefur hlotið viðurnefnið „jaki“. ^Þá munum við greiða öDum borgarstarfsmönnum laun í samræmi við samninga” - sagði Sigurjón Pétursson for- seti borgarstjórnar \<t. Austurstræti 22 2. hæö sími 281 55 Þakkir Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem á margvíslegan hátt glöddu mig á 75 ára afmæli mínu þann 24. nóvember s.l. Jón Kr. Elíasson, n Bolungavík. Fræðslufundur Haldinn veröur fræöslufundur fimmtudaginn 14. des. n.k. kl. 20.30 í Félagsheimili Fáks, sýndar veröa kvikmyndir ma. frá Evrópumótinu 1977 í Skiveren, Kappreiöum Fáks og ef til vill gamlar landsmótsmyndir. Hestamannafélagið Fákur. Þegar faríð er í bæinn til fatakaupa Stakir jakkar og föt. Ný tískusnið. Stórkostlegt úrval af herrafatnaöi. Hagstætt verö t.d. Fötfrákr. 40.900 Stakir jakkar frá kr. 24.700 Skyrtur frá kr. 2.990 Terelynebuxur frá kr. 9.900. Austurstræti :27211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.