Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 3 Viö höfum svar viö 200 kr. benzínveröi Þaö er óþarfi aö fjölyröa um sífellt hækkandi benzínverö hér á landi. Síöustu spár gefa til kynna aö um næstu áramót veröi lítrinn kominn í 200 kr. Þaö er dýrt að reka bíl meö því veröi. DAIHATSU CHARADE er japanskur verölaunabíll, sem kallaöur hefur veriö rökréttur valkostur á tímum hækkandi eldsneytisverös og orkukreppu. DAIHATSU CHARADE sigraöi í sparaksturskeppni Bifreiöaíþrótta- klúbbs Reykjavíkur á sl. mánuöi er hann fór 99.11 km á 5 lítrum af benzíni, sem þýöir aö hægt á aö vera aö aka á 35 lítrum austur á Langanes. DAIHATSU CHARADE er 5 manna, fimm dyra framhjóladrifinn fjölskyldubíll. Þriggja strokka fjorgengisvél tryggir hámarks orku og eldsneytisnýtingu. Hefur þú efni á aö kaupa bíl án þess aö kynna þér rökrétta valkostinn DAIHATSU CHARADE? Ný sending til afgreiðslu strax. SPARAKSTUR (51KR Daihatsuumboöiö Ármúla 23 sími 81733. „BILIÐ milli flokkanna er alls ekki breitt og ég hef ekki trú á öðru en að samkomulag náist á ríkisstjórnarfundinum í fyrra- málið,“ sagði ólafur Jóhannes- son forsætisráðherra er Mbl. spurði hann í gær um ágreining stjórnarflokkanna varðandi tekjuöflun ríkissjóðs. „Ég hef mínar tillögur varðandi sum atriði málsins og þær liggja fyrir bókaðar,“ sagði forsætis- ráðherra, en hann kvaðst ekki vilja láta þær uppi að svo stöddu. Mbl. spurði forsætisráðherra um ástæður þess að hann sleit ríkisstjórnarfundi á þriðjudag. „Ég held ég hafi nú ekki tekið orðið af neinum," sagði Ólafur. „Að mínu mati var ekki ástæða „Ég ímynda mér að það geti verið nokkuð mikill stormur í vatnsglasi, ef svo ber undir“ Mbl. spurði forsætisráðherra þá, hvað hann vildi segja um fullyrðingar þingmanna Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags þess efnis að samstaða hefði náðst milli þessara tveggja flokka varðandi tekjuöflun ríkissjóðs og að ætlunin hefði verið að stilla Framsóknarflokknum upp við vegg: „Þetta þykja mér ekki hugguleg tíðindi," svaraði Ólaf- ur, en hann kvaðst ekki hafa orðið slíks samblásturs var á ríkisstjórnarfundinum. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra: Oft góð regla að hvíla sig og hugsa sig um til að ræða málin frekar þarna. Það var orðið framorðið og ég taldi menn hafa gott af því að hvíla sig. Það er oft góð regla að hvíla sig og hugsa sig um.“ Mbl. bar þá undir forsætisráðherra sagnir sem gengu á. Alþingi í gær um að hann hefði farið til Þingvalla og vildu menn leggja ýmsar merkingar í þá ferð. „Mér hefur liðið vel í dag,“ sagði Ólafur. „En ég sé nú enga ástæðu til að tíunda mínar ferðir opinberlega." Og þegar Mbl. spurði hann um þá áminningu hans í lok ríkisstjórnarfundarins á þriðjudag, að það væri stutt leið til Bessastaða, hló Ólafur við og sagði: „Mér finnst það svo ágæt fyrirsögn hjá Morgunblað- inu að ég get ómögulega verið að fetta fingur út í hana.“ Loks bar Mbl. undir forsætis- ráðherra þau ummæli sem einn af ráðherrum Alþýðubandalags- ins lét falla þess efnis að þessi átök í ríkisstjórninni væru að- eins stormur í vatnsglasi. „Það getur sennilcga verið afstætt," sagði Ólafur. „Ég ímynda mér að það geti verið nokkuð mikill stormur í vatnsglasi, ef svo ber undir." Skiptar skodanir um skilning ASÍ SAMBANDSSTJÓRNARFUND- UR Alþýðusambands íslands var haldinn í lok síðustu viku. Á fundinum 'gerðist það m.a. að Hermann Guðmundsson lagði til, að úr tillögu um ályktun um kjaramál yrði fellt niður orða- lagið> „... lýsir _ sambands- stjórnarfundur ASÍ skilningi sínum á nauðsyn aðgerðanna ...“ Talsverðar umræður urðu um þessa tillögu og lýstu sumir því að vel mætti fella niður ákveðinn greini á orðinu „aðgerðanna". Þegar gengið var til atkvæða var tillagan felld með 23 atkvæðum gegn 6, en 19 fundarmenn sátu hjá. Var tillagan því felld með minni- hluta fundarmanna eða 47,9% Kona slasast í umferðinni — Yitni vantar að slysinu LÖGREGLAN var kölluð upp á Laugaveg laust eftir klukkan 10 í gærmorgun vegna umferðarslyss. Þegar lögreglumenn komu þang- að fundu þeir konu liggjandi á nyrðri akgrein Laugavegar á móts við húsið númer 178 en engan fundu þeir bílinn. Konan var flutt á slysadeildina og reyndist hún talsvert slösuð, m.a. mjaðmargrindarbrotin. Hún hafði þá sögu að segja, að hún hefði verið að koma úr strætis- vagni, leið númer 5, og hefði hún festst í vagninum með fyrrgreind- um afleiðingum. Hins vegar kann- ast vagnstjórinn ekki við að hafa orðið var við nokkuð slíkt. í þessu sambandi þarf slysa- rannsóknadeild lögreglunnar nauðsynlega að ná tali af konu, sem stóð í strætisvagnaskýli þarna rétt hjá og sá hvað gerðist. Kona þessi gaf sig á tal við tvo menn eftir slysið en gaf sig ekki fram við lögregluna. Er konan vinsamlega beðin að hafa samband við lögregl- una strax. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í öllum kjördæmum: Hringvegurinn og vegir til allra þéttbýlisstada á landinu verði lagðir slitlagi á næstu 15 árum ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins úr öllum kjördæmum landsins hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um varanlega vegagerð. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að á næstu fimmtán árum verði lagðir vegir með bundnu slitlagi til allra þéttbýlisstaða á landinu. auk þess sem hringvegurinn verði lagður slitlagi. Er þessu fimmtán ára tímabili skipt niður í þrjú tímaskeið, 1979 til 1984,1984 til 1989, og 1989 til 1994. í tillögunni er einnig gerð grein fyrir á hvern hátt megi fjármagna þessar framkvæmdir. Stálu sígar- ettum fyrir 300 þúsund RANNSÓKNARLÓGREGLA ríkisins hefur upplýst innbrot í verzlunina Iðufell fyrir þremur vikum en þá var stolið 50 lengjum af sígarettum og einhverju af vindlum, en söluandvirði þýfisins mun vera nálægt 300 þúsund krónum. Tveir piltar tæplega tvítugir reyndust vera þjófarnir. Níu lengjur af sígarettum komu í leitirnar hjá piltunum. I greinargerð með þingsályktunar- tillögunni er sagt, að það sé brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar að gerðir verði vegir til allra þéttbýliskjarna á landinu, og að lagðir verði vegir upp úr snjó. Samhliða beislun orku fallvatna og í iðrum jarðar sé þetta einnig arðbærasta framkvæmdin. Því beri nauðsyn til þess, að Alþingi taki þegar í stað ákvörðun í máli þessu. Samkvæmt tillögunni er fyrsta tímabilinu, árunum frá 1979 til 1984, skipt niður í sjö framkvæmdahluta: a) Þjórsá — Vík í Mýrdal. b) Kjalarnes — Akureyri — Húsa- vík. c) Egilsstaðir — Eskifjörður — Fáskrúðsfjörður. d) Höfn í Hornafirði — Flugvöllur. e) Isafjörður — Bolungarvik og ísafjörður — Súðavík. f) Tenging við Akranes, Hvamms- tanga, Sauðárkrók, Dalvik, Þorláks- höfn, Eyrarbakka, Stokkseyri. g) Ólafsvík — Hellissandur. Framkvæmdum á tímabilinu frá 1984 til 1989 er skipt niður í tíu framkvæmdaliði: a) Borgarnes — Stykkishólmur — Búðardalur að Þorskafjarðarheiði. b) Patreksfjörður — Tálknafjörður — Bíldudalur. c) ísafjörður — Flateyri — Þing- eyri. d) Blönduós — Skagaströnd. ej Sauðárkrókur — Siglufjöröur. f) Aðaldalur — Reynihlíð. g) Egilsstaðir — Jökulsá á Dal. h) Fáskrúðsfjörður — Höfn í Hornafirði. i) Biskupstungnavegur að Laugar- vatni. j) Skeiðavegur að Þjórsárdalsvegi. í þriðja lið framkvæmdaáætlunar- innar, það er á árunum 1989 til 1994, er gert ráð fyrir að hringvegi veri Iokið, allir þéttbýlisstaðir tengdir, og auk þess byggðir upp fjölförnustu dreifbýlisvegir eftir því sem fjár- magn hrekkur til. Framkvæmdir verði fjármagnaðar þannig: 1. Með happdrættisláni, 2000 milljónir króna á ári. 2. Með framlagi Byggðasjóðs, 1000 milljónir króna á ári. 3. Með umframtekjum af sérskött- um umferðarinnar frá og með næstu áramótum, þó eigi lægri fjárhæð en 2000 milljónir króna á ári. í tillögunni er gert ráð fyrir að allar framangreindar fjárhæðir haldi raungildi sínu ár frá ári. Þá verði einnig athugað sérstaklega að stytta framkvæmdatímabilið úr fimmtán árum í tíu, sé þess kostur. Þá gerir þingsályktunartillagan ráð fyrir þvi, að tekin verði erlend lán til framkvæmdanna þegar og ef þörf gerist í samræmi við lánsfjár- áætlun hverju sinni, og ennig til eftirtalinna verkefna: 1. Garður og brú yfir Botnsvog. 2. Lúkning Borgarfjarðarbrúar. 3. Göng í gegnum Breiðadalsheiði. 4. Vegsvalir á hættustöðum Óshlíðar og Óláfsfjarðarmúla. 5. Reykjanesbraut (Reykjavík — Kópavogur — Garðabær — Hafnar- fjörður). 7. Brú á Ölfusárós. Með fjármagni á vegáætlun hverju sinni skal leggja sérstaka áherslu á byggingu vega upp úr snjó, og enn fremur hið fyrsta byggingu eftir- talinna snjóþungra og lélegra vegar- kafla, þótt síðar á framkvæmda- tímabili yrðu lagðir bundnu slitlagi: a) Stykkishólmur fjörður — Ólafsvík. — Grundar- b) Djúpvegur og tenging Inn-Djúps við A.-Barð. c) Vesturlandsvegur (efri hluti Norðurárdals). d) Holtavörðuheiði. e) Hrútafjarðarháls. f) Víkurskarð. g) Melrakkaslétta. h) Hvalnesskriður. Flutningsmenn þingsályktunartil- lögunnar eru eftirtaldir þingmenn Sjálfstæðisflokksins: Sverrir Hermannsson, Ólafur G. Einarsson, Matthías Bjarnason, Lárus Jónsson, Eggert Haukdal, Friðjón Þórðarson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Geir Hallgrímsson. Pilturinn sem lézt Myndin er af piltinum frá ísafirði er lézt í bílslysi aðfararnótt sl. sunnudags. Hann hét Gautur Ágúst Ulfarsson til heimilis að Sólgötu 8 á ísafirði og var hann 17 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.