Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 Halldór I. Elíasson: Hausar í sandi Hversvegna er verðbólgan svona slæm, eins og af er látið? Ætli alþingismenn okkar geri sér einhverja grein fyrir því? Við hlustuðum nokkrum sinnum á fjármálaráðherra segja frá því í sjónvarpinu, að hann hefði heyrt nokkra fína menn lýsa því yfir á virðulegum fundi erlendis, að 10% verðbólga væri ákaflega slæm. Ráðherrann dró síðan þá ályktun af þessu, að verðbólgan hjá okkur hlyti að vera beinlínis hættuleg. Nú hamast fjármála- ráðherra við að afla ríkissjóði tekna til að standa að niður- greiðslum, sem að hans sögn og annarra stjórnarþingmanna eiga að draga úr verðbólgunni. Ég ber fulla virðingu fyrir þeirri viðleitni, að standa heldur að niðurgreiðslum með tekjuöflun hjá ríkissjóði en með auðfengn- um (?) yfirdrætti hjá seðlabank- anum eða öðrum lánum. Ég tel hinsvegar að með niðurgreiðsl- unum hafi þingmennirnir stungið höfðum sínum rækilega í sandinn og sannað áþreifan- lega algjört skilningsleysi sitt gagnvart eðli verðbólgunnar. I fyrsta lagi er það vafamál, hvort eiginleg verðbólga verði eitt- hvað minni og í öðru lagi eru niðurgreiðslur líklegar til að hafa jafnvel skaðlegri áhrif á efnahagslífið en verðbólgan megnar. Við getum hugsað okkur, að til niðurgreiðslu sé stofnað með almennri lækkun á söluskatti og tekna sé aflað með því að færa söluskattinn um leið í sama horf aftur. Þannig má finna dæmi þess að niðurgreiðslur þurfi ekki að hafa skaðleg áhrif, en ætli ástæðan sé þá ekki eins og í dæminu hér að ofan, að áhrifin séu engin. Hinsvegar vitum við, að þannig er ekki staðið að niðurgreiðslum, heldur eru ákveðnar vörur greiddar niður og aðrar ekki eða minna. Þannig valda niðurgreiðslur þeirra röskun á verðmyndun, þeirri skekkju í mati verðmæta til peninga, sem er einnig versta afleiðing verðbólgu. Ef einhver ætlar að fara að halda því fram, að verðbólgan orsaki skaðlegar breytingar á verðhlutföllum en niðurgreiðslur hinsvegar góðar, vegna skynsamlegrar valdbeit- ingar, þá vil ég gjarnan sjá dæmi þess. Hvað með niður- greiðslur á landbúnaðarvörum, er þá ekki verið að vinna gegn stefnu landbúnaðarráðherra og bænda, sem vilja draga úr framleiðslunni. Bændur auka auðvitað framleiðsluna til að borga skattana hans Steingrims og selja hana ánægðum neyt- endum á kostnað ríkisins. Annars vildi ég einkum ræða fyrri hluta fullyrðingar minnar, að hin eiginlega verðbólga verði síst minni. Með eiginlegri verð- bólgu á ég við hækkanir á kostnaði við framleiðsluna, hvort sem það er ríkið eða kaupendur framleiðslunnar, sem borga þann kostnað. Hins- vegar þóknast alþingismönnum að kalla hækkanir á vöruverði til neytenda verðbólgu og þeirri „verðbólgu" geta þeir auðvitað haldið niðri, með því að láta ríkissjóð greiða hluta vöru- verðsins áður en varan fer yfir búðarborðið. Von þingmanna okkar hlýtur að beinast að því, að minni hækkun framfærslu- vísitölu, sem mælir búðarverðið, veldur minni hækkun verðbóta- vísitölu og þarmeð minni launa- hækkun, sem síðan gefur minna tilefni til verðhækkana en ella. Þessir ágætu menn virðast ekki kæra sig um að sjá, að inn- heimta þeirra á fé til að sinna niðurgreiðslunum gefur hugsan- lega alls ekki minna tilefni til verðhækkana, heldur en launa- hækkunin sem forðað var. Ég veit ekki betur, en hugmyndin sé að innheimta þetta einkum með álögum á atvinnulífið. Ef sú leið væri alfarið farin, mundi niður- staðan vera svipaðs eðlis og í söluskattsdæmi okkar hér að framan, nema hvað hægt væri að seinka hækkunum í nokkra mánuði. Það er svo sérstakur kapítuli, hvort fjármögnun á niðurgreiðslum með lántökum ríkisins, eykur verðbólguna ekki enn meira. Ef hluti af niðurgreiðslunum er fjármagnaður með beinum sköttum á einstaklinga, þá mundi sá hluti ekki vera verð-. hækkunartilefni (takist laun- þegum ekki að semja um launa- hækkanir á móti) og þannig væri hægt að draga úr verðbólg- unni. En þá væri líka búið að minnka kaupmáttinn og ef það er leyfilegt, þá þarf engar niðurgreiðslur. Þannig er það dálítið furðu- legt, að Alþýðuflokkurinn, sem berst með hvað mestum hávaða gegn verðbólgu, hann vill fara leið óbeinna skatta og fær meir verðbólgu, en Alþýðubandalag- ið, sem er með hávaða um varðveizlu kaupmáttar, það vill beina skatta og dregur þá óvart úr verðbólgu en rýrir kaupmátt. Það er ekki nóg með að hausarn- ir séu komnir ofaní sandinn, heldur þekkist ekki lengur hver á hvaða haus. Seltjarnarnesi 10.12.78 Valdís Óskarsdóttir höfundur bókarinnar Litli loðnufiskurinn. „Litli loðnu- fiskurinn” Ævintýri fyrir börn eftir Valdísi Óskarsdóttur Ut er komin hjá bókaútgáfunni Letri, bókin Litli loðnufiskurinn eftir Valdísi Óskarsdóttur. Þetta er ævintýri fyrir börn og segir frá því að litli loðnufiskurinn fyllist forvitni og vill fá að vita hvað gerist bak við stóra dular- fulla fjallið á sjávarbotni og hvað ,,uppgjörið“ sem eldri loðnurnar tala um sé í raun og veru. Valdís Óskarsdóttfr hefur áður gefið út ljóðabókina Rauði svif- nökkvinn ásamt Ólafi Hauki Símonarsyni, Fýlupokarnir, ævin- týri fyrir börn og Búálfarnir, sömuleiðis ævintýri sem lesið var í morgunstund barnanna s.l. haust. Bókin Litli loðnufiskurinn er myndskreytt af Sigþrúði Pálsdótt- ur sem stundað hefur myndlistar- nám í Evrópu og Bandaríkjunum og er nú nemandi við School of Visual Art í New York. Án þú HEFILBEKK? GUNNAR ASGEIRSSON HF. Akurvík, Akureyri — Reykjavík BYGGINGAVÖRUVERZL. KÓPAVOGS Aðventukvöld í Hvammstangakirkju Hvammstanga, 12. des. SUNNUDAGINN 17. desember verður haldið aðventukvöld í Ilvammstangakirkju fyrir allar sóknir Melstaðaprestakalls. Hefst kvöldið klukkan 21 og verður þar meðal efnis: Upplestur, Sigurður H. Þorsteinsson skóla- stjóri, hljóðfæraleikur, nemendur Tónlistarskóla Vestur-Húnavatns- sýslu, ræða kvöldsins, Brynjólfur Sveinbergsson mjólkurbússtjóri. Þá syngur kirkjukór Hvamms- tangakirkju undir stjórn Helga S. Ólafssonar og í lok samkomunnar verða svo jólaljósin tendruð. Þar sem þetta aðventukvöld er fyrir allar sóknir prestakallsins, er fólk eindregið hvatt til þess að sækja það vel. Sóknarprestur Melstaðaprestakalls er sr. Pálmi Matthíasson. - S.Þ. Landssamband vörubifreiðarstjóra: Vegagerðin hætti að taka vinnulán hjá bílstjórum Á þingi Landssamhands vöru- bifreiðastjóra voru gerðar ýmsar ályktanir m.a. um kjaramál, vinnulánamál. lífeyrissjóði, vcga- mál og innflutningsmál. í lok þingsins var stjórnarkosning og var öll stjórnin endurkosini Einar Ögmundsson Reykjavík, formaður, Ævar Þórðarson Akra- nesi, Guðmundur Helgason Sauð- árkróki, Björn Pálsson Egilsstöð- um, Skúli Guðjónsson Selfossi og Helgi Jónsson Keflavik. í ályktun þingsins um kjaramál segir að brýnasta verkefni sam- bandsstjórnar sé að leiðrétta það „ranglæti sem nú viðgengst gagn- vart viðmiðunargrundvelli bílsins svo og kaupi bifreiðastjórans". Um vinnulánamál ályktaði þingið að skora á Vegagerð ríkisins að hætta töku vinnulána hjá vörubifreiða- stjórum og þótt þau séu heimiluð með þingsályktun Alþingis brjóti þau í bága við 8. gr. gildandi kjarasamnings við LV þar sem segir að akstursgjald skuli greiða hálfsmánaðarlega, auk þess sem þau feli í sér misrétti er fram komi í því, að vörubílstjórar er ekki hafi ráð á að lána verði útundan um vinnu. Telur landsþingið að vinnu- lán megi aðeins eiga sér stað í sérstökum undanþágutilfellum. Um vegamál segir í ályktun þingsins að fagnað er framkom- inni þingsályktunartillögu um lagningu slitlags á helztu þjóðvegi á næstu 10 árum og er skorað á Alþingi að láta ekki sitja við orðin tóm. Lögð er áherzla á aukningu fjárveitingar til vegaviðhalds, að stillt sé í hóf hvers konar gjöldum á ökutæki og auka beri samstarf opinberra aðila og félagasamtaka til að efla umferðaröryggi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.