Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 Frá lundi Hagsmunafélags hrossabænda sem haldinn var í Fáksheimilinu um helgina. Ljósm. Guðl. TryKKVi Karlsson. Eftir slysið á Sri Lanka: Aðeins ein DC-8 þota reyndist á sölulista ÞEGAR eítir flugslysið á Sri Lanka. þar scm Flugleiðir misstu þotu af gerðinni DC-8-63. hófst félagið handa um útvegun ann- arrar vélar sömu tegundar. Sú leit bar ekki árangur, að öðru leyti en því, að það fréttist að svissneska flugfélagið SATA hefði eina slika vél til sölu. Forráðamenn Flugleiða höfðu þegar samband við söluaðila, en þá kom í ljós að um þessa einu þotu kepptu tuttugu flugfélög, og var hún seld fyrir eitt hæsta verð sem um getur fyrir slíka flugvél, eða 12,7 milljónir dollara, ásamt nokkru af varahlutum. Framangreindar upplýsingar komu fram í ræðu Friðriks Sophussonar alþingismanns á Alþingi á þriðjudaginn, er hann ræddi tillögu Ólafs Ragnars Grímssonar um skipun þing- mannanefndar til að rannsaka Flugleiðir og Eimskip. Hagsmunafélag hrossabænda: Hyggst standa að prófmáli um lögmæti útflutningsgjalds Hagsmunafélag hrossabænda hélt fyrir stuttu fund þar sem var m.a. til umræðu skattlagning á útflutning kynbótagripa. Var samþykkt að leyfa stjórn hags- munafélagsins að hefja málssókn á hendur hinu opinbera fyrir skattlagninguna. Skattur þessi er 10% og er lagður á hryssur er fluttar eru út 20 unglingar í skák- ferð til Bandaríkjanna í N/ESTU viku eða nánar tiltekið 22. desember fara 20 börn og unglingar úr nokkrum taflfélögum í landinu til New York í Bandaríkjunum. þar sem þau munu heyja keppni í skák við handarísk börn. Eru fslenzku ungl- ingarnir að endurgjalda heimsókn handarískra unglinga um síðustu jól. svokallaðra Collins-harna, en leiðheinandi þeirra var Jack Collins. Kvöldvaka Fé- lags íslenzkra rithöfunda FÉLAG íslenzkra rithöfunda gengst fyrir kviildvöku á Ilótel Esju í kvöld og hefst hún kl. 20.30. Scx höfundar lesa úr verkum sínum. sem nýkomin eru út. Rithiifundarnir. sem lesa. eru þeir Ármann Kr. Einarsson, Anna Brynjólfsdóttir. Guðlaugur Guðmundsson. Ilafliði Vilhelms- son. Magnea J. Matthíasdóttir og Þórir Guðbergsson. Auk félags- manna er allt hókmenntasinnað fólk velkomið. sá sem kenndi Bobby Fischer að tefla. Með íslenzku unglingunum fara nokkrir fullorðnir, þar á meðal foreldrar sumra barnanna. Hópurinn fer utan 22. desember og kemur aftur 2. janúar. Glæsilegar móttökur bíða hópsins, m.a. mun Edward Coch, borgarstjóri New York, hafa móttöku fyrir hann. En fleiri íslenzkir skákmenn verða á faraldsfæti um hátíðarnar. Jóhann Hjartarson teflir á heimsmeistara- móti sveina, sem fram fer í Hollandi, og mun hann reyna að verja heims- meistaratitil Jóns L. Árnasonar. Jóhann mun hafa aðstoðarmann með sér. Jón L. Árnason teflir á móti í Tékkóslóvakíu, sem honum var boðið á. Sævar Bjarnason mun tefla á Rilton-cup í Stokkhólmi en þangað fer hann í boði Taflfélags Reykjavíkur, en Sævar er nýbakaður haustmeistari félagsins. Þá mun nýbakaður ungl- ingameistari íslands, Róbert Harðar- son, keppa á unglingamóti í Hallsberg í Svíþjóð. Loks keppa tveir ungir skákmeistarar á alþjóðlegu móti í Bergen í Noregi, þeir Elvar Guðmundsson og Jóhannes Gísli Jónsson, en báðir eru 15 ára gamlir. Brldge Umsjón* ARNÓR RAGNARSSON Bridgedeild Víkings Tvímenningskeppni Víkings lauk á mánudaginn og urðu miklar sviptingar síðasta kvöldið. Þeir Lárus og Sigurð- ur, sem náð höfðu góðri for- ystu, voru nú langt frá sínu bezta og Kristín og Hjörleifur gerðu sér lítið fyrir og skutust upp í efsta sætið. Hörð barátta var um þrjú efstu sætin og munaði ekki nema 5 stigum á 1. og 3. sæti. Hins vegar munaði 171 stigi á 1. pari og því sem síðast varð í keppninni. Ekkert verður spilað hjá Víkingum fyrr en eftir hátíðar, en sveitakeppni félagsins hefst snemma í janúar. Þá er á döfinni milliríkjakeppni við Barðstrendinga eins og undan- farin ár. Röð efstu paranna í tvímenningskeppninni varð þessi, skor paranna síðasta keppniskvöldið innan sviga: Hjörleifur Þórðarson og Kristín Guðlaugsdóttir 1094 (185) Ásgeir Ármannsson og Sigfús Örn Árnason 1090 (198) Guðbjörn Ásgeirsson og Magnús Ingólfsson 1089 (208) Lárus Eggertsson og Sigurður Egilsson 1068 (148) Ásgrímur Guðmundsson og Guðmundur Ásgrímsson 989 (158) Frá Bridgefélagi Kópavogs Þriðja umferð í Buttler-tví- menningi félagsins var spiluð fimmtudaginn 7. des. Besta árangri náðu: Vilhjálmur Sigurðsson — Lárus Hermannsson 85 Ármann J. Lárusson — Haukur Hannesson 79 Grímur Thorarensen — Guðmundur Pálsson 77 Jón Hilmarsson — Guðbrandur Sigurbergsson 75 Böðvar Magnússon — Rúnar Magnússon 72 Jóhann G. Jóhannsson — Kristján Sigurgeirsson 72 Fyrir síðustu umferð eru þessir efstir í keppninni: Grímur — Guðmundur 219 Vilhjálmur — Vilhjálmur 213 Barði — Júlíus 194 Ármann — Haukur 194 Jón H. — Guðbrandur 193 Magnús — Vigfús 182 Síðasta umferð verður spiluð n.k. fimmtudag 14. des. og verður það síðasta spilakvöld félagsins fyrir jól. og 20% á stóðhesta og kom fram á fundinum óánægja meðal hrossa- bænda um hana, þar sem þeir telja hana ekki réttláta eða eðlilega. Framsöguerindi fluttu Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og ræddi hann um beit hrossa á afréttum og Agnar Tryggvason sem ræddi um útflutningsmál hrossa. Kom fram í máli hans að hann teldi það nánast aðför að hrossabændum ef leggja ætti á þá skatt vegna þessa útflutnings. Tillagan sem samþykkt var er svohljóðandi: Aðalfundur Hags- munafélags hrossabænda felur stjórn félagsins að stuðla að því að staðið sé að prófmáli um það hvort standist gagnvart stjórnarskrá landsins að innheimt sé útflutn- ingsgjald af hryssum og stóðhest- um, en tillöguna flutti Halldór Gunnarsson. Jólatónleikar á Dalvík og Akureyri Akureyri, 11. desember. PASSIUKÓRINN og hljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri efna til jólatónleika í Víkurröst á Dalvík föstudaginn 15. desember kl. 21 og í Akureyrarkirkju sunnudaginn 17. desember kl. 20.30. Á efnisskrá eru tvö verk, Samkór Rangæinga heldur aðventutónleika SAMKÓR Rangæinga heldur aðventutónlcika dagana 14.—16. desember í Rangárvallasýslu og Reykjavík. Verða þeir í Stórólfs- hvolskirkju í dag. fimmtudag. 14. desember og Oddakirkju föstu- dagskvöld 15. dcsember og hefj- ast tónleikarnir kl. 21.30 hvort kvöld. I Reykjavík mun kórinn sem gestur Bústaðasafnaðar ásamt sr. Halldóri Gunnarssyni í Holti, flytja tónlist á samkomu í Bústaðakirkju laugardag, 16. desember, og hefst samkoman kl. 21.00. Einsöngvarar með kórnum eru Guðrún Ásbjörnsdóttir, Gunnar Marmundsson og Sigríður Sig- urðardóttir. Undirleikari verður Anna Magnúsdóttir og stjórnandi Friðrik Guðni Þórleifsson. Auk þessa tónleika hefur Sam- kór Rangæinga fyrirhugað að halda tónleika í Akraneskirkju laugardag, 30. desember. Samkór Rangæinga, sem stofnaður var fyrir tæpum fimm árum, hefur sungið víða um Suður- og Suðvesturland og einnig tekið þátt í landsmóti blandaðra kóra. Núverandi formaður kórsins er Rannveig Baldvinsdóttir. Brandenburgarkonsert nr. 5 eftir J.S. Bach og Gloria í D-dúr eftir Antonio Vivaldi, en í ár eru liðin 300 ár frá fæðingu hans. Stjórnendur verða Michael Clarke og Roar Kvam, einsöngvar- ar Lilja Hallgrímsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Þuríður Bald- ursdóttir, en einleikarar Catherine Campbell Frith, fiðla, Mark Frith, þverflauta, Thomas Jackman, píanó, Hjálmar og Sveinn Sigur- björnssynir, trompet, Sigurlaug Arngrímsdóttir, celló, og Helga Hilmarsdóttir, orgel. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Sv. P. Innlán í stað útlána ÞAU MISTÖK urðu í setningu í grein Árna Johnsens um stöðu útvegs í Vestmannaeyjum í fyrradag að þar sem fjallað var um liðlega 6 milljarða króna útlán hjá útibúum Útvegsbanka íslands á landinu í ár átti að standa innlán. Þá misritaðist einnig nafn Halldórs Guðbjarnason- ar bankastjóra Útvegsbanka íslands í Vestmannaeyjum. Er beðið velvirð- ingar á mistökunum. Orgeltónleikar ANTÓNÍO D. Corveiras heldur orgeltónleika í Keflavikurkirkju í kvöld, 14. desember. kl. 20.30. Á efnisskránni eru orgelverk eftir ýmsa höfunda s.s. Czernozorsky, Green. Couperin. Wesley, Holter, Cabena og Messiaen. Antonio starfar nú sem píanó- og orgelkennari við Tónlistarskól- ann í Keflavík og er jafnframt organisti við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann hefur haldið tónleiká víðs vegar um lönd, bæði í Evrópu og Ameríku. Dómkirkj- an er opin EINS og oft hefur verið á minnt, þá cr Dómkirkjan opin alla virka daga nema miðvikudaga kl. 9—5. Nú hefur sú nýbreytni verið tekin upp, að þegar ekki eru athafnir í kirkjunni, þá er þar flutt, af tónböndum um hátalarakerfi kirkjunnar, kirkjuleg tónlist ýmiss konar. Þeim sem leið eiga um miðbæinn þessa dagana er á þetta bent, en þeim fer fjölgandi, sem velja sér áningarstað í Dómkirkjunni stutta stund, leita þangað inn úr hringiðu hraða og lífsannar og sækja sál sinni endurnæringu og styrk. Forráðamenn kirkjunnar vænta þess, að nýbreytni þessi reynist vel, verði ánægjuauki þeim, sem í kirkjuna sækja og mun þá fram- hald á verða. (Frá Dómkirkjunni).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.