Morgunblaðið - 14.12.1978, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
33
Ný þingmál:
Strætísvagnar undan-
þegnir þungaskatti
Leyfisgjald af
gjaldeyris- og
innflutningsleyfum
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp um innheimtu 2%
leyfisgjalds af gjaldeyris- og
innflutningsleyfum af fjárhæð,
sem leyfið hljóðar upp á. Af gjaldi
þessu má allt að þriðjungur, eftir
nánari ákvörðun ríkisstjórnar,
ganga til banka, til að standa
straum af kostnaði við úthlutun
leyfa, en að öðru leyti rennur
gjaldið í ríkissjóð. Hér er um
framlengingu að ræða, ótíma-
bundna, á ákvæði 6. gr. laga nr.
77/1977. I fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 1979 er gjald þetta áætlað
(ríkissjóðs hluti) kr. 350 m.kr.
Innheimt leyfisgjald 1/1 ’78 til
30/11 ’78 hefur numið sem hér
segir: 1) Af ferðagjaldeyrisleyfum
l, 75% eða 154 m. kr., af olíum og
bensíni 0,1% eða 13,6 m.kr. og af
öðrum leyfum 222,4 m.kr. Samtals
390 m.kr.
Strætisvagnar
undanÞegnir
þungaskatti
Svava Jakobsdóttir (Abl), Al-
bert Guðmundsson (S), Jóhanna
Sigurðardóttir (A), Einar Ágústs-
son (F) o.fl. þingmenn flytja
frumvarp til laga, þess efnis, að
strætisvagnar skuli undanþegnir
þungaskatti, enda fari þeir aldrei
út fyrir gatnakerfi þéttbýlis, sem
viðkomandi sveitarfélög beri
kostnað að að öllu leyti.
Flugvallagjald
framlengd
Fram hefur verið lagt sjórnar-
frumvarp um framlengingu flug-
vallagjalds, til samræmis við
frumvarp að fjárlögum næsta árs,
sem þar er talið verða munu 450
m. kr. Gert er ráð fyrir óbreyttu
flugvallagjaldi en það var hækkað
á sl. ári um 100% eða í kr. 3.000-
fyrir fullorðna og kr. 1.500.- fyrir
börn á sl. ári, þ.e. vegna útan-
landsflugs. Innanlandsgjald er kr.
200.-.
Framkvæmd
eignanáms
Bragi Sigurjónsson (A) og þrír
aðrir þingmenn Alþýðufl. flytja
frumvarp til laga um framkvæmd
eignanáms, svohljóðandi:
1. gr.
Á eftir 11. gr. laganna komi ný
grein, 12. grein, sem hljóði svo:
Þegar fasteign er tekin eignar-
námi skal miða fjárhæð eignar-
námsbóta við þá notkun, sem
fasteign er í, þegar beiðni um
eignarnámsmat hefur borist mats-
nefnd, sbr. 4. gr.
Til grundvallar eignarnámsbót-
um skal leggja söluverðmæti
fasteignar og við mat á því skal
hafa söluverðmæti hliðstæðra
fasteigna í viðkomandi landsfjórð-
ungi eða landshluta. Verði því ekki
við komið eða notagildi fasteignar
fyrir eignarnámsþola nemur
meiru, skal miða eignarnámsbæt-
ur við það.
Að öðru leyti skal gæta eftirfar-
andi meginsjónarmiða við mat á
bótum vegna eignarnáms fast-
eigna:
1. Við bótaákvörðun skal taka
tillit til breytinga á notkun eignar
sem eðlilegt er að reikna með eftir
aðstæðum á staðnum, en með
hliðsjón af þeirri starfsemi eða
þeim tilgangi, sem notkun eignar-
innar hefur verið tengd.
2. Ekki skal taka tillit til
möguleika á verðhækkun eignar í
framtíðinni.
3. Ekki skal heldur taka tillit til
þess, hversu mikið eignarnemi
hefði vegna hinna sérstöku þarfa
sinna verið reiðubúinn til að
greiða fyrir eignina, ef eignar-
námsheimild hefði ekki verið fyrir
hendi.
4. Ekki skal meta verðbreyting-
ar, sem leiðir af tilgangi eða
mrkmiði eignarnámstökunnar, né
heldur af framkvæmdum eða
starfsemi, hvorki þegar gerðum né
fyrirhuguðum, sem eru í tengslum
við eignarnámstökun.
2. gr.
12. til 19. gr. laganna verði 13. til
20. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Vitalög og vitagjald
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp að vitalögum, en elztu
Fjórar afgreiðslur Bún-
aðarbankans í Árnessýslu
Búnaðarbanki íslands hefur
opnað nýja afgreiðslu á Selfossi
en liðin eru nú 10 ár frá því
bankinn hóf starfsemi sina í
héraðinu með opnun útibúsins í
Hveragerði. Afgreiðslustaðir
bankans eru því orðnir fjórir
og auk fyrrgreindra staða eru
afgreiðslur á Flúðum og Laug-
arvatni.
Forstöðumaður Selfossdeildar
bankans hefur verið ráðinn
Jónas Ingvarsson fulltrúi. Hann
er fæddur í Reynifelli á Rangár-
völlum 1921, stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni og
síðar Samvinnuskólann áður en
hann réðst til Kaupfélags Árnes-
inga þar sem hann hefur starfað
síðan.
Afgreiðsla Búnaðarbankans á
Selfossi starfar til bráðabirgða
við nokkuð þröngan húsakost, en
áformað er að hún flytjist í nýtt
húsnæði er reist verður á
Austurvegi 10. Þessar fjórar
afgreiðslur Búnaðarbankans
lög um vitamál eru frá 1899. Lögin
fjalla um yfirstjórn, verkefni
vitamálastjórnar, vitanefndar,
landsvita og hafnarvita, vitagjald,
farartálma, vitavörzlu og ýmis
ákvæði.
I frv. er m.a. gert ráð fyrir
að vitagjaldi verði nokkuð breytt,
komi jafnar niður á notendur
vitakerfis og breyta megi því í
reglugerð (í stað laga) og verði það
eingöngu nýtt til rekstrar og
endurbóta á vitakerfinu.
Landmælingar,
lóöir og lögsagnar-
umdæmi
Sérstök stjórnskipuð nefnd
(1975) hefur nú skilað þremur
frumvörpum: um landmælingar,
um mælingar lóða og landa í
lögsagnarumdæmum kaupstaða og
skipulögðum svæðum utan kaup-
staða og frv. til laga um breytingu
á landskiptalögum. Landmælingar
Islands urðu til seip sjálfstæð
stofnun 1956. Þar vinna nú um 20
manns, mest sérhæft fólk á sviði
mælinga, loftmyndatöku, orto-
myndakortagerðar og kortateikn-
ingar, en grundallarmælingar á
landinu var hafið af Dönum á
sinni tíð. í 1. kafla frv. er gert
grein fyrir markmiði landmæl-
inga, í 2. kafla landmælingum á
Islandi og landmælingastjórn, í 3.
kafla eignamælingum og i ítar-
legri greinargerð aðdraganda og
efnisþáttum frumvarpsgreina. Tvö
hin síðastnefndu frumvörpin eru
fylgifrumvörp til samræmingar
við þær breytingar er í aðalfrum-
varpinu eru.
Á leið í skóla
gœtið aÓ
Jónas Ingvarsson.
ge.vma samtals tæpar 1.500
milljónir kr. af innlánsfé Árnes-
inga við síðustu mánaðamót.
Verslanir Karnabæjar eru þær einu sem
bjóöa viöskiptavinum sínum uppá litlar
plötur. Ef Það er aöeins eitt lag sem pú ert
aö leita aö, er engin ástæöa aö kaupa stóra
plötu. Afhverju athugar pú ekki hvort viö
eigum lagiö á lítilli plötu?
Þú getur sparaö pér pó nokkuö á pví.
Okkur er sönn ánægja aö liösinna pér.
Boney M
er nú meö nýtt jólalag Mary’s Boy Child sem flaug
á annarri viku uppí efsta sæti breska vinsældar-
listans. Gagnrýnendur hæla þessu nýja lagi Boney
M. viö hvert reipi og segja aö þetta sé fyrsta
almennilega jólaiagiö í mörg ár. Þetta lag kemur
eingöngu út á lítilli plötu.
Rod Stewart
1 á miklu fylgi aö fagna víöast hvar í heiminum. Enda hefur
3 lagiö „Do you think l’m sexy“ af nýjustu plötunni hans,
trónaö nú á toppnum í Bretlandi. Hvort sem þér finnst
Rod Stewart sexy eöa ekki þá ruddi nýja lagið meö
Boney M., Rod niöur í annaö sætiö í þessari viku. En
Rod kann nú sitthvað fyrir sér eins og þú veist.
Hljómsveitin Chic
er nú talin ein besta diskóhljómsveit heims.
Þeirra nýjasta lag Le Freak er mjög vinsælt
á diskótekum hérlendis sem erlendis. Þetta
lag situr sem fastast í efsta sæti vinsælda-
listanna vestanhafs.
Barbara Streisand og Neil Dimond
eru par ársins í Bandaríkjunum. Lag þeirra „You Don’t Bring me Flowers” hefur
nú þokað niöur í annaö sæti listans fyrir Le Freak meö Chic.
You Don’t bring me Flowers er rólegt lag og ákaflega fallegt.
Boney M. — Mary’s Boy Child
Barbara and Neil — You Don’t Bring Me Flowers
Chic — Le Freak
Rod Stewart — Do You Think l’m Sexy
lan Dury — What a Waste
Just Water — Singing in the Rain
Devo — Yokohama
Devo — Come Back Jonee
David Essex — Oh What a Circus
XTC — Are You Racing Me
Toto — Hold the Line
Yellow Dog — Just One More Night
Darts — It’s Raining
Plöturnar veröa kynntar í Hollywood í kvöld.
Motors — Forget About You
Commondores — Three Times a Lady
Blondie — Picture This
Clout — Substitute
Geoff Wayne — Forever Autumn — úr War of
The Worlds
Abba — Summernight City
Michael Zager Band — Let’s All Chant
Sex Pistols — My Way
Telex — Twist á St. Tropez
Ami Stewart — Knock on Wood
Nick Lowe — American Squirn
IWMV««MNnH
PWHNWKnMM