Morgunblaðið - 14.12.1978, Page 34

Morgunblaðið - 14.12.1978, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978 GAMATIC sjonvarpsspilið GAMATIC býður upp á sex mismunandi leiki: Tennis, fótbolta, squash, boltaleik og tvenns konar skotleiki (skammbyssa fylgir!) Innstunga fyrir allar gerðir sjónvarpa Bæði fyrir sv/hv og litasjónvörp Fjögurra og sex leikja tæki Telur stigin sjálfkrafa Sérstök hraðastilling SPENNANDI LEIKIR .. FYRIRALLA EJOLSKYLDUNA HEIMA í STOFU Gunnar Asgeirsson h.f. Suðurlandsbraut 16, simi 91-35200 KOSTA BODA Verslanahöllinni, Laugavegi 26. Símr 13122 Jólí KastaBoda Klingjandi kristall-kærkomin gjöf Eigum nú til gott úrval allskonar smámuna úr kristal. Jólasveinar, jólabjöllur, jólahlutir og dýr. Upphengi, óróar og ýmsar gerðir af kertastjökum. Allt vandaður listiðnaður, unninn bessir heiðursmenn hafa unnið hjá fyrirtækinu í yfir 20 ár, talið frá vinstrii Hallgrímur Magnússon, Vigfús Runólfsson, Einar Mýrdal, Valur Jóhannsson, Valgeir Runólfsson, Jósef H. Þorgeirsson, Tómas Jónsson, Þorgeir Jósefsson, Hjalti Björnsson, Guðni Jóhannsson, Magnús Magnússon. Sólberg Björnsson, Sigurður Magnússon, Jóhann Stefánsson, Jóhannes Engilbertsson, Ingvar Árnason og Hendrik Steinsson. Á myndina vantar Jón Mýrdal og Jón Pétursson. I>orgeir og Ell- ert hf. 50 ára Akranesi 8. des. 1978. FYRIRTÆKIÐ Þorgeir og Ellert hf. átti 50 ára afmæli í haust. í október 1928 stofnuðu bræðurnir Þorgeir og Ellert Jósefssynir vélsmiðju og voru þeir bræður einu starfsmenn fyrirtækisins fyrst um sinn. Ellert lést árið 1935 og eignað- ist þá Jóhann Pálsson hans hlut en Jóhann hafði lært vélvirkjun hjá þeim bræðrum. Árið 1937 keypti Þorgeir Jósefs- son síðan Dráttarbraut Akraness af þéim Haraldi Böðvarssyni, Þórði Ásmundssyni og Bjarna Ólafssyni & Co. Voru þessi fyrir- tæki síðan rekin hlið við hlið til ársins 1965 að þau voru sameinuð undir nafninu Þorgeir og Ellert hf. Fyrsta skipið smíðaði fyrirtækið árið 1940, það var Sigurfari sem síðan var gerður út frá Akranesi í yfir 20 ár og hlaut síðan nafnið Sæbjörg frá Vestmannaeyjum. Hefur skip þetta alla tíð verið afburða happasælt Nú er fyrir- tækið að byggja sitt 34. skip. Það er 47 m langt nótaveiðiskip fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði. Samið hefur verið um smíði á 50 m löngum skuttogara fyrir Hjálmar Gunnarsson og Gunnar Hjálmars- son á Grundarfirði og verður það í þriðja skiptið sem fyrirtækið smíðar fyrir þá feðga. Jafnhliða skipasmíðum og skipaviðgerðum hefur fyrirtækið annast ýmiss konar þjónustu fyrir Akurnesinga og nærsveitarmenn. Þá hafa byggingar og mannvirkja- gerð verið stór þáttur í rekstri fyrirtækisins, t.d. byggði það sjúkrahúsið, pósthúsið og fjöl- býlishúsið Höfðabraut 14—16. I tilefni 50 ára afmælisins bauð fyrirtækið öllum starfsmönnum og mökum þeirra til kvöldverðar í Hótel Akranesi laugardaginn 25. nóvember. Þar afhenti Jósef H. Þorgeirsson viðurkenningar þeim 18 starfsmönnum sem starfað hafa hjá fyrirtækinu í 20 ár. Þorgeir Jósefsson hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá upphafi en auk hans hafa þessir menn starfað þar lengst: Vigfús Runólfsson 42 ár, Jón Mýrdal 41 ár, Hendrik Steinsson 40 ár, Magnús Magnússon 39 ár og Jóhann Stefánsson 37 ár. Júlíus. Mikil yf irvinna karla og kvenna í KÖNNUN á jafnréttismálum í fjórum kaupstöðum, sem unnin var af Þorbirni Broddasyni og Kristni Karlssyni er kafli um atvinnuþátttöku kvenna, þar sem m.a. kemur fram að 7—11% útivinnandi kvenna vinna meira en 8 klst um helgar, en karlar vinna þó mun meira um helgar. Tæplega 47% karla í Kópavogi, 46% karla í Hafnarfirði, tæp 43% karla í Garðabæ og aðeins 22% karla á Neskaupstað sem vinna utan heimilis, vinna ekkert um helgar. Þannig vinna 34% karla á Neskaupstað og rúmlega 20% karla í Hafnarfirði að jafnaði meir en 8 klst yfir helgar. Þeir sem vinna innan við 8 tíma um helgar, en vinna samt, eru flestir í Garðabæ eða rúm 18% og minnst á Norðfirði 7%. Um vinnutíma kvenna utan heimilis sést á tölum að styttri tíma en 8 klst á dag vinna 53% í Garðabæ og Hafnarfirði, rúm 48% á Neskaupstað og rúm 45% í Kópavogi. Um og yfir fjórðungur kvenna í Hafnarfirði, Garðabæ og Neskaupstað og rúmlega þriðjungur þeirra í Kópavogi, vinna að jafnaði 8 klst á dag virka daga. Samanburður á vinnutíma og starfsstéttum karla og kvenna leiðir ótvírætt í ljós, að konur vinna tekjuaflandi vinnu í mun minna mæli en karlar, vinnutími þeirra, sem það gera, er mun styttri en karla, og margt bendir til þess, að þær séu hlutfallslega mun fleiri í lægra launuðum störfum en karlar. Athygli er öryggi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.