Morgunblaðið - 14.12.1978, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
GOUTEPPI
i MIKLU ÚRVALI
Höfum fjölbreytt úrval af munstruöum ullarteppum.
Einnig einlit teppi úr gerfiefnum, í mörgum litum.
Mottur og stök teppi í sérstaklega miklu úrvali.
Geriö samanburö á veröi og gæöum.
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árangur af
hagstæðum innkaupum
Ferskir
ávextir
Jaffa
appelsínur
3.kg. 885- 295.—pr.kg.
1 kassi 20 kg. 5.780.— 289.-pr.kg.
EplKrauð Delicious U.S.A.
2kg. 650- 325.-pr.kg.
1 kassi 18kg. 5.650- 313.-pr.kg.
Epli * rauð frönsk Delicious
1 kassi 10 kg. 2.950.-
Ekta Clementínur.
1 kassi 10kg. 4.980-
1 kg. 590.-
a
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 1
Opið til
kl. 20.00
laugardag
Ásgeir Daníelsson og Bolli Héðinsson:
F urðuskrif um
Félagsstofn-
un stúdenta
Annar af leiðurum Morgun-
blaðsins 9. desember s.l. ber heitið
„Skipbrot vinstri manna i
Háskólanum". I þessum leiðara er
ráðist með offorsi á það, hvernig
meirihluti vinstri manna í
Stúdentaráði H.I. hefur staðið að
rekstri Félagsstofnunar stúdenta.
Þar sem leiðarinn er uppfullur af
beinum rangfaerslum og undarleg-
ustu fullyrðingum, þá sjáum við
okkur tilneydd til að koma hér á
framfæri leiðréttingum á þessum
furðuskrifum.
Byltingarkennd
umbótastefna
I leiðara Morgunblaðsins
stendur orðrétt: „Stúdentaráð
Háskóla Islands kýs meirihluta
stjórnar Félagsstofnunar
stúdenta. Þegar áhrifa stúdenta-
byltingarinnar var farið að gæta
verulega hér á landi og vinstri
menn höfðu náð meirihluta í
Stúdentaráði, gerðu þeir að sjálf-
sögðu gangskör að því að bylta
stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
Starfsemi hennar skyldi verða í
samræmi við byltingarkennda
„umbótastefnu" hinna róttæku
afla.“
Þegar vinstri menn náðu meiri-
hluta í Stúdentaráði, þá skipuðu
þeir sína fulltrúa í stjórn Félags-
stofnunar stúdenta, eins og hægri
menn höfðu áður gert. Þetta er að
sjálfsögðu eðlilegur gangur mála í
stofnun, þar sem fulltrúalýðræði
ríkir og vandséð, að það hafi eitt
eða neitt með byltingu að gera.
Hvað starfsemi Félagsstofnunar
stúdenta varðar, þá átti sér ekki
stað nein byltingarkennd breyting
við þessi umskipti í stjórn
stofnunarinnar. Hvorki skipulag
né starfsemi Félagsstofnunar
stúdenta breyttist svo umtalsvert
getur talrst. Áhersla á einstaka
þætti starfseminnar og
verðlagning breyttust, en hvorugt
getur talist byltingarkennt. Þetta
eru að sjálfsögðu staðreyndir, sem
fela í sér gagnrýni á .vinstri
meirihlutann í Stúdentaráði og
stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
Þær hugmyndir sem fram hafa
komið um róttækar breytingar á
starfsháttum Félagstofnunar
stúdenta hafa því miður ekki verið
framkvæmdar. Við höfum reyndar
þá afsökun, að þótt Stúdentaráð
H.í. hafi rétt til að tilnefna
meirihluta í stjórn Félags-
stofnunar stúdenta, þá er stofnun-
in sjálfseignarstofnun, sem lýtur
sérstökum lögum og reglugerð,
sem Alþingi ákveður, og málefnum
sem ágreiningur er um í stjórn
stofnunarinnar er hægt að vísa til
úrskurðar menntamálaráðherra.
Ef Morgunblaðið hefur áhuga á að
ræða við okkur framtaksleysi
okkar varðandi meiriháttar
breytingar á starfsháttum Félags-
stofnunar stúdenta, þá erum við að
sjálfsögðu reiðubúin að ræða það
atriði. Hins vegar vísum við
algjörlega á bug órökstuddum
fullyrðingum um byltingarkennda
umbótastefnu, sem fram kemur í
leiðara Morgunblaðsins.
Framkvæmdir Félags-
stofnunar stúdenta
I leiðara Morgunblaðsins er
sagt, að á fyrstu starfsárum
Félagsstofnunar stúdenta hafi
verið ráðist í stórframkvæmdir.
„Félagsheimili stúdenta var reist,
tveimur barnaheimilum komið
upp og ráðist var í byggingu
hjónagarða, sem nú hafa verið
teknir í notkun." Þetta er eitt af
því fáa, sem er rétt í leiðaranum.
Síðar í sama leiðara er síðan
fullyrt, að „Árangur" „umbóta-
stefnunnar" blasir nú við öllum.
Frá því byltingin var gerð, hefur
ekki verið ráðist í neinar nýjar
framkvæmdir í þágu stúdenta.
Ekki hefur einu sinni tekist að
halda í horfinu á stúdentagörðun-
um og eru þeir í hinni mestu
niðurníðslu.“
Deilur milli aðstandenda ein-
stakra ríkisstjórna um það
hverjum sé að þakka, að hinar
ýmsu framkvæmdir áttu sér stað
eða hverjum sé um að kenna þeir
erfiðleikar, sem við er að glíma,
eru yfirleitt ákaflega ófrjóar. I
stað þess, að fólki sé gefið
tækifæri til þess að meta starf-
semi einstakra ríkisstjórna á
raunhæfan hátt, þá ganga klögu-
málin og furðulegustu fullyrðingar
á milli stjórnmálamanna.
Við ætlum ekki að hefja hér
deilu á sama plani um fram-
kvæmdir á vegum Félagsstofnunar
stúdenta. Vinstri menn náðu
meirihluta í Stúdentaráði H.í.
vorðið 1972. Þrátt fyrir þessa
breytingu í Stúdentaráði sátu
„fulltrúar stúdenta", sem kosnir
voru í stjórn Félagsstofnunar
stúdenta af fráfarandi meirihluta
í Stúdentaráði út sitt kjörtímabil
fram til áramóta 1973/74.
Af þeim framkvæmdum, sem
leiðari Morgunblaðsins nefnir er
það að segja, að Félagsheimilið var
byggt á árunum 1969— 71. Ríkið
keypti barnaheimilin Efrihlíð og
Valhöll árin 1968 og 1972 og færði
Félagsstofnun stúdenta að gjöf.
Nauðsynlegum framkvæmdum við
Valhöll lauk árið 1974. Fram-
kvæmdir við fyrsta áfanga Hjóna-
garða hófust 1972 og var honum
lokið 1977. S.l. vor hófust viðgerðir
á Gamla og Nýja Garði. Þessi
viðgerð er endurnýjun á húsum,
sem fullbúin voru 1939 og 1943 og
lítiö verið haldið við síðan.
Eins og áður sagði, þá ætlum við
ekki að fara að karpa við Morgun-
blaðið um það hvernig skipta eigi
þessum framkvæmdum á milli
vinstri og hægri manna í
Stúdentaráði eða stjórn Félags-
stofnunar stúdenta. Það er næsta
fáránlegt að karpa um einmitt
þessa hluti, því að þeir eru allir
undir ákvörðunarvaldi ríkisvalds-
ins. Allar meiriháttar fram-
kvæmdir á vegum Félagsstofnunar
stúdenta eru undir því komnar, að
nauðsynleg fyrirgreiðsla fáist hjá
ríkisvaldinu. Þar með erum við
komin að enn einu atriðinu í
þessum sérkennilega leiðara
Morgunblaðsins, sem ástæða er til
að ræða.
Fjárveitingarvaldiö
Ein af furðulegustu fullyrðing-
unum í leiðara Morgunblaðsins er
þessi: „Þannig hefur verið staðið
að málum gagnvart fjárveitingar-
valdinu, að fjárveitingar hafa
dregist saman ár eftir ár. Nú er
svo komið, að stúdentar verða að
borða kaldan mat við kertaljós í
félagsheimili sínu, nema fjármála-
ráðherra þóknist að láta stofnun-
inni í té fjármagn til að greiða
rafmagnsreikninga sína.“ Hvað á
Morgunblaðið við með orðunum
„Þannig hefur verið staðið að
málum gagnvart
fjárveitingarvaldinu ...“? Félags-
stofnun stúdenta hefur staðið að
málum gagnvart fjárveitingar-
valdinu á mjög hefðbundinn hátt.