Morgunblaðið - 14.12.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, PlMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
37
Árlega hafa verið sendar fjárveit-
ingarbeiðnir ásamt. ítarlegri
greinargerð um rekstur stofnunar-
innar og rökstuðningi fyrir ein-
stökum liðum beiðninnar. Reynt
hefur verið að fylgja þessum
fjárveitingarbeiðnum eftir með
viðtölum við fjárveitingarnefnd,
ráðherra og alþingismenn. Það
væri fróðlegt að vita, hvað
Morgunblaðið álítur rangt við
þessi vinnubrögð.
Reynsla Félagsstofnunar
stúdenta af viðbrögðum ríkis-
valdsins á þessu ári hefur reyndar
kennt okkur, að til sé árang«rsrík-
ari leið til að fá peninga úr
ríkiskassanum, heldur en sú að
rökstyðja málefnalega þá þörf,
sem er fyrir þessa peninga. Það
var ekki nóg að leggja fram
yfirlýsingar heilbrigðiseftirlits og
brunavarnareftirlits um að gömlu
stúdentagarðarnir uppfylltu ekki
þær lágmarkskröfur, sem þessir
aðilaf gera til íbúðarhúsnæðis.
Þau rök bitu ekki á fjárveitingar-
nefnd. Þegar stjórn Félagsstofn-
unar stúdenta hótaði að grípa til
þess neyðarúrræðis að loka görð-
unum um hávetur, þá loksins tók
ríkisvaldið viðbragð og útvegaðir
eru peningar fyrir utan fjárlög til
að hefja framkvæmdir við viðgerð
garðanna. Þessar framkvæmdir
hófust í vor. Það sama skeður
aftur nú í haust. Hlaup á milli
ráðherra og fjárveitingarnefndar
og útskýringar á því, að það væri
einungis tímaspursmál, hvenær
Félagsstofnun stúdenta yrði gjald-
þrota, komu engu til leiðar. Það er
fyrst þegar Rafmagnsveitur
Reykjavíkur hafa lokað Félags-
heimili stúdenta með því að loka
fyrir rafmagnssölu þangað, að
ríkisvaldið útvegar peninga til að
rétta aðeins við fjárhag Félags-
stofnunar stúdenta.
Það má vera, að þetta sé sú
aðferð, sem beita á við fjárveiting-
arvaldið og stjórn Félagsstofnunar
stúdenta hafi of lengi reynt að
sporna gegn afleiðingunum af
lækkun ríkisframlags til reksturs
Félagsstofnunar stúdenta, oft með
því að skerða þjónustu við
stúdenta og hækka framlög þeirra
sjálfra til stofnunarinnar. Bæði
reynsla okkar og reynsla annarra
stofnana og fyrirtækja hér á landi
virðist staðfesta, að þessi baráttu-
aðferð sé vænlegust til árangurs.
Ef það er þetta, sem Morgunblaðið
á við, þá getum við ekki annað en
glaðst yfir, að þessi útbreiddi
fjölmiðill skuli ætla að taka okkar
málstað í átökum af þessu tagi.
Það mun þó ekki breyta þeirri
afstöðu okkar, að við teljum að ef
skynsamleg rök bíta ekki á fjár-
veitingarvald þessa lands, þá er
brýnna að beita starfsháttum
fjárveitingarvaldsins, heldur en
þeirra, sem eiga í útistöðum við
það.
Vísitölubæturnar
Stjórn Félagsstofnunar
stúdenta samþykkkti að greiða
fullar vísitölubætur á laun 1. mars
s.l. í leiðara Morgunblaðsins má
sjá, að ritstjórn blaðsins hefur enn
ekki gleymt þessari ákvörðun.
Þessi ákvörðun var tekin í stjórn
Félagsstofnunar stúdenta eftir að
tilmæli um að greiða fullar
vísitölubætur á laun höfðu komið
frá Stúdentaráði H.í. Með þessari
ákvörðun vildu vinstri menn í
Stúdentaráði H.í og stjórn Félags-
stofnunar stúdenta sýna samstöðu
með baráttu verkalýðshreyfingar-
innar gegn kjaraskerðingarlögum
fyrrverandi ríkisstjórnar.
Þessi ákvörðun hafði engin
afgerandi áhrif á rekstrarstöðu
Félagsstofnunar stúdenta. Það er
þess vegna út í hött að þegar
leiðari Morgunblaðsins dylgjar
um, að þessi ákvörðun hafi orðið
þess valdandi að gjaldþrot vofir
yfir Félagsstofnun stúdenta og
segir að „Við starfsfólkinu blasir
nú, að það fær engin laun greidd
vegna gjaldþrots."
Vinstri menn í Stúdentaráði H.í
og stjórn Félagsstofnunar
stúdenta munu fyrr ganga á eigur
stofnunarinnar og eigin fjármuni
heldur en að standa ekki við
skuldbindingar sínar við starfsfólk
Félagsstofnunar stúdenta. Við
vonum enn, að til slíkra neyðarúr-
ræða þurfi ekki að grípa.
Óraunsæir forystumenn
Eftir allar fullyrðingar leiðar-
ans segir svo undir lokin: „Þessi
lýsing(!) á skipbroti vinstri afl-
anna við störf í þágu stúdenta er
ömurleg, en hún er því miður sönn.
Skýringin á því, hvers vegna
þannig hefur farið er ekki ein-
föld(!) Vafalaust ræður óraunsæi
forystumanna stúdenta miklu."
Það er eins og leiðarahöfundurinn
hafi vaknað af draumi, þegar hér
er komið. Allt í einu er sú einfalda
skýring ófullnægjandi, að ímynduð
byltingarkennd umbótastefna ætti
alla sökina. Þótt augljóst sé á
þessum leiðara Morgunblaðsins,
að þar heldur á penna maður, sem
ekkert veit um málefni Félags-
stofnunar stúdenta, þá ratast
honum satt á munn í síðustu
setningunni. Án efa af tilviljun.
Vafalaust þekkir leiðarahöfund-
urinn engin dæmi um þetta
óraunsæi forystumanna stúdenta.
Við skulum þess vegna tilfæra hér
eitt dæmi. Á undanförnum árum
hafa stúdentar utan af landi
fengið dagvistuð börn sín á kvóta
Félagsstofnunar stúdenta hjá
Sumargjöf. I trausti þess, að
sveitarfélög viðkomandi stúdenta
myndu greiða mismun á daggjöld-
um og rekstrarkostnaði fyrir þessi
börn, þá ábyrgðist Félagsstofnun
stúdenta þessar greiðslur. Inn-
heimta frá sveitarfélögunum hefur
aftur á móti gengið treglega. Við
vonumst reyndar til þess að geta
innheimt stærsta hlutann af
þessum kostnaði. Engu að síður
höfum við neyðst til þess að
krefjast þess af stúdentum utan af
landi, að þeir skili skriflegri
yfirlýsingu frá sínu sveitarfélagi
um að það ábyrgist þessar greiðsl-
ur. Við vonum, að þetta fyrir-
komulag reynist raunsærra en hið
fyrra.
Við getum, ef Morgunblaðið vill,
bent á fleiri dæmi um skort á
raunsæi af hálfu vinstri manna í
Stúdentaráði og stjórn Félags-
stofnunar stúdenta. Við höfum
enga ástæðu til að hræðast
heiðarlega og opinskáa umræðu
um piálefni Félagsstofnunar stúd-
enta eða önnur málefni stúdenta.
Við vonum, að það sé ekki
óraunsætt af okkar hálfu að ætlast
til þess sama af Morgunblaðinu.
Sérhver raunsæ athugun á mál-
efnum Félagsstofnunar stúdenta
mun leiða það í ljós, að megin
ástæðan fyrir því hvernig komið er
fyrir Félagsstofnun stúdenta er að
þvert ofan í gefin loforð, hefur
framlag ríkisins til Félagsstofnun-
ar stúdenta stöðugt minnkað.
Gylfi þ. Gíslason, sem átti stóran
þátt í að koma Félagsstofnun
stúdenta á fót, kvað svo sterkt að
orði um þessa þróun ríkisfram-
lagsins á ráðstefnu um málefni
Félagsstofnunar stúdenta nú í
haust, að hann taldi, að óvíst væri,
að þessi stofnun hefði verið sett á
fót, ef vitað hefði verið, að jafn illa
yrði búið að henni og raun ber
vitni.
Morgunblaðinu og öllum öðrum
stendur til boða að kynna sér
rekstur Félagsstofnunar stúdenta
af eigin raun, og ætti þá engum að
dyljast að við engan annan en
ríkisvaldið er að sakast um
slæman fjárhag Félagsstofnunar
stúdenta.
Að lokum þykir okkur rétt að
benda á niðurlagsorð leiðarans,
þar sem stendur: „Undrun vekur,
hve lengi vinstri mönnum hefur
liðist að ráðskast með hag stúd-
enta að eigin geðþótta og einungis
til ills.“
Stúdentaráð er kjörið í lýðræð-
islegum kosningum og vinstri
menn sigrað Vöku í þeim kosning-
um s.l. 6 ár og því í hæsta máta
furöulegt að tala um að vinstri
mönnum „líðist að ráðskast með
hag stúdenta".
Asgeir Daníelsson.
Formaður stjórnar Félagsstofn-
unar stúdenta.
Bolli Héðinsson.
Formaður Stúdentaráðs Iláskóla
íslands.
saxuLou
eftir
Sigfús Halldórsson
Guðmundur Guðjónsson er
orðinn sérfræðingur í Sigfúsi,
eins og góður maður orðaði það.
Það syngur enginn lögin hans
Fúsa af eins miklum næmleika
og ástúð og Guðmundur
Guðjónsson gerir. Enda eru þeir
góðir vinir og þekkja hverja
taug í hvor öðrum.
Þessi nýja plata þeirra er
ákaflega falleg og ber vott um
þann styrk sem þessir menn
veita hvor öðrum í túlkun
tónlistarinnar. Fagra veröld er
falleg og vönduð hljómplata.
Einnig er ný og
endurbætt útgáfa af
sönglögum Sigfúsar Halldórssonar
komin út.
Sönglögin hafa ekki fengist í
nokkurn tíma og er hér bætt úr
brýnni þörf og annast Steinar h.f.
dreifingu ásamt plötunni.
Sími 28155.