Morgunblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
Ármann sigraði,
en Fram kærði
Á lauKardaginn léku Fram og Ármann í 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik, en þessi tvö lið eru þau sterkustu í deildinni og voru
einu taplausu liðin fyrir þennan leik. Eftir skemmtilegan og
spennandi leik fóru leikar þannig, að Ármann sigraði með 99 stigum
gegn 93 og var sá sigur fyllilega verðskuldaður. Ekki voru Framarar
alveg sáttir við þessi úrslit, því að eftir leikinn kærðu þeir á þeirri
forsendu, að Stewart Johnson, leikmaður með Ármanni, væri
ólöglegur, þar sem hann hefði ekki áhugamannaréttindi. Ármenning-
ar voru þá ekkert að tvinóna við hlutina og kærðu einnig Framara og
kröfðust þess, að þeir legðu fram áhugamannaskírteini fyrir John
Johnson.
En hvað sem öllum kærum líður,
þá var leikurinn allan tímann
mjög jafn, sérstaklega í fyrri
hálfleik. I þeim síðari voru Ár-
menningar sterkari og leiddu
mestallan hálfleikinn, en Framar-
ar hleyptu þeim þó aldrei langt og
munurinn var oftast 6—8 stig.
Undir lokin ná Framarar að
minnka muninn niður í 4 stig,
87:91, og allt getur gerst. Þegar
tæp mínúta er til leiksloka er
báðum Bandaríkjamönnunum vik-
ið af leikvelli með 5 villur eftir að
hafa fengið tæknivíti, en þá var
sigur Ármenninga í höfn og
lokatölur voru eins og áður sagði,
99:93.
Ármenningar voru vel að sigrin-
um komnir, þeir léku vel og höfðu
gaman af því, sem þeir voru að
gera. Stew Johnson var lengi í
gang og hitti illa í fyrri hálfleik,
en í þeim síðari var hann óstöðv-
andi. Atli Arason og Jón Björg-
vinsson voru báðir mjög góðir og
er sá síðarnefndi einn albesti
hraðaupphlaupsmaður í íslenskum
körfubolta. Jón Steingrímsson er
ungur og mjög efnilegur leikmaður
og Einar Ásbjörnsson er leikmað-
-ur í mikilli framför. Þá sýndi
Hallgrímur Gunnarsson gamla
takta og skoraði þýðingarmiklar
körfur.
Það verður að segjast eins og er,
að Framliðið virkaði ekki nógu
sannfærandi að þessu sinni. John
Johnson er snjall leikmaður en
spilar kannski helst til stórt
hlutverk í liðinu, því að á köflum
eru aðrir leikmenn hreinlega ekki
með. Þá er óskaplega leiðinlegt að
sjá leikmenn eyða kröftum sínum í
eilíft nöldur í dómurum og öðrum,
eins og Johnson gerir. Símon
Ólafsson var óvenju daufur í fyrri
hálfleik, en hresstist til muna í
þeim síðari. Þá átti Flosi Sigurðs-
son ágætan leik, en aðrir hafa
oftast leikið betur en að þessu
sinni.
Stigahæstir hjá Ármanni voru
Stew Johnson með 36 sitg, Atli
með 19 og Jón Björgvinsson með
18. John Johnson skoraði mest
Framara, 40 stig, Símon Ólafsson
skoraði 20 og Flosi 16. ÁG.
UMFG
sigraði
Á sunnudaginn léku I íþrótta-
húsi Njarðvíkur í 1. deild körfu-
knattleiksins lið Grindvíkinga og
Keflavíkur. Leikur þessi var jafn
og spennandi allan tímann og
þegar 4 mínútur voru til leiks-
loka var staðan 89-80 UMFG í vil.
En þar mcð hrundi allur leikur
Keflvíkinga og Grindvíkingar
hreinlega kaffærðu þá, en loka-
tölur voru 108-86 eftir að staðan
hafði verið 46-43 Grindvíkingum í
vil í hálfleik.
Bæði liðin standa í skugga stóra
bróður í Njarðvíkum, en eiga
vafalaust bæði eftir að veita þeim
harða keppni þegar fram í sækir.
Langbestur Grindvíkinga var
Bandaríkjamaðurinn Holmes, en
hann skoraði 42 stig í leiknum. Þá
var Ólafur Jóhannesson einnig
góður en hann skoraði 26 stig, en
auk hans var Eyjólfur Bragason
drjúgur en hann skoraði 19 stig.
Bestur Keflvíkinga var að vanda
Björn V. Skúlason, en Björn
skoraði 36 stig. Einar Steinsson
skoraði 19 stig, en Tómas Þor-
steinsson kom mjög á óvart með
góðum leik og skoraði 13 stig.
ÁL/gíg.
• Stewart Johnsson blökkumaðurinn sem leikur með Ármann reynir
körfuskot á móti Fram. Framarar kærðu leikinn á þeirri forsendu að
Stewart hefði ekki áhugamannaréttindi.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
4
Ágúst sigraði
í Kópavoginum
BORGFIRÐINGURINN Ágúst
Þorsteinsson sigraði af öryggi í
Kópavogshlaupi UMSK, sem
fram fór um helgina. en halupið
var á áttunda kílómetra. Með
þessum sigri hefur Ágúst tekið
afgerandi forystu í stigakeppni
viðavangshlaupanna þar sem
hann hefur sigrað í tveimur
hlaupum og orðið í öðru sa'ti í því
þriðja. Thelma Björnsdóttir
sigraði í kvennaflokki hlaupsins.
en stúlkurnar hlupu rúma þrjá
kílómetra.
Það var hlutfallslega stór hópur
hlaupara sem tók sér stöðu á
rásmarkinu á Kópavogsvelli, alls
18 karlar og fimm konur, og luku
allir hlaupinu með sóma. Leið
hlauparanna lá frá Kópavogsvelli
um Fífuhvamm og í hring upp
undir Rjúpnahæð og um Hnoðra-
holt, en því lauk á Kópavogsvelli
eftir sprett í Smárahvammi.
Strax á fyrstu metrunum tók
Á-gúst Þorsteinsson forystuna, en
nafni hans Ásgeirsson fylgdi
honum fast eftir. En sá síðar-
• Ágúst Þorsteinsson
nefndi varð að gefa sig utan í
Rjúpnahæðinni þegar hlaupið var
hálfnað. Á Hnoðraholtinu skaust
Sigfús Jónsson svo upp í annað
sætið.
Tveir Bandaríkjamenn af Kefla-
víkurflugvelli tóku þátt í hlaupinu.
Annar þeirra er hnefaleikamaður,
en hinn hefur hlaupið 800 m á um
1:46 mínútum. Af körlunum voru
10 hlauparar af 18 frá ÍR og sex
frá UBK. Úrslitin urðu annars:
Karjar,
1. Ágúst Þorsteinsson, UMSB
2. Sigfús Jónsson. ÍR
3. Ágúst Ásgeirsson. ÍR
4. Steindór Trygvvason. UÍA
5. Mikko Hame. ÍR
6. Hafsteinn Óskarsson. ÍR
7. Ágúst Gunnarsson. UBK
8. Nate Jenkins, UBK
9. Jóhann Sveinsson, UBK
10. Gunnar P. Jóakimsson, lR
11. Steinar Friðgeirsson, lR
12* Stefán FriðKeirsson. ÍR
13. Hörður Benediktsson, ÍR
14. Guðmundur Ólafsson. ÍR
15. Guðni Sigurjónsson, UBK
lfi. Lúðvík BjörKvinsson. UBK
17. Sinurjún Andrésson, ÍR
18. Walker Shake. UBK
Konur,
1. Theima Björnsdóttir. UBK
2. Hrönn Guðmundsdóttir, UBK
3. Kristhjörg Guðmundsd., UBK
4. Sólveig Kristjánsd., UBK
5. Hanna Friðgeirsdóttir. ÍR
mín.
25.14
25.55
26,26
27.53
28,03
28,28
29.18
29.47
29.53
30,00
30,26
30.55
31,31
32.28
32.47
32.47
33.19
35.14
mfn.
14.38
14.47
15,36
15.53
17,11
Maraþonhandknattleikur
hjá Haukum í Hafnarfirði
Dagana 16. —17. des. verður
haldin 1 Ilaukahúsinu við Flata-
hraun maraþonhandknattleiks-
keppni á vegum hkd. Hauka.
Fyrirkomulag keppninnar verð-
úr á þann veg að tvö 6 manna lið
skipuð leikmönnum Mfl. Hauka
munu spila handknattleik frá því
kl. 8 á laugardagskvöld og þar til
þeir gefast upp á sunnudeginum.
Ekki verða neinar skiptimenn, en
leikmennirnir munu fá 5. mín.
hvíld á hverri klukkustund. Lækn-
ir og hjúkrunarkona munu fylgj-
ast með líkamlegu ástandi leik-
manna meðan á keppni stendur.
Tilgangurinn með þessari
keppni er tvíþættur. Annars vegar
munu leikmenn reyna að setja
heimsmet í handknattleik (í það
minnsta Islandsmet) með því að
spila í rúmlega 20 klukkustundir.
Hins vegar er þetta fjáröflunarleið
fyrir flokkinn. Gefnir hafa verið út
styrktarmiðar sem leikmenn mf.
ætla að selja dagana 13.—14. des.
með því að ganga í hús í Hafnar-
firði. Styrktarmiðar þessir eru
tvennskonar, annars vegar fyrir
einstaklinga sem skuldbinda sig til
að greiða 200 kr. fyrir hverja
leikna klukkustund, og hins vegar
fyrir fyrirtæki, sem skuldbinda sig
til að greiða 1000 kr. fyrir hverja
klukkustund.
í staðinn býður Handknattleiks-
deild Hauka öllum þeim sem
skrifa undir styrktarmiða upp á
kaffiveitingar í Haukahúsinu frá
því kl. 14.00 á sunnudaginn 17. des
og þar til strákarnir í mfl. Hauka
gefast upp.
Hilmar Sigurgíslason
íþróttamaður Kópavogs
• Ililmar Sigurgislason, leikmaður og annar stofnenda HK, með hinn
glæsilega bikar sem Rótaryklúbbur Kópavogs veitti honum. Ljósm.
Mbl. —gg.
Hilmar Sigurgíslason úr Hand-
knattleiksfélagi Kópavogs var
kjörinn íþróttamaður ársins í
Kópavogi. Það er Rotary-klúbbur
Kópavogs sem gengst fyrir þessu
kjöri og var þetta í fimmta sinn
sem slík útnefning fer fram.
Þeir sem áður hafa hlotið
styttuna eru Karl West
Fredriksen fyrir frjálsar íþróttir,
Guðlaug Þorsteinsdóttir fyrir
skák, Sigurður Grétarsson fyrir
knattspyrnu og Berglind Péturs-
dóttir fyrir fimleika.
Hilmar Sigurgíslason er vel að
verðlaununum og titlinum kom-
inn, hann er annar tveggja 12 ára
drengja sem stofnuðu HK fyrir níu
árum og var ritari fyrstu stjórnar-
innar.
Á ýmsu hefur gengið hjá HK en
síðustu tvö árin hefur blásið
byrlega fyrir félaginu. Síðustu tvö
leiktímabil hefur HK unnið sig
upp úr 3. deild í 1. deild og komið á
óvart í haust með ágætum árangri.
Hilmar var valinn í landsliðið í
handknattleik í haust og er hann
fyrsti leikmaðurinn úr HK sem
þann heiður hlýtur.
Þr.