Morgunblaðið - 14.12.1978, Page 48
fíö
dagáf
til jóla
(fuill ^ é>ilfur
Laugavefíi 35
jKgttuflifafrifr
Verzlið
i sérverzlun með
litasjonvorp og hljómtæki.
MCtC? Skipholti 19,
1 BUOIN sími
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978
Samkomulag fulltrúa stjórnarflokkanna:
Skattví sitalan 150 stig
2% hækkun vörugjalds
Skipulagsgjald og flugvallaskatturinn hækka
Jólastemmningin
færist sí og æ í
aukana eftir því sem
nær dregur jólum og
Þaö er ákveöinn
kóssinn á sumum
vegfarendum eins
og sjá má á mynd-
inni sem RAX tók í
Austurstræti
FULLTRÚAR stjórnarflokkanna,
Tómas Árnason fjármálaráðherra,
Katjnar Arnalds menntamálaráð-
horra og Kjartan Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra, komu sér í
ííær saman um tillögur varðandi
tekjuöflun ríkissjóðs, sem lagðar
voru fyrir þingflokkana í gær-
kvöldi. Auk þess 50% tekjuskatts-
stigs á tekjur hjóna yfir 6 milljón-
um króna og 65% tekjuskattsstigs á
atvinnurekstur. sem samkomulag
\ar um fyrir, var í tillögunum í gær
gengið út frá að skattvísitalan yrði
150 stig, vörugjald yrði hækkað úr
16 i' 18%, sérstakur skattur yrði
iagður á skrifstofu- og verzlunar
húsnæði, annað en matvöruverzlan-
ir. skipulagsgjald og flugvalla-
skattur hækka og til komi breyting-
ar á fyrningarreglum, þar sem m.a.
verðstuðulsfyrning er lögð niður.
r
Islensku
íþrótta-
fólki boðið
til Kína
Handknattleikssambandi ís-
lands hefur borist boð frá
íþróttasambandi Alþýðulýð-
veldisins Kína um að senda 40
manna hóp handknattleiks-
manna í 15 daga keppnisferð til
landsins. Ætlast er til, að um
iandslið kvenna og karla sé að
ræða. Kínverjar bjóða allar
ferðir innan Kína svo og uppi-
hald en gert er ráð fyrir, að
tekið verði á móti hópnum í
Peking.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
íþróttafólki berst boð um að
koma í heimsókn til Kína. Er boð
þetta því einstakt og mjög
ánægjulegt. Að sögn Júlíusar
Hafstein, gjaldkera HSÍ, er
málið í athugun en þar sem
ferðakostnaður er mjög hár,
verður þetta nok^rum erfiðleik-
um bundið. Islendingar hafa
leikið þrjá landsleiki við Kín-
verja í handknattleik, tvo hér á
landi og einn í Frakklandi nú
fyrir hálfum mánuði.
Þingflokkar Alþýðubandalagsins
og Framsóknarflokksins samþykktu
samkomulagsgrundvöllinn í gær-
kvöldi, en fundur þingflokks Alþýðu-
flokksins stóð enn er Mbl. leitaði
síðast frétta. Málið verður tekið fyrir
á ríkisstjórnarfundi í dag og verði
það afgreitt þar er stefnt að annarri
umræðu um fjárlögin um helgina.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. tókst að afla sér í gær, er
áætlað að nýju tekjuskattsstigin gefi
ríkissjóði um 3 milljarða króna,
hækkun vörugjaldsins um 1,1 millj-
arð, húsnæðisskattarnir rösklega 500
milljónir króna og hækkun flug-
vallarskattarins 2— 300 milljónir.
„Við hlaupum ekki út úr ríkis-
stjórn fyrir tvö prósent í vörugjaldi,"
sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð-
herra í samtali við Mbl. í gærkvöldi.
„Við teljum að skattalækkunin sem
lofað var 1. desember sé tryggð og í
þessu samkomulagi eru ýmsir liðir,
sem við teljum okkur hafa náð fram
og erum sæmilega sáttir við, en það
er eins og gengur í samstarfi þriggja
flokka, að ekki geta allir haft allt sitt
fram til fulls."
Innan Alþýðuflokksins mun
óánægjan hafa verið mest vegna
skattvísitölunnar, sem flokkurinn
vildi fá í 151 stig, og einnig var
hækkun vörugjaldsins litin óhýru
auga, eins og reyndar líka meðal
alþýðubandalagsmanna, og töldu
Alþýðuflokksmenn eins og Alþýðu-
bandalagsmenn að í stað hennar ætti
að ganga lengra í sparnaði og
niðurskurði en framsóknarmenn
vildu samþykkja.
Sjá viðtal við ólaf Jóhannes-
som Oft góð regla að hvfla sig
og hugsa sig um. Bls. 3
Flugliðamir á
góðum batavegi
MORGUNBLAÐIÐ kannaði í gær
líðan þeirra Haralds Snæhólms
flugstjóra og Oddnýjar Björgúlfs-
dóttur flugfreyju. sem slösuðust
mest í flugslysinu í Sri Lanka.
Þær upplýsingar fengust, að
Harald væri farinn af Borgarspítal-
anum og á Grensásdeild sama
spítala og er hann byrjaður á
gönguæfingum. Oddný liggur á
Landspítalanum og er hún einnig á
góðum batavegi.
DC-10 breiðþotan í
notkun um áramót
Erlendir flugmenn fljúga vélinni fyrst um sinn
DC-10 breiðþota Flugleiða verður verksmiðjunum á þessu ári, en hefur
tekin í notkun á flúgleiðum undanfarna mánuði verið í leiguflugi
félagsins um áramótin og kemur með pílagríma í Asíu. í vélinni er
m.a. sérstakt sjónvarpskerfi fyrir
sýningar á flugi og verður það notað
hún f fyrstu ferðinni frá Luxem
burg til Keflavíkur 2. janúar n.k..
en vélin er áætluð 5 sinnum í viku
til New York í vetur. Þar sem ekki
hefur verið gengið frá samningum
við íslenzka flugmenn í sambandi
við DC-10 þá munu erlendir flug-
menn fljúga vélinni fyrst um sinn,
en íslenzkar flugfreyjur, sem hafa
lokið þjálfun á DC-10, munu starfa
um borð og einnig er að ljúka
þjálfun íslenzkra flugvirkja. 9
flugfreyjur munu starfa um borð í
hverri ferð í stað 5 á DC-8 vélunum.
Verið er að mála breiðþotuna í
litum Flugleiða um þessar mundir og
fækka sætum úr 380 í 358 til þess að
hafa rýmra á milli sæta. Vélin var
sem kunnugt er afhent frá
í vél Flugleiða mjög fljótlega.
Flugleiðir hafa um jólin leigt
DC-10 breiðþotu frá World Airways
til þess að fljúga þrjár ferðir í
áætlunarflugi.
Olíuhækkunin:
Útgerðin þarf 2400
milljóna tekjuauka
HIN NÝJA hækkun á olíum mun
hafa í för með sér 1400 milljóna kr.
útgjaldaaukningu fyrir fiskiskipa-
flotann á ári, að sögn Kristjáns
Ragnarssonar formanns LÍÚ.
Verkamanna-
félagið Hlíf:
Ekkert samráð
við félög innan VMSÍ
— um vísitöluskerðingu
STJÓRN Verkamannafélagsins
Hlífar samþykkti á fundi síðast-
liðinn mánudag mótmæli við
vinnubrögðum framkvæmda-
stjórnar Verkamannasambands
íslands, er samráð var haft um
skerðingu vísitölunnar 1. desem-
ber án samráðs við félög innan
VMSÍ. Krefst Hlíf þess að forystu-
menn VMSÍ „tileinki sér lýðræðis-
legri aðferðir, svo að þeir dagi
ekki uppi eins og nátttröll á
miðri leið í félagslegu tilliti,“ eins
og það er orðað.
Alyktun stjórnar Verkamanna-
félagsins Hlífar er svohljóðandi:
„Stjórn Verkamannafélagsins
Hlífar mótmælir harðlega þeim
ófélagslegu vinnubrögðum fram-
kvæmdastjórnar Verkamanna-
sambands Islands, er viðhöfð voru
í svokölluðum viðræðum verka-
lýðshreyfingarinnar við ríkis-
stjórnina fyrir 1. desember síðast-
liðinn. Það verður að teljast algjör
óhæfa, að ákvarðanir um skerð-
ingu vísitölu á laun séu teknar af
nokkrum mönnum án alls samráðs
við félög innan Verkamanna-
sambandsins, en að samtímis sé
látið í það skína, að fullt samráð sé
haft við verkalýðshreyfinguna.
Þá lýsir stjórn Verkamanna-
félagsins Hlífar yfir undrun sinni
á afstöðu sambandsstjórnar
Verkamannasambands íslands, er
hún mótmælti ekki, þegar framhjá
henni er gengið í mótum tillagna í
jafnalvarlegum málum og kjara-
mál verkafólks eru. Stjórn Verka-
mannafélagsins Hlífar álítur
vinnubrögð þessi valda samtökum
verkafólks óbætanlegum skaða og
krefst þess að forsvarsmenn
verkafólks tileinki sér lýðræðis-
legri aðferðir, svo að þeir dagi ekki
uppi eins og nátttröll á miðri leið í
félagslegu tilliti."
Þessi ályktun var samþykkt í
stjórninni síðastliðinn mánudag
mótatkvæðalaust.
Eins og fram kom í Mbl. í gær,
hækkar dísilolía um 15,6% og
svartolía um 20%, en þessar olíuteg-
undir notar fiskiskipaflotinn aðal-
lega.
„Þessi hækkun er mjög alvarlegur
hlutur fyrir útgerðina," sagði
Kristján, „því hún þarf að fá 2400
milljóna kr. tekjuauka á móti til að
jafna þetta, því vegna hlutaskipta-
reglna fá sjómenn 40% af tekju-
aukanum."
„Þetta er eitt af því sem þarf að
reikna inn í dæmið þegar fiskverð
verður reiknað um áramótin," bætti
Kristján við. „Það hafa einnig orðið
stórkostlegar hækkanir á veiðarfær-
um og fyrirsjáanleg er stórhækkun á
vátryggingum og enn frekari olíu-
hækkanir standa fyrir dyrum. Útlit-
ið er því allt annað en glæsilegt fyrir
útgerðina."