Morgunblaðið - 17.12.1978, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
VER#LD
Heimsendirl
Hafid bid-
lund: stund-
in nálgast!
Oft er búið að hóta manni
heimsendi en aldrei hefur
verið staðið við það. í þetta
sinn er hann á vegum aðvent-
ista. Tímasetninf; er ekki hár-
nákvæm, en þetta verður að
líkindum einhvern tíma „á næstu
mánuðum eða árum“. Neal C.
Wilson, nýkjörinn yfirmaður
Kirkju sjöundadags-aðventista,
leggur nafn sitt við loforðið.
Aðventistar munu verða fleiri
en þrjár milljónir og dreifðir um
heiminn en aðalstöðvarnar í Was-
hington. Þeir eru einna harðastir
trúboðar allra kristinna safnaða,
kirkja þeirra vel rekin og vel stæð
(safnaðarmenn greiða tíund, 10%
allra tekna sinna, í kirkjusjóð) en
markmiðið að komast í guðsríki og
helzt sem fyrst.
Wilson kirkjuhöfðingi er þess
fullviss, að skammt sé að bíða
endurkomu Krists. Þjóðir heims
muni annað hvort farga sér með
kjarnorkuvopnum eða farast í
almennum náttúruhamförum,
Kristur stíga niður tii jarðar og
I stofna ríki sitt, sem kristnir menn
hafa beðið í nærri tvö þúsund ár.
Þetta er ekki í fyrsta skipti að
aðventistar heita heimsendi.
William Miller, upphafsmaður
kenningarinnar, spáði upphaflega'
heimsendi hinn 21. marz 1844.
Gengu 100 þúsund manns til fylgis
við hann í Bándaríkjunum og biðu
saman hins efsta dags. Ekki er
þess getið í annálum að nokkuð
öðru nýrra hafi gerzt hinn 21.
marz 1844. Enda er William Miller
enn á ferðinni í endaðan október
þá um haustið og ætlar að hafa
heimsendi þann 22. hvað sem
tautar og raular. Þann heimsendi
kalla aðventistar sín á milli
„Vonbrigðin miklu“ og segir það
sitthvað.
Eftir þetta töpuðu sumir ístöðu-
iitlir trúnni en aðrir styrktust eins
og gengur, heimsendir var látinn
niður falla í bráð en söfnuðurinn
sneri sér að því að boða trúna á
þann næsta.
Það verður að segjast eins og er
að utansafnaðarmenn hafa til
lítils að hlakka þar sem heimsend-
ir aðventista er. Það komast sem
sé engir í himnaríki nema réttlátir
svokallaðir (bæði lífs og liðnir).
Hinir, óréttlátir, eiga að farast í
eldsiogum samkvæmt dagskránni,
og mun eldur fara hreinsandi
Sanntrúaðir eru ekki þeir einu
sem sjá fyrir ragnarök. Vetnis-
sprengjan hefur fært mannkynið
nær hengifluginu en nokkru
sinni áður í sögu þess.
tungum um heiminn í þúsund ár.
Þá munu Kristur snúa aftur til
jarðar ásamt með réttlátum og lifa
eilíflega. Af óréttlátum fara ekki
frekari sögur, enda réttlætinu
fullnægt.
- COLIN CROSS
Svíþjóð|
Afengið
gert útlægt
úr aug-
lýsingum
ISvíþjóð er prentfrelsi tak-
markalítið, og til að mynda
verður klám seint svo svæsið
að Svíum þyki ástæða til að banna.
Nú ætla þeir samt að fara að
leggja bann við auglýsingu áfeng-
is, þ.e. brennivíns, léttvíns og
sterks bjórs. Einnig verða tóbaks-
auglýsingum settar þröngar skorð-
ur framvegis, þótt ekki verði þær
bannaðar.
Frumvarp til laga um þetta var
samþykkt í Ríkisdeginum í nóvem-
ber síðast liðnum, með miklum
meiri hluta atkvæða, og ganga'
lögin í giidi eftir áramót. En það
eru margir andsnúnir þeim, og
ýmis gild rök hafa verið færð að
því að þarna sé komið inn á
hættulega braut. T.d. hefur verið á
það bent, að lögin meini seljendum
að kynna vöru sína og séu þeir þar
með sviptir grundvallarrétti. Sé
þarna verið að setja fordæmi fyrir
ótal hugsanlegum boðum og bönn-
um svipaðs eðlis; nú megi fara að
takmarka auglýsingar enn frekar,
að nafninu til af félags- og
heilsufarsástæðum en markmiðið í
rauninni að minnka neyzlu og
auka yfirstjórn, forsjón og mið-
stjórn í landinu. Getur svo hver
ímyndað sér hvað næst verði
bannað að auglýsa; e.t.v. verður
það sykur, fita eða bifreiðar, enda
allt stórhættulegt eins og kunnugt
er.
Fyrrnefnt bann við aúglýsingu
áfengis gengur í gildi 1. júlí næsta
sumar. Ættu þá bannmenn í
Svíþjóð að kætast. Þeir hafa
löngum látið mikið að sér kveða,
og aðstaða þeirra verið sterk
miðað við fjölda; þeir hafa jafnan
átt mikil ítök í stjórnmálum,
t.a.m. komust sósíaldemókratar til
valda árið 1932 fyrir tilstyrk
bannhugsjónarinnar. Bannmönn-
um hefur líka orðið það ágengt, að
sænska ríkið hefur afleita sam-
vizku í áfengismálum; það selur
brennivín út úr búð um allt land
en kostar jafnharðan stórfé til
áróðurs gegn því. Mundi þetta ekki
kallast geðkiofi ef maður ætti í
hlut?
Það er erfitt að sjá fyrir áhrif
auglýsingabannsins. Það er þó
ljóst, að dagblöð og tímarit munu
missa spón úr aski sínum, að ekki
sé meira sagt. Það er líka trúlegt,
að ríkið sjálft tapi á banninu;
áfengissala hlýtur að minnka fyrir
vikið.
Þeir sem standa fyrir auglýs-
ingabanninu segja þó ástæðulaust
að óttast, að brennivínstekjur
ríkisins fari minnkandi; Svíar
muni rata í Ríkið eftir sem áður.
Það hefur enda komið í ljós í
kþnnun, að ýmsar þær áfengisteg-
undir sem mest seljast eru lítið og
jafnvel alls ekki auglýstar. Það er
þessum tegundum sameiginlegt að
hlutfall vínandans og verðsins er
kaupendum sérlega hagstætt, og
það fréttist sem sé þótt ekki sé
auglýst...
- COLIN NARBROUGH.
Amslur á aloýöuslódum
Þegar vélrit-
unarstúlkan
er vís — Þá
bilar
apparatið!
Um daginn hirtist í
Literaturnaya Gazeta
grcin þar sem kvartað var
hástöfum um það hve vélritarar
væru vandfengnir í Sovétríkjun-
um. Eru löngu orðin af þcssu
alvarleg vandræði í skrifstofu-
hákninu. en meinið er að til þess
kjörin yfirvöld gera ckkert í
málinu og verða einstakar stofn-
anir að bjarga sér hver sem hún
hezt getur.
Það minnti mig á sögu sem ég
las í Izvestia fyrir mörgum árum;
hún fjallaði um bílstjóra, sem
giftist vélritara og er það nú
varla í frásögur færandi en hitt
undarlegra hversu oft hann var
tekinn fyrir umferðarlagabrot.
Konan hélt framan af að maður-
inn væri bara svona klaufskur við
aksturinn og fjargviðraðist oft
yfir því, en það kom síðar á
daginn, að hann átti enga sök á
þessu aumingja maðurinn —
heidur hún. Málinu var sem sé
þannig varið, að lögreglan á
hverfisstöðinni var oft í vélritara-
hraki, og þegar nokkuð var liðið
frá því sá seinasti kvaddi og
skýrslur voru farnar að hlaðast
óhæfilega upp leituðu þeir fyrr-
nefndan bílstjóra uppi og tóku
hann fastan fyrir eitthvcrt um-
Hryðjuverk
Nú er mælir-
inn fullur:!
segja dómar-
ar á Ítalíu
Hryðjuverkamenn á Ítalíu
létu enn til skarar skríða í
nóvemberbyrjun og myrtu
nú saksóknara, lífvörð hans
og bílstjóra. Morð þessi hafa
vakið mikinn óhug á Ítalíu og ekki
sízt í röðum saksóknara og dóm-
ara.
Segja þeir, að þarna hafi enn
ásannazt að stjórnvöld séu ger-
samlega ráðalaus við hryðjuverk-
um og sé löngu kominn tími til að
stemma stigu við þessum óhugn-
aði. Nú sé mælirinn fullur.
Pertini forseti þóttist tilneyddur
að lýsa yfir því fyrir sitt leyti og
stjórnarinnar, að með þessum
síðustu morðum væri sýnt, að'
baráttan gegn hryðjuverkamönn-
um yrði „bæði löng og erfið“. Þetta
þótti dómurum heldur vægt tii
orða tekið og boðuðu þeir forseta á
sinn fund aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að hann hafði flutt
ræðu um málið og harmað um-
ræddan atburð. Lásu þeir honum
nú pistilinn og kröfðust tafar-
lausrar úrlausnar í sumum efnum
en loforða um úrbætur síðar í
öðrum. Kom í ljós, að þeir höfðu
um margt að kvarta: þeir kváðust
alltof lágt launaðir, lögin sem þeir
ættu að dæma eftir væru ýmist
úrelt eða alltof þung í vöfum nema
hvort tveggja væri, dómstólar
væru alltof mannfáir og svo mætti
telja lengi. Við þetta bætist að
verkföll tefja mjög gang dóms-
mála; það hafa safnazt fyrir
milljónir mála, og sum búin að
vera til meðferðar í nokkur ár.
Einn hryðjuverkamannanna
sem drápu saksóknarann, lífvörð-
inn og bílstjórann var drepinn
sjálfur. Talið er að félagar hans
hafi verið þar að verki. Lögreglan
bar fljótlega kennsl á hann. Þetta
Sveltur
sitjandi
kráka,
sannast á
Mexikönum
að hefur lengi verið mikið
vandamál í Bandaríkjun-
um hve landamæri peirra
og Mexíkó eru greið yfirferöar.
Bæði flykkjast Mezíkanar yfir
pau, meö ólöglegum hætti, pús-
undum saman á ári hverju, í
atvinnuleit, og svo er geysilegu
magni eiturlyfja smyglað yfir pau.
Það er heldur lítið um varnir við
pessu á landamærunum.
Að vísu er vörður við brýr. Og
pað eru girðingar á köflum. En
pær hrökkva skammt: pær eru
tæpir 60 kílómetrar að lengd,
landamærin hins vegar 3.200. Auk
pess er meiri parturinn af girðing-
um pessum illa farinn, pær liggja
niðri sums staðar en rifnar annars
staðar. Því var pað að bandarísk
yfirvöld tóku sig til fyrir skömmu
og fóru að gera við girðingarnar
og auka við pær. Tölurnar hér aö
framan munu Þó ekki breytast
mikið viö pað; girðingarnar verða
eftir sem áður skemmri en nemur
2% af landamærunum.
Það varð talsverður úlfapytur í
Mexíkó pegar Bandaríkjastjórn
tilkynnti að hún ætlaði að fara aö
gera við og girða meira, pótt
Mexíkóstjórn sé að vísu ekki búin
að gera opinberar athugasemdir
við pað. Bandaríkjastjórn ber
auðvitað við peirrí gildu ástæöu
aö hún sé að girða fyrir atvinnu-
leysingastrauminn að sunnan. Sá
fólksstraumur hefur oft orðið
ríkjunum að deilum. Þetta er
ekkert smámál: í fyrra var milljón
manns stöðvuð á landamærunum
og voru pað nærri allt Mexíkanar,
og 300 púsundum fleiri en árið
áður. Er pað til nokkurs marks
um kjör alpýðu manna í Mexíkó.
Milljónir manna hafa að engu að
hverfa heima fyrir. Helmingur
verkfærra manna er atvinnulaus
ellegar hefur litla sem enga vinnu,
og Þjéöinni fjölgar um 3.5% á ári.
Það er pví lítil furða, aö Þetta fólk