Morgunblaðið - 17.12.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
11
a samvisku í áfengLsmálum..,
jafnframt stórfé til áróðurs
(Sjá Svíþjóð)
ferðarlagabrot sem þeim datt í
hug. Hann var svo jafnan látinn
laus gegn því skilorði að konan
hans vélritaði upp í dóminn ...
Konan reit svo Izvestia bréf og
kvartaði um þessa málsmeðferð.
Ekki veit ég hvernig það fór, en
hitt veit ég að ástandið hefur
heldur versnað frá því þetta var.
Greinarhöfundur í
Literaturnaya Gazeta heldur því
fram að vélritaraskorturinn stafi
aí því m.a. að vélritarar séu
heldur lágt metnir. Það eru þeir
visvsulega. en ætli hitt valdi ekki
meiru hve þeir eru lágt launaðir.
Vanur vélritari fær sem sé að
jafnaði 80 rúblur í mánaðarlaun
— en jafnaðarkaup í landinu er
150 rúblur. Að vísu er nokkuð
algengt að vélritarar séu sæmdir
tiihæfulausum titlum svo að
verjandi sé að borga þeim hærra
kaup og þeir haldist þá eitthvað í
.
■
reyndist vera háskólanemi frá
Napolí, Roberto Capone að nafni.
Hann hafði leigt íbúð í Napólí,
ásamt vini sínum einum, en annað
herbergi í Avellino, smábæ uppi í
Abruzzifjöllum; hann hafði sem sé
Mexikönsk stúlka
tómatatínslu. Ilelmingur
færa er atvinnulaus.
reynir með öllum ráðum að
komast úr landi; pað getur ekki
verið verra annars staðar.
Ómögulegt er að vita hve
margir Mexíkanar vinna í Banda-
ríkjunum atvinnuleyfislausir og
starfii þeir t.d. kallaðir tækni-
menn. fulltrúar og því um líkt.
En það hrekkur ekki til.
Sjálfsagt valda lág laun og lítið
álit þarna nokkru, en það kemur
fleira til. Það er til dæmis að
nefna starfsaðstaða. áhöld og
annað sem tilheyrir. Sovézkar
ritvélar eru viðurkennd hráka-
smíði. Ritvélaborðar eru líka
lélegir. kalkipappír og svo mætti
áfram telja. Kvartar greinarhöf-
undur í Gazeta svo sárlega um
þetta að ekki leynir sér að hann
talar af langri og illri reynslu. Og
hann er heldur svartsýnn á
framtíðina í vélritunarmálum.
Hann nefnir það ráð að menn
sýni þegnskap og skipti með sér
þeirri vélritun sem þarf, ef ekki
fást sérlegir vélritarar. Meinið
er, að það er líka hörguii á
ritvélum...
- DEV MURARKA.
í tvö hús að venda ef á þyrfti að
halda.
Faðir Capone þverneitaði í
fyrstu að trúa því, að sonur hans
hefði getað leiðzt út í hryðjuverk.
Er það yfirleitt til dæmis um
samband hinna ungu hryðjuverka-
manna við foreldra sína; kynslóða-
bilið algert og um trúnað er ekki
að tala. Nú leitar lögreglan
unnustu Capones, Rosariu Biondi;
hún er talin hafa ekið morðingj-
unum á brott og þykir víst að hún
gæti veitt allar upplýsingar um
málið. En ekkert hefur spurzt til
hennar.
Roberto Capone hafði komið við
sögu lögreglunnar áður. Hann
hafði verið yfirheyrður í sambandi
við nokkur minni háttar afbrot af
pólitískum toga, en lögreglunni
ekki tekizt að sanna á hann neinar
ákveðnar sakir. Og það er eitt með
öðru sem veldur mörgum á Italíu
áhyggjum, að lögreglunni tekst
yfirleitt ekki að hafa hendur í hári
hryðjuverkamannanna fyrr en
þeir fremja morð — og jafnvel
ekki þá ...
- DAVID WILLEY.
komnir inn í landið meö ólögleg-
um hætti. Menn hafa ímyndað sér
að peir séu fimm milljónir. Sú
ágízkun gefur til kynna, pótt ekki
sé annað, hve auðvelt er að
komast óséður yfir landamærin.
Eins og áður sagöi vill Banda-
ríkjastjórn draga úr fólks-
straumnum að sunnan og liggur
reyndar fyrir pinginu frumvarp
um Þetta. Er Þar reynt að miöla
málum og t.d. kveöið svo á að
Mexíkönum er fært geti sönnur á
Það að Þeir hafi verið fimm ár eöa
lengur í Bandaríkjunum, pótt í
leyfisleysi væri, skuli gefnar upp
sakir og Þeir fá landvistarleyfi.
Aftur á móti eru svo ákvæði um
hömlur á frekari innflutningi. En
frumvarp Þetta hefur ekki náð
fram að ganga í pinginu og ekki
að vita hvernig fer um Það.
Þeirri röksemd er. oft hreyft
Þegar petta innflutningsmál ber á
góma, aö Mexíkanarnir séu ódýr
starfskraftur, og auk pess fúsir að
ganga í ýmis störf sem Banda-
ríkjamenn hafa óbeit á einhverra
hluta vegna. Á hinn bóginn kemur
svo alltaf aö pví öðru hverju að
atvinna minnkar í Bandaríkjunum
og Þá fara verkalýðsfélögin að
hafa horn í síöu Mexíkananna. Þá
vaknar líka jafnan gagnrýni af
ýmsu öðru tagi og Mexíkönum er
kennt um sundurleitustu hluti,
ekki sízt fjölgun afbrota af öllu
tagi, en Þaö reynist Þó oftast
tílhæfulaust.
Það kann aö draga eitthvað úr
landflóttanum frá Mexíkó, að
miklar olíulindir eru fundnar Þar
og vonir standa til að pjóðarhagur
hækki talsvert Þegar fram líða
stundir. Þó er ábyggilegt, að
atvinnuleysi verður Þar landlægt í
einhverjum mæli í mörg ár enn,
og Þeir sem ekki komast að
olíubrunnunum munu enn sem
áður leita til Bandaríkjanna. Þetta
er Ijóst, og er nú aö vita hvaö
Bandaríkjastjórn tekur til bragös,
eða hvort hún tekur nokkuð til
bragðs. Sú röksemd hefur sem sé
heyrzt æ oftar upp á síðkastið, aö
Það gæti reynzt Bandaríkjunum
hættulegt að herða gæzluna á
landamærunum við Mexíkó og
stöðva fólksstrauminn. Þá kynni
nefnilega að fara svo, aö upp úr
syði í Mexíkó og kæmi til
byltingar. Og nóg er nú Kúba Þótt
ekki bætizt Mexíkó við...
— WILLIAM CHISLETT.
í*etta gerdist líka ..
Þyrnirós
Hin 43 ára gamla Elaine Cinderella Esposito, sem missti
meövitund Þegar hún var á sjöunda ári og lá í dvala í 37 ár, Þrjá
mánuði og 20 daga, andaðist um síðastliöin mánaöamót í
sjúkrahúsi á Florida. Hún gekk undir botlangaskurð Þann 6. ágúst
1941 og var svæfð eins og lög gera ráð fyrir, en læknunum tókst
aldrei aö vekja hana til meövitundar aftur.
Batnandi manni...
Dómstóll í Madrid hefur lagt til að Eleuterio Sanchez, frægasta
útlaga Spánverja í stjórnartíö Francos, veröi gefið frelsi. Hinn 36
ára gamli Sanchez leggur um Þessar mundir stund á laganám í
fangelsi Því í grennd við Madrid sem hann er geymdur í. Hins
vegar var hann til skamms tíma hvorki læs né skrifandi og lagöi
ekki út í námsbrautina fyrr en hann hafði verið fangaöur á nýjan
leik eftir óvenju djarflegan og sögulegan flótta úr rétt einu
fangelsinu fyrir fimm árum. Fram að Þeim tíma haföi hann hlotið
urmul dóma fyrir rán, líkamsárásir og strok úr aðskiljanlegum
fangelsum, og hljóðuðu dómarnir að lokum upp á samtals 1368 ár.
Trúlofunarfrean
í fyrstu ævisögu Jóhannesar Páls
II, sem komin er út á italíu, Þykist
höfundur hafa sannanir fyrír Því að
nýi páfinn pólski hafi raunar verið
harðtrúlofaður í ættlandi sínu fyrir á
árum. Höfundur nafngreinir stúlk-
una, en segir hana hafa horfið um
Það leyti sem nasistar gerðu innrás
sína í Póllandi og sé talið líklegt að
henni hafi verið banað. Aftur á móti
vísar hann á bug fregnum um að
Jóhannes Páll hafi verið giftur í eina
tíð og Þá fyrst hafið guöfræöinám
heima í Póllandi Þegar hann var
oröinn ekkjumaður.
Hin gráa forneskja
Lögreglan í Suður-Afríku hefur handtekið blökkumann sem er
grunaður um aö hafa myrt og limað í sundur 19 börn til Þess að
búa til „töfradrykki" og „töfrasmyrsl" af ýmsu tagi úr líffærum
Þeirra. Gott ár er liðið síðan fyrsta barnið hvarf í svertingjahéraði í
nánd viö Pretoriu, og jókst skelfing íbúanna sem vonlegt var eftir
Því sem fórnarlömbunum fjölgaði. Það voru foreldrar átta ára
telpu, sem Þá var nýlega týnd, sem handsömuðu Þann grunaða.
Lögreglan tjáöi fréttamönnum aö Þá hefði sá handtekni veriö meö
barka barnsins í vasanum og að síöar hafi hann vísaö á lík Þess.
„Töfralyfin", sem voru eftir æfafornum uppskriftum, voru af
margvíslegri gerð, allt eftir Því til hverra nota Þau voru ætluö. Ein
geröin átti að auka kynmátt Þess sem notaöi og önnur að vinna
fjandmönnum hans skaða. En eitt var samt sameiginlegt með
uppskriftunum öllum: til pess Þær geröu gagn Þurftu Þær aö
innihalda soð eöa parta af ýmsum líffærum úr nýlátnum börnum.
Sitt Utið afhverju
Bandaríkjamenn hafa frestað afhendingu fimmtíu orustuugvéla,
sem Egyptar eiga í pöntun hjá Þeim. Ástæða: Saudi-Arabar, sem
höfðu tekið aö sér að borga brúsann, segjast vera auralitlir í
svipinn... Ritskoðurum Suður-Afríku virðist vera sérstaklega
uppsigað við leikkonur um Þessar mundir. Eins og sagt var frá hér
í dálkunum síðastliðinn sunnudag, hafnaði ævisaga Brigitte
Bardot á lístanum Þeirra yfir forboðnar bækur. Og nú eru Þeir
búnir að banna endurminningar starfssystur hennar, bresku
leikkonunnar Joan Collins... Borgarstjórnin í ZUrich, stærstu borg
Svísslands, felldi í síðastliöinni viku með yfirgnæfandt meirihluta
að heimila ekki einasta starfrækslu vændishúsa i borgarlandinu
heldur að reisa líka einskonar miöstöðvar fyrir starfsemina og Þær
liðlega 2.000 vændiskonur sem ætlað er aö séu á Þessum slóðum
Þrátt fyrir öll boð og bönn.,. Samkvæmt opinberum skýrslum
hafa 33 borgarar falliö fyrir byssukúlum ítalskra hermdarverka-
manna Það sem af er Þessu ári (sjá: Hryðjuverk)...
Bandaríska póststjórnin hyggst
heiðra minningu Roberts Kennedys,
hins myrta bróður hins myrta
Bandaríkjaforseta, með útgáfu sér-
staks frímerkis í janúar
næstkomandi... Dr. Fakhri
Kaddouri, aðalritari arabiska efna-
hagsbandalagsins, hhefur hvatt
meðlimaÞjóðirnar til Þess aö koma
sér upp hveitibirgöum og gera
ráðstafanir til Þess að hefta síhækk-
andi verðlag á matvöru. Hungur
vofir nú yfir á ýmsum Þeim lands-
svæöum sem Arabar ráöa Þótt Þeir
verji sem svarar 1600 milljónum
króna á dag til innflutnings
matvæla...
Þegar rúmlega hálft annað hundrað milljóna króna hvarf úr
geymsluhólfi í banka einum í Japan, stytti hinn 43 ára gamli
bankastjóri sér aldur með pví að varpa sér fyrir járnbrautarlest.
Lögreglan upplýsir aö hann hafi alls ekki legið undir grun en talið
sig allt um paö bera ábyrgð á pví að Þjófnaðurinn var framinn.