Morgunblaðið - 19.12.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 19.12.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 291. tbl. 65. árg._______ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Olíuhækkun vekur reiði Washington, 18. desember. Reuter. DOLLARINN riðaði og hlutabréí snarlækkuðu í verði í Wall Street í dag og lýst var ugg um að olíuverðshækkun OPECs (Samtaka olíusöluríkja) mundi valda nýrri verðbólgu og auknu atvinnuleysi og hamia hægum efnahagsbata heims- ins. Bandaríkjamenn sem notá um 40 af hundraði olíuframleiðslu heims eru mjög beiskir í viðbrögðum sínum við þeirri ákvörðun OPECs að hækka olíuverðið um 14,5% fyrir lok næsta árs. Bandarískir embættismenn sögðu að þeir óttuðust að hækkunin, sem er hærri en búizt var við, mundi veikja tilraunir Bandaríkjamanna til að hefta verðbólguna og rétta við greiðsluhalla sinn til þess að styrkja dollarann. Iðnríki jafnt sem þróunarríki hafa áhyggjur af hækkuninni, einkum Japanir sem flytja inn rúmlega 99% þeirrar olíu sem þeir þurfa. I Brússel sagði Guido Brunner úr stjórnar- nefnd Efnahagsbandalagsins að hækkunin mundi torvelda baráttuna gegn verðbólgunni og baráttuna gegn atvinnuleysi. Hann kvað ástand markaðarins ekki réttlæta hækkun. Óbreyttir borgarar og hermenn mótmæla stjórnmálasambandi Bandaríkjanna og Kína á fundi í Taipei, höfuðborg Taiwans. Sakharov í hungur- verkfall Moskvu, 18. desember. AP. SOVÉZKI andófsmaðurinn Andr- ei Sakharov sagði f dag að hann færi í hungurverkfall 3. janúar ef kona hans fengi ekki opinbert leyfi til þess að fara til Ítalíu þar sem hún þarf að gangast undir skurðaðgerð vegna augnsjúk- dóms. Sakhaov sakaði sovézk yfirvöld um að stinga vísvitandi undir stól umsókn konu hans um vegabréfs- áritun og sagði að ekkert svar hefði borizt við bréfi sem hann og kona hans sendu Leonid Brezhnev forseta 30. nóvember með beiðni um að hann skærist í leikinn og sæi til þess að hún fengi vega- bréfsáritun. Nóbelsverðlaunahafinn kenndi smásmyglislegum „smákóngum" í kerfinu um að stinga umsókninni undir stól og kvað þetta liði í áreitni í þeirra garð er meðal annars hefði komið fram í því að leitað hefur verið í íbúð hans og nokkur persónuleg skjöl og föt fjarlægð. Hermenn í íran neituðu að hlýða Teheran. 18. desember. AP. Reuter. ÁTÖK urðu milli hcrmanna og andófsmanna í að minnsta kosti tveimur borgum í íran í dag sem var sérstakur sorgardagur andstæðinga íranskeisara til minningar um mörg hundruð fórnarlömb átakanna í landinu. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um særðust allt að tólf í borginni Tabriz í norðvesturhluta landsins. Aðalstjórnmálaflokkur andstæðinga keisarans, Þjóðfylkingin, hélt því fram að tugir hermanna hefðu gengið í lið með með andstæðingum keisarans þegar þeir gengu fylktu liði um borgina. Haft var eftir háttsettum embætt- Taiwan hafnar tilboði Kínverja Taipei, 18. desember. AP. Reuter. FORSETI TAIWANS, Chiang Ching-kuo, hafnaði í dag tilmælum frá Peking um samningaviðræður um sameiningu eyjarinnar og Kína og kallaði tvo fyrrverandi þjóðernissinna sem að þeim stóðu landráðamenn. Chiang sagði á miðstjórnarfundi Kuomingang-flokksins að hann mundi aldrei semja við kommúnista undir nokkrum kringumstæðum. Það var kínverska fréttastofan Hsinhua sem skýrði frá því að Liu Fei og Li Chun-lung, sem hún kvað tvo gamla vini Chiangs, hefðu beðið um leyfi til að fara til Taipei til að hefja viðræður um sameiningu. Á miðstjórnarfundinum sagði Chiang að Liu Fei og Li Chun-lung væru landráðamenn og það kæmi ekki til mála að ræða við þá. Liu og Li voru í nefnd sem reyndi að ná samkomulagi við kommúnista 1949 að sögn Hsinhua. Þeim mistókst og þeir settust að í Peking. Milli 100 og 200 ungmenni efndu til mótmæla við bandaríska sendi- ráðið í dag, þriðja daginn í röð, sungu ættjarðarlög og dreifðu miðum með árásum á Bandaríkin fyrir að viðurkenna Peking. Bandaríkjamenn hafa verið var- aðir við því að vera á götunum. Bandaríska ræðismannsskrifstof- an var lokuð í dag og bandarískir skólar voru lokaðir. Enn er ekki vitað hvenær bandaríska sendiráð- inu verður lokað og hvenær 750 bandarískir hermenn sem eru á Taiwan fara heim. Þingið hefur verið kallað saman á morgun til að hlýða á skýrslu Sun Yun-suan forsætisráðherra um ástandið. Hann hefur gert miðstjórninni grein fyrir áætlun ismanni að heill flokkur hermanna hefði verið sendur til búða sinna þar sem nokkrir menn hefðu neitað að hlýða skipunum yfirmanna sinna. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt hefur gerzt síðan ólgan hófst í landinu. Samkvæmt öðrum fréttum sem hafa borizt frá Tabriz náðu andófs- menn nokkrum herbílum og skrið- drekum á sitt vald. Stjórnarandstæðingar halda því fram að hermannauppreisn hafi verið gerð í Tabriz, en þær fréttir eru taldar ýktar. En þessi staðhæfing fylgir í kjölfar frétta um vaxandi óánægju í hernum vegna skipana um að skjóta andófsmenn og múhameðstrúar- menn. Herinn neitar því að nokkur ólga sé, jafnvel ekki meðal nýliða sem eru einn fimmti hersins, en samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur samúð hermanna með and- stæðingum keisarans greinilega auk- izt. Afstaða hersins mun ráða úrslitum um hvort keisarinn heldur völdum sínum. Samkvæmt þessum heimildum hefur liðhlaupum fjölgað vegna yfirlýsinga trúarleiðtogans Ayatull- ah Khomaini. Uggur um klofning i hernum jókst um helgina þegar háttsettur yfirmaður tilkynnti að þrír óbreyttir menn í lífverði keisarans hefðu drepið að minnsta kosti sex aðra varðliða og sært 12 í herstöð nálægt keisarahöllinni í síðustu viku. Aðrir varðliðar drápu uppreisnarmennina. I óstaðfestum fréttum segir að tveir hermenn hafi reynt að skjóta niður þyrlu með Manuchehr Khos- rodad hershöfðingja, yfirmanni fall- hlífaherfylkisins, þegar hún lenti í Teheran 9. desember. í Teheran voru verzlanir lokaðar í dag og einnig fyrirtæki og eins dags verkfall trúarleiðtoga og andstæð- inga keisarans var algert. sem miðar að því að vega upp á móti þeim skaða sem Taiwan geti orðið fyrir. Herútgjöld Taiwans verða aukin, hergagnaframleiðsla efld og tengsl við erlend ríki aukin. Stjórn Taiwans mun senda nefnd til Washington á föstudag til viðræðna um viðskiptamál þrátt fyrir ákvörðun Bandaríkja- stjórnar að viðurkenna Peking. I Washington er sagt að Banda- ríkin ætli að standa að öllu leyti við alla gildandi samninga við Taiwan nema öryggissáttmála landanna. Sprengjualda ímiðriLondon London, 18. desember. AP. Reuter. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) sprengdi tvær bflsprengjur í miðborg Lundúna í dag og varaði Breta við þvf í kvöld að svo gæti farið að teknar urðu upp nýjar baráttuaðferðir sem gætu valdið miklu manntjóni. Tæplega 14 kílóa sprengja var skilin eftir í bifreið fyrir utan stjórnarskrifstofur skömmu eftir miðnætti og þremur mínútum síðar sprakk annar bíll sem sprengju hafði verið komið fyrir í. Gamall maður slasaðist nokkuð. Níu manns slösuðust af völdum sjö lítilla sprengja sem var komið fyrir í verzlunum í fimm borgum í Bretlandi á sunnudaginn. Scotland Yard ráðlagði Bretum í dag að vera á verði gegn sprengingum. „Hafið augun opin. Leitið að óvæntum bréfum eða pökkum. Lítið undir bílinn áður en þið akið af stað...“ sagði í tilkynningu frá Yard. írski lýðveldisherinn lýsti því einnig yfir að hann bæri ábyrgð á árás á brezka herstöð í Vest- ur-Þýzkalandi þegar átta sprengj- ur sprungu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.