Morgunblaðið - 19.12.1978, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
0
GROHE
vandaður
JÓLAGLAÐNINGUR
Margir sem þjáðst hafa af gigt, vöðvabólgu og meiðslum margskonar,
hafa náð heilsunni aftur með notkun GROHE vatnsnuddtækisins
ÓTRÚLEGT EN SATT.
Hægt erað mýkja og herða bununa að vild, nuddtækiðgefur 19-24 lítra
með 8.500 slögum á mínútu.
Svo er líka hægt að tengja vatnsnuddtækið við hvaða blöndunartæki
sem er, gömul sem ný, svo nú geta allir notið GROHE vatnsnuddtækisins
TILVALIN HEIMILISJÓLAGJÖF í ÁR -
GJÖF SEM GEFUR VELLÍÐAN
BYGGINGAVORUVERSLUN K0PAV0GS SF. £ VJ
SÍMI 41000 R 5?
Frá vinstrii Bo Haraldsson frá Svíþjóð, sem varð í 2. sæti í
hæfnisakstri einstaklinRa, Ove Storelid frá Noregi, sem sigraði, og
Einar Guðmundsson frá íslandi, en hann varð í 3. sæti.
íslendingar í öðru
sætií hæfnisakstri
FYRIR skömmu tóku tvcir menn
þátt í' hæfnisaksturskeppni í
Bretlandi fyrir til.stilli Bindindis-
félags ökumanna. þeir Einar
Guðmundsson og Guðmundur
Saiómonsson, en þeir höfnuðu í
fyrsta og öðru sæti í lokakeppni
er haldin var í Reykjavík eftir að
haldnar höfðu verið 10 slíkar
keppnir víðs vegar á landinu sl.
sumar.
í keppninni í Englandi voru
samankomnir keppendur frá Sví-
þjóð, Noregi og Islandi, alls 14
keppendur á aldrinum 18—25 ára,
og voru þeir allir valdir úr hópi
þeirra er bezt höfðu staðið sig í
heimalöndum sínum. I frétt frá
Bindindisfélagi ökumanna segir að
íslenzku þátttakendurnir hafi
staðið sig mjög vel og hafi Einar
orðið í 3. sæti. í tengslum við
keppnina fór einnig fram lands-
keppni og hrepptu íslendingar þar
2. sætið næst á eftir Norðmönnum.
Þá er þess getið í frétt BFÖ að
ýmis fyrirtæki, tryggingafélög og
bifreiðaumboð, hafi styrkt félagið
til keppnishaldsins hérlendis.
Félagið hefur fullan hug á að
halda starfi þessu áfram og segir
að ekki muni hugsanleg vikudvöl í
Englandi keppendum að kostn-
aðarlausu spilla fyrir þátttöku, en
það eru Vauxhall-bílaverksmiðj-
urnar sem staðið hafa fyrir
keppnishaldinu þar í landi.
Lengri sölufrestur mjólkur
nær eingöngu til Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavik
BLAÐINU hefur borist eftir-
farandi tilkynning frá Heil-
brigðiseftirliti ríkisinsi
Af gefnu tilefni vill Heil-
brigðiseftirlit ríkisins taka
skýrt fram að undanþáguheim-
ild sú, sem Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
hefur veitt á sölufresti mjólkur
og mjólkurvara sbr. reglugerð
nr. 269/1973 um mjólk og
mjólkurvörur gr. 48.2. og 48.3.,
nær eingöngu til Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavík.
Undanþága ráðuneytisins
gildir þar til ný reglugerð
hefur verið samin, þó ekki
lengur en til 1. apríl 1979.
Öll önnur mjólkursamlög
landsins skulu eftir sem áður
hlýta ákvæðum reglugerðar nr.
269/1973 um sölufrest mjólkur
og mjólkurvara.
VANTAR ÞIG GÓÐAN FISKIBÁT ?
Þð er fxtHœ-maœ lausnin
Frábær sjóhæfni og gott vinnupláss
samfara miklu buröarþoli.
Samþykktur af Norska Veritas.
Verö mjög hagstætt.
Stuttur afgreiöslufrestur.
BENC0 HF.
BOLHOLTI 4
Reykjavík
Sími (91) 2-19-45
Fæst í tveimur stæröum og
ótal útfærslum.
Lengd 6,20 og 7,10 metrar
breidd 2,40 og 2,60 metrar.
Hagstæöustu kaupin í dag.