Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 28
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
r _ r
Olafur G. Einarsson og Matthías A. Mathiesen:
Bráðabírgðalögin rétta
með annarri hendinni
en taka aftur með hinni
„Aðaleinkenni bráðabirgðalaganna og þessa frumvarps er að það, sem rétt er með
annarri hendinni, er tekið aftur með hinni. Með því telur ríkisstjórnin að stuðlað sé að
tekjujöfnun í þjóðfélaginu og efnahagsvandinn leystur í bráð. Að vissu marki má á
þetta failast. Tekjujöfnunin er þó mest sjónhverfing, leikur með vísitölu, þar sem beitt
er vafasömum aðferðum í stað þess að takast á við það vandamál. Sá árangur, sem
kann að nást í baráttunni við verðbólguna til áramóta, veldur auknum vanda þegar til
lengri tíma er litið,“ sagði Ólafur G. Einarsson á Alþingi nýlega, er hann ásamt öðrum
fuiltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárhags- og viðskiptanefnd, lagði til að frumvarp
ríkisstjórnarinnar um kjaramál yrði fellt.
er að fyrirtæki greiði mismunandi
skatt eftir því, hvort þau eru skráð
sem hlutafélög eða eru á nafni
einstaklinga."
Að lokum segir í áliti minni-
hluta nefndarinnar, þeirra Ólafs
G. Einarssonar og Matthíasar
Mathiesens, að ef meirihluti sé
fyrir því að afla tekna þeirra sem
Ólafur G. Einarsson
frumvarpið geri ráð fyrir, þá telji
þeir heppilegra að gera það í formi
skyldusparnaðar.
Ólafur rakti lið- fyrir lið það
helsta er hann taldi frumvarpinu
tii vansa, svo sem að það ylli því að
neysla yrði örvuð á kostnað
sparnaðar, dregið yrði úr vinnu-
vilja með hækkun tekjuskatts,
siðferði látið fyrir róða með
afturvirkum álögum, niðurgreiðsl-
ur auknar á landbúnaðarafurðum,
margfalt gengi virtist vera að
komast á, skertar verðbætur til
launþega, tekjuskattsauki settur á
og fleira og fleira. Þá mætti nefna
að „Hækkun eignarskatts lendir
fyrst og fremst á þeim sem eiga
skuldlausar eða skuldlitlar fast-
eignir, því að eignarmyndun hér á
landi er mest í mynd fasteigna. Af
því leiðir jafnframt, að eignar-
skattsaukinn lendir þungt á eldra
fólki, sem á skuldlausar fasteignir.
Við teljum því breytingartillögu á
þskj. 52 sjálfsagða. Einnig lendir
þessi eignarskattsauki með mikl-
um þunga á þeim, sem þurfa að
eiga miklar fasteignir og vélar við
framieiðsluna.
Samkvæmt ákvæðum frum-
varpsins er lagður helmingi hærri
eignarskattsauki á félög en éin-
staklinga, en það hefur í för með
sér stórfellda mismunun eftir
rekstrarformi fyrirtækja. Fráleitt
Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens
litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1.
ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti,
hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk
tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli.
Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem
tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda.
Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð
og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur
Veljið varanlegt.
Brceðraborgarstíg 1 Sími 20080
(Gengið inn frá Vesturgötu)
Margar auka-
og leiguf erð-
ir Flugleiða
um hátíðarnar
DC-10 þota í tveimur ferðum
ÞOTUR Flugleiða munu fara allmargar aukaferðir frá
miðjum desember og verða þær flestar milli Norðurland-
anna og íslands en einnig verða farnar aukaferðir frá
viðkomustöðum félagsins í Bandaríkjunum og áfram til
Luxemborgar. Tvær aukaferðir verða farnar með DOIO
frá World Airways sem flytur 380 farþega í ferð og
einnig verða farnar allmargar aukaferðir til flestra
staða innanlands.
DC-10 þotan fer 21. desember
frá New York til Islands og
Luxemborgar og önnur ferð verður
22. desember með DC-10 á þessari
sömu ieið. Aukaferðir verða frá
Luxemborg til íslands, New York
og Chicago, 16. og 19. desember
verða aukaferðir til Kaupmanna-
hafnar og 21. og 22. desember til
Óslóar, allar með Boeing-þotu, en
17. desember verður leiguferð með
DC-8 frá Kaupmannahöfn til
Islands og með Boeing sömu leið
þann 21.
Síðustu ferðir frá íslandi fyrir
jól verða sem hér segir:
Til Chicago 22. desember. Til
New York, Kaupmannahafnar,
Glasgow og London á Þorláks-
messu, 23. desember. Til Luxem-
borgar 24. desember, aðfangadag.
Síðustu ferðir til íslands fyrir
jól verða sem hér segir:
Frá Kaupmannahöfn, Glasgow
og London Þorláksmessukvöid, 23.
desember. Frá New York að
morgni aðfangadags 24. desember.
Á jóladag verður ekkert milli-
landaflug.
Fyrsta ferð til íslands eftir jól
verður að kveldi 26. desember, en
þá koma tvær vélar frá Luxem-
borg og halda áfram til Chicago og
New York. Fystu ferðir eftir jól
frá Bandaríkjunum koma til Is-
lands að morgni 27. desember og
halda áfram til Luxemborgar. 27.
desember verður einnig flogið til
Glasgow og Kaupmannahafnar.
Síðan verður flogin áætlun fram
til áramóta. Um áramót verður
tilhögun ferða svipuð og um jólin.
Síðustu ferðir frá Bretlandi og
Norðurlöndum verða 30. desember
en sama dag eru síðustu ferðir til
íslands frá Luxemborg og áfram
til New York og Chicago. Þær
þotur koma aftur til Keflavíkur-
flugvallar að morgni 31. desember
og halda áfram til Luxemborgar.
Á nýársdag verður ekkert milli-
landaflug. 2. janúar verður flogið
til Kaupmannahafnar og London
fram og aftur og síðdegis koma
þrjár þotur frá Luxemborg og
halda áfram til New York og
Chicago. Hinn 3., 6. og 7. janúar
1979 verða leiguferðir til Kaup-
mannahafnar fyrir íslendinga-
félagið í Danmörku og aukaferð
verður farin til Osló og Kaup-
mannahafnar þann 6. janúar.
INNANLANDSFLUG
Frá og með 16. desember og
fram að áramótum munu verða
nokkrar breytingar á innanlands-
fiugi Flugleiða. Margar aukaferðir
verða farnar til flestra staða
innanlands frá miðjum desember
og fram á Þorláksmessu, en á
aðfangadag, sunnudaginn 24.
desember, verða nokkrar ferðir
felldar niður og er áætlað að flugi
ljúki kl. 15.00, 26. desember og
annan dag jóla um hádegi. 27.
desember til 30. desember verður
flogið samkvæmt áætlun innan-
lands, en sunnudaginn 31. desem-
ber, gamlársdag, verða færri
ferðir en sunnudagsáætlun segir
til um og er áætlað að flugi ljúki
kl. 15.00. Frá og með 2. janúar
verður flogið samkvæmt áætlun.
SÓLARLANDAFLUG
Sólarlandaferðir til Kanaríeyja
sem hófst 25. október verða að
vanda í gangi fyrir og um hátíð-
arnar. Næsta ferð til Kanaríeyja
er 22. desember og 29. desember.
Þá var hópferð til Miami, Florida
14. desember og tveir minni hópar
munu fara þangað 26. og 28.
desember. Nokkur hópur fólks fer
á skíði til Austurríkis um jólin.
Þeir hópar munu fara 22. desem-
ber og 23. desember.
lU'fi
Sti Lítid barn hefur
JÍ lítid sjónsvið