Morgunblaðið - 20.12.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
5
Margeir
teflir á EM-
unglinga
MARGEIR Pétursson alþjóðlegur
skákmeistari hélt af landi brott í
morgun áleiðis til Goningen í
Hollandi. þar sem hann mun taka
þátt í Evrópumóti unglinga í
skák. sem standa mun frá 21.
desember til 5. janúar. Tefldar
verða 13 umferðir eftir Monrad-
kerfi.
Keppendur eru 28 að tölu, þeir
elztu 20 ára gamlir, en þeir yngstu
18 ára og er Margeir í þeirra hópi.
Tveir alþjóðlegir meistarar tefla á
mótinu, Margeir og Sovétmaður-
inn Dolmatov, en hann er núver-
andi heimsmeistari unglinga. Ef
Margeiri tekst vel upp má búast
við því að hann berjist. við
Dolmatov og Englendinginn
Plaskett um Evrópumeistaratitil-
inn, en þessir þrír eru fyrirfram
taldir sterkustu menn mótsins.
Ekki kosið
í Geit-
hellnahreppi
Hreppsnefnd Geithellnahrepps
hefur ekki orðið við úrskurði
félagsmúlaráðuneytisins um að
endurtaka hreppsnefndar-
kosningarnar frá í sumar. Morgun-
blaðinu hefur borizt eftirfarandi
yfirlýsing frá hreppsnefndinni um
þetta máli
„Eins og komið hefur fram
auglýsti sýslumaður S-Múlasýslu
hreppsnefndar- og sýslunefndar-
kosningar í Geithellnahreppi 17.
þessa mánaðar vegna þess að
kosningarnar 25. júní voru
úrskurðaðar ógildar. Þessar
kosningar fóru þó ekki fram eins og
fyrirhugað var, þar sem meirihluti
kjörstjórnar taldi úrskurð félags-
málaráðuneytisins ekki í samræmi
við gildandi lög eftir að hafa leitað
álits lögfræðinga.
Það er álit lögfræðinga um lög-
mæti þess að fyrirskipa nýjar
kosningar, að úrskurður félagsmála-
ráðuneytisins, dgs. 5. september sl.,
sé nefnilega rangur, þar sem ákvæði
75. greinar laga nr. 52 frá 1959, sem
ógilding kosninga er byggð á, getur
ekki átt við. Við sveitarstjórnar-
kosningar er ekki til að dreifa
yfirkjörstjórn með sams konar
hlutverki og yfirkjörstjórnir til
Alþingis hafa. Um þetta eru skýr
ákvæði í 3. m. gr. 136. gr. laga nr. 52
frá 1959.“
Borgi Nílsson sýslumaður S-Múla-
sýslu og formaður sýslunefndar
kvaðst ekki hafa tekið neina
ákvörðun um framhald þessa máls.
Ljóst væri að félagsmálaráðuneytið
túlkaði málið á þann veg að það væri
algjörlega í höndum sýslunefndar en
hins vegar yrði ekki fram hjá því
horft að félagsmálaráðuneytið hefði
kveðið upp úrskurðinn. Málið væri
þess yegna í flestu tilfelli sérstætt og
kvaðst Bogi efast um að það ætti sér
fordæmi.
Gamalt
fólk gengurJ 1 hœgar
Veröskrá
1. Velúr peysur 3.500
2. Velúr peysur 3.850.
3. Grófrifflaöar flauelsbuxur frá
4. Flauelsbuxur 5.650
5. Skyrtur 6.755
6. Axlabandapils 9.500
7. Blússur 7.325
8. Femilet náttföt 9.900
9. Femilet náttkjóll 6.900
10. Peysur 4.845
11. Stakir jakkar 39.200
7.100
Austurstræti
Alltaf ástæða
að líta inn í
T orgiðgl