Morgunblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
Horft í birtuna
Ný ljóðabók eftir Þóru Jónsdóttur
út er komin ný ljóðabók
eítir Þóru Jónsdóttur „Horft í
birtuna14 og er hún mynd-
skreytt af höfundi, útgefandi
er Fjölvaútgáfa.
Á bókarkápu segir svo: „Nú
kemur út þriðja ljóðabókin
eftir Þóru Jónsdóttur. Þær
fyrri, í leit að tjaldstæði og
Leiðin norður, vöktu athygli
fyrir ljóðræna stemmningu í
hnitmiðuðum orðum og setn-
ingum. Síðan hafa mörg ár
liðiö, en skáldkonan hefur
unnið stöðugt að því að þroska
og fága ljóðform sitt. Hér
birtast því í knöppu og fáguðu
orðvali margar ljóðaperlur,
margar spurnir og svör um
tilveru manneskjunnar í hverf-
ulum heimi. Ljóð Þóru eru
einstaklega tilfinninga- og
veðurnæm, og það er hverjum
manni upplifun að láta þau
líða sér í brjóst í spurn og
svari."
Þóra Jónsdóttir.
sjálfsmynd.
Mótmæla sífelldum álög-
um á atvinnufyrirtæki
Blaðinu hefur borizt eítirfar
andi ályktun framkvæmda-
stjórnar Kaupmannasamtaka
íslands írá 5. desember sJ.i
Stjórn Kaupmannasamtaka
íslands mótmælir harðlega
þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar
að ætla að leysa efnahagsvanda
þjóðarinnar með því að leggja í
sífellu aukin gjöld á atvinnufyr-
irtæki landsm'xnna. Stjórnin
bendir á, að staða íslenzkra
atvinnufyrirtækja hefur verið
mjög bágborin í mörgum at-
vinnugreinum.
Með sérstökum opinberum
aðgerðum hefur þó tekist að
fresta um sinn stöðvun nokkurra
fyrirtækja, en jafnhliða þessum
opinberu aðgerðum, hafa tekjur
verzlunarfyrirtækja verið stór-
lega rýrðar tvisvar sinnum á
þessu ári.
Nú síðustu daga hefur ríkis-
stjórnin boðað frekari álögur á
atvinnufyrirtæki og óttast
stjórn Kaupmannasamtaka ís-
lands, að þær leiði til atvinnu-
leysis á komandi ári.
Staða verzlunarinnar er nú
mjög erfið og sýnt er, að það er
eingöngu spurning um tíma,
hvenær kaupmenn neyðast til
þess að takmarka þjónustu sína
við neytendur, sem mun leiða til
uppsagna starfsfólks, verði ekk-
ert að gert.
Kaupmannasamtök Islands
telja það eindregna skyldu ríkis-
stjórnarinnar að stuðla að lausn
á vanda verzlunarfyrirtækja og
koma þar með í veg fyrir
stórfellt atvinnuleysi og vöru-
skort í landinu.
J ólatónleikar
Kór Langholtskirkju, undir
stjórn Jóns Stefánssonar hélt
tónleika s.l. föstudag í Landa-
kotskirkju. Tónleikarnir hófust
á gömlum ísl. helgisöng í
raddsetningu Róberts A. Ottós-
sonar. Tvö önnur íslensk jólalög
voru á söngskránni, Hátíð fer
að höndum ein og Oss barn er
fætt í Betlehem, í raddsetningu
Jóns Þórarinssonar. Þá söng
kórinn þrjá erlenda jólasálma
frá Grikklandi, Englandi og
Frakklandi. Kórinn söng þessi
lög öll mjög fallega enda vel
þjálfaður.
Næstu þrjú verkefnin voru
með orgelundirleik, Sof þú blíða
barnið góða, eftir Berlioz,
Laudate Dominum, eftir Mozart
og 0, helga nótt, eftir A. Adam.
Einsöng í tveim seinni verkun-
um söng Ólöf Harðardóttir og
var flutningur þeirra lakari én
búast hefði mátt við. Afgangur-
inn af efnisskránni bætti það
upp og kemur þar til tvennt, góð
tónlist og góður flutningur.
Eftir Schutz flutti kórinn Lofið
Drottin, fyrir tvo kóra og Barn
er oss fætt, eftir Melchoir
Franck, með miklum glæsibrag.
Síðustu tvö verkin eru eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Lof-
söngur engla er sérlega glæsi-
legt í upphafi, en í seinni
hlutanum verður leikurinn með
orðin of áberandi og jafnvel
langdreginn. Hósanna Davíðson
er leikrænna í formi, kvað
snertir textann og endirinn
skemmtilegur en varasamt er
þó að nota hann í of lengdri
útgáfu.
Þorkell er einn af fáum ísl.
tónskáldum sem samið hafa
kirkjutónlist og eru verk hans
þegar orðin mjög vinsælt söng-
efni fyrir kóra. Þjóðkirkjan
mætti taka það til íhugunar,
hvort ekki væri hægt að endur-
nýja að einhverju leyti tónlist
kirkjunnar, kirkjugestum til
ferskrar upplifunar og til að
vera söngfólki hvatning til að
horfa fram á veginn, í stað þess
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
að snúa algerlega baki við
samtíðinni. Gera kirkjuna að
skapandi afli í íslenskri
menningu, efla stolt hennar í
stað þess að þiggja sitt tónmál
frá öðrum, sem aldrei verður
samlagað, svo vel sé, hryn og
blæ íslenskunnar og þess vegna
að miklu leyti máttlaust til
tilfinningalegrar upplifunar.
Tónleikunum lauk með því að
allir viðstaddir risu úr sætum
og sungu Heims um ból.
Þetta eru einmitt bækurnar
Gaudeamus igitur
Skólaárin verða flestum minnisstaeð þegar árin líða. Menn horfa til baka og rifja upp þaö tímabil ævinnar sem mörgum hefur reynzt skemmtilegast. Hér eru
saman komnar í bók Ijúfar minningar og umsagnir um skóla og kennara skrifaöar af 18 konum og körlum.
Einmitt bók sem allir hafa gaman af aö eiga og lesa. — Bók fyrir stódenta eldri sem yngri. — Bók fyrir alla í skólum landsins unga og gamla. — Glæsileg bók.
Einar Logl Eirtarsson tók saman
(Sauöfamuö
iQttur
(KÆTUMST MEÐAN KOSTUR ERi
MINNINGAR
ÚR
MENNTASKÚLUM
Ágúst í Ási
Eftir Hugrúnu
„Ágúst í Ási“ er
hugnæm saga
sveitapilts sem
rifjar upp á gamals
aldri æsku-
minningar og lífs-
hlaup sitt.
Bezta skáldsaga
Hugrúnar.
PURlÐUR GUDMUNDSDÓTTIR HÁ M
BREYTTIR TÍMAR Breyttir
tímar
Eftir Þuríöi Guð-
mundsd. frá Bæ
Ættarsaga af
Ströndum
Mest koma viö sögu
bæirnir Selvík, Ham-
ar og Bæir.
Þegar saga þessi
gerist var einn bóndi
í Selvík, Jón Hans-
son aö nafni. Hann
var þangaö kominn
langt aö.
Hröö atburöarás.
Spennandi ástar-
saga.
eftir Sigríði EyÞórsdóttur
Saga úr Sjónvarpinu frá árinu 1973. Sagan og
teikningar Olafar Knudsen hlutu mikiö lof gagnrýn-
enda og gleöi mikla hjá börnunum sem á hlýddu og á
horfðu.
Myndarleg bók fyrir krakka á öllum aldri.
Allar frá Bókamiðstöðinni — fást í öllum bókabúðum