Morgunblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 14
Erlend fréttaskýring:
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
FREKUR JÓLASVEINN
Jólasveinn í Akron, Ohio, í Bandaríkjunum var handtekinn nýlega, gefið að sök að hafa
ráðizt á gullsmið sem mótmælti fjársöfnunaraðferðum hans. Hann var handtekinn fyrir árás.
Hann var fyrirliði jólasveina Musteris Hare Krishna í Cleveland og þeir þóttu nokkuð
aðgangsharðir við fjársöfnunina.
Snúast vopnin
í höndum Desai
eftir fangels-
un Indiru?
ATKVÆÐAGREIÐSLA í ind-
verska þinginu hefur nú leitt
til þess að Indira Gandhi,
fyrrverandi forsætisráðherra,
hefur verið sett í fangelsi og
líklega einnig svipt þingsætinu
sem hún vann t aukakosning-
unum í núvember. Moraji Desai
forsætisráðherra lagði fyrir
helgina fram frumvarp þessa
efnis og er Gandhi þar ákærð
fyrir réttindabrot og fyrir að
hafa hundsað þingið. bó var
búizt við að þingmenn myndu
hugsa sitt ráð vegna þeirra
kröftugu viðbragða sem þessi
frétt vakti meðal indversks
almennings. Almennt er gert
ráð fyrir að „dúfurnar“ í
töskufnar sínar og, „höfuð mitt
er yðar,“ sagði hún.
Lögfræðingur Indiru Frank
Anthony spáði því í viðtali við
fréttamann nú á dögunum að
með því að senda Indiru Gandhi
í fangelsi myndi Janatabanda-
lagið endanlega kveða upp yfir
sjálfu sér skapadóm og þetta
vrði tvímælalaust til að almenn-
ingsálitið snerist allt á sveif
með Indiru. „Þetta væri það
bezta sem gæti fyrir hana
komið, frá pólitísku sjónarmiði.
Þar með væri öllu lokið fyrir
Janatabandalagið,“ sagði An-
tohny.
Lögfræðingurinn sagði einnig
að vísast myndi koma til gríðar-
Daudvona madur í lest
en lestin ekki stöðvud
New York, 19. desember. AP.
MAÐUR fékk hjartaáfall í
neðanjarðarjárnbrautarlest í
New York. Lestarstjórinn
stöðvaði ekki lestina fyrr en
hann hafði ekið fram hjá
fjórtán viðkomustöðum. Maður-
inn var látinn þegar lestin
stöðvaðist loksins. Rannsókn
hefur verið fyrirskipuð.
Lestarstjórinn hringdi í
stjórnstöð járnbrautarfyrir-
tækis síns, BMT, þegar honum
var sagt frá hjartaáfalli farþeg-
ans, en tók ekki fram að um
neyðarástand væri að ræða.
Honum var sagt að halda ferð-
inni áfram og gera lögreglu
viðvart með því að flauta við
hverja stöð sem hann færi um.
Farþeginn, Ah Chong, virðist
hafa fengið hjartaáfall kl. 8.00
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Apena
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankturt
Gent
Helsinki
Jerúsalem
O A|
2 skýjað
20 heiðskírt
8 lóttskýjaö
-1 heiöskírt
5 skýjaö
0 heiöskirt
3 skýjað
-3 skýjaö
Líssabon
London
Los Angeles
Madríd
Malaga
Mallorca
Miami
Moskva
New York
Ósló
París
Reykjavík
Rio Oe Janeiro
Rómaborg
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
13 sólskin
7 sólskin
8 sólskin
8 sólskin
12 skýjaö
vantar
22 heiöskírt
-20 heiðsklrt
4 heiöskírt
-3 skýjaö
1 skýjað
-2 léttskýjaö
29 heiöskírt
15 rigning
0 skýjað
21 sólskin
6 rigning
-13 .skýjaó
-3 skýjaö
22 sólskin
Jóhannesarborg 22 skýjað
Lissabon 13 skýjað
f.h. Ellefu mínútum síðar —
þegar lestin hafði farið fram hjá
fjórum stöðvum og engin hjálp
hafði borizt — kallaði Samuel
Lee lestarstjóri aftur í talstöð-
ina en var sagt að halda áfram.
Farþegarnir í lestinni voru
orðnir æfir af reiði, bönkuðu i
klefa lestarstjórans og kröfðust
þess að hann næmi staðar. „Eg
var reið, ég grét og ég trúði
þessu ekki,“ sagði Rances
Blackman sem hlúði að veika
manninum.
Ungfrú Blackman sagði að Lee
hefði rifizt við hana og hina
farþegana og sagt að hann færi
aðeins eftir skipunum. „Ég hef
fyrir konu og fjölskyldu að sjá og
mér er mest umhugað um að
halda lestinni gangandi,“ sagði
Lee.
Loks þegar lestin hafði farið
um 13 stöðvar og fram hjá fimm
sjúkrahúsum í Brooklyn
stöðvuðu tveir lögregluforingjar
lestina. Þetta var hálftíma eftir
fyrstu tilkynninguna í talstöð-
inni og þá var það orðið um
seinan. Klukkan 8:59 var úr-
skurðað að Chong væri látinn.
Þetta gerdist 20. desember
1976 — Rabin segir af sér eftir
ósigur á ísraelsþingi.
1973 — Carrero Blanco, forsæt-
isráðherra Spánar, myrtur í
Madrid.
1971 — Nixon forseti fer til
Bermuda til viðræðna við Heath
forsætisráðherra.
1970 — Gomulka segir af sér
eftir matvælaóeirðir í Póllandi.
1962 — Fyrstu frjálsu kosning-
arnar í Dominkanska lýðveldinu
í 38 ár.
1957 — Kjarnorkustofnun Ev-
rópu tekur til starfa.
1954 — Frakkar senda 20.000
hermenn til Alsírs.
1922 — Fjórtán lýðveldi mynda
Samband sovézkra sósíalista-
lýðsvelda. (USSR).
1916 — Wilson forseti sendir
öllum stríðsaðilum friðarorð-
sndingar.
1912 — Friðarráðstefna Tyrkja
og Balkanríkja í London.
1852 — Bretar innlima Pegu,
Neðri Burma, í stríði við Burma-
menn.
1830 Aðskilnaður Hollands og
Belgíu samþykkur í Lund-
úna-ráðstefnu.
1803 — Bandaríkjamenn taka
formlega við Lousiana-svæðun-
um af Frökkum.
1712 — Svíar sigra Dani við
Gadesbusch, Póllandi.
1699 — Pétur mikli fyrirskipar
að nýár hefjist í Rússlandi 1.
janúar.
1582 — Frakkar' taka upp
gregorianskt tímatal.
Afmæli dagsinst Leopold von
Ranke, þýzkur sagnfræðingur
(1795—1886) — Irene Dunne,
bandarísk leikkona (1904 ---).
Innlenti Eldogs í Leirhnúk 1975
— Snjóflóð í Neskaupstað 1974
— Eldgos í Eyjafallajökli 1921
— Hraunflóð stöövast við bæinn
í Reynihlíð 1728 — Landspítal-
inn tekur til starfa 1930 — D.
Guðmundur Ólafsson fornfræð-
ingur 1695 — Stefán Stephensen
amtmaður 1820 — F. Þórður
Sveinsson 1874 — Jón Baldvins-
son 1882 — „Arnfirðingur"
strandar í Grindavík 1971 — D.
Þórður pr. Sveinsson í Kálfholti
1770.
Orð dagsinst Yfirleitt eru bæk-
ur tvenns konar: þær sem
enginn les og þær sem enginn
ætti að lesa — H. L. Mencken,
bandarískur ritstjóri
(1880-1956).
Moraji Desai.
Janatabandalaginu hafi lagt á
það allt kapp að sannfæra hina
herskárri — og þar er forsætis-
ráðherrann auðvitað fremstur í
flokki — um að slíkt myndi
aðeins verða Indiru Gandhi til
stórkostlegs framdráttar og
gera hana að píslarvotti. Jan-
atabandalagið hefur hins vegar
svo mikinn meirihluta í þing-
inu. þ.e. 303 sæti af 536. að því
er í lófa lagið að taka þarna af
skarið.
Þegar frumvarp Desai verður
að lögum mun það ekki aðeins
svipta Indiru nýfengnu þingsæti
heldur verður hún einnig að fara
í fangelsi að minnsta kosti þar
til því þingi er lokið sem nú
stendur.
Nefnd sem Neðri deildin
skipaði í sl. mánuði hefur fundið
Indiru Gandhi og tvo aðstoðar-
menn seka um alls kyns trúnað-
arbrot, misbeitingu forréttinda
og valds, almenn réttindabrot og
um að hafa reynt með alls konar
áreitni að torvelda upplýsinga-
og gagnasöfnun sem gegn henni
beindist er hún var forsætisráð-
herra. Sömuleiðis er hún sek
fundin um að hafa misnotað
aðstöðu sína varðandi ýmsar
framkvæmdir er hún fékk í
hendur syni sínum Sanjay.
Indverska þingið hefur sams
konar vald og Neðri málstofan i
Bretlandi að geta tekið sér rétt
til að refsa fyrir slík brot. Indira
Gandhi hefur verið herská í tali
síðan þetta frumvarp var lagt
fram: „Hver refsing sem ég verð
beitt verður mér aðeins upp-
spretta frekari styrks“, sagði
hún galvösk og bætti því við að
hún væri búin að láta niður í
Indira Gandhi.
legra mótmælaaðgerða bæði í
Delhi og víðar í Indlandi og
hefur þeirri skoðun verið ómót-
mælt af þeim Janatamönnum.
Svo virðist sem ýmsir flokks-
menn Dasai hafi nú einnig
skynjað hvílíkt frumhlaup slík
gjörð væri og hafi verið reynt að
draga úr áhrifum þess með því
að segja að hún muni ekki svipt
þingsæti sínu nema þangað til
hún hafi beðizt afsökunar á
misgjörðum sínum. Hins vegar
hefur þessi hugm.vnd engan
hljómgrunn fengið hjá þeim
þingmönnum Janatabandalags-
ins sem Indira Gandhi lét varpá
í fangelsi méðan undanþágulög-
in voru í gildi og telja tímabært
að forsætisráðherrann fyrrver-
andi fái að kyrmast lífi innan
fangelsismúra.
En forsmekkur þess sem í
vændum kann að vera í Indlandi
kom strax í ljós um helgina. Þá
voru haldnir ýmsir fundir í
Delhi henni til stuðnings.
Því er ljóst að þessi ákvörðun
kann að leiða til að vopnin
snúist alvarlega í höndum Dasai
sem hefur átt mjög í vök að
verjast vegna umtals um spill-
ingu innan Janatabandalagsins
og grunsemda um svipuð ef ekki
ívið óþekkilegri brot og mis-
notkun valds en hann sakar
Indiru Gandhi um. Auk þess
hefur innanlandsástandið í Ind-
landi stórversnað síðan Dasai
tók við völdum, sundurþykkja og
ráðleysi er það sem indverskum
almúga þykir mest einkennandi
f.vrir þann tíma sem Dasai hefur
setið að völdum. Indira Gandhi
kynni því hvernig sem mál þessi
þróast að standa enn á ný með
pálmann í höndunum.
h.k.