Morgunblaðið - 20.12.1978, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 20. DESEMBER 1978 ‘
F
!
Arnór skoraði
Lubanski farinn heim
ARNÓR Guðjohnsen hefur
sannarlega komið ár sinni
vel fyrir borð hjá Lokeren.
Um helgina lék liðið við FC
Liege, liðið sem vann stór
sigur (4—0) á Anderlecht í
síðustu viku. Lokeren vann
örugglega og Arnór skoraði
fyrstu mörkin sín fyrir
félagið. Ekki aðeins eitt,
h'eldur tvö, en lokatölur
leiksins urðu 3—1 Lokeren
í vil. Lokeren skaust upp í
5. sætið í deildinni með sigri
sínum og er ekki langt
undan efstu liðunum.
Þess má geta, að félagi Amórs í
framlínunni hjá Lokeren, Vlodi
Lubanski, pólski landsliðsmaður-
inn, er farinn heim til Póllands.
Hann varð fyrir morðtilræði fyrir
skömmu og setti það í samband við
landamæradeilu sem upp kom eigi
alls fyrir löngu. Þá gerðist það, að
tveir Belgar voru handteknir í
Póllandi, er þeir ætluðu að smygla
úr landi ungri konu og dóttur
hennar. Öðrum Belganum var
sleppt, en hinn afplánar enn dóm í
Póllandi. Sá sem laus gengur mun
hafa svarið að hefna fyrir félaga
sinn með líkamsmeiðingum á
þekktum Austur-Evrópubúum í
Vestur-Evrópu. Hans er nú ákaft
leitað af lögreglunni í Belgíu, en
talið er að hann hafi hleypt af
skoti á mann sem hann taldi vera
Lubanski. særj;st lítillega, en
Lubanski lýsti yfir að hann vildi
ekki hætta á neitt og fluttist heim
til Póllands ásamt konu sinni og
dóttur um óákveðinn tíma.
Arnór Guðjohnsen
17 með
11 rétta
í 17. leikviku getrauna komu
fram 17 raðir með 11 réttum og
var vinningur fyrir hverja kr.
86.500.- Einnig voru 10 réttir í 156
röðum og vinningur fyrir hverja
kr. 4.000-
Út hafa verið gefnir seðlar, sem
gilda í 10 leikvikur, til hagræðis
fyrir þau íþróttafélög, sem búa við
strjálar samgöngur. Eru seðlarnir
með 4 röðum, 8 röðum og 16
röðum. Selfyssingur með 16 raða
seðil var svo óheppinn, að fá 11
rétta á 16 raða seðil og hafa eina
tví-trygginguna ranga. Hann fær
þó þær sárabætur, að vera með 11
rétta í 2 röðum og 10 rétta í 6
röðum, eða vinningsupphæð alls
197.000 kr.
Nýlega voru gefnir út reikningar
Dönsku getraunanna fyrir starfs-
árið 1977—1978 og kemur þar
fram að heildarsalan var í 52
leikvikum 38.1 milljarður ísl. kr.
og skattar til ríkisins 8,4 milljarð-
ar ísl. króna. Hagnaður varð 6.1
milljarður og af þessari upphæð
fékk danska íþróttasambandið 2.7
milljarða, og danska knattspyrnu-
sambandið 121 milljón. ísl. kr.
Úrslit í
jólamóti TBR
Sunnudaginn 17. desember var
haldið jólamót unglinga í einliða-
leik í T.B.R-húsinu. Margt var um
skemmtilega og spennandi leiki,
en þó sérstaklega í flokki pilta þar
sem Guðmundur Adólfsson T.B.R.
sigraði Brodda Kristjánsson
T.B.R. 17-16, 16-18 og 15-9.
Annars urðu úrslit sem hér segir:
TÁTUR: Þórdís Edwald T.B.R.
sigraði Karítas Jónsdóttur Í.A.
11-2 og 11—0.
HNOKKAR: Árni Þór Hallgríms-
son Í.A. sigraði Harald Sigurðsson
T.B.R. 3—11, 11-3 og 11-3.
MEYJAR: Inga Kjartansdóttir
T.B.R. sigraði Elísabetu Þórðar-
dóttur T.B.R. 11-1 og 12-10.
SVEINAR: Þorsteinn Páll Hængs-
son T.B.R. sigraði Hauk Birgisson
T.B.R. 11—9 og 11-0.
TELPUR: Kristín Magnúsdóttir
T.B.R. sigraði Ragnheiði Jónas-
dóttur Í.A. 11 — 7 og 11 — 1.
DRENGIR: Skarphéðinn Garðars-
son T.B.R. sigraði Gunnar Tómas-
son T.B.R. 11—7 og 11—6.
PILTAR: Guðmundur Adolfsson
T.B.R. sigraði Brodda Kristjáns-
son T.B.R. 17-16, 16-18 og 15-9.
Fjölmenn
fyrirtækja-
keppni
Laugardaginn 2. desember s.l.
fór fram fyrirtækjakeppni í bad-
minton, tvíliðaleik á vegum Bad-
mintondeildar Víkings. Fimmtán
fyrirtæki sendu sautján lið til
keppninnar. í undanúrslitum sigr-
aði Egill Vilhjálmsson h/f lið
Á.burðarverksmiðju ríkisins og
Endurskoðunarskrifstofa Svavars
Pálssonar s/f B-lið sigraði Heild-
verzlunina Standberg h/f. í hörku-
spennandi úrslitaleik sigraði síðan
Svavar Pálsson s/f 17—14 og 15—7
eftir að hafa verið undir í fyrstu
lotunni 9—14. Sigurliðið er skipað
endurskoðendunum Stefáni Svav-
arssyfti og Jóhannesi Guðjónssyni
en ryrir Egil Vilhjálmsson kepptu
Matthías Guðmundsson^ skrif-
stofustj. og Halldór Þórðarson
sölustj.