Morgunblaðið - 20.12.1978, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.12.1978, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 20. DESEMBER 1978 ‘ F ! Arnór skoraði Lubanski farinn heim ARNÓR Guðjohnsen hefur sannarlega komið ár sinni vel fyrir borð hjá Lokeren. Um helgina lék liðið við FC Liege, liðið sem vann stór sigur (4—0) á Anderlecht í síðustu viku. Lokeren vann örugglega og Arnór skoraði fyrstu mörkin sín fyrir félagið. Ekki aðeins eitt, h'eldur tvö, en lokatölur leiksins urðu 3—1 Lokeren í vil. Lokeren skaust upp í 5. sætið í deildinni með sigri sínum og er ekki langt undan efstu liðunum. Þess má geta, að félagi Amórs í framlínunni hjá Lokeren, Vlodi Lubanski, pólski landsliðsmaður- inn, er farinn heim til Póllands. Hann varð fyrir morðtilræði fyrir skömmu og setti það í samband við landamæradeilu sem upp kom eigi alls fyrir löngu. Þá gerðist það, að tveir Belgar voru handteknir í Póllandi, er þeir ætluðu að smygla úr landi ungri konu og dóttur hennar. Öðrum Belganum var sleppt, en hinn afplánar enn dóm í Póllandi. Sá sem laus gengur mun hafa svarið að hefna fyrir félaga sinn með líkamsmeiðingum á þekktum Austur-Evrópubúum í Vestur-Evrópu. Hans er nú ákaft leitað af lögreglunni í Belgíu, en talið er að hann hafi hleypt af skoti á mann sem hann taldi vera Lubanski. særj;st lítillega, en Lubanski lýsti yfir að hann vildi ekki hætta á neitt og fluttist heim til Póllands ásamt konu sinni og dóttur um óákveðinn tíma. Arnór Guðjohnsen 17 með 11 rétta í 17. leikviku getrauna komu fram 17 raðir með 11 réttum og var vinningur fyrir hverja kr. 86.500.- Einnig voru 10 réttir í 156 röðum og vinningur fyrir hverja kr. 4.000- Út hafa verið gefnir seðlar, sem gilda í 10 leikvikur, til hagræðis fyrir þau íþróttafélög, sem búa við strjálar samgöngur. Eru seðlarnir með 4 röðum, 8 röðum og 16 röðum. Selfyssingur með 16 raða seðil var svo óheppinn, að fá 11 rétta á 16 raða seðil og hafa eina tví-trygginguna ranga. Hann fær þó þær sárabætur, að vera með 11 rétta í 2 röðum og 10 rétta í 6 röðum, eða vinningsupphæð alls 197.000 kr. Nýlega voru gefnir út reikningar Dönsku getraunanna fyrir starfs- árið 1977—1978 og kemur þar fram að heildarsalan var í 52 leikvikum 38.1 milljarður ísl. kr. og skattar til ríkisins 8,4 milljarð- ar ísl. króna. Hagnaður varð 6.1 milljarður og af þessari upphæð fékk danska íþróttasambandið 2.7 milljarða, og danska knattspyrnu- sambandið 121 milljón. ísl. kr. Úrslit í jólamóti TBR Sunnudaginn 17. desember var haldið jólamót unglinga í einliða- leik í T.B.R-húsinu. Margt var um skemmtilega og spennandi leiki, en þó sérstaklega í flokki pilta þar sem Guðmundur Adólfsson T.B.R. sigraði Brodda Kristjánsson T.B.R. 17-16, 16-18 og 15-9. Annars urðu úrslit sem hér segir: TÁTUR: Þórdís Edwald T.B.R. sigraði Karítas Jónsdóttur Í.A. 11-2 og 11—0. HNOKKAR: Árni Þór Hallgríms- son Í.A. sigraði Harald Sigurðsson T.B.R. 3—11, 11-3 og 11-3. MEYJAR: Inga Kjartansdóttir T.B.R. sigraði Elísabetu Þórðar- dóttur T.B.R. 11-1 og 12-10. SVEINAR: Þorsteinn Páll Hængs- son T.B.R. sigraði Hauk Birgisson T.B.R. 11—9 og 11-0. TELPUR: Kristín Magnúsdóttir T.B.R. sigraði Ragnheiði Jónas- dóttur Í.A. 11 — 7 og 11 — 1. DRENGIR: Skarphéðinn Garðars- son T.B.R. sigraði Gunnar Tómas- son T.B.R. 11—7 og 11—6. PILTAR: Guðmundur Adolfsson T.B.R. sigraði Brodda Kristjáns- son T.B.R. 17-16, 16-18 og 15-9. Fjölmenn fyrirtækja- keppni Laugardaginn 2. desember s.l. fór fram fyrirtækjakeppni í bad- minton, tvíliðaleik á vegum Bad- mintondeildar Víkings. Fimmtán fyrirtæki sendu sautján lið til keppninnar. í undanúrslitum sigr- aði Egill Vilhjálmsson h/f lið Á.burðarverksmiðju ríkisins og Endurskoðunarskrifstofa Svavars Pálssonar s/f B-lið sigraði Heild- verzlunina Standberg h/f. í hörku- spennandi úrslitaleik sigraði síðan Svavar Pálsson s/f 17—14 og 15—7 eftir að hafa verið undir í fyrstu lotunni 9—14. Sigurliðið er skipað endurskoðendunum Stefáni Svav- arssyfti og Jóhannesi Guðjónssyni en ryrir Egil Vilhjálmsson kepptu Matthías Guðmundsson^ skrif- stofustj. og Halldór Þórðarson sölustj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.