Morgunblaðið - 17.02.1979, Side 19

Morgunblaðið - 17.02.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1979 19 Klna mótmælír atferli Hanoi Peking, 16. febrúar. Reuter. KÍNVERJAR sendu í dag Víetnömum nýja mótmælaorðsendingu gegn „vopnuðum ögrunum, árásum og morðum“ á landamærunum. Orðalag orðsendingarinnar bendir þó ekki til þess að Kínverjar ætli að magna átökin og „refsa" Víetnömum fyrir aðgerðir þeirra á landamærunum að Kína og í Kambódíu. Peking-stjórnin segir í orðsend- ingunni að 14 Kínverjar hafi verið felldir og 10 særðir og tvær járn- brautarlestir sprengdar í loft upp á kínversku yfirráðasvæði dagana 8. til 12. febrúar. Diplómatar í Peking telja yfir- leitt að meiriháttar árás Kínverja á Víetnam sé ólíkleg eins og nú standi sakir. Ymsir telja að Kínverjar haldi áfram þrýstingi sínum á landa- mærunum en án stigmögnunar sem gæti gert ástandið óviðráðan- legt. Jafnframt er talið víst að Kín- verjar haldi áfram að styðja skæruliða sem berjast gegn Víet- nömum í Kambódíu til þess að dreifa kröftum Víetnama sam- tímis því sem áróðursstríði verði haldið áfram og alið á óánægju í Víetnam. Heimildir í Peking herma að vanhugsaðar aðgerðir af hálfu Kínverja gætu haft öfug áhrif og gert Víetnömum kleift að endur- heimta samúð sem þeir hafi notið. Hörd viðureign við her Amins Dar Es Salaam, 16. febrúar. Tanzaníumenn sögðu í dag frá því að mikil orrusta hefði geisað í gær milli liðsafla Tanzaníu og Uganda á landamærum ríkjanna. Glímt og boxaðá vígvelli Nairobi, 16. febrúar. AP. IDI Amin forseti sagði í dag að skotfæralausir Ugandahermenn ættu í hncfaleikum og glímu við innrásarmenn frá Tanzaníu og að viðureignin minnti á viðureign Muhammed Alis heimsmeistara í henfaleikum og Ken Nortons. Amin er fyrrverandi Uganda- meistari í hnefaleikum og tilkynnt var í síðasta mánuði að Amin mundi berjast við japanska glímu.- manninn Antonio Inoki 10. júní í Kampala. Ali hafnaði einni millj- ón dollara fyrir að vera dómari til að glata ekki vinsældum sínum. Sprenginginí Varsjá: 41 látinn í yfirlýsingu frá ríkisstjórn Tanzaníu sagði, að Ugandaherlið búið skriðdrekum og stórskota- liði hefði reynt að sækja inn í Tanzaníu við þorpin Kukunyu og Mutukula en verið hrakið á flótta og orðið fyrir miklu manntjóni. Tanzaníumenn segjast hafa náð á sitt vald sovézkum T-55 skrið- dreka, fjórum brynvæddum her- flutningabílum, tveimur Land Rover-jeppum og mörgum litlum vopnum. Því var einnig haldið fram í yfirlýsingunni að herflugvélar frá Uganda hefðu reynt að ráðast á stöðvar Tanzaníumanna og að ein þeirra af gerðinni MIG-21 hefði verið skotin niður með loftvarna- byssum Tanzaníumanna. í Dar Es Salaam er sagt að fulltrúar Idi Amins Ugandaforseta séu komnir heim úr árangurs- lausri vopnakaupaferð til Spánar, Portúgals og Iraks. Ugandaher mun hafa orðið fyrir miklu her- gagnatjóni síðan átökin á landa- mærum Uganda og Tanzaníu hófust fyrir 14 vikum. Veður Varsjá, Páfagarði 16. febr. AP í DAG var greint frá því, að tala þeirra, sem létust í banka- sprengingunni í Varjsá, hefði hækkað í 41. Rannsókn á orsökum þessa atburðar er haldið áfram af fullum krafti. Þetta er mesta og afdrifarík- asta sprenging í Póllandi síðan í heimsstyrjöldinni síðari. Jóhannes Páll páfi II hefur sent aðstandendum hinna látnu samúðarskeyti að því er tals- maður Páfagarðs sagði í dag. Skeytið var stílað til Stefans Wyszynski kardinála í Varjsá. Af þeim 110 manns sem slösuðust hafa 77 nú fengið að fara heim af sjúkrahúsi en líðan 22ja er slæm. ERLENT víða um heim Akureyri 4 alskýjaó Amsterdam +6 skýjaó Apena 22 bjart Barcelona 9 skýjaó Berlín +7 skýjað BrUssel 0 skýjað Chicago +2 snjókoma Frankfurt 4 rigning Genf 2 skýjað Helsinki +12 bjart Jóhannesarb. 29 skýjað Kaupmannah. +7 snjókoma Lissabon 13 sól London +1 snjókoma Los Angeles 16 akýjað Madrid 6 bjart Majorka 10 léttakýjað Mlami 23 bjart Moskva +23 sól Nýja Delhi 20 rigning New York +3 snjókoma Ósló +6 sól París 0 skýjað Reykjavík 4 rigning Rómaborg 10 rigning San Francisco 14 skýjað Stokkhólmur +12 sól Tókíó 12 bjart Toronto +13 snjókoma Vancouver 7 vantar Vínarborg 4 rigning Vinstrisinnar ógna völdum Khomeinis Teheran, 16. febrúar. AP Vel skipulagðir vinstrisinnar ógna völcfum Ayatollah Khomeinls aöeins tæpri viku eftir fall keisarans. Bersýnilegt er aö þeir vilja gegna þýöingarmeira hlut- verki í stjórn landsins en trúar- leiötoginn er reiðubúinn aö sætta sig viö. í hinum haröa kjarna vinstrisinn- anna eru skæruliðar úr svo- kallaöri „Fedayeen"-hreyfingu. Þeir eru áhrifamiklir í háskólan- um í Teheran og ræðumenn þeirra þar hafa hvatt til and- stöðu gegn nýju stjórninni. Ungir marxistar vilja sósíalistalýð- veldi í íran en ekki undirgefni viö Moskvu. Þeir berjast fyrir jafn- rétti kynjanna sem mælist vel fyrir hjá menntuðu kvenfólki sem óttast múhameðskar erfða- venjur. Vestrænir diplómatar telja aö ekki líöi á löngu þar til valdabar- átta hefjist milli marxistískra skæruliöa og islamskra stríös- manna Khomeinis, sem þó nýtur stuönings meirihluta þjóðarinn- ar. Stuðningsmenn Khomeinis kenndu skæruliöum um árásina á bandaríska sendiráöiö svo aö baráttan er þegar hafin en skæruliöarnir kváöust saklausir. Meöal skæruliöa eru margir Kianouri, leiðtogi franskra kommúnista. ungir millistéttarmenn menntaöir á Vesturlöndum. Aðalstöövar þeirra eru í tækni- deild Teheran-háskóla. í hreyfingu vinstrisinna eru líka leifar Tudeh-flokks Moskvu-kommúnista og nýstofnaður kommúnistaflokkur írans. Þótt þeir allir hafi lýst yfir stuöningi viö Khomeini er talið aö þeir hafi gert þaö af hentistefnu einni saman vegna vinsælda Khomeinis. En diplómatar telja að margt rót- tækt millistéttarfólk muni halla sér að vinstrisinnum til aö missa ekki áhrif í islömsku rétt- trúnaðarríki. Skömmu fyrir lokaátökin gengu foringjar hins nýja kommúnista- flokks á fund Mehdi Bazargans forsætisráðherra til að útskýra hlutverk flokksins í islömsku lýöveldi. Þeim hefur gramizt aö Bazargan hefur ekki svarað þeim opinberlega. Vinstrimönn- um gremst líka að Bazargan hefur skipað hófsama vestur- veldasinna og andkommúnista í stjórnina. Þeir segja aö hann hafi svikið byltinguna. Óánægjan er því mikil. En alvar- legra er að margir íranir hafa neitaö aö veröa viö áskorun Khomeinis um aö skila vopnum sem var stolið í herstöðvum og lögreglustöðvum þegar gamla stjórnin féll. Bæöi stríðsmenn Khomeinis og skæruliöar áttu miklar vopnabirgöir fyrir upp- reisnina og nú hafa þeir aukiö vopnabúnað sinn. Báðir hópar hafa fengiö styrki frá róttækum ríkjum eins og Líbýu til vopnakaupa. En Khomeini hefur ekki tekizt aö fá vopnun- um skilaö og þaö getur reynzt afdrifaríkt. Khomeini og olían. Umhverfis jörðina — á 79 dögum og ngjum mettíma New York, 16. febr. AP. ERNEST O’Gaffney fór á mótorhjólinu sínu um- hverfis jörðina á 79 dögum og þegar hann lauk ferðinni í gær við Empire State-bygginguna í New York hafði hann sett Guinnessmet í hringsóli umhverfis jörðina. Fyrra metið var sett fyrir þremur árum, þegar Johnny Parsen fór á 102 dögum umhverfis jörðina en akandi í bíl. O’Gaffney kveðst og hafa sett ýmis önnur met í leið- inni þar á meðal að hann sá fyrsta manneskjan sem fer yfir Alpatinda um miðjan vetur. Starfsmenn Guinnessmetabókarinnar fögnuðu Gaffney við kom- una og var skálað í kampa- víni. O’Gaffney sagðist h&fa fengið kuldabólgur í Hima- lajafjöllum, var viku á spítala í Indlandi eftir að hafa lent í árekstri og í íran slasaðist hann er kastað var að honum eldsprengju. Hann segist einnig vera fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem kemur til Kína akandi á mótorhjóli og hann kveðst einnig vera fyrsti akandi Bandaríkjamaðurinn í Burma síðan 1952. O’Gaffney lagði að baki 34.730 mílur síðan 27. nóvember og leið hans lá um tuttugu og þrjú lönd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.