Morgunblaðið - 28.02.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979
11
Bandalag kvenna um
uppeldisleg markmið
ræða þar eigum við að nota
þurrdufts- eða kolsýrutæki,
asbestteppi aftur á móti eru
heppileg þar sem eldurinn er í
íláti svo sem feitispotti eða
uppþvottabakka, þá er auðvelt
að ráða niðurlögum hans með
því að leggja teppið yfir og kæfa
hann.
Handslökkvibúnaður er ekki
til að ráða niðurlögum neinna
stórelda, heldur til að ráða
niðurlögum elda á byrjunar-
stigi. Eldurinn gerir ekki boð á
undan sér, frumskilyrði þess að
handslökkvibúnaður komi að
gagni er að við séum handviss á
því hvar hann er að finna, hvers
konar búnað sé um að ræða og
hvernig eigi að beita honum, ef
ekki þá segir sig sjálft að tækin
koma að litlu gagni þau slökkva
ekki eldinn sjálf, það þarf fólk
til að beia þeim.
Allar þessar ráðstafanir, hólf-
anir, reykræsting, viðvörunar-
kerfi og handslökkvibúnaður
miða að því að gera sem minnst
úr þeim eldi sem þegar hefur
kviknað, en þær koma ekki í veg
fyrir hann, þar er við okkur sjálf
að sakast. Hávaðinn af öllum
eldsvoðum eiga rót sína að rekja
til kæruleysis okkar sjálfra,
kæruleysis í meðferð elds og
eldfimra efna og því fyrr sem
við gerum okkur ljóst að elds-
voðar verði ekki bara heldur
eigum við sjálf stóran þátt þar í,
því betra.
Öll fræðsla, sem miðar að því
að vekja okkur til umhugsunar í
þessum efnum stuðlar að því að
svo megi verða. Því eiga Junior
Chamber Reykjavík, sem nú
annað árið í röð fara af stað með
kynningu á þessum efnum í
brunaskólum borgarinnar,
þakkir skilið fyrir sitt framlag.
Gunnar Ólafsson.
Árshátíd
Húnvetninga-
félagsins
um helgina
HÚNVETNINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur árshátíð sína á
Hótel Sögu laugardaginn 3. marz
n.k. og verða miðar seldir í húsi
félagsins Laufásvegi 25 fimmtu-
daginn 1. marz klukkan 20—22.
Húnvetningafélagið varð 40 ára
á s.l. ári en það var stofnað 17.
febrúar 1938. Á stofnfundinn
koma á þriðja hundrað manns. Að
undirbúningi unnu mest Arin-
björn Árnason frá Neðri-Fitjum
og Gísli Bjarnason frá Steinnesi.
Fyrsti formaður var kosinn
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Húnvetningafélagið hefur alla
tíð starfað af miklum þrótti og
beitt sér fyrir ýmsum framfara-
málum hér í Reykjavík og Húna-
vatnssýslum. Félagið hefur haldið
uppi fjölbreyttu félags- og
skemmtanalífi og er árshátíðin
einn liður í því starfi og eru þær
jafnan vel sóttar og vel heppnaðar.
Félagar eru nú nær 500, þar af
rúmlega 100 ævifélagar. 15 manns
hafa gegnt formennsku, lengst
Friðrik Karlsson eða í 15 ár.
Núverandi formaður er Halldór
Kolka en aðrir í stjórn eru Guðrún
Sveinbjörnsdóttir, Anna Sigur-
jónsdóttir, Steinþór Ólafsson og
Aðalsteinn Helgason.
Aðalfundur Bandalags kvenna
í Reykjavfk um helgina sendi frá
sér eftirfarandi:
í tilefni af ári barnsins, sam-
þykkti aðalfundur Bandalags
kvenna í Reykjavík sem haldinn
var dagana 25. og 26. febrúar
1979, eftirfarandi stefnumörkun:
að uppeldisleg markmið skuli vera
þau, að hver einstaklingur
verði fær um að standa á eigin
fótum, andlega, félagslega sem
efnalega,
að allir skuli hafa tækifæri til að
ná þeim þroska, sem hæfni og
upplag gerir mögulegt,
að á tímum sérfræðinga verði
það réttur íslenzkra barna að
fá góða almenna menntun í
grunnskóla, sem grundvöll til
þess að byggja líf sitt á,
að menntun eigi sér rætur í
íslenskri menningarhefð,
að kennileiti í umhverfi íslenskra
barna verði lýðræði,
mannréttindi og sú mann-
gildishugsjón, sem tekur mið af
kristnu siðgæði,
að heimili og fjölskylda njóti
verndar og stuðnings til þess
að axla þá ábyrgð, sem
umönnun og uppeldi nýrra
þegna leggur þeim á herðar,
að í menntastofnunum hafi
íslensk tunga og saga þjóðar-
innar óskoraðan sess.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (JLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
hátíð
m
r'->..;;»V
í Austurstræti 22
í dag — öskudag
Við kynnum hina frábæruúAií
4
tónlist fatnaö
í verzlunum okkar í Austurstræti 22 í
i dag. Leikin veröur tónlist í Video
tækjum þar sem allir leikararnir
koma fram og sýnt veröur frá
jjk veizlu, sem haldin var í tilefni
frumsýningarinnar.
, .w -■ ---3---
■Á--ýrm
áJ/ ..3 — j ■»} ^0KÁRNABÆR
Austurstræti 22, simi (ra skiptiborði 28155
i
.* Austurstræli 22
2 hæð
<ni 28155
HLJOMDEILD
Ötjjl KARNABÆR
" Auiturstrati M >