Morgunblaðið - 28.02.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979
31
ness hefur nú gengið frá
samningi við vestur-þýskan þjálf-
ara Klaus Hilpert, sem kom hing-
að til lands fyrir skömmu til
skrafs og ráðagerða. Mun Klaus
koma hingað til lands 10. marz
næstkomandi og hefja þá strax
þjálfun. Reyndar æfir Akranes-
liðið nú eftir æfingatöflu frá
honum. Klaus Hilpert þykir mjög
góður knattspyrnuþjálfari í
heimalandi sínu og var efstur á
löngum lista sem ÍA fékk hjá
hinum þekkta þjálfara FC Köln,
Weisveiler. Hrósaði Weisveiler
Hilpert á hvert reipi og gaf
honum góð meðmæli.
Hilpert hefur starfað sem þjálf-
Ætíaaðsígrá
Holland í kvöld
Hin nýi
Hilpert.
þjálfari ÍA. Klau
Frá Ágústi Inga Jónssyni
á Spáni:
JÓHANN Ingi Gunnarsson hefur
ekki enn valið liðið sem leikur
gegn Hollandi í kvöld hér í
Barcelona. íslensku leikmennirn-
Skagamenn ráða V-Þjóðverja
ari hjá þýzkum 3. deildarliðum og
undantekningalaust komið þeim
upp í 2. deild.
Það mun hafa verið Pétur Egg-
erts sendiherra Islands í Bonn sem
átti stærstan þátt í því að Hilpert
fékk sig lausan úr starfi sínu við
íþróttaháskólann í Köln og fékk
fararleyfi til íslands. Gunnar
Sigurðsson stjórnarmaður í knatt-
spyrnuráði IA sagði í gær, er Mbl.
ræddi við hann, að það væri
enginn vafi á að ÍA hefði verið
mjög heppið með þjálfara að þessu
sinni. Þeir hefðu leitað vel og lengi
og nú loksins hefðu þjálfaramál
þeirra leystst farsællega. Þeir
hefðu ekki viljað flana að neinu í
þessum efnum.
Mikill hugur er í Skagamönnum
og æfingar vel stundaðar, enda
stutt í næsta verkefni sem verður
ferðin til Indónesíu. ÍA hefur
endurnýjað auglýsingasamninginn
sinn við Grohe, og hefur Ómar
Kristjánsson hjá Þýzk-íslenska
verslunarfélaginu verið þeim mjög
innan handar við samninginn við
Klaus Hilpert.
- þr.
ir slepptu æfingu í gær og hvfldu
sig. Farið var í skoðunarferð um
borgina. bá var ieikurinn gegn
Spánverjum skoðaður gaumgæfi-
lega, og þar sáu menn sín eigin
mistök á myndsegulbandinu.
Voru menn sammála um, að
dómararnir hefðu verið liðinu
frekar óhagstæðir í leiknum. í
gærkvöldi var svo leikur Hol-
lands og Tékkóslóvakíu skoðaður
vel. Allir eru ákveðnir í að leggja
sig alla fram og sigra Holland.
Ekkert annað kemur til greina.
Líkur eru taldar á, að Jens
Einarsson markvörður komi inn í
liðið í stað Brynjars Kvarans, og
að Erlendur Hermannsson fái sinn
fyrsta leik í ferðinni, en hann
hefur hvílt til þessa.
Jón Pétur Jónsson er óðum að
ná sér af meiðslum þeim er hann
hlaut og verður væntanlega með í
liðsuppstillingunni.
I gærkvöldi héldu íslensku leik-
mennirnir mikið borðtennismót,
þar sem allir léku við alla. Hentu
menn gaman að því, að hin snöggi
Bjarni Guðmundsson gæti leikið
einn á borði og hlaupið á milli, svo
fljótur væri hann.
Þegar leikur íslands og Hol-
lands fer fram á morgun kl. 20.00
leika aðeins 100 metra frá húsinu
stórliðin í spænsku knattspyrn-
unni, Barcelona og Valencia. Eru
menn vonsviknir yfir að komast
ekki á völlinn að sjá hinar frægu
kempur eins og Kempes, Bonhof,
Krankl og Neskens. Neskens hefur
110 milljónir íslenskra króna í
árslaun hjá FC Barcelona auk
auglýsingatekna og fleira.
1
I
i
i
Hörð og spennandi
keppni á EÆ í
frjálsum íþróttum
Frjálsíþróttamenn frá
Austur-Evrópu voru sigursælir á
Evrópumeistaramótinu í frjáls-
íþróttum innanhúss í Vínarborg
um helgina. Alls unnu frjáls-
íþróttamenn frá löndum austan
járntjaldsins til 14 gullverðlauna,
en íþróttamenn frá Vestur-
-Evrópu hlutu aðeins fimm
gullverðlaun.
Aðeins eitt nýtt Evrópumet var
sett á mótinu, Pólverjinn
Wladyslaw Kozakiewics bætti
eigið met í stangarstökkinu um
einn sentimetra er hann stökk
5,58 metra. Átti Kozakiewicz
góðar tilraunir við nýtt heimsmet
innanhúss 5,64 metra. Pólverjinn
var í sérflokki í greininni, en sex
menn háðu harða keppni um
næstu sæti. Tveir Rússar, Volkov
og Trofimenko, stukku 5,45
metra, og síðan komu fjórir
stökkvarar, þar af tveir Pól-
verjar, með 5,40 metra.
Keppnin var ekki síðri í 400
metra hlaupi kvenna. Austurríska
stúlkan Karoline Káfer hafði
forystu í hlaupinu þegar örfáir
metrar voru í mark og ætlaði allt
að ganga af göflunum í íþrótta-
höllinni í Vín, því heimamenn
hvöttu sína manneskju hraustlega,
En á síðustu stundu smeygðu þeær
Verona Elder frá Bretlandi og
Jarmila Kratochvilova frá
Tékkóslóvakíu sér fram úr Káfer.
Það tók dómarana 15 mínútur að
skera úr um það hver sigraði.
Elder var fyrst á 51,80 sekúndum,
Kratochvilova önnur á 51,81 sek.,
og Káfer hlaut 51,90 sekúndur.
Tékkar eiga góðan 400 metra
hlaupara einnig í karlaflokki því
Karel Kolar sigraði létt og af
öryggi í þeirri grein á 46,21
sekúndu. Annar varð Stefano
Malinverni frá Ítalíu á 46,59 sek.,
og þriðji varð Horia Toboc frá
Rúmeníu á 46,86 sekúndum.
Fyrstu gullverðlaun mótsins
vann finnski kúluvarparinn Reijo
Stahlberg. Kastaði hann 20,47
metra, en silfrið hlaut Bretinn
Geoffrey Capes, sem hér keppti á
Reykjavíkurleikunum í fyrra, með
20,23 metra kasti. St.ahlberg náði
sigurkastinu í fimmtu umferð en
Capes náði sínu bezta í annarri
umferð. Stahlberg varð einnig
Evrópumeistari innanhúss í fyrra.
Capes varð Evrópumeistari 1974
og 1976. Hann hlaut silfrið 1977,
þegar Hreinn Halldórsson sigraði
óvænt, og í fyrra hlaut Capes
bronzverðlaunin. Rússinn
Vladimir Kissilyev varð þriðji
með 20,01 metra. Finnski kringlu-
kastarinn Markku Tuokko varð
fjórði með 19,55 metra, fimmti
varð Rússinn Anatoly Yarosch
með 19,12 metra, sjötti varð
Tékkinn Jaroslav Brabec með
19,07 metra og sjöundi varð Bret-
inn Winch með 17,03 metra.
Sú grein sem minnst þótti til
koma á mótinu var kúluvarp
kvenna. Aðeins þrjár konur tóku
þátt í greininni. Austur-þýzka
stúlkan Ilona Slupianek sigraði
með 21,01 metra kasti, silfrið hlaut
landa hennar Marianne Adam
sem kastaði 20,14 metra og bronzið
hlaut brezka stúlkan Judith Oakes
en hún kastaði 15,66 metra. Oakes
hefur lengst kastað um 17 metra.
Margar stúlkur hættu við keppni á
síðustu stundu, og sögðu blöð í
Austurríki ástæðuna líklega þá að
skömmu fyrir mótið hefði spurzt
út að keppendur yrðu allir prófaðir
með tilliti til ólöglegrar lyfja-
notkunar. Slupianek var á sínum
tíma dæmd frá keppni í eitt ár
fyrir að nota ólögleg hormónalyf.
Coghlan í sérflokki
írski hlauparinn Eamonn
Coghlan sannaði í úrslitum 1500
metra hlaupsins að hann er í
algjörum sérflokki í innanhúss-
keppni. Hann tók mikinn sprett
síðustu 200 metrana og skildi
keppinauta sína alveg eftir. Hlaut
Coghlan tímann 3:41,8 mínútur,
Vestur-Þjóðverjinn Thomas
Wessinghage varð annar á 3:42,8
og Bretinn John Robson þriðji á
sama tíma. Coghlan setti nýlega
heimsmet í míluhlaupi innanhúss,
3:52,6 mínútur, sem jafngildir um
3:36 mínútum í 1500 metra hlaupi.
Svisslendingurinn Markus
Ryffel endurtók sigur sinn frá því
í fyrra í 3000 metra hlaupinu, en
keppni þar var mjög spennandi.
Ryffel fékk tímann 7:44,5 mínútur,
annar varð Vestur-Þjóðverjinn
Christoph Herle á 7:45,5 og þriðji
Sovétmaðurinn Alexander
Fedotkin, sem keppti hér á landi
1976, á sama tíma. Sekúndubroti
frá verðlaunum var
Austur-Þjóðverjinn Andreas
Basig og Bretinn Nick Rose varð
fimmti á 7:46,7 mínútum.
Spánverjinn Antonio Paez
leiddi 800 metra hlaup karla frá
upphafi til enda og sigraði á 1:47,4
mínútum. Annar varð Búlgarinn
Binko Kolev og þriðji varð
Ungverjinn Andras Paroczai.
Tíma þeirra vantaði í frétta-
skeytið.
Sovétmenn sterkir
í stökkum
Sovétmenn hlutu mikið safn
verðlauna í þrístökki, langstöddi
og í hástökki karla. Þeir sigruðu
þrefalt í þrístökkinu, og hlutu gull
og silfur í bæði hástökki og lang-
stökki. Heimsmethafinn Gennandi
Valyukevic stökk 17,02 metra,
Anatoli Piskulin, sem keppt hefur
hérlendis, stökk 16,97 metra og
Yaak Uudmae 16,91 metra.
Vladimir Iserelev stökk 7,88
metra og varð hlutskarpastur í
langstökkinu, en Valery
Podluzhny, fyrrverandi Evrópu-
meistari, stökk 7,86 metra og
Austur-Þjóðverjinn Lutz Franke
stökk 7,80 metra og varð þriðji.
Heimsmethafinn Vladimir
Yashchenko og landi hans Genn-
andi Belkov stukku báðir 2,26
metra í hástökkinu, en
Yashchenko hlaut gullið þar sem
hann fór yfir í fyrstu tilraun en
Belkov í annarri. Báðir reyndu
þrisvar við 2,29 metra. Þriðji varð
Vestur-Þjóðverjinn Andre
Schneider með 2,24 metra.
Pólski spretthlauparinn Marion
Voronin sigraði í 60 metra hlaupi
karla og jafnaði um leið eigið
Evrópumet, 6,57 sekúndur. Heims-
metið á bandaríski svertinginn
Houston McTear, 6,54 sekúndur.
Landi Voronins, Leszek Denecki
varð annar á 6,62 sekúndum og
þriðji varð Búlgarinn Petar
Petrov á 6,63 sekúndum. Nikolai
Kölesnikov, meistarinn frá í fyrra,
féll kylliflatur í startinu og varð
hann að láta sér lynda að hafa
komist í úrslitin. I úrslitunum
voru aðeins hlauparar frá Austan-
tjaldslöndum.
Austur-Þjóðverjinn Thomas
Munkelt sigraði í 60 metra grinda-
hlaupi á 7,59 sekúndum, sem er
næst bezti árangur í greininni frá
upphafi vega. Annar varð Finninn
Arto Bryggare á 7,67 sekúndum
og þriðji varð Eduad Pereverzev
frá Sovétríkjunum á 7,70 sekúnd-
Óvænt úrslit
______í grind kvenna________
Úrslitin í 60 metra grindahlaupi
kvenna komu mjög á óvart.
Heimsmethafinn Grazyna
Rabsztyn frá Póllandi varð að láta
í minni pokann fyrir löndu sinni
og ljósku Danutu Perka. Perka
hljóp á 7,95 sekúndum en
Rabsztyn á 8,00 sek. Þriðja varð
sovézká stúlkan Nina Morgulina á
8,09 sek. Tatyana Anasimova, sem
varð önnur í 100 m grindahlaupinu
í Montreal, varð aðeins í fimmta
sæti. Heimsmet Rabsztyn er 7,86
sekúndur. I úrslitunum voru ein-
göngu stúlkur frá
Austantjaldslöndunum. Sylvia
Kempin frá Vestur-Þýzkalandi, en
hún hlaut silfrið í fyrra, féll úr í
undanrásum.
Hörkukeppni var í úrslitum 60
metra hlaups kvenna. Eins búist
var við sigraði Austur-Þýzka
stúlkan Marlies Göhr á 7,16
sekúndum. Göhr á heimsmetið í
greininni, 7,12 sekúndur. Landa
hennar Marita Koch, sem setti
heimsmet í 100 yarda hlaupi
kvenna innanhúss um síðustu
helgi, hljóp á 7,19 sek., og í þriðja
sæti varð varð Ludmila
Storozhkova frá Sovétríkjunum á
7,22 sekúndum. Sænska stúlkan
Linda Haglund, sem hlaut silfrið í
fyrra, varð aðeins í fimmta sæti.
Hljóp hún á 7,28 sekúndum.
Spennandi
millivegalengdarhlaup
Keppnin í 800 metra hlaupi
kvenna var mjög spennandi.
Búlgarska stúlkan Nikolina
Shtereva, sem vað önnur í
Montreal, og Austur-Þýzka stúlk-
an Anita Weisz, sem varð fjórða í
Montreal, háðu spennandi keppni
um sigurinn og hafði Shetereva
betur. Hlaut hún tímann 2:02,63
mínútur, en tími Weisz fylgdi ekki
í fréttaskeytum. Þriðja varð
rúmenska stúlkan Fita Lovin.
Þá var keppnin í 1500 metra
hlaupi ekki síður spennandi.
Rúmenska stúlkan Natalia
Maracescu, sem nýlega setti
heimsmet innanhúss, 4:03 mínútur,
tryggði sér sigurinn á loka-
sprettinum eftir mjög mikla
keppni við sovézku stúlkuna
Zamira Zaitseva. Svetlana
Gushkova frá Sovétríkjunum varð
þriðja skammt á eftir. Tími
Maracescu var 4:03,9 mínútur og er
talið að heimsmetið hefði fallið
hefðu stúlkurnar lagt hraðar af
stað en raun varð á.
Ungverska stúlkan Andrea
Matay, sem nýlega setti heimsmet
í hástökki kvenna innanhúss, sigr-
aði með yfirburðum í hástökkinu
með 1,92 metra stökki. Önnur varð
pólska stúlkan Urzula Kielan sem
stökk 1,85 metra og þriðja varð
Ólimpíumeistarinn frá 1972,
vestur-Þýzka stúlkan Ulrike
Meyfarth, sem stökk 1,80 metra.
Þrjár aðrar stúlkur stukku 1,80.
Langstökk kvenna var mjög
spennandi frá upphafi og allt til
loka því tvær stúlkur skiptust á að
hafa forystuna. En með risastökki
í síðustu umferð tryggði Sigrún
Siegl frá Austur-Þýzkalandi sér
sigurinn. Stökk hún 6,70 metra.
Önnur varð Jarmila Nygrynova
frá Tékkóslóvakíu með 6,42 metra
og þriðja varð sænska stúlkan
Lena Johansson með 6,27 metra.
Hún er íslensku frjálsíþróttafólki
af góðu kunn, því hún hefur verið
aðsópsmikil í Kalott-keppninni
undanfarin ár. Nygrynova varð
Evrópumeistari í fyrra. Angela
Voight frá Austur-Þýzkalandi á
heimsmetið í greininni, 6,76 metra
en hún varð að hætta við keppni á
síðustu stundu.
14 ára drengur
meó 11 rétta
Á LAUGARDAG sagði íþrótta þulurinní brezka útvarpinu, að
knattspyrnan vær nú loksins komin aftur í sinn farveg, og allir leikir
ensku deildakeppninnar gátu farið fram. En úrslit sumra leikjanna í
1. deild voru þannig. að sumir hafa lfklega óskað eftir að
teningakastinu yrði haldið áfram.
Aðeins einn seðill kom fram með 11 féttum og er eigandinn 14 ára
drengur norður í Mývatnssveit og hlýtur hann kr. 980.500.-. Fyrir 10
rétta verða greiddar kr. 34.700.- á röðina. en þær voru II talsins.