Morgunblaðið - 28.02.1979, Page 32
Tiliitssemi
kostar
ekkert
%
VerzliO
$érverzlun með
Mtasjónvörp og hljómtæki.
Skipholtí 19.
BUÐIN sími
v 29800
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979
Njarðvíkiirbær
kaupir hlut í
Sjöstjörnunni
NJARÐVÍKURBÆR heíur gert samkomulatí við eigendur hraðfrysti-
hússins Sjöstjörnunnar í Njarðvík um að bærinn eignist 10% hlutafjár
í fyrirtækinu, og sagði Albert Sanders, bæjarstjóri í Njarðvík, í
samtali við Mbl. að bærinn gerði þetta í þeirri von að flýta fyrir því að
fyrirtækið fengi fullnægjandi fyrirgreiðslu til að hefja starfrækslu
að nýju en reksturinn hefur legið niðri að mestu um nokkurt skeið.
Hlutafé Sjöstjörnunnar er að
nafnvirði um þessar mundir 57,1
milljón króna en bæjarsjóður
Njarðvíkur skai greiða 22,8
milljónir króna fyrir sinn hlut eða
kaupir bréfin á fjórföldu nafn-
Guðmundur og
Friðrik sömdu
um jafntefli
ÍSLENZKU stórmeistararnir
Friðrik ólafsson forseti FIDE
og Guðmundur Sigurjónsson
tefldu saman í 3. umferð
alþjóðlega stórmótsins í
Miinchen f gær. Lauk skák
þeirra með jafntefli.
Heimsmeistarinn Anatoly
Karpov tefldi í þriðju umferð
við Austurríkismanninn Karl
Robatsch og gerðu þeir jafn-
tefli í aðeins 16 leikja skák, en
helzti keppinautur Karpovs,
Boris Spassky gerði jafntefli
við landa sinn Balashov. En í
annarri umferð mótsins hafði
Karpov borið sigurorð af Bala-
shov og var það fyrsta sigur-
skák Karpovs eftir að hann
vann heimsmeistaratitilinn
gegn Viktor Korshnoj á
Filippseyjum s.l. sumar.
Spassky leiðir nú mótið með
2'á vinning.
Á morgun teflir Guðmundur
við brezka stórmeistarann
Michael Stean, en Friðrik tefl-
ir að öllum líkindum við
Andersen frá Svíþjóð.
verði. Njarðvíkurbær fær einn
fulltrúa í stjórn Sjöstjörnunnar,
og samkomulag er um að endur-
skoðunarskrifstofa í Reykjavík
annist endurskoðun fyrirtækisins.
Samkomulagið mun því aðeins
taka gildi að áform fyrirtækisins
um skipakaup nái fram að ganga,
en um skeið hefur legið fyrir hjá
ríkisstjórninni beiðni
Sjöstjörnunnar um kaup á tveimur
rækjutogurum en hún hefur ekki
enn fengizt afgreidd.
Sjöstjarnan er í hópi þeirra
frystihúsa sem sérstök úttektar-
nefnd varðandi vanda frysti-
iðnaðarins á Suðurnesjum lagði til
að fengi sérstaka fyrirgreiðslu til
að halda áfram starfrækslu.
Bensínhækkunin:
Nótt við
dag í
loðnunni
í Eyjum
15 SKIP tilkynntu loðnuafla í
gær, alls 8890 tonn og aðal-
veiðisvæðið er austur af
Ingólfshöfðanum. Það var
ágætisveður á miðunum fyrri
hluta dags í gær, en fór að
gjóla upp úr því og enginn
bátur tilkynnti veiði í gær-
kvöldi. Þessir bátar tilkynntu
um veiði í gær: Ilafrún með
300 tonn, Sæberg 650, Albert
560, ísleifur 400, Gullberg
590, Pétur Jónsson 670, Sæ-
björg 600, Örninn 500, Gísli
Arni 580, Hilmir 500, Huginn
520, Hrafn 580, Guðmundur
900, Skírnir 430, Keflvíking-
ur 480, Kap II. 250 og Gjafar
380.
Myndina tók Sigurgeir í
Eyjum í gær í loðnuatinu, en
þar er nú unnið á vöktum
allan sólarhringinn við loðn-
una, bæði í frystingu og
bræðslu.
Færir ríkisvaldi 2 milljarða í
hækkuðum opinberum gjöldum
BENSÍNLÍTRINN hækkaði eins og kunnugt er um 24
krónur, en af þeirri hækkun renna til hins opinbera rétt
tæplega 16 krónur eða 67% hækkunarinnar. Arssala af
bensíni er um 120 milljónir lítra og fær því ríkisvaldið af
þessari hækkun nú á einu ári tæplega 2 milljarða króna,
sem er hækkun tolla, vegagjalds og söluskatts af hverjum
lítra. Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu
hækkaði bensínlítrinn úr 181 í 205 krónur eða um 24
krónur. Þessi hækkun skiptist þannig:
Hlutur ríkissjóðs af 24 kr. benzínhækkuninni
Tollur kr. 1.16
í vegasjóð kr. 10.82
Söluskattur kr. 4,00
Samtals kr. 15,98
Síðan greiðast 0,27 krónur í landsútsvar.
Geir Hallgrímsson á Alþingi í gær:
Rjúfið þing og efnið
til kosninga
úr því samstaða
næst ekki um
efnahagsstefnu
Miðað við að heildarsala á
bensíni sé 120 milljónir
lítra á ári, gefur skatt-
heimtan af þessari hækkun
ríkissjóði 619,2 milljónir
króna, en vegasjóði 1,298,4
milljónir króna. Samtals er
þetta 1.917,6 milljónir
króna. Sé hins vegar lands-
útsvarið talið með hagnazt
ríkisvaldið á hækkuninni
um 1.950 milljónir króna á
ári.
Afbrigði feUd vegna tíUögu YUmimdar um þjóðaratkvæði
GEIR HALLGRÍMSSON, formaður Sjálfstæðisflokksins krafðist þess
af stjórnarflokkunum á Alþirigi í gær. að þing yrði rofið og efnt til
kosninga, úr því að þeir gætu ekki komið sér saman um stefnuna í
efnahagsmálum.
Það er út í hött að Alþingi álykti
um þjóðaratkvæði í máli, sem ekki
er þingmál, enn sem komið er
a.m.k., sagði Geir Hallgrímsson
ennfremur. Alþýðuflokkurinn hef-
ur samið eigið efnahagsfrumvarp,
en hvorki haft dug eða þor til þess
að bera það fram á Alþingi. Al-
þýðuflokkurinn hefur nú tekið
frumvarp forsætisráðherra upp á
arma sér en hefur heldur ekki dug
eða þor til að bera það fram á
Alþingi, sagði Geir Hallgrímsson
ennfremur.
Umræður þessar urðu utan dag-
skrár í gær er Vilmundur Gylfa-
son leitaði afbrigða til þess að
tekin yrði á dagskrá þingsályktun-
artillaga hans um að efnt verði
þegar í stað til þjóðaratkvæða-
greiðslu um efnahagsfrumvarp
það, sem Ólafur Jóhannesson
kynnti í ríkisstjórninni fyrir
skömmu. í tillögu þessari felst
ennfremur að fresta skuli kaup-
gjaldshækkunum, sem koma eiga
til útborgunar um þessi mánaða-
mót. Fellt var að veita afbrigði og
var tillagan því ekki tekin á
dagskrá í gær. Til þess að afbrigði
yrðu veitt þurftu % viðstaddra
þingmanna að samþykkja þau. 35
þingmenn greiddu atkvæði með
afbrigðum. Allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins nema Jón Sólnes
greiddu atkvæði með afbrigðum
svo og allir þingmenn Alþýðu-
flokksins. Bragi Sigurjónsson
þingmaður Alþýðuflokksins
greiddi atkvæði með afbrigðum en
kvaðst andvígur þjóðaratkvæða-
greiðslu um frumvarpið. Þing-
menn Framsóknarflokksins utan
þriggja greiddu atkvæði með af-
brigðum. Þeir þrír sem sögðu nei
voru Einar Ágústsson, Ingvar
Gíslason og Halldór E. Sigurðsson.
Allir þingmenn Alþýðubandalags-
ins, sem viðstaddir voru, sátu hjá.
í greinargerð fyrir tillögu Vil-
mundar Gylfasonar kemur fram,
að það strandi á „flokkspólitískum
ástæðum" að frumvarp Ólafs
Jóhannessonar verði að lögum
fyrir 1. marz.
í fyrrnefndri ræðu sagði Geir
Hallgrímsson, að það væri til
marks um hreina uppgjöf stjórn-
arflokkanna að vísa málinu til
þjóðaratkvæðis. Ef þeir gætu ekki
komið sér saman um stefnuna' í
efnahagsmálum ættu þeir að
víkja, rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga og leggja málið með þeim
hætti fyrir dóm kjósenda.
Nýja búvöru-
verðið vart
fyrir 1. marz
Sex-mannanefnd Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins hef-
ur undanfarið setið á fundum
til að reikna nýtt búvöruverð,
sem taka á gildi frá og með
næstu mánaðamótum. Guð-
mundur Sigþórsson, ritari
nefndarinnar, sagði í viðtali við
Mbl. í gær að nokkuð verk væri
enn óunnið innan nefndarinnar
og kvaðst ekki reikna með að
verðið lægi fyrir fyrr en komið
væri fram yfir mánaðamót eða
kringum næstu helgi.