Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 10
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Umsjón: Séra Jón Dalbtí Hróbjartsson
Séru Karl Siyv rbjörnsson
Siyurfrur Pdlsson
AUDROTTINSDEG!
aö fá páskalambi sínu slátrað,
þá hafa lærisveinar hans hugsað
til dagsins við Jórdan forðum,
þegar Jesús hafði komið gang-
andi í áttina til þeirra, og
Jóhannes skírari hrópaði: „sjá,
Guðs lambið, sem ber synd
heimsins!" Og þeir hafa hugsað
til þess, þegar Jesús sagði sjálf-
ur við þá: „Mannssonurinn er
ekki kominn til þess að láta
þjóna sér, heldur til þess að
þjóna og gefa líf sitt til
lausnargjalds fyrir marga.“ Var
krossinn eftir allt saman liður í
verki hans, ekki ömurlegur ósig-
ur, heldur sigur, fullkomnun
þess verks, sem Guð var að
vinna, til að friðþægja, endur-
leysa, frelsa mannkyn úr viðjum
hins illa? Opna leiðina til sín.
Þetta varð ljóst á páskadags-
morgun. Gröf Jesú var tóm.
Hann var upprisinn. Þetta var
satt. Guð var í Kristi að sætta
heiminn við sig!
Krossinn
Angist, örvænting, tortryggni,
ofbeldi, tilgangsleysi, firring,
sekt, valdabarátta, fordómar, —
hlekkir í þeirri kveðju, sem
fjötrar mánninn, steinar í þeim
múr, sem umlykur einstakling-
inn, byrgir honum sýn til Guðs
og meðbróðurins. Maðurinn,
sem með hyggjuviti sínu hefur
svo ótal möguleika til að láta
gott af sér leiða, ógnar nú
framtíð lífs og heims með sívax-
andi birgðum gereyðingarvopna,
síaukinni mengun, æ meiri tor-
tryggni milli stétta, þjóða og
kerfa. Allt er þetta hluti af
daglegu lífi okkar. Og líka það
hvernig við, sem vitum hvað er
rétt og satt, veljum iðulega hið
ranga og illa, „það góða, sem ég
vil, það gjöri ég ekki, en það
vonda, sem ég hata, það gjöri
ég!“ Þetta gæti líka verið játn-
ing lífs þíns. Þetta ástand er
hluti þess, L3m Biblían nefnir
SYND. Orðið synd er rótskylt
sögninni að sundra og no. sundr-
ung. Við lifum í sundruðum
heimi. Syndin er ástand, sem
umlykur mannkyn allt, tilver-
una alla. Hvern einstakling á
jörð.
Trúarbrögð mannkyns sýna
okkur tilraunir mannsins til að
brúa bilið milli Guðs og manns,
höggva á þennan fjötur, klífa
eða rjúfa þennan múr. Fórnir,
píslir, ölmusur og góðverk, heit,
pílagrímsferðir, likamsæfingar,
föstur, eru svona tæki, sem
menn reyna að nota í þessu
skyni. Jóga og hugleiðslur eru
þekkt í samtíð okkar og eru af
þessum rótum runnin, og bera
glöggt vitni hinna nagandi þörf,
sem jafnvel býr með nútíma
manninum.
Fórnirnar í Gamlatestament-
inu voru til þess að koma til
móts við þessa þörf. Þeim var
ætlað að minna á þá skuld og
sekt, sem mannkyn stendur í
gagnvart lífinu og höfundi þess.
Guð er heilagur, réttlátur,
sannleikurinn, ljósið og lífið.
Hann þolir ekki ranglætið,
bróðurmorðin, lygina, fordóm-
ana, kærleiksleysið. Engin synd
og engin syndari fær staðizt
fyrir augliti hans. Og að vera
aðskilinn Guði er að deyja,
glatast. í Gamlatestamentinu er
líf lambsins það lausnargjald,
sem gerir manninum mögulegt
að koma fram fyrir Guð og lifa.
Lambið deyr þeim dauða, sem
maðurinn á skilinn. Tekur á sig
afleiðingar syndarinnar.
Einu sinni á ári gekk æðsti-
prestur Gyðinga inn fyrir for-
tjaldið, sem lokaði leiðinni inn í
hið allra helgasta musterisins, í
höndum sér bar hann blóð
fórnarlambsins, til að stökkva
því á „náðarstólinn" sem huldi
sáttmálsörkina. Þetta var tákn
þess, að synd lýðsins var fyrir-
gefin, sektin goldin.
Fórnaraltari fri Palestínu.
Þegar Jesús gaf upp andann á
krossinum föstudaginn langa, á
sama tíma og Jerúsalemsbúar
hröðuðu sér til musterisins til
Biblíu-
lestur
vikuna 25.-31. mars
Sunnudagur 25. mars
Jóh. 6:1—15
Mánudagur 26. mars
Jóh. 6:24-47
ÞriÖjudagur 27. mars
Jóh. 6:48-71
Miðviltudagur 28. mars
Lúk. 22:1-13
Fimmtudagur 29. mars
Lúk. 22:14-22
Föstudagur 30. mars
Jóh. 13:1-20
Laugardagur 31. mars
Jóh. 13:21-30
Guðslambið
Pistill:
En vér bræður erum fyrir-
heitsins börn eins og ísak.
(Gal. 4,21-31)
Guðspjall:
Þegar fólkið nú sá það tákn
sem hann gjörði, sagði það:
Þessi er sannarlega spámað-
urinn, sem á að koma í heim-
inn.
Lambi var fórnað í musterínu sem
friðþægingarfórn.
Lambið er tákn Krísts, sem fórnar sér
og deyr fyrir syndir mannanna.
Jesú Krístí kvöl eina
á krossinum fyrir mig sken,
sé mín sáttargjörð hreina
og syndakvittunin,
af sjálfum Guði sén.
Upp á það önd mín vonar
í nafni föður og sonar
og heilags anda. Amen.
(HP Ps. 33,13)
Jesús sagði: Sannlega segi ég þér: í dag skaltu vera
með mér í Paradís!
Herra minn, þú varst hulinn Guð,
þá hæðni leiðst og krossins nauð,
þó hafðir þú með hæstri dáð
á himnaríki vald og ráð.
(HP: Ps. 40,16)
Jesú sagði: Það er fullkomnað!
Fullkomnað lögmál fyrir þig er,
fullkomnað gjald til lausnar þér,
fullkomnað allt, hvað fyrir var spáð,
fullkomna skaltu eignast náð.
Herra Jesú, ég þakka þér,
þvílíka huggun gafstu mér,
ófullkomleika allan minn
umbætti guðdómskraftur þinn.
(HP: Ps. 43,15-16)