Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979 55
Lyfj ahandbókin
Steinefni VI - Vítamín I
Selen. Árið 1817 uppgötvaði
hinn þekkti sænski efna-
fræðingur Jöns Jakob Berzelíus
nýtt frumefni í slími, sem safn-
aðist fyrir á botni stórra blý-
geyma, er notaðir voru við fram-
leiðslu á brennisteinssýru. Hann
gaf þessu frumefni nafnið selen,
en það er leitt af grísku orði er
merkir máni og gerði hann þetta
vegna þess, að frumefnið reynd-
ist skylt öðru frumefni, er
uppgötvað hafði verið nokkrum
árum áður af Reichenstein, sem
Klaproth gaf nafnið tellúr, en
það er leitt af latnesku orði, sem
merkir frumefni jarðar. Má af
þessu merkja, að efnafræðingar
geta ekkert síður en aðrir verið
skáldlegir. Korntegundir, sem
vaxa í selenríkum jarðvegi, geta
safnað efninu í próteinefni sín
og þessvegna eru þær eitraðar
og óhæfar til manneldis. Ef
stórir skammtar af selensöltum
eru teknir í inntöku, kemur í
ljós erting í þörmum og truflun
á starfsemi lítilla æða og blóð
myndandi líffæra.
. Vaxandi vísbendingar eru um,
að selen sé lífsnauðsynlegt í
mjög litlu magni fyrir dýr og ef
til vill einnig fyrir menn. Selen
getur komið í veg fyrir lifradrep
í rottum og hugsanlega hefur
það lækningagildi við meðferð á
kwashiorkor, en það er mjög
alvarlegur skortur á eggjahvítu-
efnum, sem leggst á mikinn
fjölda barna á öllum aldri í
Suður-Ameríku, Afríku og Asíu.
Einnig hefur komið í ljós, að
selen getur dregið úr eða komið í
veg fyrir einkenni, sem stafa af
E-vítamínskorti. Þörf líkamans
fyrir selen er ekki nákvæmlega
þekkt, en vitað er, að hún er
mjög lítil.
Vítamín
Ingangur. Allar götur til
byrjunar 20. aldar var talið, að
fæði væri fullnægjandi, ef nægi-
legt magn væri í því af eggja-
hvítuefnum, fitu, kolvetnum og
steinefnum. Þetta sjónarmið
breyttist, þegar það kom í ljós,
að margar fæðutegundir höfðu
að geyma efni í mjög litlu
magni, sem voru nauðsynleg
fyrir líf og heilsu, en líkaminn
gat ekki sjálfur framleitt.
Líkaminn þarfnast aðeins lítils
magns af þessum efnum, sem
kölluð eru vítamín, oft aðeins
nokkur milligrömm á dag. Orðið
vítamín er myndað úr latneska
orðinu vita, sem merkir líf
(lífsnauðsynlegur) og amína,
sem er nafn á flokki lífrænna
efnasambanda, er hafa
lútkennda svörun, en vítamín
eru samt mjög frábrugðin að
efnabyggingu og líffræðilegri
verkun og eru þau venjulega sett
öll í einn flokk af sögulegum
ástæðum.
Þegar vítamín voru fyrst
uppgötvuð, var hvert þeirra
merkt ákveðnum bókstaf til
aðgreiningar, en þegar tekizt
hafði að einangra það í hreinni
mynd og ákvarða efnabyggingu
þess, var því gefið nafn, sem qft
gaf til kynna eitthvert áberandi
skortseinkenni viðkomandi víta-
míns, en síðar var þessu breytt
og nafn vitamíns látið gefa til
kynna efnabyggingu þess. Af
þessum'sökum eru vítamín bæði
merkt með bókstöfum og einu
eða fleiri almennum nöfnum og
eru öll þessi nöfn notuð jöfnum
höndum.
Hægt er að flokka öll vítamín
í tvo flokka eftir leysanleika
þeirra. Annar hópurinn, A, D, E
og K-vítamín, er fituleysan-
legur, en hinn, sem í eru
B-vítamín og C-vítamín, er
vatnsleysanlegur. Þessi flokkun
hefur raunhæfa þýðingu með
því að hún gefur vísbendingu
um þær fæðutegundir, sem eink-
um geyma þessi vítamín. Til
dæmis að taka finnst vatns-
leysanlegt C-vítamín í aldinsafa
appelsína ög sítróna, en fitu-
leysanlegt D-vítamín í lýsi.
Vítamín eru efni, sem finnast
í náttúrunni og líkaminn verður
að fá frá umhverfi sínu til þess
að starfsemi hans geti farið
fram með eðlilegum hætti. Ef of
lítið er af vítamínum í fæðunni,
geta ýmis skortseinkenni komið
í ljós. Talið er, að nýtt og rétt
matreitt, blandað fæði fullnægi
þeim þörfum, sem líkaminn hef-
ur að öðru jöfnu fyrir vítamín.
Á hinn bóginn er þó vitað, að við
vissar aðstæður getur vítamín-
þörf aukizt. Dæmi um það eru
mikil líkamleg vinna, vaxtar-
skeið, þungun, brjóstmæður og
sjúkdómar, er leiða til aukinna
efnaskipta svo sem ofstarfsemi
skjaldkirtils. Þar sem örverur,
er lifa í þörmum, eiga umtals-
verðan þátt í að fullnægja eðli-
legri þörf vissra vítamína, eink-
um K- og B-vítamína, getur
vítamínskorts orðið vart eftir
langvarandi gjöf. súlfalyfja og
fúkalyfja í stórum skömmtum. I
öllum áðurnefndum tilvikum er
viðbótargjöf vítamína því nauð-
synleg. Öll þekkt vítamín
finnast í jurtaríkinu. Þó finnast
A- og D-vítamín þar í formi
vorvítamína, en svo eru þau efni
kölluð, sem geta breytzt í víta-
mín í líkama manna eða dýra.
Verður nú fjallað í grófum
dráttum um helztu vítamín og
þau kynnt eftir stafrófsröð.
A-vítamín, axeroftól, retínol
Árið 1913 uppgötvuðu tveir
bandarískir lífefnafræðingar,
McCollum og Davis, að smjör og
eggjarauða inniheldur eitthvert
efni í litlu magni, sem er nauð-
synlegt fyrir líf og heilsu. Þetta
efni reyndist leysanlegt í fitu en
ekki í vatni. McCollum kallaði
þetta efni „fituleysanlegt A“ til
samanburðar við „vatnsleysan-
legt B“, sem áður hafði verið
uppgötvað og merkt með þessum
hætti. Með þessu hófst sú regla,
að merkja hin ýmsu vítamín
ákveðnum bókstöfum. Það kom
fljótt í ljós, að A-vítamín var
nauðsynlegt til þess að koma í
veg fyrir óeðlilegan þurrk í
slímhimnum augna, en það
fyrirbrigði er kallað
„xeroftalmia" úr grískum orð-
um, er merkja „þurr augu“.
Axeroftól, sem er annað nafn
notað um A-vítamín, er dregið
af þessum eiginleika, en a er
neitandi forskeyti og endingin ól
er notuð um flokk lífrænna
efnasambanda, sem kallaður er
samheitinu alkohól.
Árið 1920 uppgötvuðu McColl-
um og samstarfsmenn, að efni í
þorskalýsi, en það getur læknað
bæði augnþurrk og beinasjúk-
dóm, sem kallaður er beinkröm,
er hægt að meðhöndla þannig,
að lýsið læknaði aðeins bein-
kröm. I millitíðinni hafði brezki
lífefnafræðingurinn J.C.
Drummond lýst þeirri skoðun
sinni, að það efni, sem læknaði
skyrbjúg, væri þriðja vítamínið
og hann lagði til, að því yrði
gefið nafnið C-vítamín. Af þess-
ari ástæðu hlaut efnið, sem
læknar beinkröm, nafnið
D-vítamín. (framh.).
I
1
Sá besti frá JAPAN
Frá 1. maí verður P. Stefánsson hf. meö einkaumboð á
íslandi fyrir Mitsubishi Motor Corporation í Japan.
Þá bjóðum við hinn frábæra GALANT SIGMA sem farið
hefur sigurför um heiminn, vegna framúrskarandi gæða
og öryggis.
Verðkr. 4.185.000.-
Miöað við gengisskráningu 12. 3.1979
Fyrsta sending til afgreiðslu í maí