Morgunblaðið - 25.03.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
43
Aðalfundur Félags ísl. stórkaupmanna:
Mótmælir vinnubrögð-
um verðlagsstjóra
í skýrslu um inn-
flutningsverzlunina
Á NÝLEGUM aðalfundi Félags
ísl. stórkaupmanna voru gerðar
nokkrar ályktanir cr fjalla um
verðlagsmál, greiðsluírest á að-
flutningsgjöldum, lánsfjármál,
skattamál og gjaldeyrismál. Fara
ályktanir aðaífundarins hér á
eftir.
Verðlagsmál
Á síðasta vori var á alþingi
samþykkt ný verðlagslöggjöf og
telur aðalfundur F.I.S. að hún sé
spor í rétta átt og átelur harðlega
þann drátt sem átt hefur sér stað á
gildistöku hennar og hvetur til að
hún taki óbreytt gildi hið allra
fyrsta og eigi síðar en 1. september
n.k.
Aðalfundur F.Í.S. 1979 fagnar
þeirri umræðu um verðlagsmál
sem orðið hefur á undanförnum
misserum þar sem greinilega
hefur komið í ljós hve úrelt núgild-
andi verðlagslöggjöf er. Þrátt fyrir
þetta sýndu kannanir að verzlunin
skilar sambærilegu verði til neyt-
enda hér og á öðrum norðurlönd-
um, en ljóst er að hún getur ekki
búið öllu lengur við núverandi
starfsskilyrði, enda er greinileg
þróun í þá átt að heildverzlun
leggist niður í ýmsum greinum og
flytjist úr landi, og koma nú
erlendir sölumenn i hópum til
landsins. Aðalfundur F.Í.S. 1979
mótmælir vinnubrögðum verðlags-
stjóra í skýrslu um innflutnings-
verzlun og neitar alfarið fyrir sitt
leyti þeim dylgjum um umboðs-
launaskil sem fram koma í skýrsl-
unni.
Fundurinn leggur áherzlu á, að
verzlun fái sambærileg starfsskil-
yrði á við aðrar höfuðatvinnu-
greinar íslands.
Greiöslufrestur á
aöflutningsgjöldum
Aðalfundur F.I.S. 1979 skorar á
fjármálaráðherra að leggja fram
frumvarp til laga um tollheimtu
og tolleftirlit í samræmi við niður-
stöður nefndar um tollamál frá
ágúst s.l.
Fundurinn vekur athygli á
þeirri staðreynd, að ef gjaldfrestur
yrði veittur á tollum, þá yrði hægt
að flytja vörur beint frá skipshlið
til vöruhúsa innflytjenda og heild-
sala. Við þetta skapast margvísleg
hagræðing, svo sem vinnu-
sparnaður, aðflutningsgjöld inn-
heimtast í reynd fyrr og vörurýrn-
un minnkar, sem þýðir í raun
lægra vöruverð til neytenda. Auk
þess yrði miklu álagi létt af
vörugeymslum skipafélaganna og
auknir möguleikar á notkun
nýtízku flutningatækni.
Lánsfjármál
Aðalfundur F.Í.S. 1979 vekur
athygli stjórnvalda og lánastofn-
ana á hinum gífurlega rekstrar-
fjárskorti verzlunarfyrirtækja.
Heildverzlunin á því í verulegum
erfiðleikum með fjármögnun eðli-
legra vörukaupa, sem dregur úr
viðskiptaþjónustu, neytendum til
tjóns.
Fundurinn telur að núverandi
lánastefna bankakerfisins sé með
öllu óviðkomandi fyrir verzlunina
sérstaklega ef tekið er tillit til þess
að aðrir atvinnuvegir en verzlunin
njóta afurðalánafyrirgreiðslu utan
við útlánasamkomulagið, auk þess
sem hann leggur áherzlu á að
einkaverzlunin og samvinnu-
verzlunin sitji við sama borð hvað
útlán varðar.
Aðalfundur F.Í.S. 1979 skorar á
yfirvöld að taka upp breytta
stefnu i lánamálum þar sem mun
meira tillit væri tekið til arðsemi
en verið hefur, samhliða frjálsari
lána- og peningamarkaði, en slíku
hefur verið svo þröngur stakkur
skorinn að engin framþróun hefur
orðið á síðustu áratugum.
Skattamál
Aðalfundur F.Í.S. vill enn á ný
ítreka fyrri ályktanir um nauðsyn
þess að heimilað sé skattfrjálst
endurmat vörubirgða við ákvörðun
brúttóágóða. Slíkt endurmat vöru-
birgðanna er grundvallaratriði ef
fást á rétt mynd af afkomu fyrir-
tækjanna, en nú eru þær tekjur
sem þarf til að viðhalda sömu
vörubirgðum skattlagðar að fullu.
Afleiðing þessarar skattlagningar
er sú að verzlunin neyðist til að
draga úr birgðahald'' sínu eða
flytja það á hendu erlendra
seljenda varanna.
Það er álit fundarins að skatt-
lagning fyrirtækja skuli fara fram
eftir sömu reglum, óháð því hvert
rekstrarformið er. I þessu
sambandi vill fundurinn benda á
heimild samvinnufélaganna til
greiðslu á 3/t hlutum ágóðans í
stofnsjóð. Þessi heimild veldur því
að samvinnufélögin njóta algjörr-
ar sérstöðu við álagningu tekju-
skatts. Þessi mismunun er ósann-
gjörn og óviðunandi og þarf að
hverfa.
Aðalfundurinn mótmælir aftur-
virkni skatta sem hann telur að
samræmist ekki landslögum.
Einnig því að ríkið taki til sín
65% af nýfjármagnsmyndun fyrir-
tækjanna. Fundurinn mótmælir
harðlega hækkun fasteignagjalda
ásamt sérstökum álögum sem
lagðar eru á verzlunarhúsnæði.
Fundurinn mótmælir skertum
fyrningarreglum. Fundurinn vill
vekja athygli á hækkun aðstöðu-
gjalda, en þau hækkuðu í Reykja-
vík nýlega allt að 160% m.a. í
matvöruheildverzlun, þar sem af-
koman er einna verst og er
aðstöðugjald orðið nærri
fjórðungur álagningarinnar.
Fundurinn vill beina því til
yfirvalda að arður af hlutafé sé
meðhöndlaður á sama hátt og
vextir af sparifé.
Gjaldeyrismál
Aðalfundur F.Í.S. 1979 hvetur
afdráttarlaust til þess að leyfð
verði frjáls gjaldeyrisverzlun.
Aðalfundur F.Í.S. 1979 hvetur
félaga sína og alla aðra er við
verzlun starfa að vinna áfram
ötullega að hagsmunamálum
verzlunarinnar og standa vörð um
frjálsa verzlun, þjóðfélaginu til
hagsbóta, minnugir orða Jóns
Sigurðssonar: „Verzlun er undirrót
til velmegunar lands og lýðs, þegar
hún er frjáls.“
Til sölu
Volvo FB 86 73 Hiab 550
krani, Robbsondrif
Landvélasturtur, drifhásing
meö nágírum. Góöur bíll.
Verö 12,5 millj.
Jóhannes Bendiktsson, sími
95-2193 og 95-2134.
nordíHende
LITASJONVORPIN
mæla
með sér sjálf
serstök vildarkjör
35% út
og restin á 6 mán
V^BUOIN
Skipholti 19, sími 2980!
i
l"f
ALLEQRO
Enginn bíll jafnast á við framhjóladrifinn Austin Allegro,
ef miðað er við verðflokk — og jafnvel þótt litið sé á
enn hærri verðflokka. Lítið á allan útbúnaðinn —
og dæmið sjálf.
Vélin: Fjögurrastrokka70HÖSAE.
Hitastýrö vifta, sem á sjálfvirkan
hátt stjórnarhitastigivélarinnar.
Vinnsluhltastig næst mun fyrr.
Þetta dregur úr vélarsliti og
minnkar bensínnotkun.
Geymslurými: Geymslurýmið
er stórt teppalagt og vel lýst,
þar á allur farangur fjölskyld-
unnar að komast fyrir. Stærðin
er 265 lítrar. _
Sportlegt útlit: Allegro hefur
verið reyndur f sérstökum vind-
göngum og loftmótstaðan er
Iftil. Hér eru nokkur atriði, sem
eru aukakostnaður f öðrum bíl-
um, en innifalinn I Allegro:
Metallic lakk, vlnylþak, litað gler
f alla glugga, gúmmflistar á
hliðarnar, svartir hliðarspeglar
og sport-hjólkoppar. Og svo er
auðvitað búnaður elns og bakk-
Ijós, upphituö afturrúða,
vindlaKveikjari, o.m.fl.
Fjöðrun og hjólaupphengjur.
Framhjóladrif og Hydragas-
fjöðrun. Fjöðrunarbúnaðurinn
þarf sáralítið viðhald. Engir
höggdeyfar, sem þarf að skipta
um. Hjólin á hvorri hlið eru að
hluta tengd saman, en sú tækni
eykurðryggi og þægindi. Tvö-
falt hemlakerfi veitir öryggi —
aflhemlar með diskahemlun að
framan.
Yfirbyggingin: Rúmgóð fyrir
fimm farþega. Ofið sætaáklæði,
stillanlegt bak á framsætum.
Vönduð innréttlng og mælaborð.
Teppi ágólfi.
Stjórntæki: I Allegro er tann-
stangarstýri, sem tryggir örugg-
ari stjórn bílsins og næmari til-
finningu fyrir veginum. Án þess
að taka hendur af stýri er hægt
að ná til Ijósarofa, rofa fyrir
rúöuþurrkur, rúðusprauturog
stefnuljós.
P. STEFANSSON HF.
SÍÐUMULA 33 — SÍMI83104 ■ 83105
* ■ . .