Morgunblaðið - 25.03.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
45
ein bjartasta von
a Bandaríkjanna
Sjálisagt hafa fáir átt von á
að fyrsta plata hljómsveitar-
innar Toto hlyti jafn góðar
undirtektir og síðar kom á
daginn. Allt frá því að platan
kom á markaðinn í nóvember
hefur hún siglt hægum byr upp
vinsældalista víðs vegar um
heim og eitt laga hennar, „Iiold
the Line“ hefur gert það mjög
gott í Bandaríkjunum og víðar.
Nú er Toto talin ein bjartasta
vonin í Bandaríkjunum og víst
er að ekkert er því til fyrirstöðu
að hljómsveitin skipi sér á bekk
með öðrum stjörnum Bandaríkj-
anna. Toto er skipuð þeim David
Paich, Steve og Jeff Porcaro,
Steve Lukather, Bobby Kimbalí
og David Hungate, og hér á eftir
er ætlunin að fjaila lítillega um
þá.
Feður þeirra David Paich og
Jeff Porcaro voru vel kunnir í
Hollywood hér áður fyrr og
unnu þeir meðal annars saman
við sjónvarpsþátt með Glen
Campell. Þá fengu þeir þá flugu
í höfuðið að úr því að þeir væru
góðir kunningjar, ættu ekkert
að vera því til fyrirstöðu að
synir þeirra gætu bundizt vin-
áttuböndum. Þetta var fyrir tíu
árum og enn í dag eru þeir
David Paich og Jeff Porcaro
góðir vinir. Yngri bróðir Jeffs,
Steve og Steve Lukather voru þá
saman í skóla og sem góðum
skólabræðrum sæmir hittust
þeir oft utan skólatímans og
léku saman nokkur lög. Einnig
var bassaleikarinn David Hun-
gate oft með þeim. Síðar er
fimmmenningarnir komust til
vits og ára, fóru þeir að verða
vinsælir undirleikarar í stúdíó-
um, svokallaðir rtsession-menn“.
Því kynntust þeir vel og upp úr
þessum kunningsskap varð
hljómsveitin Toto til, þótt svo
aðalhvatamenn að stofnun
hljómsveitarinnar væru þeir
Paich og Jeff Porcaro.
David Paich er í dag einn
eftirsóttasti útsetjari í Banda-
ríkjunum og hefur meðal annars
útsett nýjustu plötu Doobie
Brothers. En hann er einnig
góður lagasmiður og samdi t.d.
„Silk Degrees" ásamt Boz
Scaggs. Paich hefur einnig sam-
ið hið vinsæla lag Toto „Hold
the Line“ og reyndar hefur hann
samið flest lögin á plötunni.
Þótt svo Jeff Porcaro sé að-
eins 24 ára gamall hefur hann
þegar getið sér gott orð fyrir
trommuleik sinn. Hann hefur
m.a. leikið með Steely Dan og er
að finna á plötu þeirra Katy
Lied.
David Hungate, er ættaður
frá Texas en kom til Los
Angeles í leit að fé og frama.
Hann er vel þekktur
„session-leikari" og hefur að-
stoðað Barböru Streisand. Leo
Sayer og Pointer Sisters.
Steve Porcaro var í eina tíð
undirleikari hjá Boz Scaggs en
hefur einnig komið fram með
Gary Wright og Leo Sayer.
Sama má reyndar segja um hinn
Steve, hann lék með Scaggs og
hefur auk þess leikið á plötum
hjá Hall og Oates og Alice
gamla Cooper.
Þá eru hinir fimm upptaldir
og eftir er aðeins einn, söngvar-
inn Bobby Kimball, en hann
kynntist þeim David og Jeff dag
einn er hann var að rangla um
upptökusali eins stúdíósins í Los
Angeles. Kimball er frá Louisi-
ana og hefur sungið með fjölda-
mörgum hljómsveitum frá þeim
landshluta. Síðan þá hefur
margt breytzt og i dag er hann
aðalsöngvari Toto. Dimball söng
inn á eina plötu hjá Alice
Cooper og er nú mjög eftirsóttur
söngvari.
Svo vikið sé að plötu þeirra
félaga þá er hún fyrst og fremst
rokk-plata, og meira að segja
býsna góð sem slík. Lögin eru
eins og verða vill misjöfn að
gæðum, en ekkert þeirra væri
með góðu móti hægt að kalla
lélegt, en mörg aftur á móti góð.
Af þeim tíu lögum, sem á plöt-
unni eru, eru átta eftir David
Paich, en hin eru eftir þá Bobby
Kimball og Steve Porcaro.
Með það S huga að þetta er
fyrsta plata Totq, mætti enda-
laust hrósa henni. Eitt er það
þó, sem Toto verður ekki hrósað
fyrir og það eru textar. í sjálfu
sér er það ekkert nýtt að textar
séu lélegir eða slæmir. En öllu
má nú ofgera og íslenzkar
hljómsveitir myndu jafnvel
skammast sín fyrir suma texta
Toto. Annað atriði er ekki síður
mikilvægt og það er, hvernig
leirburður yrði það ef lélegustu
ensku textarnir yrðu þýddir á
íslenzku? En sem sagt takist
Toto að semja betri texta og
innihaldsmeiri er fullvíst að
þeir mun ekkert bíða annað en
frægð og meiri frægð. Um hæfni
þeirra og getu efast enginn.
Toto, tallð frá vinstri: Steve Lukather, gítarleikari, David Paich, hijómborðsleikari, Jeff Porcaro,
trommuleikari, Steve Porcaro, hljómborðsleikari, Bobby Kimbail, söngvari og David Hungate,
bassaieikari.
„McGuinn Clark
& Hillman“
(Capitol/Fálkinn) 1979
Flytjendur: Roger
McGuinn: Gítarar og
söngur, Geene Clark:
Söngur, gítaar og munn-
harpa. Chris Hilllman:
Basssagítar og söngur.
Greg Thomas: Trommur.
George Terry: Gítar og
píanó. Joe Lala: Slag-
verk. Paul Harris: Hljóm-
borð.
Upptökustjórn: Ron
Albert & Howard Albert.
McGuinn Clark & Hillman
þarf líklega að kynna lítilshátt-
ar fyrir yngri lesendum og til að
hressa minni þeirra eldri. Allir
eiga þeir Roger McGuinn, Gene
Clark og Chris Hillman það
sameiginlegt að hafa verið
upphafsmenn að bandarísku
hljómsveitinni Byrds sem var
fyrsta þjóðlagarokk-hljómsveit-
in. Clark hætti fyrstur og fór að
gefa út sólóplötur og hefur
hingað til gert það ágætt á
litlum tryggum markaði. Chris
Hillman hætti til að stofna
Flying Burrito Brothers ásamt
Gram Parsons. Hillman gekk
síðan í Manassas með Steve
Stills, síðan stofnaði hann
ásamt fleirum Souther Hillman
Furey Band, og eftir það Chris
Hillman Band. Roger Mc Guinn
hélt Byrds út lengst en lagði
hljómsveitina niður eftir
rtendurfunda“-plötuna „The
Byrds". McGuinn hefur síðan
haft sínar eigin hljómsveitir,
leikið með Bob Dylan og
fleirum.
Það má segja að grundvöllur-
inn fyrir endurreisn gamalla
frægra hljómsveita byggist upp
á örvæntingu þegar menn átta
sig eftir ákveðinn aðlögunar-
tíma að þeir hefðu betur átt að
halda áfram í gömlu hljóm-
sveitunum fjárhagsins (kannski
aðallega) og stemmningarinnar
vegna.
Líklega er það líka ástæðan í
þetta sinn, en samt hafa við-
Vinsœldalistar
London
1. ( 1) I will survive ............Gloria Gaynor
2. ( 2) Lucky number ................ Lene Lovich
3. ( 7) I Want your love ...................Ghic
4. ( 6) Something else..... Sid Vicious/Six Pistols
5. ( 5) Can you feel force ........... Real Thing
6. ( 3) Oliver’s army.............. Elvis Costello
..........and the Atractions
7. ( 9) Keep on dancing ............ Gary’s Gang
8. ( 4) Tragedy — Bee Gees
9. (14) Waiting for an alibi .........Thin Lizzy
10. (11) Into the valley................... Skids
New York
8. ( 4)
2. ( 2)
3. ( 6)
4. ( 3)
5. ( 5)
6. ( 4)
7. ( 8)
8. ( 7)
9. (12)
10. (11)
Tragedy ........................Bee Gees
Da Ya Think I’m sexy ........ Rod Stewart
What a fool believes ..... Doobie Brothers
I will survive ............Gloria Gaynor
Shake your groove thing..................
........................Peaches and Herb
Heaven knows ...............Donna Summer
......með Brooklyn Deams
Sultans of swing............. Dire Straits
Fire.......................Pointer Sisters
Every time I think of you...... The Babys
What you won’t do for love...............
............................Babby Caldwell
„Björgvin og
kariakórínn“
Eitt af þeim dægurlögum sem
oftast heyrast í óskalagaþáttum
útvarpsins þessa dagana er „Ég
fann þig“ með Björgvini Halldórs-
syni. Pilturinn sá er reyndar ekki
óvanur vinsældum en hins vegar
gerist það ekki á hverjum degi að
þekktur karlakór — Karlakór
Reykjavíkur í þessu tilviki eigi
hlut að máli á þessum vettvangi.
Síðastliðið haust þegar Björgvin
vann að gerð plötu sinnar bað
hann Karlakórinn að syngja með
sér í einu laganna. Nokkrir hressir
félagar úr kórnum brugðu skjótt
við, skunduðu suður í Hljóðrita og
útkoman virðist hafa fallið í góðan
jarðveg. Þessir sömu félagar lögðu
Björgvin einnig lið þegar Sjón-
varpið gerði þátt með honum nú
fyrir stuttu. Það má því segja að
þarna taki ólíkir kraftar höndum
saman og Karlakórsmenn hafa
reynst hinir liðtækustu í dægur-
lagabransanum eins og reyndar
má búast við af fjölhæfum söng-
mönnum.
komandi dottið niður á góða og
áheyrilega plötu.
En Byrds voru líka misjafn-
lega vinsælir á ferli sínum og
svo voru gæði tónlistarinnar
líka.
Byrds voru líka brautryðj-
endur. Þeir ruddu braut fyrir
öllum folk-rokk hljómsveitum,
þeir ruddu braut fyrir
country-rokki, þar á meðal
Eagles.
Astæðan fyrir því að Eagles
eru sérstaklega nefndir er sú að
þessi plata er mjög nálægt
þeirra stíl og þá sérstaklega
rokklögin og söngur Chris Hill-
man. Hillman, sem alltaf hefur
verið veiki punkturinn í öllum
hljómsveitum sem hann hefur
verið í, kemur hér loks með
mjög sterkur, hann á hér 3 lög,
tvö ekta Eagles-rokk-lög,
„Stopping Traffic" og „Sad Boy“,
og dæmigert Manassas lag,
„Long Long Time“, hann syngur
einnig eina lagið sem ekki er
eftir þá þremenninga,
„Surrender To Me“, sem er eftir
Rick Vito, sem er mest grípandi
lagið á plötunni, enda búið að
gefa það út á litla plötu.
Roger McGuinn á ekki nema 2
lög á plötunni, ekta McGuinn
lög, „Don’t You Write Her Off“
og „Bye Bye Baby“ sem eru bæði
ágæt en hvorki betri né verri en
það sem hann hefur áður gert.
Gene Clark á 4 lög á plötunni,
„Feeling Higher" er það besta,
en hin eru rétt í meðallagi,
„Release Me Girl“, „Little
Mama“ og „Backstage Pass".
Þrátt fyrir það að McGuinn
Clark & Hillman sé hér með
ágæta plötu má búast við því að
samvinnan verði ekki langvinn
þar sem undirtektir á hljóm-
leikum hafa verið dræmar
undanfarna mánuði, sem er
miður.
Ilía.