Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Ayatollah Ezzedin Hosseini, leiðtogi íranskra Kúrda, er hann
útskýrði byltingarmáistaðinn nýlega. Að baki honum standa
vopnaðir verðir. (AP-mynd)
Kúrdar reiknuðu dæm-
ið rétt er þeir gengu
í lið með Khomeini
I>AÐ ERU fleiri máttugir ayatoll-
ar í íran en Khomeini. í norð-
vesturhluta landsins er
Ayatollah Ezzedin Hosseini. leið-
togi tveggja milljóna Kúrda í
andlegum og tímanlegum efnum.
Áhangendur hans bdrðust við
hlið byltingarliða Khomeinis
gegn keisaranum á dögunum, en
ekki hafði fyrr tekizt að bola
honum frá völdum en Hosseini
lýsti því yfir, að af hálfu Kúrda
væri byltingin ekki afstaðin.
Öðru nær — hún væri rétt að
hefjast. Kúrdar hefðu ekki barist
við hlið stuðningsmanna
Khomeinis af neinum heilögum
hvötum, heldur hefðu þeir talið
timabundinn stuðning við and-
stæðinga keisarans óhjákvæmi-
legan lið í frelsisbaráttu sinni og
í Kúrdahéruðum írans lyki bylt-
ingunni ekki fyrr en þjóðflokkur-
inn hefði öðlazt sjálfsstjórn. Nú
hefur komið f ljós að þessi hern-
aðaráætlun var vænleg til árang-
urs því að eftir margra vikna
erjur og bardaga í Kúrdahéruð-
unum hefur stjórn Bazargans f
íran samþykkt að veita Kúrdum
veruleg sjálfsstjórnarréttindi og
má búast við því að þau verði enn
aukin er frá Ifður.
Kúrdar eru þjóð, sem stendur á
aldagömlum merg. Þeir eru um
flesta frábrugðnir Persum, eða því
samsafni þjóðflokka, sem mælir á
persnesku, en hinir síðarnefhdu
kunna til dæmis bezt við sig
svartklæddir og eru yfirleitt
þungbúnir og tortryggnir í garð
útlendinga. Kúrdar eru hins vegar
glaðvært fólk, skrautgjarnt og
gestrisið, enda þótt þeir séu her-
skáir og til þjóðhátta heyri að
bera jafnan vopn. Meðal Kúrda er
afar fátítt að konur gangi sveipað-
ar þannig að hvergi grilli í beran
blett nema augu og hendur.
Kúrdar teljast til Sunni-greinar
múhameðstrúarmanna, en ekki
Shiite, eins og flestir íbúar írans.
Sama er að segja um Kúrda í
öðrum löndum, en átthagar þess-
arar þjóðar eru í fjallahéruðum
íraks, Irans, Tyrklands, Sovétríkj-
anna og Sýrlands. I flestum þess-
ara landa hafa Kúrdar goldið þess
að vera minnihlutahópur, meðal
annars á þann hátt að þeim er
bannað að kenna sína eigin tungu
í skólum.
Ayatollah Hosseini er 57 ára að
aldri. Hann er sjálfmenntaður og
tekur ekki laun hjá stuðnings-
mönnum sínum, eins og Ayatollah
Khomeini gerir, heldur elur hann
önn fyrir konu sinni og sjö börn-
um með því að kenna arabísku í
múlla-skóla, en múllarnir eru
lægst settu kennimenn
múhameðstrúarmanna, og
prédika og þjóna líkt og sóknar-
prestar á Vesturlöndum. Styrkur
Hosseinis er fyrst og fremst í því
fólginn að hann er laginn við að fá
hópa með ólíkar pólitískar skoð-
anir til að vinna saman, en póli-
tískur ágreiningur er áberandi í
röðum Kúrda. Mest ber á vinstri-
sinnum og marxistum, en skæru-
liðahreyfingar láta jafnframt
mjög til sín taka.
Segja má að Kúrdar skiptist í
fjóra meginflokka eftir stjórn-
málaskoðunum. Þrír þessara
flokka hafa sósíalisma og
marxisma að leiðarljósi, en uppi-
staða hins fjórða, sem á sér flesta
fylgismenn, er hreyfing Mustafa
Barzaniz, sem stundaði til
skamms tíma skæruhernað í Irak.
Barzaniz naut fram til ársins 1975
stuðnings Iranskeisara og Banda-
ríkjastjórnar, en það ár samdi
keisarinn við stjórn Iraks um að
loka landamærunum fyrir skæru-
liðunum.
Ayatollah Hosseini er ekki
marxisti. Hann hefur raunar lýst
því yfir, að sem einlægur
múhameðstrúarmaður geti hann
ekki viðurkennt kommúnisma, en
hins vegar sé ekkert því til fyrir-
stöðu að vinna með kommúnistum
að sameiginlegu markmiði, sem sé
sjálfstæði Kúrda. Endanlegt tak-
mark þjóðarinnar hefur löngum
verið sameining og sjálfstæði
gjörvalls Kúrdistans, en Hosseini
er raunsæjari en svo að hann ætli
sér að koma því í verk að stofna
slíkt ríki.
„Auðvitað er það glæpsamlegt
athæfi að átta milljón manna
þjóð, sem byggir sama landsvæði,
á sér sameiginlega menningu og
sögu og talar sama mál, skuli hafa
verið neydd til að tvístrast til
fimm ríkja og búa alls staðar við
kúgun sem minnihlutahópur„,
segir Hosseini. Hins vegar vitum
við að við fáum aldrei okkar eigið
land. Lítum á Kúrda í írak. Eftir
bardaga í öll þessi ár hafa þeir
engu fengið framgengt. Við verð-
um að einbeita okkur að því að
öðlast sjálfsstjórn hér, en sjálf-
stæða kúrdíska þjóð getum við
ekki svo mikið sem leyft okkur að
hugsa um.“
Málningarvinna
Tilboö óskast í aö mála þak og glugga aö utan á húsaeign vorri
Aöalstræti 6 og 6 B.
Tilboðin skulu vera í tvennu lagi, efni sér og vinna og áhaldaleiga sér.
Vinsamlega hafið samband viö Guömund Blöndal, sem gefur nánari
upplýsingar.
Húseignin,
Aðalstræti 6 og 6 b.
G&LFHF
m
GOLFHF KÁRSNESBRAUT 32, KÓPAVOGI. SÍMAR: 40460 OG 76220.
Hefur skapast vandræðaástand á vinnustað
út af gólfum?
Gólf hf. hefur sérhæft sig í lögn fúgulausra
epoxybundinna DEKA-gólfa. Gólf hf. tekur
einnig að sér viðgerð gólfa, sem dæmd hafa
verið ónothæf af heilbrigðisástæðum.
Veitum allar frekari upplýsingar. - Gerum
föst tilboð.
„reynsla, þekking, þjálfun." -
ÖRUGGT ATHAFNASVÆOI A GÓLFLÖGN FRÁ GÓLFHF KARSNESBRAUT 32. KÖPAVOGI SIMAR 40460 OG 76220
við höf um
ýmislegt á
VISSIR ÞU AÐ UOPINN FÆST
í 36 MISMUNANDI LITUM?
EINNIG BJÓÐUM VIÐ
MIKINN FJÖLDA PRJÓNA-
UPPSKRIFTA
ÞÚ /ETTIR AÐ LÍTA INN OG KYNNA ÞÉR ÞETTA
SKEMMTILEGA URVAL
Á ^llafossbúöin
VESTURGÖTU 2 - SÍM113404
ib