Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
53
Stjórnvöld eru
það megi hafa
búin að komast að þeirri niðurstöðu að
ýmislegt gagn af... gömlu kapítalistunum
JAPAN
Æskufólk
sem er
búið að
glata lífs-
viljanum
Margir munu hafa þá hug-
mynd um Japani, af sögum
aftan úr öldum og úr heimstyrj-
öldinni síðari t.d., að þeim þyki
ekki tiltökumál þótt maður fremji
sjálfsmorð. Er nokkuð til í þessu;
Japönum a.m.k. í sumum stéttum,
var lengi vel innrætt svo ströng
sómakennd að þeir sáu oft engan
útveg nema sjálfsmorð ef þeim var
misboðið ákaflega.
Sjálfsmorð eru enn mjög tíð í
Japan miðað við það, sem gerist á
Vesturlöndum. En orsakirnar eru
nokkuð aðrar nú orðið. Mönnum
leyfist orðið að lifa áfram þótt
stolt þeirra háfi verið sært. Hins
vegar farga sér nú æ fleiri vegna
þess að þeir þola ekki streituna
sem orðin er landlæg í Japan eftir
að þar reis iðnveldi.
Það er algengt að menn drepi sig
af því þeir telja sig ekki geta
framfleytt sér og sínum skamm-
laust, eða vegna þess að þeir sjá
fram á það að þeir muni ekki
hljóta frama í starfi sem þeir telja
sér bera. En þetta er fullorðið fólk.
Hitt er óhugnanlegra hve sjálfs-
morð hafa færst í vöxt meðal
unglinga og barna. Er þetta svo
algengt orðið að menn eru hættir
að fylgjast með. Má nefna það til
dæmis að fyrstu þrjár vikur þessa
árs frömdu 19 börn og unglingar
sjálfsmorð, þ.e. hér um bil einn á
dag að jafnaði, og það sætti ekki
tíðindum. Það var ekki fyrr en
keyrði um þverbak dagana 20., 21.
og 22. janúar og 12 unglingar
drápu sig að menn hrukku við,
málið var tekið upp í fjölmiðlum
og spurt hvað ylli og hvert stefndi,
þótt færra yrði um svör sem
vonlegt er. Dagana sem þessi
sjálfsmorðsalda reið yfir hengdi
sig m.a. 11 ára gamall drengur af
því að foreldrar hans neituðu
honum um ný skíði, 13 ára telpa
framdi sjálfsmorð ásamt elskhuga
sínum, miðaldra manni, af því
þeim ver meinað að eigast, 12 ára
drengur hengdi sig af áhyggjum af
heilsufari sínu, 14 ára drengur
hengdi sig af.því hann var ein-
manna, 16 ára stúlka kveikti í sér
vegna þess að hún var orðin
„hundleið á lífinu" og 18 ára stúlka
hengdi sig af áhyggjum um nám
sitt.
Um daginn birtu lögregluyfir-
völd í Japan niðurstöður athugun-
ar sem fram fór um ein '450
sjálfsmorð barna og unglinga
yngri en 19 ára, öll framin á fyrra
helmingi síðasta árs. Kemur þar á
daginn að langflestir frömdu
sjáífsmorð af áhyggjum um skóla-
nám sitt, hvorki fleiri né færri en
29%, en næstflestir af ástarsorg-
um, þá veikindum og þá heimilis-
böli ýmiss konar....
-MARK MURRAY
PAKISTAN
Bílalest
hinna
bannfærðu
ZIA: Pakistönum stendur ógn af
iögreglu hans
Ali Bhutto fyrrum Pakistan-
forseti var dæmdur til dauða
fyrir alllöngu eins og kunnugt er
úr fréttum. Það hefur verið mikið
haft við vini hans og vandamenn
síðan. Þeir hafa á eftir sér sífelld-
an heiðursvörð hvert sem þeir
fara.
Ég kannast við fimm manns,
alla tengda Bhutto með einhverj-
um hætti, sem herforingjastjórnin
leggur til opinberan félagsskap á
sinn kostnað. Einn er tannlæknir
Bhuttos, M.Z. Niasi að nafni; hann
hefur á eftir sér einn herjeppa
hvert sem hann leggur leið sína og
er það reyndar lítið miðað við
sómann sem hinum er sýndur.
Victoria Schofield, vinkona Bena-
zir dóttur Bhuttos hefur t.d. jafn-
an á eftir sér tvo fólksbíla og eitt
mótorhjól. Einn lögfræðingur
Bhuttos, Abdul Hafeez Pirzada,
fær svipaða fylgd í hvert sinn sem
hann fer út úr húsi. Annar lög-
fræðingur forsætisráðherrans
fyrrverandi, D.M. Awan hafði til
skamms tíma tvo bíla bg eitt
mótorhjól til fylgdar en hefur sett
ofan einhverra hluta vegna: nú
fylgir honum bara einn bíll, en að
vísu fjórir lögregluþjónar í honum.
Yahya Bakhtiar, fyrrum dóms-
málaráðherra Bhuttos og helzta
lögmanni hans, var aðeins úthlut-
að einum jeppa og mótorhjóli til
fylgdar. En að vísu er meira haft
við hann ef hann bregður sér úr
bænum. Þá fylgir honum sveit
manna í jeppa, bíl og á tveimur
mótorhjólum. Það yrði fróðlegt að
sjá ef þetta fólk kæmi allt saman,
og hver maður í sínum bíl. Mundi
þá fljótlega sneiðast um bílastæði
úti fyrir þegar komnir væru að
auki einir 10 fólksbílar, herjeppar
og mótorhjól.
Þetta eru sannast sagna undar-
lega strangur vörður. Manni er
spurn hvað þetta fólk gæti eigin-
lega gert af sér. Tæplega kemur
yfirvöldum til hugar að það fremji
stórkostlega glæpi meðan hálf
herlögreglan er á hælunum á því,
og varla heldur þótt þess væri ekki
gætt. Enda mun ætlunin fyrst og
fremst að hvekkja það og hræða,
flæma burt vini þess og þar fram
eftir götunum. Það reyndi Victoria
Holt á dögunum. Hún hafði að
jafnaði haft einn bíl á eftir sér.
Hún var farin að venjast eftirför-
inni; hún var jafnvel farin að
vingast við herlögregluþjónana
sem eltu hana. Þeir komu henni
einu sinni til aðstoðar er hún lenti
í smá-umferðarslysi; og þyrftu
þeir að skreppa í búðir eða þá
langaði að bregða sér í bíó sagði
hún þeim einfaldlega hvar hún
yrði um það bil sem þeir kæmu
aftur. Þá sagði hún þeim af ferð-
um sínum og gerðum í millitíðinni
svo að þeir gætu skilað yfirmönn-
um sínum heillegri dagskýrslu, og
því næst hélt eltingarleikurinn
áfram. En fyrir nokkrum vikum
var fjölgað í fylgdarliði Schofield
og bættist við bíll og mótorhjól.
Schofield leizt ekki á blikuna en
vissi ekki hvað halda skyldi, hvort
ætti kannski að fara að handtaka
hana. Hún hafði búið hjá vini
sínum; hann fór að ókyrrast og
óttast að missa vinnuna, og að
lokum þóttist hann tilneyddur að
biðja Schofield að flytja.
Um daginn var ég sjálfur á ferð
í leigubíl í Karachi ásamt félögum
mínum tveim, blaðamönnum báð-
um. Við höfðum ekki ekið lengi
þegar við tókum eftir því að okkur
var veitt eftirför. Eltingarbíllinn
var hvítur Oldsmobile og okkur
rak minni til þess að hafa séð hann
utan við hótelið okkar. Ekki gátum
við ímyndað okkur hvers vegna við
vorum eltir. Herlögin eru víðtæk,
en það var óhugsandi að hægt væri
að bera okkur nokkrum sökum
sem svo mætti kalla. En leigubíl-
stjórinn missti gersamlega stjórn
á sér, þegar hann tók eftir Olds-
mobilnum. Það kom á hann skelf-
ingarsvipur og hann varð óðamála,
og skildist það af tali hans að nú
væri lögreglan búin að skrifa hjá
sér bílnúmerið, það yrði bankað
upp á heima hjá honum í kvöld,
hann handtekinn, færður til yfir-
heyrslu og gott ef ekki skotinn. Við
könnuðumst við þetta, höfðum
áður orðið þess varir að Pakistön-
um stendur mikil ógn af lögreglu
Zia hershöfðingja, sem nú er
vitanlega einráður í Pakistan
þrátt fyrir allt lýðræðishjal. Yfir-
völdin hafa enn ekki lagt í það að,
handtaka útlendinga, láta sér
nægja að hvekkja þá, en hins
vegar er búið að handtaka þúsund-
ir innfæddra — og þeim er senni-
lega ekki vönduð meðferðin.
- PETER NIESEWAND
Petta gerðist líke ...»
Ótroðnar slóðir
Svo segir í ársfjórðungsskýrslu
lögreglunnar í Suður-Yorkshire að
menn hennar hafi orðið vægast
sagt undrandi þegar þeir sáu bíl
koma akandi eftir grasgeiranum
sem skiptir akreina fárinu á
Ml-hraðbrautinni sem svo er
nefnd, þar sem hún liggur um
héraðið. Þó varð undrun þeirra
jafnvel meiri þegar þeir stöðvuðu
bílinn, því að gömlu konurnar
tvær, sem þá urðu fyrir þeim,
trúðu þeim ósköp vingjarnlega
fyrir því að þær hefðu rótgróna
vantrú á hrað-brautum og
væru sannfærðar um að það væri langtum áhættuminna aö halda sig við
grasið. Tvær umkvartanir höfðu þær samt fram að færa sem þær vonuðu
að blessaðir piltarnir kæmu til réttra aðila. í fyrsta lagi fannst þeim
grasið varla nógu slétt og því ógreiðfært yfirferðar. Og í öðru lagi fannst
þeim það hálfgert basl þegar þverbrautir deildu grasgeiranum í tvennt
og þær máttu fram af þeim partinum sem þær voru á oguppánæsta.
Svelgur________________________________________________
Eftirlitsmaður við Ford-verksmiðjurnar í Halawood í Englandi, sem
drakk að jafnaði tvær flöskur af viský á dag, reyndist hafa 1,220
milligrömm af vínanda í blóðinu þegar hann lést núna á dögunum.
Áfengismagnið kom í ljós við krufningu og var hvorki meira né minna en
fimmtán sinnum umfram það hámark sem iöglegt er við akstur í
Bretlandi og helmingi meira en fyrra „heimsmetið" af þessu tagi.
Maðurinn, sem var 56 ára gamall piparsveinn, missti skyndilega ráð og
rænu þar sem hann var staddur á heimili sínu. Dánarorsök reyndist vera
áfengiseitrun, og kemur það ekki á óvart.
Nú vandast málið _________________________________
Nú hefur jafnréttisbarátta bandarískra kvenna dregið þann dilk á
eftir sér sem raunar var við að búast en sem kynni samt kannski að fá
þær til að klóra sér í kollinum, sumar hverjar að minnsta kosti. Það hafa
til skamms tíma verið lög í Alabama og ellefu fylkjum öðrum að í
skilnaðarmálum sé hægt að skylda eiginmanninn en ekki eiginkonuna til
þess að greiða hinu lífeyri. Hæstiréttur í Washington hefur nú ógilt
þessi lög á þeirri forsendu að með því þau mismuni kynjunum þá brjóti
þau í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna. — Það var William nokkur
Orr sem höfðaði málið eftir að
dómstóll í Alabama hafði skipað
honum að snara tafarlaust út þeim
5.000 dollurum sem hann skuldaði
þá eiginkonunni fyrrverandi. í
dómsorðum hæstaréttar er talað
um það sem úrelt sjónarmið að
konan eigi skilyrðislaust að sitja
heima og gæta bús og barna en
maðurinn aftur á móti að annast
framfærsluna. Og síðan slá hinir
vísu dómarar því föstu að spurn-
ingin um það hver eigi að greiða
hverjum lífeyri hverju sinni hljóti
að velta á þörfinni fremur en
kynferðinu.
| Sitt lítið af hverjuT
Samkvæmt upplýsingum James Krugers, dómsmálaráðherra Suð-
ur-Afríku, skaut lögreglan þar í landi 207 manneskjur til bana við
„skyldustörf" sín á síðastliðnu ári og særði 514. Einungis tveir hinna
vegnu voru hvítir... Breskir félagsráðgjafar, sem staðið hafa í löngu og
ströngu verkfalli, eru komnir í hálfgerðan bobba, segir í grein í The
Guardian. Allt virðist ganga svo prýðisvel án þeirra... Kynvillingar i
Bretlandi eru með ráðagerðir á prjónunum um stofnun stjórnmálasam-
taka. Þeir segja að nýleg athugun þeirra hafi leitt í ljós að í þeim
kjördæmum þar sem þingmenn hafi nauman meirihluta geti það riðið
baggamuninn hvort kynvilltir sjái ástæðu til að fylkja sér um þá í næstu
kosningum... Borgaryfirvöld í Cleveland í Ohio, sem hafa þungar
áhyggjur af vaxandi drykkjuskap lögreglumanna staðarins auk þess sem
hjónabönd þeirra vilja fara í hundana, hafa hvatt þá til þess að hafa
eiginkonuna með í bílnum annað slagið þegar þeir eru í eftirlitsferðum.
Það er von borgarfeðranna að kvenfólkið verði skilningsríkara og
umburðarlyndara þegar það sjái með eigin augum hverskonar vandamál
menn þeirra þurfi að glíma við í lögreglustarfinu... Efnahagsbandalagið
er búið að láta taka 300.000 tonn af epium „úr umferð" vegna óvenju
ríkulegrar uppskeru og ótta við algjört verðhrun í kjölfar hennar. Ekki
er talið ólíklegt að bandalagið muni á næstu mánuðum beita sér fyrir
eyðileggingu hálfrar milljónar tonna af þessum ávexti — að minnsta
kosti... Vestur-Þjóðverjar hafa klófest nær hundrað njósnara
austantjaldsþjóða síðan austur-þýzki njósnarinn Gunter Guillaume, sem
orðinn var hægri hönd Willy Brandts, þáverandi kanziara, var
handtekinn árið 1974. Yfirgnæfandi meiri-
hluti fyrrgreindra njósnara hefur reynst á
snærum austur-þýzku öryggislög-
reglunnar... Nú er meira að segja vax-
myndasafn maddömu Tussauds í London
búið að gera aúmingja íranskeisara (mynd)
að hálfgerðri hornreku. Forráðamenn
safnsins hafa látið fjarlægja hina boröa-
lögðu vaxmynd keisarans af stórmenna-
palli sínum og firað henni út undir vegg í
salnum.