Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
71
Þáttur foreldra II
Hnupl
Barnið þarfnast þá fyrst
og fremst hjálpar
Við hjálpum barninu þá
ekki með lögum og ströng-
um yfirheyrslum og kröf-
um um játningu. Barnið
veit oft, að það hefur gert
eitthvað, sem er rangt, en
getur sjaldan nefnt nokkra
ástæðu til atferlis síns.
Hnuplið stafar oft af innri
erfiðleikum, sem barnið
getur ekki útskýrt fyrir
sjálfu sér eða öðrum, þótt
það sé allt af vilja gert.
Yfirheyrslur geta þá
haft í för með sér, að
barnið hnipri sig í hræðslu
og þrjózku og virðist
„forhert".
Refsing er ekkert
læknisráð, þegar leysa á
tilfinningaflækjur, sem
geta verið undirrót hnupls.
Barnið skynjar stundum
hnuplið sem óskiljanlega
nauðungarþörf til að taka
eitthvað. Lítið ekki á
hnuplið sem merki um illt
innræti og fyrirboða af-
brotahneigðar hjá barn-
inu.
Reynið í þess stað að
komast að orsökunum og
hagið aðgerðum eftir
þeim. Hver er aðstaða
barnsins heima? Meðal
félaganna? Finnt því það
vera sett hjá, t.d. vegna
systur eða bróður?
Reynið að taka því með
stillingu, þótt barnið
hnupli einstöku sinnum,
og auðsýnið barninu eins
mikinn skilning, traust og
uppörvun og þér framst
getið!
En ef þér getið ekki af
eigin rammleik hjálpað
barninu til að vinna bug á
hnuplinu og ef það heldur
uppteknum hætti utan
heimilisins, er bezt að leita
til einhverrar ráðgjafar-
stofnunar eða læknis.
SAGANATS
c
0
2k m fprlægð fra]M
Sor * Brndiði Kropps
;ur i non
Prófessorinn 09 svo ferum
jjaldiði Pro-^^
iXfasornum frá
b IKroppa
M«SÍg!5j///
Pað 5€Qi eg aldrei1
R'ófesorinn hefur
banna^ mér þaS ®
°9 þóó; viti að
þac) sé ti| að finna
5-/5 seg 1 eg yklcur
aldrei frá þvi-! J
A KWSSKI*K1 WWXA
Frumsamið Ijóð
eftir Leif Eiríksson.
Veturinn hefur verið óvenju harður og snjóþungur. Við
sjáum smáfuglana fljúga um í stórum flokkum og leita sér
matar. Við vorum minnt á það einu sinni enn fyrir
skemmstu, þegar Morgunblaðið fékk send þessi ljóð og
myndina, sem fylgir, að veröld smáfuglanna, er stundum
enn harðari og erfiðari en veröld mannanna.
Við þökkum fyrir ljóðið og hvetjum ykkur til þess að
halda áfram að senda okkur frumsamin ljóð og sögur.
Teikning: Auður Eysteinsdóttir.