Morgunblaðið - 25.03.1979, Síða 40
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 314
72
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Hlutafjárboð
Nýtækni á Islandi
Stofnun Skipafélagsins Bifrastar hf. fyrir
tveim árum markaöi tímamút í sögu íslenskra
farmflutninga.
Tilgangur og markmið félagsins frá
upphafi var að efla samkeppni á sviði
samgangna, sem er í raun líftrygging frjálsrar
verslunar í landinu.
í því skyni var m.a. innleidd ný tækni í
farmflutningum sem íslendingum hafði ekki
staðið til boða áður, svonefnt RO/RO
(Roll on/Roll off.)
Augljós árangur
Þessi nýja flutningatækni leiddi til
stóraukinnar hagkvœmni og bættrar vörumeð-
ferðar sem sýndi sig best í pví að þar sem
Bifröst hf. hefur fengið að spreyta sig hafa
farmgjöld lækkað um 25%, en hækkað á öðrum
siglingaleiðum um allt að 25%.
Lækkun á farmgjö Idum kemur síðarfram í
lækkuðu vöruverði, neytendum til góða.
Aukin umsvif og viðgangur Bifrastar hf.
er því hagsmunamál neytenda jafnt sem
farmflytjenda.
Cóð aðstaða í landi
Sú hafnaraðstaða sem Bifröst hf. er búin í
Hafnarfirði er glæsileg og býður uppá nær
ótæmandi vaxtar- og athafnamöguleika.
Þar rekur fyrirtækið sína eigin vöru-
afgreiðslu sem staðsett er nánast við skipshlið.
Það auðveldar að sjálfsögðu alla afgreiðshi
og bætir þjónustuna til muna.
Gagnvart landsbyggðinni stendur Bifröst
hf. einnig vel að vígi. Bifröst hf. skilar vörunni
á allar þær hafnir sem Skipaútgerð Ríkisins
og Hafskip sigla á umhverfis landið, án
aukakostnaðar.
Framundan er Evrópa
Framundan bíða mörg verkefni.í ráði erað
kaupa nýtt skip og stefna því á Evrópuhafnir.
Á þeirri leið opnast því auknir möguleikar
á hagkvæmari vöruflutningum en til þessa.
Stöðugt verður og leitast við að fylgjast
með og kynna nýjungar á þessu sviði sem
gætu komið viðskiptavinum jafnt sem hinum
almenna neytenda til góða á einn eða annan
hátt. Margt er sannarlega ógert ennþá.
..á hjólum yfir hafið.i
SKffiAFEIAGID BJFRÖST HF
Bréf í framtíð
Með hliðsjón afglæstum framtíðarhorfum
félagsins og áætluðum skipakaupum hefur
verið ákveðið að cuika hlutafé félagsins.
Með kaupum á hlutabréfi íBifröst hf. gerist
þú ekki aðeins þátttakandi í uppbyggingu
félags með framtíð, heldur leggurþú þinn skerf
til frjálsrar og heilbrigðrar samkeppni á
því sviði sem reynslan hefur kennt okkur
að hennar er mjög þörf.
Allar nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu
Bifrastar hf.
Klapparstíg 29. Símar 29066 og 29073.