Morgunblaðið - 16.05.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.05.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 1979 Börn og unglingar hafa ætíð sýnt íslenzka hestinum mikinn áhuga. Unglingar úr Fáki munu koma fram i sýningunni. Þessi mynd er frá verðlaunaafhendingu i unglingaflokki á Landsmóti hestamanna á Þingvöllum i sumar. DAGUR HEST5INS A MELAVELLI20. MA) 1979 íslenzki hesturinn nýtur sí- vaxandi vinsælda N.k. sunnudaK mun Melavöllurinn í Reykja- vík verða vettvan>?ur íþróttaKrcinar, sem ekki er stunduð þar að staðaldri. Þá munu hesta- menn ok gæðingar þeirra mæta tii leiksr á vellinum og gangast fyrir fjöl- breyttri fjölskylduhátíð. Hagsmunafélag hrossa- bænda ásamt Félagi tamningamanna standa að hátíðinni til að kynna íslenzka reiðhestinn eins og hann er notaður í dag. Á sýningunni verða margir landskunnir hestar, þ. á m. þeir feðgar Sörli og Náttfari ásamt úrvali ungra stóðhesta. Börn og unglingar koma fram á hestum sínum. Einnig verða unglingar ú Fáki með sérstaka sýningardag- skrá. 10 manna hópur úr Félagi tamningamanna kemur fram með marga af snjöllustu gæðing- um landsins. Kerruhestur sýnir leikni sína, hindrunarstökk verður þreytt og einnig verður sölusýning á úrvalshestum, en sú sýning er haldin með það að markmiði að auðvelda kaupend- um og seljendum að ná saman og „ræða málin". Ragnar Tómasson og Gísli B. Björnsson hafa unnið að undir- Margir landsfrægir gæðingar verfta á sýningunni. búningi sýningarinnar. Á blaða- mannafundi sem haldinn var í tilefni hennar sögðu þeir, að vinsældir íslenzka hestsins færu sivaxandi, bæði hérlendis og erlendis. Mjög algengt væri að heilu fjölskyldurnar ættu sam- eiginlegt áhugamál þar sem hestamennskan væri. Erlendis, t.d. í Þýzkalandi, væri áberandi hversu vinsældir íslenzka hests- ins væru langmestar á öllum meiri háttar h'estasýningum. í Reykjavík munu nú vera um þrjú þúsund hestar og mjög margir einnig í nágranna- byggðarlögunum. Við úthlutun hesthúsa hefur aldrei verið hægt að sinna eftirspurn og margir þurft frá að hverfa. N.k. föstudag fer fram dómur ungra stóðhesta og verða þar valdir hestar til sölusýningar- innar. Sýningin á sunnudaginn hefst kl. 14.00 og verður endur- tekin kl. 16.30. Alls koma fram á sýningunni u.þ.b. 70 hestar. „Við munum keppa að því að dag- skráin verði ekki langdregin og okkar markmið með sýningunni er að sýna íslenzka reiðhestinn eins og hann getur orðið beztur við fullkomnustu og beztu skil- yrði,“ sagði Ragnar og Gísli bætti við, að Melavöllurinn væri sérstaklega góður til slíks sýningarhalds. Ungir framsóknarmenn: Stefna Framsóknar eða stjómarslit Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík gerði svofcllda ályktun á fundi sínum þann 14. þcssa mánaðar: „Stjórn F.U.F. í Reykja- vík krefst þess af forystu Framsóknarflokksins, að hún hviki ekki frá síðustu tillöKum sínum um verð- hjöðnun og launajöfnun, sem lajjðar hafa verið fram í ríkisstjórn, en slíti að öðrum kosti stjórnarsam- starfi við óábyrga hentistefnuflokka. Undirrót þess ófremdarástands sem skapast hefur, er sú slagorða- póiitík sem Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag notuðu til atkvæðasöfnunar fyrir síðustu kosningar. Kjarkleysi og ábyrgðarleysi þessara flokka síðan hefur í raun haft í för með sér fráhvarf frá launajöfnunar- og verðhjöðnunarstefnu Fram- sóknarflokksins sem ríkisstjórnin var mynduð um. Það er því álit stjórnar F.U.F., að nái tillögur Framsóknarflokksins ekki fram að ganga, sé grundvöllur stjómar- samstarfsins brostinn." Sjötugur: Aðalsteinn Jóhanns- son bóndi á Skjaldfönn í dag 16. maí er sjötugur öðling- urinn Aðalsteinn Jóhannsson, bóndi á Skjaldfönn í Norður-ísafjarðarsýslu. Aðalsteinn er sonur hjónanna Jóhanns Ásgeirssonar og Jónu Jónsdóttur, sem bjuggu á Skjald- fönn alla sína búskapartíð. Eign- uðust þau átta börn, sem öll komust til manns. Allt sérstakt m.vndar- og atgerfisfólk og er Aðalsteinn þeirra elstur. Aðal- steinn tók við búi föður síns af honum gengnum og hafði þá búið með honum í áraraðir. En ætt Aðalsteinns hefir setið að búi að Skjaldfönn í hartnær 200 ár. Áðalsteinn kvæntist hinni ágætustu konu, Hólmfríði Indriðadóttur, Þorkelssonar frá Ytra-Fjalli í Aðaldal og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. Hólmfríður er vel gefin kona, víkingur til verka, ákveðin í skoð- unum og rökföst í tali. Aðalsteinn bóndi hennar lætur eigi heldur sinn hlut og heldur skoðunum sínum fast fram, ef honum býður svo við að horfa. Á þeim bæ kemst enginn upp með órökstudd ummæli. Hvorki um menn né málefni, og þar sameinast þau hjón, þó skiptar séu skoðanir eins og gerist og gengur. Skjaldfönn þótti ekki merkileg jörð hér áður fyrr, en með elju og dugnaði Skjaldfannarfólks hefur jörðin tekið miklum stakkaskipt- um og er nú svo komið, að þar er staðarlegt heim að horfa. Það er freistandi að lýsa vinnu- brögðum Aðalsteins Jóhanns- sonar, svo að fólk fái nokkra mynd af afmælisbarninu og svo hinu að draga fram í dagsljósið störf þeirra manna, sem vinna í kyrrþey að bústörfum og fara sínar leiðir án þess að þurfa að láta segja sér alla hluti, Nú síðustu ár hefur verið í gangi Djúpáætlun, sem miðaði að því að gera átak í sauðfjárbúskap þeirra Djúp- manna. Þá voru liðin 15 ár frá því að Aðalsteinn reisti glæsileg fjár- hús að Skjaldfönn og naut við það stuðnings bræðra sinna, sem ávallt hafa viljað rétta hjálpar- hönd, þó þeir hafi verið búsettir í Reykjavík. Þessi fjárhús eru reist og hugsuð af Aðalsteini og þykja mjög vel gerð. Svo vel , að menn gera sér gjarnan ferð til að líta á verkið, því nú er gjarnan talað um „Skjaldfannarfjárhús“ þegar talað er um þá gerð fjárhúsa. En þegar Djúpmenn almennt reistu sér fjárhús, byggði Aðalsteinn sér vandaða „vélageymslu". Ferðafólk, sem fer um landið sér fljótt einstæða snyrtimennsku þá, sem er viðhöfð á Skjaldfönn. Aðalsteinn og fjölskylda hans eiga líka fyllilega skilinn þann silfur- skjöld, sem þau voru sæmd af Búnaðarsambandi Vestfjarða. Þannig að á Skjaldfönn fer saman framsýni, dugnaður og snyrti- mennska, sem öllum hlýtur að vera hreinn skóli að kynnast. „Skjaldfönn í brattri skógar- hlíðinni upp af bænum er merki- legt náttúruundur. Þarna er mikil kvos, sem fönn safnast í, og verður sem skjöldur að lögun. Hana tekur sjaldnast eða ekki upp á sumrum, en skógurinn kyssir skjaldarodd- inn“. Við þessa lýsingu úr reisubók Ágústar á Hofi, er Andrés Krist- jánsson skrifaði, má bæta við, að oftast þegar líða tekur á sumar verður skjöldurinn að tveim aðskildum fönnum, og gegnum þá báða renna vatnsmiklir lækir eða smáár , sem heita Bæjará og Traðarlækur. Þeir falla sinn hvoru megin við bæinn, og renna í Selá, sem lokar myndinni aðeins steinsnar neðan við bæinn. Selá er ein vatnsmesta á Vestfjarða. Hér fallast í faðma einstök náttúru- fegurð og fyrirmyndarbúskapar- hættir og umgengni við landið. Þannig eru verk Aðalsteins Jóhannssonar sem við blasa sam- ferðamönnum hans, en hvernig er hann sjálfur. Aðalsteinn hefur verið með hærri mönnum á yngri árum, myndarlegur á velli, herða- breiður, sterkur svo af bar, fölur í andliti, með arnarnef og skarpt augnatillit. Þannig gæti ytra útlit bent á nokkuð fráhrindandi per- sónu, ef innrætið væri ekki góð- mennska og hjálpsemi, sem hann ber með sér og fólk verður fljótt vart við. Um það geta sveitungar hans vitnað. Og eins og sagt er í upphafi er Aðalsteinn hinn mesti öðlingur. Sá, sem þetta ritar, telur það mikla gæfu að geta talið Aðalstein og Hólmfríði til vina sinna, og þau hafa tekið börn mín til sumardval- ar i mörg sumur, en sjálfur var ég þar í sveit drengur, og bý að því enn. Fyrir það ber að þakka, að komast í kynni við rammísienzkt fólk, íslenzka sveitamenningu í öllum greinum. Um leið og ég og fjölskylda mín árnar Aðalsteini Jóhannssyni heiila á sjötugsafmælinu og bið hann fyrirgefningar á því að vekja á honum athygli, sem er honum sízt að skapi, þökkum við þeim hjónum og fjölskyldunni vináttu um árabil. Finnbjörn Hjartarson. Stjörnubíó hefur sýnt bandarfsku myndina „Thank God it’s Friday“ sfftan á páskum, en nú fer sýningum aft fækka. Myndin er um atburði föstudagskvölds f lfflegu diskóteki. Jeff Goldblum og Andrea Howard fara meft aðalhlutverkin en söngkonan Donna Summer kemur þar einnig fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.