Morgunblaðið - 16.06.1979, Síða 1
40 SIÐUR OG LESBOK
133. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
Prentsmiðja Morgiinblaðsins.
Nýjar
arasir
r
Iraks
r
á Iran
Teheran, 15. júní. Reuter.
ÍRANIR sökuðu íraka í dag um
að gera nýjar árásir inn á yfir-
ráðasvæði sitt og sögðu að menn
á þessum slóðum væru þess al-
búnir að fara til landamæranna
og berjast.
íranska útvarpið sagði að
frakskar flugvélar hefðu ráðizt á
þrjár íranskar landamærastöðv-
ar í annað sinn á tæpum hálfum
mánuði. íröksku flugvélarnar
flugu yfir landamærin suðvestur
af Teheran nálægt bænum Mehr-
an í héraðinu Ilam.
Útvarpið sagði einnig að íraksk-
ir landamæraverðir hefðu skotið á
sama tíma á íranska verði handap
landamæranna, en gat ekki um
manntjón. Herlögreglumenn og
byltingarverðir voru í flýti ser.dir
til landamæranna frá fylkishöfuð-
borginni Uam og íröksku verðirnir
sáust flýja, sagði útvarpið.
Útvarpið sagði að þúsundir
manna hefðu gengið um götur
Uam í dag og hrópað að þeir væru
reiðubúnir að berjast. Héraðið er
heimkynni minnihlutahópa Kúrda
ogTyrkja.
íranir segja að írakskar herþot-
ur hafi ráðizt á fjögur Kúrdaþorp
4. júní og sjö hafi beðið bana.
Talsmaður Iransstjórnar sagði í
dag að ef slíkir atburðir endur-
tækju sig mundi stjórnin taka
alvarlegar ákvarðanir.
Irakar segja að Iranir hafi
fengið viðvörun með nægum fyrir-
vara um hernaðaraðgerðir með-
fram landamærunum. írakar hafa
greinilega verið að elta kúrdíska
skæruliða.
Forsetarnir Jimmy Carter og Leonid Brezhnev hittast í fyrsta sinn í Hofburg-höll í Vín. Sjá miðopnu.
70,000 flóttamenn
fluttir út á rúmsjó
Kuala Lumpur, 15. júní. Reuter.
DATUK Mathathir, varaforsætisráðhcrra Malaysíu, sagði í kvöld, að
70.000 flóttamenn sem hafast við í búðum meðfram strönd landsins yrðu
sendir á haf út og að flóttamenn sem reyndu að fara í land yrðu
skotnir þegar til þeirra sæist.
Ráðherrann sagði fréttamönnum að brottflutningurinn hæfist án tafar
og honum yrði fiýtt sem hægt væri meðan smíðaðir væru bátar til að flytja
flóttafólkið. Hann sagði að þingið myndi setja lög.um að flóttamenn
skyldu skotnir þegar til þcirra sæist eins fljótt og kostur væri.
Datuk Mahathir sagði: „Ef þeir
reyna að sökkva bátum sínum verð-
ur þeim ekki bjargað, þeir munu
drukkna. Þeir munu drukkna vegna
þess að þeir sökkva bátunum og af
engu öðru.“
Hann sagði að öðrum aðildarlönd-
um Samtaka Suðaustur-Asíuríkja,
Acean, yrði skýrt frá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar og jafnframt
bauð Thailand til ráðstefnu um
flóttamannavandamálið. í Wash-
ington sagði talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins að beðið
hefði verið um skjóta skýringu
Malaysíustjórnar á málinu og
Bandaríkjastjórn myndi harma
hvers konar aðgerðir sem gætu
kostað þúsundir flóttamanna lífið.
Viðbrögð Bandaríkjamanna lýstu
ugg og vantrú: „Við eigum bágt með
að trúa að blöð skýri nákvæmlega
rétt frá stefnu Malaysíu," sagði
talsmaður utanríkisráðuneytisins.
Yfirlýsingu malaysíska ráðherrans
laust niður eins og eldingu í Wash-
ington.
Datuk Mahathir kvað skýringuna
á ákvörðuninni þá að ekkert þriðja
ríki vildi taka við flóttamönnunum.
Hann viðurkenndi að það tæki tíma
að afla fjár til smíði báta og til að
gera aðrar ráðstafanir til að koma
flóttamönnunum burt. Strandgæzla
verður einnig aukin og sérstakt
herlið sett á stofn til að vísa
flóttamannabátum burtu.
Viðræður Carters og
Brezhnevs byria vel
Vín. 15. júní. Reuter — AP
CARTER forseti hitti sovézka
leiðtogann Leonid Brezhnev í
fyrsta sinn í Vín í dag og sagði
að stuttur kynningarfundur
þeirra hefði veriö góð byrjun á
fjögurra daga viðræðum
þeirra.
Leiðtogarnir heilsuðust í
„Rósaherbergi“ keisara-
hallarinnar Hofburg, en þeir
voru þar ekki eins lengi og
ráðgert haíði verið. Þeir áttu
að ræðast við í 15 mínútur og
aðeins túlkar þeirra áttu að
vera viðstaddir, en í staðinn
töluðust þeir við í þrjár
mfnútur ásamt nokkrum
aðstoðarmönnum og fóru síðan
til austurríska forsetans
Rudolf Kirschschlágers og
Bruno Kreiskys kanzlara í
annað herbergi.
Þeir töluðu um formlega
setningu fundar þeirra á morgun
og hinn nýja samning um tak-
mörkun kjarnorkuvopna (Salt-II)
sem þeir munu undirrita þegar
viðræðum þeirra lýkur á
mánudag.
Afturkalla
sexDC-10
Róm, 15. júnf. AP.
ÍTALSKA flugfélagið Alistalia
hcfur afturkallað pöntun á sex
DC-10 flugvélum vegna vafa um
öryggi vélarinnar að því er
stjórnarformaður félagsins
skýrði frá í dag.
I Zúrich hófst í dag lokaður
fundur evrópskra flugmálayfir-
valda og 13 evrópskra flugfélaga,
sem reka DC-10, um nákvæma
skoðun á vélunum með það fyrir
augum að koma þeim í loftið.
Heilsa Brezhnevs virðist hafa
batnað og hann gekk hægum en
öruggum skrefum og var fús að
gera ljósmyndurum til geðs. Báðir
leiðtcgarnir voru hlédrægir og
yfirvegaðir og Kreisky kanzlari
sagði fréttamönnum á eftir:
„Þetta gekk vel miðað við
aðstæður". Hann sagði að for-
setarnir hefðu verið sammála um
að fundur þeirra hefði dregizt
alltof lengi.
Kirschschláger forseti sagði við
heimsleiðtogana: „Það sem þið
eruð að vinna að hér skiptir mjög
miklu máli. Það gleður okkur að
hafa ykkur hér.“
Brezhnev og Carter var fagnað
með lófataki þegar þeir komu hvor
í sínu lagi tveimur tímum síðar til
ríkisóperuhússins að sjá „Brott-
námið úr kvennabúrinu" eftir
Wolfgang Amadeus Mozart sem
var frumflutt 1792. í fylgd með
Carter voru Rosalynn kona hans
og 11 ára dóttir þeirra Amy.
Ný innrás í Nicaragua
Managua. 15. júní. AP. Reuter.
JULIO Quintana, utanríkisráð-
hcrra Nicaragua, sagði í dag að
her 300 Sandinista-skæruliða og
herbílalest hefðu sótt inn í landið
frá Costa Rica. Hann sagði að ný
„innrás" hefði verið skipulögð og
stjórn Costa Rica bæri ábyrgðina.
Rauði Krossinn staðfesti að
barizt væri á landamærunum.
Hermcnn Nicaraguastjórnar
réðust í dag með stuðningi stór-
skotaliðs og skriðdreka inn í
fátækrahverfi sem eru á valdi
Sandinistaskæruliða í Managua.
Skæruliðarnir virtust hörfa og
þjóðvarðliðar hafa aftur náð ráð-
húsinu, sem féll í hendur skærulið-
um fyrir nokkrum dögum þegar
barizt var hús úr húsi.
í borginni Leon beita þjóðvarð-
liðar skriðdrekum og stórskotaliði
til að reyna að aflétta umsátri
skæruliða um aðalstöðvar lögregl-
unnar.
Þjóðvarðliðar segjast jafnframt
hafa bælt niður tilraun skæruliða
til að sækja fram meðfram austur-
strönd Nicaraguavatns til
Managua. Árásum skæruliða var
hrundið á þremur stöðum á strjál-
býlu svæði.