Morgunblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 Bjarni Bjarnason bóndi—Minning Fæddur 30. september 1884. Dáinn 5. júní 1979. „Syngið Drottni nýjan söng. Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. Komum með. lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleði- ljóð fyrir honum. — Eg vil lofa Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.“— Þessi orð Heilagrar ritningar koma mér í hug, er ég sezt niður til að rita nokkur minningar- og kveðjuorð um sveitunga minn og frænda, Bjarna Bjarnason á Skán- ey, sem látinn er í hárri elli og verður kvaddur frá Reykholts- kirkju í dag. Á langri ævi hafði hann sungið Drottni sínum lof og þökk og lagt fram stærri fórn og meiri þjónustu í þágu kirkjusöngs en nokkur annar í byggð hans. Að leiðarlokum skal þess minnzt að verðleikum og fyrir það þakkað, sem hann lagði fram til eflingar kirkjulífi og menningar í byggðum Borgarfjarðar. Bjarni Bjarnason var fæddur á Hurðarbaki í Reykholtsdal hinn 30. september árið 1884. Foreldrar hans voru Bjarni Þorsteinsson, bóndi þar, og kona hans, Vilborg Þórðardóttir. Voru þau hjón af kunnum borgfirzkum ættum. Bjarni var sonur Þorsteins Þiðrikssonar á Hurðarbaki og konu hans, Steinunnar Ásmunds- dóttur frá Miðvogi. Frá þeim er mikill ættbogi kominn, og taldi Kristleifur fræðimaður Þorsteins- son, að „táp og dirfska" væri einkenni þessarar ættar, sem jafnan er nefnd Hurðarbaksætt. Vilborg á Hurðarbaki var hins vegar af Deildartunguætt. For- eldrar hennar voru Þórður Odds- son, bóndi á Litlakroppi, og kona hans, Helga Þorvaldsdóttir, bónda á Stórakroppi, Jónssonar, bónda og dannebrogsmanns í Deildar- tungu Þorvaldssonar, sem hin geysifjölmenna Deildartunguætt er frá komin. Tveir voru synir þeirra Hurðar- bakshjóna, sem upp komust. Auk Bjarna, sem hér er minnzt, var Þorsteinn óðalsbóndi á Hurðar- baki, látinn 1963. Hinn 3. október árið 1908 kvæntist Bjarni Bjarnason Helgu Hannesdóttur frá Deildartungu, vel gefinni og mikilhæfri mann- kosta konu. Vorið eftir hófu þau búskap á Skáney í Reykholtsdal og bjuggu þar góðu búi hátt á fjórða tug ára. Bjarni var hygginn og ötull bóndi, framsýnn og fram- takssamur. Fertugur að aldri hlaut hann heiðurslaun úr styrkt- arsjóði Kristjáns konungs IX. fyrir miklar og lofsverðar búnað- arframkvæmdir. Við búskapinn naut hann ómetanlegs styrks og dugnaðar konu sinnar, sem í engu lét hlut sinn eftir liggja. Bæði höfðu þau lifandi áhuga á ræktun, ekki sízt skógrækt, og sýndu hug sinn í verki í þeim efnum. Þau vildu rækta og fegra landið og vinna þeirri hugsjón að græða sár þess og klæða það skógi. Þau voru í hópi þeirrar æsku, sem stofnaði Ungmennafélag Reykdæla fyrir rúmum 70 árum. Þau voru sannir fulltrúar þeirra vormanna íslands, sem á morgni aldar hófu merkið og ruddu brautina til aukins frelsis og meiri framfara, meiri birtu, meiri vormerkja og voráhrifa í lífi og menningu þjóð- ar. Helga á Skáney andaðist sum- arið 1948. Nokkru áður höfðu þau hjónin brugðið búi og höfðu þau þá skipt jörð sinni milli barna sinna. Þau hjónin eignuðust fjög- ur börn. Eitt misstu þau á fyrsta ári, en hin þrjú eru á föðurleifð- inni og hafa búið þar frá unga aldri. Þau eru: Vigdís, húsfreyja í Nesi (nýbýli úr Skáneyjarlandi), gift Guðráði Davíðssyni, bónda þar. Vilborg, húsfreyja á Skáney, gift Marinó Jakobssyni, bónda þar. Yngstur er Hannes Magnús, bóndi á nýbýlinu Birkihlíð í Skáneyjarlandi, kvæntur Bryn- hildi Stefánsdóttur frá Flateyri. Öllum hefur þeim systkinunum búnast vel á þeirri góðu jörð, sem þau tóku í arf frá foreldrum sínum. Þau hafa komizt vel áfram og notið trausts og virðingar svo sem foreldrar þeirra. Þó að Bjarni á Skáney væri góður og traustur bóndi, er bætti jörð sína mikið að húsum og ræktun og skilaði bættu landi í barna sinna hendur, þá er það Guömimdur Guðmimds- son Olafsfirði-Minning Hún er konan sem kyrrlátust fer og kemur þá minnst þig varir. Þannig kvað Tómas Guð- mundsson um sorgina. Og sorgin kom svo sannarlega er okkur minnst varði, er við spurðum lát bekkjarfélaga okkar og vinar, Guðmundar Guðmundssonar, þessa hægláta, geðþekka drengs, sem fyrir löngu hafði unnið hug okkar og hjarta með góðlyndi sínu, prúðmannleik og yfirlætis- leysi. Þessi laglegi piltur, sem var svo ánægður með lífið og miðlaði öðrum af ánægju sinni þegar eitthvað skyggði á, virtist eiga mikla framtíð fyrir sér. Hann átti fremur auðvelt með nám og var gæddur mörgum listamannsgáf- um, en það var ekki í eðli Guðmundar að miklast af slíku. Hann var hlédrægur og rólyndur, en úr andlitinu mátti lesa mikla mannkosti, góðsemi og kímnigáfu. Guðmundur gat einnig, ef svo bar undir, verið hrókur alls fagnaðar, lífið og sálin í hópi góðra vina. Fyrir aðeins tveimur vikum fögn- uðum við bekkjarsystkinin próf- lokum og lék þá Guðmundur á als oddi, þó með sínu meðfædda hæglæti og kurteisi. Hvern gat órað fyrir að svo skammt væri stórra högga á mili, — að bilið milli gleði og sorgar væri svo stutt. Það er vart að við séum búin að gera okkur grein fyrir því að þegar skólinn hefst á ný í haust verði Guðmundur ekki á meðal okkar. Guðmundur féll svo vel inn í bekkinn og var svo sterkur hluti af honum, að okkur finnst sem það sé hluti af okkur sjálfum, sem er dáinn. Við vissum að Guðmundi líkaði vel í skólanum og þótti vænt um skólann og bekkinn sinn, á sama hátt og við elskuðum hann sem góðan vin, drenglyndan og góðan dreng, sem ætíð var reiðu- búinn að rétta hjálparhönd, ef einhvers staðar bjátaði eitthvað á. Okkur finnst við hafa misst mikið, en missir okkar er þó smár miðað við þann sem móðir hans og ekki búskapurinn, sem mun halda nafni hans á lofti um ókomin ár, heldur það mikla og óeigingjarna fórnarstarf, sem hann vann í þágu kirkju og menningar í sveit sinni og byggð. Hann var gæddur óvenju miklum og góðum tónlist- arhæfileikum. Frá unga aldri lagði hann rækt við þessa náðar- gáfu sína og miðlaði öðrum. Ung- ur lærði hann orgelleik og gerðist organisti í Reykholtskirkju skömmu eftir fermingu. Var hann síðan organisti kirkjunnar sam- fellt um sjötiu ára skeið. Einnig var han í marga áratugi organisti í Síðumúla- og Gilsbakkakirkjum. Spilaði hann enn í þeim kirkjum, eftir að hann lét af starfi við Reykholtskirkju, eða allt fram undir nírætt. Láta mun nærri, að hann hafi verið kirkjuorgelleikari í þrjá aldarfjórðunga. Hygg ég, að svo löng og dygg þjónusta í þágu kirkjunnar heyri til eindæma í þessu landi. Þessi störf leysti Bjarni af hendi með miklum ágæt- um. Kom þar bæði til frábærir hæfileikar hans, leikni og snilli, svo og mikil samvizkusemi, trú- mennska og fórnarlund. Honum var mjög ljúft að syngja Drottni nýjan söng og lofa nafn hans með tónum orgelsins. Tónlistin átti hug hans og var honum stöðugt uppspretta gleði og hamingju. Þá gleði bar hann inn í líf annarra og jók birtu trúar og menningar í umhverfi sínu og samtíð. Þegar Bjarni varð áttræður, stofnuðu vinir hans, söngfélagar og safnaðarfólk sjóð við Reyk- holtskirkju, er bera skyldi nafn hans. Tilgangur sjóðsins var að kaupa pípuorgel í kirkjuna og stuðla að eflingu kirkjusöngs í sókninni. Vorið 1966 hafði orgelið verið keypt, og lék gamli maður- inn á það fyrsta sinni við freming- armessu á hvítasunnu það ár. Þá var hamingjustund, vitjunarstund í lífi hans og í lífi safnaðarins. Með orgelkaupunum sýndi sóknar- fólk í verki og á verðugan hátt þakklæti sitt og virðingu fyrir það mikla fórnarstarf, sem Bjarni hafði innt af höndum í húsi Drottins. Auk orgelleiks í þeim kirkjum Reykholtsprestakalls, sem áður er getið, spilaði Bjarni oft við messur og athafnir í ýmsum öðrum kirkj- um í Borgarfirði. Einnig aðstoðaði hann við stofnun kirkjukóra og leiðbeindi um kirkjusöng víða íhéraðinu. Fyrir það eiga kirkjur og söfnuðir Borgarfjarðar honum mikla þökk að gjalda. Um skeið systkin hafa orðið fyrir. í slysinu, þar sem Guðmundur lét líf sitt, fórst einnig faðir hans og hefur því móðirin misst bæði eiginmann sinn og son, og systkinin ástkæran föður og ljúfan bróður. Við vottum þeim og öðrum vandamönnum Guðmundar okkar einlægustu samúð og biðjurú þeim Guðs blessunar um alla framtíð. Bekkjarsystkin í M.A. Lífið er undarlegur gerningur. Enginn veit í raun upphaf þessog stundum eru endalokin svo snögg, að spurningar vakna, sem fáir kunna nokkurt svar við, og þau svör, sem gefin eru, veita litla fró, nema það svar eitt sem hin hreina trú getur veitt. Þegar Guðmundur nemandi minn Guðmundsson frá Ólafsfirði var leiddur brott með vofeiflegum hætti á þessum fyrstu dögum sumarsins vakna enn spurningar um tilgang lífs og dauða. Ekkert svar fæst. Guðmundur stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri þrjá vetur og átti að setjast í efsta bekk að hausti. Hann var fríður maður, einkar hógvær og kurteis og hvers manns hugljúfi. Kom það ekki síst fram í viðbrögðum bekkj- arsystkina hans, þegar fréttin af slysinu barst. Mikill harmur er að kveðinn eftir ungan og gervilegan mann. Er hans sárt saknað og opin og ófyllt standa skörð þeirra feðga. Móður Guðmundar og syst- kinum sendi ég dýpstu samúðar- kveðju mína. Megi hrein trú og minningin um góða drengi milda djúpan harm. Tryggvi Gíslason. hafði Bjarni á hendi söngkennslu í Lýðháskólanum á Hvítárbakka og Héraðsskólanum í Reykholti. Þá kenndi hann mörgum einstakling- um orgelleik í einkatímum. Vorið 1915 beitti Bjarni Bjarna- son sér fyrir stofnun söngfélags í Reykholtsdal, er hlaut nafnið Bræður. Félag þetta starfaði síð- an undir ötulli stjórn hans og af miklum þrótti og myndarbrag á fjórða áratug og lagði ómetanleg- an skerf til borgfirzkrar menning- ar á fyrri helmingi þessarar aldar. Þeir Bræður sungu víða um hér- aðið á þessum árum, bæði á skemmtisamkomum og mótum, í skólum, á hinztu kveðjustundum samferðamanna og við ýmis önnur tækifæri. Söngur þeirra þótti frá- bærlega vandaður og góður, og uppskáru þeir þakkir og lof manna fyrir list sína og menningarfram- lag. Ekki hugðu þeir á laun fyrir söng sinn. Gleðin og bræðrabönd- in, félagsandinn, vináttan og þökkin var það gjald, sem í augum þeirra var öllum launum ofar. Þeir voru gæddir ríkri fórnarlund og félagsþroska og fundu það og reyndu, að fegurð og gleði lífsins er ávöxtur af fórn. Um skeið voru þeir Bræður búsettir í sjö hreppum þessa héraðs, en það hamlaði þeim ekki að koma saman til söngæfinga og til að styrkja félags- og bræðra- böndin, þrátt fyrir erfiðar sam- göngur þeirrar tíðar. Á hverju hausti höfðu þeir sérstaka „söng- viku“, oftast á hinu mikla merin- ingar- og rausnarheimili söng- stjórans og konu hans á Skáney. Framlag þeirra Bræðra til borgfirzkrar menningar verður aldrei ofmetið né fullþakkað, og þegar menningarsaga þessa hér- aðs verður skráð, verður þeirra getið, og þar ber hæst nafn söng- stjórans, sem er kvaddur í dag. Bjarni Bjarnason var mikill áhugamaður um málefni kirkj- unnar, svo og allt, sem horfði til betri tíðar og meiri mannræktar og mannbóta í lífinu. Ungur stofn- aði hann Góðtemplarastúku, og alla ævi var hann stakur bindind- is- og reglumaður. í áratugi var Bjarni heitinn safnaðarfulltrúi Reykholtssóknar. Því starfi gegndi hann fram undir nírætt og lét sig aldrei vanta á héraðsfundi. Enginn var hann málskrafsmaður á þeim fundum, enda að eðlisfari fremur hlédrægur og dulur, en jafnan reiðubúinn að leggja góð- um málum lið. Ýmsum fleiri trún- aðarstörfum gegndi Bjarni fyrir sveit sína og hérað, sem hér verða ekki upp talin, en þeim málum var vel borgið, er falin voru forsjá hans. Hann var maður mjög sam- vizkusamur, grómlaus og heiðvirð- ur og í hvívetna hinn bezti dreng- ur og félagsbróðir. Margs konar trúnaður og virðing var honum sýnd í lífinu. Meðal annars var hann sæmdur riddarakrossi hinn- ar íslenzku Fálkaorðu árið 1961. Bjarni Bjarnason var vel greindur og víðlesinn. Hann var einlægur félagshyggju- og sam- vinnumaður. Og þótt hann virtist stundum fremur fálátur, kunni hann vel að meta félagsskap og samvistir við aðra. Mikið yndi hafði hann af að spila á spil, og munu margir minnast með gleði og þakklæti slíkra stunda með honum, oft næturlangt. Bjarni heitinn var trúaður maður, traustur og heill. Hann var mjög barngóður, hjálpfús og veg- lyndur. Jafnan mátti lesa góðvild og birtu í svip hans. Og þrátt fyrir svo háan aldur, var hann langst af ungur í útliti, léttur og kvikur í hreyfingum. Yfir öldungnum var heiðríkja vorsins og æskunnar. Hann horfði á lífið með augum trúmannsins og vormannsins, sem ávallt sér hið bjarta, góða og fagra í lífinu, væntir ávallt hins bezta, horfir fram til birtunnar og bug- ast «igi, þrátt fyrir byrðar og mótlæti ævinnar. Mörg sín efri ár dvaldist Bjarni heitinn á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Nesi og naut þar góðrar aðhlynningar og bjartra ellidaga. Að síðustu dvaldist hann í Sjúkrahúsi Akraness, þar sem hann andaðist að kvöldi hins 5. þessa mánaðar. Og í dag er hann kvaddur hinztu kveðju í kirkjunni, þar sem hann lék á orgelið og lofaði Drottin lengur en nokkur annar. Reykholtsdalur og Borgar- fjörður kveðja einn sinna beztu sona með djúpri virðingu og hjartagróinni þökk. Friður Guðs fylgi honum inn í vorið og á eilífðarbraut. Megi hann „vakna við sörigsins helga hljóm í himneskri kirkju" Drott- ins. Blessuð sé minning góðs drengs og göfugmennis. Jón Einarsson, Saurbæ. Gunnar Oddsteins- son — Minning Fæddur 14. júlí 1932. Dáinn 3. júní 1979. Það er erfitt að trúa því að hann Gunnar sé horfinn héðan; maður á besta aldri sé hrifinn á brott frá okkur svo skjótt sem raun varð á. Við skiljum það ekki sem eftir erum og spyrjum því þann sem allt skilur. Gunnar var alltaf hress og kátur og þægilegur í viðmóti. Ekki ætla ég að rekja hans stóru ætt, foreldra og ellefu systkini, það verður mér fróðara fólk að gera. Gunnar kvæntist Ernu Einarsdóttur, góðum lífs- förunaut, eignuðsut þau fjóra syni og eina dóttur og eru þau á aldrinum 10 til 22 ára, Einar 22 ára, Gísli 19 ára, Víðir 16 ára, Jenný 14 ára og Vilhelm 10 ára. Gunnar og Erna byggðu upp heimili sitt með dugnaði og þrautseigju og ber heimilið það með sér. Þangað hefur alltaf verið gott að koma, heimilisandinn góð- ur og notalegur. Gestrisni skortir hvergi hvenær sem þangað er komið og vel tekið á móti öllum. Við hérna heima þökkum fyrir þær stundir sem við áttum með Gunnari. Erna mín, bróðir þinn, ég og börnin vottum ykkur í Hrauntungu okkar dýpstu samúð svo og öðrum ástvinum, Guð styrki ykkur. M.M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.