Morgunblaðið - 16.06.1979, Síða 28

Morgunblaðið - 16.06.1979, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1979 Einhverjir albeztu hljómleíkar íslenzkra hljómsveíta voru haldnir í Laugardals- höllinni á þriöjudags- kvöld, en þá léku Magnús og Jóhann, Ljósin í bænum og Hinn íslenzki þursa- flokkur í tæpar prjár klukkustundir við mjög góðar undirtektir fjölmargra áhorfenda. Hjálpaðist allt að við að gera pessa hljóm- leika sem bezta; góðar hljómsveitir og tónlist, góður hljómur og síð- ast en ekki sízt mjög góðir áhorfendur, sem létu óspart í sér heyra. Árangur dansæfinga þeirra Ellenar og Stefáns kom greinilega í ljós á hljómleikunum! Friðrik Karlsson sló heldur betur í gegn og er nú óumdeilanlega meðal alfremstu gítarleikara landsins. Hvert lagið rak annað og öll féllu þau í góðan jarðveg. Þá vöktu kynningar Egils Olafs- sonar ekki síður hrifningu, og stökk ófáum bros á vör við að hlýða á þær. Tónlistarlega var þáttur Þursanna frábær, enda ekki við öðru að búast. Ásgeir Oskarsson hefur sennilega aldrei verið betri en einmitt nú og hinir standa allir á hápunkti getu sinnar. Þá er ánægjulegt að vita til þess að Norðurlandabúar eiga von á góðri sendingu frá íslandi. Þursarnir voru tvisvar klappaðir upp og fluttu í síðara skiptið nokkuð óvenjulegt lag, eða Suður um höfin. Og þeir voru nokkrir sem dönsuðu út úr Höllinni undir lokalagi Þursanna. SA. „Gleói er íhöH, glymja hlátra sköll" Fólk var farið að streyma inn í Höll langt fyrir níu, en dyrnar voru ekki opnaðar fyrr en klukkan hálf níu. Síðan jókst straumurinn smám saman og klukkan níu var hvert sæti skipað á bekkjunum, og talsverður fjöldi fólks sat á gólfinu. Að góðum íslenzkum sið hófust hljómleikarnir svo ekki fyrr en rúmlega níu og þá voru það Magnús H. Sigmundsson og Jóhann Helgason, sem hófu leik sinn. Gagnstætt því, sem við var búizt, komu þeir fram tveir einir, án nokkurra aðstoðar- manna og léku fimm lög. og reyndar við var búizi. Þegar á heildina er litið tókst Ljósunum vel upp, þótt svo flutningur einstakra laga væri misjafn. Sérstaklega var bagalegt hve flutningur hljómsveitarinnar á laginu Disco Frisco var laus í bönd- unum. Má vera að áhorfend- ur hafi haft þar einhver áhrif. uðu sér fullkomlega og hljóð- böndun öll var prýðileg. Það var nú komið fram áð hléi, sem átti að vísu aðeins að vera 15 mínútna langt, en lengdist og lengdist. En þeg- ar Þorgeir kynnir birtist loks aftur á sviðinu, fór fagn- aðaralda um salinn, Þurs- arnir voru næstir. Augljóst var að margir höfðu einungis komið á hljómleikana til að hlýða á Þursana, enda næsta víst að þeir hefðu eitthvað gott upp á að bjóða, þegar Norðurlandareisa stendur fyrir dyrum. Áheyrendur voru nokkuð lengi að átta sig á tónlist Þursanna og breytingunni frá því fyrir hlé. En þegar komið var fram í lög eins og Skriftagang hins húnvetnska bónda, var ekki annað að merkja en áheyrendur væru fullkomlega með á nótunum. „Prestur með pokarass, áttu ekki dropa vatns, að lána mér til sunnudags." Hljómleikarnir voru þeir síðustu, sem Karl Sighvatsson (lengst til vinstri) kemur fram á með Þursunum, en við sæti hans tekur Lárus Grímsson, sem á myndinni er nærri falinn bak við hljóðnemasúlurnar. Ljósm. Kristinn. Aðeins eitt þeirra hefur áður heyrzt opinberlega, Medicobooze, en annars voru lögin öll í svipuðum anda og mynduðu greinilega eina heild. Magnús og Jóhann komu sterkt út, bæði söngur og gítarleikurinn skiluðu sér prýðilega og var ekki að sjá að þeir félagar söknuðu nokkuð annars undirleiks. Áhorfendur kunnu vel að meta þessa tónlist, enda langt um liðið síðan heyrzt hefur í þeim Magnúsi og Jóhanni. Er Magnús og Jóhann höfðu lokið sínu hlutverki kynnti Þorgeir Ástvaldsson næsta atriði, en það voru Ljósin í bænum. Hljómsveit- in lék aðallega lög af nýju plötu sinni Disco Frisco, eins Þótt meðalaldur hljóm- sveitarinnar sé mjög lágur, en liðsmenn hennar eru á aldrinum 16 til 21 árs, eru þeir allir mjög góðir hljóm- listarmenn hver á sínu sviði. Gunnlaugur trommuleikari er t.d. alveg lygilega góður miðað við aldur. En eigi að taka einhvern einn úr hljóm- sveitinni út fyrir og lofa hann, hlýtur sá hinn sami að vera Friðrik Karlsson, gítar- leikari. Leikur hans var í einu orði sagt frábær, sér- staklega var gaman að heyra til hans í „instrumental“ lögunum. En hinir voru einn- ig góðir og Ellen söng að venju sem engill. Þá var ekki síður gleðilegt að heyra hve gott hljóð var hjá hljóm- sveitinni. Öll hljóðfærin skil- Poker a plast! EINS og kunnugt er gaf hljómsveitin Póker ekki út neina plötu á meðan þeir voru og hétu. Þessa dagana er verið að kanna möguleika á því að gefá út þrjú af lögum hljómsveitarinnar hérlendis og jafnvel í Hollandi á 12 tommu plötu. Lög þessi voru tekin upp í Hljóðrita í nóvember 1977 af Jeff Calver, en hann rak svo smiðshöggið á upptökuna í London, þar sem hann bætti við hornum og strengjum. Lögin sem um er að ræða heita „Take Me To The Sun“, „Driving In The City“ og „Get On To A Sure Thing“ og eru öll eftir Jóhann Helgason, en liðskipan Pókers í nóvember 1977 var Pétur Kristjánsson, Kristján Guðmundsson, Björgvin Gislason, Sigurður Karlsson, Pálmi Gunnarsson og Jóhann Helgason. í sambandi við Hollandsútgáfuna fylgir, að Póker þyrfti að gera breiðskífu líka, en það gæti verið erfiðara viðfangs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.