Morgunblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1979 13 Dick Higgins Nýlega var grafík-sýning á ferð í Gallerí Suðurgötu 7, og sýndi þar íslensk kona. Nú er þar einnig grafík á veggjum, og að þessu sinni er það ungur Bandaríkja- maður, sem í hlut á. Það er stanslaus starfsemi í hinu gamla húsi við Suðurgötu, og þar hefur skapast nokkurs konar, „STOP- OVER“ fyrir listamenn úr öllum áttum. Þeir koma og fara, sýna okkur verk sín og eru svo roknir út í heim til að gera sig fræga, eins og Jóhannes heitinn Kjarval komst einu sinni að orði um skólabróður sinn. Þessar heim- sóknir eru að vísu nokkuð mis- jafnar, en þær hafa ótvíræða þýðingu fyrir okkur hér og koma okkur í snertingu við það, sem unga fólkið er að gera innan vissra hópa bæði vestan hafs og austan. Það er nokkuð langt í land á stundum að ég skilji hvað gefur sumum þessara verka gildi. En það kemur fyrir, að maður rekur augun í ýmislegt, sem vekur mann af þeim landlæga dvala, sem oft á tíðum hefur viljað draga úr hraða tilverunnar hér við Faxaflóann. En hvað sem hver segir, þá er starfsemin í Suðurgötu 7 eins og ómur úr fjarlægð, sem gefur okkur svolítið af listaframleiðslu heimsbyggðarinnar. íSuður- götu 7 Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Dick Higgins sýnir grafík. Hún er að ég held unnin í lithographíu, en ef mér skjátlast, bið ég forláts. Sannleikurinn er sá, að svo marg- ar aðferðir tíðkast í myndlist þessa stundina, að maður óar sér við að notfæra sér það er þeir ensku kalla „MIXED MEDIA.“ Þessi verk Higgins eru mjög þokkaleg og ná oft myndrænum sprettum, þar sem litamaðurinn til dæmis setur letur inn í mynd- flötinn ásamt beru kvenfólki, og það er nokkur kynorka, sem virð- ist standa að baki þessara verka. Samt er hvergi farið svo út í þá sálma, að kristilega hugsandi fólk geti dæst, hneykslast á því og kallað klám. Hér er sem sé á ferð afar kurteis, en ekki mjög sterkur listamaður. Hann gerir ekki verk sín eftirminnileg og hefur raunar ekkert nýtt til málanna að leggja. Tækni hans virðist í lagi, og eins og ég hef áður sagt, er þetta mjög þokkaleg sýning, en hún stenst ekki snúning þeirri sýningu, sem var þarna innan veggja fyrir aðeins nokkrum dögum. Það hefur ætíð verið nokkuð um það, að myndlistarmenn ferðuðust millum landa og sýndu verk sín. Ég held, að samt hafi þessi þáttur farið vaxandi nú á seinustu árum, og er það vel. Gallerí Suðurgata 7 er afar vel fallið til að taka á móti sýningúm sem þessari. Higgins er einnig bókagerðarmaður og las úr verkum sínum við opnun þessarar sýningar. Ekki veit ég, hvernig það var, en eflaust hafa einhverjir haft ánægju af. Þessi sýning er með því betra, sem sýnt hefur verið af útlendri list í Suðurgötu 7, og getur verið, að þessi myndlist sé betri en ég kem auga á. Hver veit? Valtýr Pétursson. Sýning Sigga flug Sigurður Jónsson (Siggi flug), handhafi fyrsta flugskírteinis á Islandi og fyrrverandi áætlunar- flugstjóri á Súlunni og Veiðibjöllunni hans Alexanders, lumar á ýmsu, er hann hefur ekki verið að hampa um of. Ég man eftir sýningu, er hann hélt á teikningum í glugga Morgun- blaðsins fyrir mörgum árum og greina má vel mikla framför frá þeim teikningum, í þeim verk- um, er hann sýnir þessa dagana í húsakynnum Stálhúsgagna við Skúlagötu, nánar tiltekið No. 61. Þegar ég var pottormur við höfnina, man ég vel eftir flugvél- unum, sem svifu yfir bæinn. Siggi flug var ein af hetjum okkar strákana, og ég gat enn kallað fram í huga mér mynd af honum á pokabuxum, en það var embætistákn fluggarpa þeirra tíma. Siggi hefur sagt frá flest- um sínu furðulegu flugferðum í bókinni Siggi flug. Samt helg ég, að hann eigi ýmislegt í poka- horninu, sem gaman er að. Hann sagði mér til dæmis frá því, þegar þeir á Súlunni flugu inn í ský, og farþegarnir bönkuðu í þilið og spurðu flugstjórann, af hverju þeir hefðu stoppað. Þetta er ein af mörgum gamansögum, sem Siggi á í fórum sínum, og ég er viss um, að hann er hafsjór af slíkum hlutum. Það eru milli 30 og 40 teikn- ingar á núverandi sýningu Sigga, og þar eru margar húsa- myndir úr Reykjavík, sem ég held, að sýni Sigga best sem teiknara. Hann lærði smávegis að draga til mynda fyrir 60 árum, og síðan var hann í tímum hjá Marteini Guðmundssyni og Birni Björnssyni. Þar með er listnám Sigga flugs talið. Hann heldur sig engan meistara, en hefur alla tið haft mikla ánægju af teikningu. Ef minnst er á lit við hann, verður svarið „Nei, takk, það ræð ég ekkert við.“ Þannig tala heilir menn, en ekki spjátjrungar. Siggi flug er oft á tíðum mjög lipur teiknari og sérlega vandvirkur, ef vill til um of. Hann mundi ekki tapa á því að vera svolítið harðhentari með verkfærin, það sýnir myndin af Ólafi Thors, svo að dæmi sé nefnt. Það eru margir fyrirmenn á þessari sýningu, og þeir þekkj- ast allir. Siggi nær vel svip, en sumar þessara mynda mættu vera sterkari í sjálfri teikning- unni. Það er einkennandi fyrir húsamyndir Sigga, að hann ann sinni borg, sem aðeins hét bær, þegar hann var á sínum sokka- bandsárum. Það er notalegt and- rúmsloft, sem leikur um þessi verk, og þau eru Sigga flug til sóma. Mér fannst mannlegur blær yfir þessari sýningu, en hvergi stórkostleg átök. Þetta er Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON tómstundaiðja hjá Sigga, og hún hefur að mínu mati heppnast svo, að hann má vel við una. Þetta lætur ekki mikið yfir sér, en hlutirnir skila sér samt. Gartúlera, gamli heiðursmaður, og endum eins og þeir segja í Ameríku: Up, up and away! TWA. Valtýr Pétursson. þar sem ríkjandi stéttir fá á baukinn, einkum embættismenn skrifstofukerfisins. Þegar Strind- berg samdi Rauða herbergið var mikið um brask í Svíþjóð, ekki síst voru það tryggingafélög sem þóttu heppilegur gróðavegur. Fjármála- menn reyndu eins og oft áður að ná völdum á sem flestum sviðum og lögðu áherslu á hvers konar blaðaútgáfu og að gera ritfæra menn sér undirgefna. Spilling blómstraði og gerir Strindberg lítið af því að fegra menn. Valda- stéttin er gráðug og lítilsgild, verkamenn aular. Konum er ekki treystandi. Þær giftast til fjár eða stunda lauslæti sér til framdrátt- ar. Mannlega eiginleika er þó að finna hjá ýmsum persónum Rauða herbergisins, en ýkjustíllinn setur svip sinn á bókina og gerir hana á köflum líkari skopmynd en sögu af lifandi fólki. Meðal þeirra sem Strindberg finnur eitthvað ærlegt hjá er myndhöggvarinn Olli Montanus sem mistekst flest og drekkir sér að lokum. Hann skilur eftir sig blöð til vina sinna þar sem hann skilgreinir meðal annars lista- mannaástríðuna á þá leið að „hún byggist framar öllu á sterkri frelsisþrá, þrá til frelsis frá nyt- sömu starfi“. Meðal þess sem lesa má í blöðum Olla er umræða um börn og fjölskyldu sem var fyrir- ferðarmikil meðal hugsandi manna á dögum Strindbergs og hann tók drjúgan þátt í. Strind- berg notar mjög þá aðferð í Rauða herberginu að láta bréf tjá hug sinn til samtíðarinnar. Það er til dæmis athyglisvert sem Olli skrif- ar um fjölskyldumál: „Ástæðan til þess að algengara er að foreldrar (einkum feður) hati börn sín en elski er sú, að börnin ógna fjár- hagslegri velferð þeirra. Til eru foreldrar sem fara með börn sín eins og hlutabréf, sem þeir krefj- ast sífellt að gefi af sér arð“. Olla stendur ógn af „óhugnanlegasta stjórnarformi sem til er“, en það er að hans dómi „fjölskylduein- ræðið, sem engin bylting megnar að breyta". Lokakafli bókarinnar er bréf frá Borg licentiat til Selléns lands- lagsmálara í París. Þar er á einkar eftirminnilegan hátt hæðst að trúarhræsni, góðgerðarstarfsemi og ýmsum öðrum einkennum þess samfélags sem í augum Strind- bergs var rotið og dauðadæmt. í lok bréfins talar Borg um yfirlitsskýrslu sína. Segja má að Rauða herbergið sé eins konar skýrsla um ástandið í Svíþjóð fyrir um það bil hundrað árum, en svo skemmtilega vill til að íslensk útgáfa bókarinnar kemur einmitt út hundrað árum eftir útkomu hennar í heimalandinu. Þýðing Hjartar Pálssonar er vönduð og ber að fagna því að Rauða her- bergið kemur út á íslensku þótt seint sé. Okkur er það mikil nauðsyn að merk verk séu til í góðum þýðingum, lesenda vegna og ekki síst vegna þróunar bók- menntanna. Rauða herbergið var á sínum tíma meðal þeirra bóka sem menn urðu að taka afstöðu til, Margt hefur fyrnst síðan. Beittustu broddarnir meiða engan lengur. Fólk les þessa bók sér til skemmt- unar. Umbótavilji höfundar er ekki einráður. Hér eru margar sögur af mannlegum örlögum sem eru átakanlegur og heillandi skáldskapur. Ég nefni sem dæmi samband leikarans Rehnhjelms og stúlkunnar Agnesar. Áður var getið myndhöggvarans Olla. Rauða herbergið er löng skáldsaga og að dómi margra eins og skáld- sögur eiga að vera. Hún mun ekki hafa valdið svo litlum svima svo að gripið sé til alkunnra skilgrein- ingar. List höfundarins er óum- deilanlega mikil. Þess vegna hafði hann sín áhrif þótt ádeilan reynd- ist stundum fremur marklítil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.