Morgunblaðið - 16.06.1979, Side 40

Morgunblaðið - 16.06.1979, Side 40
AIXI.YSINGASIMINN ER: 22480 Iforguftlilftbtfe AUGLYSINGASÍMINN ER: 22480 JHorflunlíIa&iÖ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 Lítil hreyfing á samningamal- um farmanna FÁTT fréttnæmt gerðist í gær á sáttafundi með yfirmönnum á farskipum og útgerðum skipafélaganna. Fundur hófst klukkan 14 og í gærkveldi. er Morgun- blaðið fór í prentun, höfðu aðilar lítið ræðzt við að gagni. Þó munu hafa orðið einhverjar viðræður rétt íyrir kvöldverðarhlé um vaktaálög, sem farmenn báru nokkra von í brjósti um að gætu þróazt áfram. Enginn fundur var með undirmönnum í gær. Á forsíðu Tímans í gær var haft eftir Hallgrími Sigurðssyni, for- manni Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, að von væri á tilboði frá Vinnumálasambandinu um 3% grunnkaupshækkun til yfirmanna og aö önnur kjaraatriði yrðu sett í gerðardóm. Morgun- blaðið ræddi í gærkveldi við Hallgrím og spurði um þetta tilboð. Sagði hann þá að ekkert tilboð væri í bígerð og væri hér um misskilning milli sín og blaða- manns Tímans að ræða. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, mun sú kerfisbreyting, sem aðilar hafa náð saman um, fela í sér að öðru óbreyttu verulega rýrnun eða lækkun launa. Því er skilyrði samkomulags að inn í þennan ramma komi nýjar launatölur, sem þyrftu því að vera hlutfalls- legar talsvert hærri en þær tölur, sem fram myndu koma við óbreytt kerfi. Er gert ráð fyrir að vakta- álagið, sem vinnuveitendur munu hafa viðurkennt í orði, komi inn sem hluti launa. Um það snerust viðræður í gærkveldi og síðan þurfa menn að finna þá launatölu, sem að þessu gæti fallið, og var búizt við því að vinnuveitendur stefndu að því að spila út tölu, sem yrði sem allra næst því að gefa enga hlutfallshækkun. Slík tala hafði ekki birzt í gærkveldi. Var jafnvel búizt við því að setið yrði eitthvað fram eftir. Einn samningamanna yfir- manna sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að þegar frá upphafi deilunnar hafi fulltrúar Vinnumálasambandsins rætt um að Sambandið væri komið á fremsta hlunn með að slíta sam- stöðu vinnueitenda og semja sérstaklega. Þessi fulltrúi kvað þetta tal nú hljóma í eyrum yfirmanna eins og lélegur brand- ari. HULAHOPP.... Ilúlahoppbylgja gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið eins og eldur í sinu, en liðin eru um það bil 20 ár frá því að húlahopp tók slíkan kipp hér á landi. Myndina tók Kristján ljósmyndari Mbl. af tveimur liprum stúlkum sem húluðu allt frá hálsi og niður á hné. Greenpeace: Vélarbilun GREENPEACEMENN voru teknir til yfirheyrslu hjá út- lendingaeftirlitinu í gær og einnig mættu þeir til viðræðna í dómsmálaráðu- neytinu vegna brota á ís- lenzkum reglum. Gáfu Greenpeacemenn skýrslu hjá útlendingaeftirlit- inu vegna útlendinga sem höfðu farið af landi brott án þess að gera grein fyrir sér og hjá dómsmálaráðuneytinu var rætt við þá vegna brota, m.a. vegna þess að þeir notuðu neyðarbylgju á leið í land í gær. Rainbow Warrior, skip Greenpeacemanna, liggur nú á ytri höfninni í Reykjavík með bilaða vél og er gert ráð fyrir því að viðgerð taki nokkra daga. Nýtt viðlagagjald vegna olíunnar? „ÞAÐ SÉR ekki fyrir endann á því,“ svaraði Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra, er Mbl. spurði hann með hverjum hætti ríkisstjórnin ætlar að afla tekna til að halda olfuverðinu til fiskiskipaflotans óbreyttu, eins og heitið var við ákvörðun fiskverðsins. Kjartan sagði, að miðað við hækkun gasolfu úr 103 í 145 krónur lftrinn og hækkun á svartolfutonni úr 50.500 krónum í 68.000 krónur kostaði það 6,6 milljarða á ári að halda olíuverðinu óbreyttu til fiskiskipaflotans, eða 550 milljónir króna á mánuði. Kjartan nefndi sem dæmi, að framangreind verðhækkun þýddi 2,5 milljónir króna á 10 daga veiðiferð minni skuttogara og 3,8 milljónir króna á hálfsmánaðar- veiðiferð skuttogara af stærri gerð- inni. Á árinu 1978 var heildarolíu- kostnaður útgerðarinnar 16% af rekstrarútgjöldum að launum sjómanna frátöldum, en miðað við verð í maílok er olíukostnaðurinn upp undir 30% af rekstrarút- gjöldunum. Ríkisstjórnarflokkarnir fjalla nú um það með hverjum hætti ríkis- sjóði verði aflað tekna til að standa undir útgjöldum vegna óbreytts olíuverðs til fiskiskipa og olíu- styrkja vegna húshitunar, en eins og orð sjávarútvegsráðherra í upp- hafi þessarar fréttar bera með sér hefur ekki náðst samkomulag um það, hvaða álögur verða auknar og hvernig til þess að auka tekjur ríkissjóðs. í heild mun olíudæmi það, sem ríkissjóður stendur nú frammi fyrir, vera á bilinu 750 til 1000 milljónir'á mánuði. „Það má heita að fram hafi komið tillögur um allar þekktar skattheimtuaðferðir auk þess sem menn brjóta heilann til að finna nýja skattstofna," sagði einn af forystumönnum eins stjórnar- flokkanna í samtali við Mbl. „Það hefur mjög komið til álita að setja þetta fram í formi viðlagagjalds, eins og gert var á sínum tíma vegna gossins í Vestmannaeyjum. Þá var söluskatturinn hækkaður um tvö stig, hvort sem sú leið verður ein farin nú, eða um verður að ræða aukna skattheimtu á fleiri en einu sviði. En þetta er ægilegt mál að ráða fram úr því stærðargráða vandans er svo hrikaleg." Tvöfaldur vínsjúss kostarnú á þriðja þúsundkr. í KJÖLFAR áfengis- hækkunarinnar á dögunum hækka vínsjússar á veitinga- húsunum og fer tvöfaldur vínsjúss í gosdrykk nú í fyrsta skipti yfir 2000 krónur. Sjússinn af algengu vodka kostar 780 krónur og tvöfaldur vodka í gosi kostar 2060 krónur glasið. Sjússinn af algengu viskíi kostar 790 krónur og tvöfaldur viskí í gosi kostar nú 2080 krónur glasið. Sjússinn af brennivíni kostar 605 krónur og tvöfaldur brennivínssjúss blandaður með gosdrykk kostar nú 1710 krónur. Tvöfaldur brennivínssjúss í vatni kostar hins vegar 1210 krónur. Engin hækkun verður á borðvínum en önnur svokölluð létt vín. t.d. sherry og svipaðar gerðir hækka í verði. Gjaldskrá leigu- og sendibíla hækkar VERÐLAGSYFIRVÖLÐ hafa heimilað 14,5% hækkun á töxtum leigu- og sendiferðabifreiða. Tóku hinir nýju taxtar gildi í gærmorgun. Jafnframt hækkar startgjald leigubíla úr 840 í 1000 krónur og framvegis kostar hvert skref krónur í stað 20 króna áður. 50 Hækkun þessi er vegna olíu- og benzínhækkana, launahækkana og hækkana á öðrum kostnaðar- liðum. „Styrkur fyrir íslenzkan baUett,, „ÉG var alveg hissa hvað þetta gckk vel, því það var ekki nema vika til æfinga,“ sagði Auður Bjarnadóttir ballettdansari í samtali við Morgunblaðið í gær er hún sigraði í keppni 20 'norrænna ballettdansara sem haidin var í Finnlandi í vikunni. Auður og Dinko í einu dans- atriðinu í Finnlandi. „Það var ekki aðalatriðið að vinna,“ sagði Auður, „en það var ánægjulegt að geta gert þetta sæmilega og sérstaklega er ég ánægð með að þessi sigur er talinn vera styrkur fyrir uppbyggingu og möguleika balletts á íslandi. Það vakti líka mikla athygli hér, að sigurvegarinn var frá fjarlægasta landinu. Það var skemmtilegt að þessari keppni skyldi komið á því Norðurlöndin geta hjálpazt að við uppbyggingu ballettsins." Áuður var í Stokkhólmi þegar Mbl. ræddi við hana í gærkvöldi, en í kvöld sýnir hún þar ballett ásamt þeim dönsurum sem hlutu 2. og 3. verðlaun, en það voru stúlkur frá Finnlandi og Svíþjóð. 1. verðlaun í keppninni voru 5000 finnsk mörk eða um 400 þús. kr. íslenzkar. Auður hafði dansfélaga með sér frá Múnchen, Júgóslava að nafni Dinko Bogadanic. Keppn- in fór fram í þremur köflum á þremur dögum og fyrst dansaði Auður klassískan dans, Le cors- aire, síðan moderne dans um Paganini við tónlist eftir Rach- maninov, saminn af sólodansaran- um Yuri Vaoms í Múnchen og í lokakeppninni dansaði Auður ásamt félaga sínum kafla úr Rómeó og Júlíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.