Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1979
Jóhannes Nordal, forseti Hins íslenska fornritafélags, og þeir Andrés Björnsson og Baldvin Tryggvason, stjórnarmenn í félaginu, með
sýnishorn af hinni vönduðu hátíðarútgáfu Heimskringlu. Á myndinni eru og þau bindi sem hafa verið endurútgefin úr ritaröð félagsins.
Ljósm. Mbl. Emilía.
Hið íslenska fornritafélag:
Hátíðarútgáfa Heimskringlu í
tilefni 800 ára afmælis Snorra
„ÞESSI hátíðarútgáfa Heims-
kringiu kemur út í tilefni af 800
ára afmæli Snorra Sturlusonar
og undirbúningsnefndin um það
hvernig minnast skuli afmælis
Snorra var höfð með í ráðum,"
sagði Jóhannes Nordal, forseti
Hins íslenska fornritafélags, á
fundi með blaðamönnum í gær.
En Hið íslenska fornritafélag
hefur látið gera sérstaka hátíðar-
útgáfu af Heimskringlu í 300
tölusettum eintökum, sem árituð
eru af forseta íslands, dr.
Kristjáni Eldjárn. Hluta þessa
upplags, eða um hundrað eintök,
fær menntamálaráðuneytið til
ráðstöfunar. Um leið og þessi
hátíðarútgáfa Heimskringlu
kemur út er hún endurútgefin í
ritaröð Fornritafélagsins. En að
sögn Jóhannesar er unnið að því
að koma þeirri útgáfustarfsemi í
gang á ný, en hún lá niðri um
skeið. Byrjað verður á að ljós-
prenta öll rit sem gefin hafa verið
út á vegum félagsins, en það eru
17 bindi alls. Með Heimskringlu
er þannig búið að endurútgefa 10
bindi og stefnt er að því að á
næsta ári verði þau öll fáanleg.
Drýgstur hluti þeirra 17 binda
sem félagið hefur gefið út, eru 13
bindi Islendingasagna, auk
Heimskringlu í þremur bindum
og Orkneyinga sögu í einu bindi.
Þá eru að sögn Jóhannesar
Nordal á döfinni nýjar útgáfur í
ritaröðinni, því enn er miklu
starfi ólokið að hans sögn. I
undirbúningi eru þannig þrjú
bindi Konungasagna og munu
þeir Bjarni Guðnason, prófessor,
Ólafur Halldórsson, handrita-
fræðingur, og dr. Bjarni Einars-
son annast þá útgáfu. Einnig er
langt komið útgáfu síðasta bindis
af Islendingasögum sem þeir sjá
um Þórhallur Vilmundarson,
prófessor, og Bjarni Vilhjálms-
son, þjóðskjalavörður.
Verð hátíðarútgáfunnar er 96
þúsund krónur með söluskatti, en
verð Heimskringlu í ritaröð
félagsins er um 30 þúsund krón-
ur, eða svipað verð og er á hinum
bindunum í ritaröðinni. Hægt er
að panta þessar útgáfur hjá
félaginu sjálfu og aðalumboði
þess, Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Þess má geta að Hafsteinn
Guðmundsson prentsmiðjustjóri
réð frágangi og útliti þessara
binda sem eru hin vönduðustu,
prentuð á sérstakan, litaðan
pappír og unnin í prentsmiðjunni
Odda.
Auk Jóhannesar eru í stjórn
Hins íslenzka fornritafélags þeir
Andrés Björnsson, Baldvin
Tryggvason, Jónas Kristjánsson
og Ottarr Möller.
Sementsskortur stöðvar bygg-
ingaframkvæmdir úti um land
Smyrill með sement frá
Færeyjum til Austfjarða?
SEMENTSLAUST er nú orðið
nær alls staðar utan Suð-Vestur-
lands og eru starfsmenn í bygg-
ingariðnaði að verða verklausir
af þeim sökum. Frá því að far-
mannaverkfallið skall á hefur
sáralítið af sementi verið flutt út
um land með skipum og flutning-
ar með bílum hafa gengið erfið-
lega vegna þungatakmarkana.
Bíða um 5000 tonn af sementi
afgreiðslu hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins á Akranesi en
verksmiðjan er daglega með 7
tankbfla í flutningum á sementi
til Reykjavíkur og nágrennis,
sem fara hver tvær ferðir á dag,
og er enn til nægjanlegt sement á
Reykjavíkursvæðinu. Byggingar-
Miklar annir
hjá íscargó
MIKLAR annir eru nú hjá Is-
cargó í vöruflutningum milli
íslands og Evrópu og flýgur
flugfélagið 4—5 ferðir á viku í
stað einnar ferðar vikulega milli
Reykjavíkur og Rotterdam. Sam-
kvæmt upplýsingum Lárusar
Gunnarssonar forstjóra íscargó
hefur félagið fengið spænska
flutningavél til að hlaupa undir
bagga í mesta álaginu, en ís-
cargó flytur 13 tonn mest í vél
sinni, allt milli himins og jarðar,
eins og forstjórinn orðaði það.
félagið Brúnás á Egilsstöðum
hefur vegna þessara erfiðleika
kannað möguleika á því að fá
milli 70 og 80 tonn af sementi
með ferjunni Smyrli frá Færeyj-
um. „Þetta er nokkru dýrara en
að fá sement á bílum frá Reykja-
vík en þetta er neyðarúrræði, sem
verður beitt sérstaklega ef
þungatakmarkanir verða áfram
við lýði og ekki fæst undanþága
hjá farmönnum til flutninga með
skipi að sunnan,“ sagði Þor-
steinn Gústafsson hjá Brúnási.
„Það er allt landið krúnk nema
einstaka aðilar, sem eiga nokkra
poka,“ sagði Friðrik Jónsson hjá
Sementsverksmiðjunni en tók
fram að undantekning frá þessu
væri Reykjavík. Þar hefðu verið
töluverðar birgðir, þegar verkfall-
ið skall á, en um þriggja vikna
skeið hefðu þeir orðið að keyra
sement suður með ærnum auka-
kostnaði fyrir fyrirtækið. Friðrik
sagði að verksmiðjan hefði óskað
eftir undanþágu fyrir Skeiðfaxa
til að flytja laust sement til
Reykjavíkur og fyrir einn farm til
Isafjarðar, því þar væri sements-
síló, en þessar undanþágur hefðu
ekki fengizt. Strandferðaskipin
hefðu að vísu flutt nokkuð af
sementi en það segði lítið. Menn
væru að flytja sement með bílum
nánast til allra landshluta nema
Norð-Austurlands en það hefði
verið erfitt vegna þungatakmark-
ana og kostnaðar.
Tryggvi Pálsson, framkvæmda-
stjóri Smára h.f á Akureyri, sagði
að þar hefði ekkert sement fengist
í nær 3 vikur sem teljandi væri.
„Byggingariðnaðurinn hér er að
stoppa. Menn eru nánast í fokki og
fyrirtækin reyna að halda mann-
skapnum gangandi. Hér vantar
ekki bara sement, því okkur vant-
ar timbur og steypustyrktarstál.
Og þó verkfallið leysist tekur
hálfan mánuð að koma öllu í gang
á ný. Það alvarlegasta er hversu
við erum búnir að missa mikið af
hinum stutta byggingartíma
sumarsins, þannig að það er með
öllu óvíst að okkur takist að gera
þau hús, sem ætlað var fokheld
fyrir veturinn. Slíkt hefði í för
með sér atvinnuleysi hjá iðnaðar-
mönnum næsta vetur," sagði
Tryggvi.
Þeir Jón Þórðarson hjá Steiniðj-
unni á ísafirði og Þorsteinn Gúst-
afsson hjá Brúnási á Egilsstöðum
tóku undir með Tryggva að þessir
erfiðleikar nú gætu hæglega kom-
ið fram í atvinnuleysi iðnaðar-
manna næsta vetur. Þorsteinn
sagði að til Austurlands hefðu
aðeins komið örfá tonn af sementi
með Ríkisskip síðustu vikur og í
nær 2 mánuði hefði steypuvinna
þar legið niðri en reynt væri að
halda múrverki gangandi. „Menn
hafa farið í önnur verk en þetta
stefnir allt í verkefnaleysi eftir
vikutíma og þá verða menn at-
vinnulausir," sagði Þorsteinn.
Fjörkippur
í tækjasölu
MORGUNBLAÐIÐ hafði sam-
band við þrjár verzlanir í Reykja-
vík í gær og spurði um sölu
heimilistækja að undanförnu.
Hjá Radióbúðinni, Fálkanum og
Heimilstækjum fékk blaðið þær
upplýsingar að sala á heimilis-
tækjum hefði verið óeðlilega mik-
il undanfarnar tvær vikur miðað
við árstíma þótt ekki væri hægt
að tala um nein læti í sölu.
„Þetta hefur tekið kipp, sér-
staklega í síðustu viku,“ sagði einn
verzlunarmaðurinn," en síðan hef-
ur aftur hægt um“. Kváðu verzl-
unarmenn ljóst að fólk hefði tekið
ákvörðun um að kaupa tæki sem
það veltir að jafnaði lengur fyrir
sér en en það hefur gert s.l. vikur.
Vigdíshaett-
irhjálðnó
VIGDÍS Finnbogadóttir, leikhús-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur,
hefur sagt starfi sínu lausu frá og
með lokum næsta leikárs Leik-
félagsins. Hún tók við starfi leik-
hússtjóra af Sveini Einarssyni
árið 1972. Það er nýkjörið leikhús-
ráð Leikfélagsins sem kýs næsta
leikhússtjóra.
17. júní að
Skálatúni
VINAFÉLAG Skálatúnsheimilis-
ins gengst að vanda fyrir hátíð að
Skálatúni 17, júní. Aðkomnir
skemmtikraftar munu sjá um
dagskrá hátíðarinnar að hluta.
Farið verður í ýmsa leiki og
dansað. Á boðstólum verða kaffi-
veitingar og veitingar í tjaldi.
Skemmtunin hefst kl. 14.15 með
skrúðgöngu.
6 umsóknir
um embœttið
RUNNINN er út umsóknar-
frestur um embætti yfirborg-
arfógcta í Reykjavík, en Frið-
jón Skarphéðinsson lætur af
því embætti innan skamms
fyrir aldurs sakir. Sex um-
sóknir bárust og eru umsækj-
endur eftirtaldir:
Ásberg Sigurðsson, borgarfó-
geti
Ásgeir Pétursson, sýslumaður
Elías í. Elíasson, bæjarfógeti
Guðmundur Vignir Jósepsson,
gjaldheimtustjóri
Jón Skaftason, deildarstjóri
Unnsteinn Beck, borgarfógeti.
Forseti íslands veitir
embættið og er það veitt frá 1.
september n.k.
Tillaga um fjölgun
ritstjóra Tímans
MIKIÐ uppistand hefur orðið meðal Framsóknarmanna í Reykjavík
vegna tillögu sérstakrar efnisnefndar blaðstjórnar Tímans um að
ritstjórum Tímans verði fjölgað og ráðinn sérstakur ritstjóri til að annast
daglega ritstjórn. Þórarinn Þórarinsson ritstjóri mun hafa hafnað
þessari tillögu með þeim orðum að hann liti á framkvæmd hcnnar sem
óbeinan brottrekstur sinn eða slíka tilraun til að skerða ritstjórn sína, að
hann geti ekki sæit sig við hana. Mun Þórarinn hafa tilkynnt Stcingrími
Hcrmannssyni, sem er formaður blaðstjórnar Tímans, þessa afstöðu sína.
Ýmsar undirnefndir blaðstjórnar Helgason og Jón Sigurðsson haldi
Tímans hafa starfað að undanförnu
og skilað tillögum varðandi blaðið
til blaðstjórnar; m.a. sérstök nefnd
vegna fjársöfnunar þeirrar sem
hafin er fyrir Tímann og efnis-
nefndin, sem í sitja Magnús Bjarn-
freðsson, Gerður Steinþórsdóttir,
Haukur Ingibergsson og Heiður
Helgadóttir. Meðal tillagna nefnd-
arinnar er að ritstjórum blaðsins
verði fjölgað ög breytt verkaskipt-
ing tekin upp, en hins vegar tekið
fram að þeir ritstjórar sem fyrir
eru; Þórarinn Þórarinsson, Jón
áfram. Jón Helgason er í leyfi, en
mun koma aftur til ritstjórastarfa
um áramótin að öllu óbreyttu.
Þegar tillagan um fjölgun rit-
stjóranna var fram komin hlaut hún
mjög misjafnar undirtektir og hafa
m.a. þeir, sem leggja í hana sama
skilningog Þórarinnog telja að verið
sé að ýtí honum til hliðar, haft uppi
stór orð um, að ef tillagan ve'rði
framkvæmd muni verða brugðizt
við með uppsögnum á Tímanum og
jafnvel útgáfu nýs blaðs.