Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
3
Ekkert annað að gera
en hirða þetta fólk...
Þórður segir að þeir íari
alltaf tveir framá þegar á að
skutla, skipshundurinn og
hann.
að vegna nálægðar Greenpeace-
manna urðum við að liætta við
að nota sprengjuna sjálfa, sem
við gerum annars alltaf við
hvalveiðarnar. Við ráðum sjálfir
hvert skutullinn fer og skeikar
yfirleitt mjög litlu, en hins vegar
£eta brot úr sprengjunni dreifst
um nokkurt svæði og hugsanlega
valdið slysi ef menn eru á
ferðinni rétt við hvalina.
Sprengjan er þannig útbúin að
hún springur þegar hún kemur í
hvalinn og drepst hann þegar, en
vegna aðgerða Greenpeace leng-
ist dauðastríð hvalsins og ég
hygg að hann hafi átt í því í 5—7
mínútur.
— Þegar þeir tala um að
mannlegu eðli sé ofboöið er því
til að svara áð við erum nú ekki
verri en það að meta mannslífin
meira en líf blessaðra hvalanna
og því tökum við ekki þá áhættu
að valda slysum á fólki en af
fyrrgreindum ástæðum er hugs-
anlegt að dauðastríð hvalsins
lengist.
Það var í ýmsu að snúast hjá
Þórði meðan staðnæmst var í
Hvalfirðinum, en yfirleitt er
ekki stanzað nema í 10—15
nn'nútur til að taka vistir. Þegar
skipin þurfa að taka olíu er
lengst stoppað í 2 tíma. Hins
vegar tafðist Hvalur 8 í gær
vegna þess að vír úr hvalnum
flæktist í skrúfu skipsins þegar
það var að koma að bryggjunni
HVALUR 8 lagðist að bryggj-
unni við Hvalstöðina um kl. 10 í
gærmorgun, en hann hafði náð
einni langreyði eftir túrinn,
þrátt fyrir ýmsar truflanir
Greenpeace-manna frá því á
miðvikudag eins og fram hefur
komið í fréttum Mbl. Þórður
Eyþórsson skipstjóri gaf sér
tfma til að spjalla stutta stund
við blaðamenn Mbl., en á undan
skipi hans höfðu Hvalur 6 og
Hvalur 9 fært til vinnslu 2
langreyðar hvor.
— Það er ekki neitt annað að
gera en hirða þetta fólk, sagði
Þórður, það er verið að tala um
að mæta því á friðsamlegan
hátt, en ég veit ekki hvernig það
á að vera, að minnsta kosti er
það ekki hægt á miðunum, hvort
sem einhver getur hugsað sér
það við skrifborð í stjórnarráð-
inu.
Þórður rakti síðan nokkur
atriði úr skipsdagbókinni og
kom þar fram, að frá því kl. 21:40
á miðvikudagskvöld hefði gúm-
bátur Greenpeace-manna trufl-
að þá við veiðar. Hefðu þeir
komið að þeim hvað eftir annað
er þeir sáu blástur og í hvert
sinn sem hvalur var á yfirborð-
inu keyrt í átt til þeirra af fullu
vélarafli og styggt þá, og þess á
milli sífellt verið undir stefni
Hvals 8 eða í skotlínu milli hans
og hvala sem Þórður hugðist
skutla. — Rainbow Warrior kom
-segirskip-
stjórinn á
Hval 8 um
Greenpeace
síðan á vettvang um miðnætti,
sagði Þórður, en við höfðum
keyrt þataf okkur og um eittleyt-
ið settu þeir út hina gúmbátana
tvo, en þeir höfðu elt okkur frá
því úti fyrir Hvalfirði á stærstu
gúmmítuðrunni, sem er með 130
hestafla vél og leíu þeir sífellt
öllum illum látum á henni.
Þá kom fram í dagbókinni að
milli kl. 4 og 6 um morguninn
hefði tvisvar komið upp vélarbil-
un í Hval 8 og meðan látið var
reka sagði Þórður að þeir hefðu
farið í hringi umhverfis Hval 8
að því er virtist í algjöru til-
gangsleysi.
— Eg tel einsýnt að við
hefðum fengið ágæta veiði þarna
undir eðlilegum kringumstæðum
og þarna um morguninn var
Landhelgisgæzlunni sent skeyti
og báðum við hana aðstoðar.
Síðan reyndum við að halda
áfram veiðum og upp úr hádeg-
inu sáum við 4 hvali en þá var
stóri gúmmíbáturinn undir
stefninu og við urðum að hætta
Þórður Eyþórsson skipstjóri á Hval 8 sagði að vertíðin í ár væri sín 20. Á borðinu er hvellhettan, sem
knýr skutulinn áfram, sprengjan, sem springur í hvalnum, og púðurfyllingin, en Þórður heldur á
timastillingunni, sem tekin var úr til að gera sprengjuna óvirka. Ljósm. Kristján.
við. Síðan um kl. 16 þegar stóra
tuðran var á bakborða kom upp
hvalur stjórnborðsmegin á
stuttu skotfæri og hljóp ég þá
fram á og bjóst til að skutla.
Hafði ég frið til að koma skoti á
hvalinn meðan þeir voru að
reyna að komast fram fyrir Hval
8 og á milli og þegar skotið hæfði
hvalinn aftarlega voru þeir að
nálgast hann að framan.
— Það skal tekið skýrt fram
60 feta langreyður. Flensarinn er að taka spikið af bakinu, en skíðin sjást lengst til vinstri, ljós fremst en dökkna svo og verða svört.
og tók nokkurn tíma að losa
hann. Þórður sagði að þessi
veiðiferð þeirra hefði verið all-
löng og törnin frá því þeir hófu
veiðar og þar til þeir urðu að
hætta 18 tímar og allan þann
tíma hefðu gúmbátar Green-
peace verið á sveimi í kring, en
Rainbow Warrior hefði hins
vegar farið að siglingareglum.
— Við getum ekki látið þetta
hippadót segja okkur að hætta
vinnu okkar. Við veiðum algjör-
lega eftir því sem aiþjóðahval-
veiðiráðið úthlutar okkur og það
er samdóma álit fulltrúa í ráð-
inu að íslenzku hvalveiðarnar
séu í jafnvægi.
— Það er eindregin ósk okkar
að Landhelgisgæzlan haldi uppi
löggæzlu á miðunum, því ef þeir
gera það ekki er spurning hver
eigi að gera það, eigum við að
gera það sjálfir eða hver?