Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
5
Bæjarstarfemanna-
ráð BSRB stofnað
Þórhallur Halldórsson formaður ráðsins
STOFNAÐ hefur verið innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
svokallað Bæjarstarfsmannaráð BSRB, en aðild að því eiga öll
bæjarstarfsmannafélög landsins, en þau eru nú 17 innan BSRB.
Yngsta félagið, sem gekk í bandalagið á nýafstöðnu þingi þess, er
Bæjarstarfsmannafélag Selfoss. Þórhallur Halldórsson, 1. varafor-
maður BSRB, skýrði frá þessu á blaðamannafundi, sem forysta BSRB
efndi til í gær. Þórhallur lagði áherzlu á að Bæjarstarfsmannaráðið
væri ekki samningsaðili, heldur hvert félag fyrir sig, sem aðild ætti að
bandalaginu, en hann kvað ráðið
framtíðinni.
Hlutverk Bæjarstarfsmanna-
ráðs BSRB er að fylgja eftir
samþykktum bæjarstarfsmanna-
ráðstefnu, sem kalla ber saman,
þegar þurfa þykir, og þó einkum
þegar kjarasamningar bæjar-
starfsmanna eru í undirbúningi.
Þó skal alltaf kalla saman slíka
ráöstefnu innan fjögurra mánaða
frá reglulegu bandalagsþingi. A
bæjarstarfsmannaráðstefnu hefur
hvert félag með 400 félagsmenn
einn fulltrúa og annan fyrir hvert
brot úr þeirri tölu, ef félagið er
fjölmennara. Auk þess á formaður
BSRB og varaformenn sæti á
raðstefnunni og þeir aðalmenn eða
varamenn frá bæjarstarfsmanna-
félögum, sem sæti eiga í banda-
lagsstjórn.
styrkja mjög stöðu samtakanna í
Hlutverk ráðsins er eins og áður
segir að fylgja eftir samþykktum
bæjarstarfsmannaráðstefnunnar
og afgreiða erindi, sem frá félög-
um berast, að annast upplýsinga-
miðlun milli bæjarstarfsmanna-
félaga og stuðla að samvinnu milli
þeirra. Þá skal ráðið vera ráðgef-
andi stjórn BSRB varðandi mál
bæjarstarfsmanna og ályktunar-
aðili um sömu mál. Það skal vinna
að skipulagsmálum bæjarstarfs-
manna og boðun og undirbúningi
bæjarstarfsmannaráðstefnu.
Þórhallur Halldórsson, 1. vara-
formaður BSRB, er formaður
Starfsmannafélags Reykjavikur-
borgar og samkvæmt lögum BSRB
verður hann þar með fyrsti for-
maður Bæjarstarfsmannaráðs
BSRB.
Bflasýning
á Akureyri
BÍLAKLÚBBUR Akuureyrar
gengst fyrir sýningu á ýmsum
farartækjum á 17. júní. Má þar til
ncfna hjólhýsi, sportbáta, mótor-
hjól, tryllitæki, gamla bfla, bfla-
módel og margs konar varahluti
þeim tengda.
Alls verða sýndir milli 60 og 70
bílar og hafa félagar í Bílaklúbbn-
um lagt mjög mikla vinnu í að gera
sýninguna sem besta.
Á meðfylgjandi mynd er eitt
þeirra ökutækja sem á sýningunni
ýerða, Citroen árgerð 1946.
Plokkfiskur kom-
inn á markaðinn
BÓKAÚTGÁFAN BROS í Hafnarfirðý hefur gefið út nýja bók
mcð skopmyndum eftir Gísla J. Ástþórsson. Heitir hún
Plokkfiskur, en það er samheiti teiknisyrpu, sem Gísli hefur
teiknað fyrir Sjávarfréttir sl. 4
verzlanir að undanförnu.
I „Plokkfiski" segir í stórum
og smáum myndum með viðeig-
andi textum frá lífinu í fiskinum
til sjós og lands — eða að
minnsta kosti eins og GJÁ kýs
að sjá þetta líf þegar sá gállinn
er á honum. Fólkið í sjálfum
slagnum fer með aðalhlutverkin
eins og vera ber, en ótíndir
landkrabbar koma samt líka við
sögu, svo sem eins og stórfor-
stjórar, kvennabósar og hart
leiknir sáttasemjarar, að
ógleymdum bankastjórunum,
ógnvaldi allra sannra útgerðar-
manna.
Þetta er þriðja skopteikninga-
bókin eftir Gísla J. Ástþórsson,
sem útgáfufyrirtækið BROS gef-
ur út. Það hefur þegar sent frá
sér tvær „Siggu-bækur“: „Sigga
Vigga og tilveran", sem kom út í
fyrra, og „Fjörutíu og sjö snúð-
ar“, sem kom út núna í vetur. Sú
fyrrnefnda mun uppseld hjá
ár. Bókinni heíur verið dreift í
forlaginu og er önnur útgáfa
ráðgerð þegar verkfalli lýkur.
Loks mun von á þriðju
„Siggu-bókinni" í lok þessa mán-
aðar, og hefur hún hlotið nafnið
„Sigga Vigga og þingmaðurinn“.
Á fysta fundi bæjarstarfs-
mannaráðstefnu eftir reglulegt
bandalagsþing skal kjósa 7 manna
ráð, er nefnist Bæjarstarfsmanna-
ráð BSRB og má aðeins kjósa einn
frá hverju bæjarstarfsmannafé-
lagi. Ef formaður eða annar vara-
formanna BSRB er frá bæjar-
starfsmannafélagi er hann sjálf-
kjörinn í ráðiö og skal vera for-
maður þess. Missir þó félag hans
ekki rétt til manns í ráðið.
Spaks
manns
spjarir
á uppboðiKlaust-
urhóla í dag
KLAUSTURHÓLAR, listmuna-
uppboð Guðmundar Axelssonar,
efna til 57. uppboðs fyrirtækisins
í dag, laugardag kl. 14.00. Að
þessu sinni verða seldar bækur
og rit af ýmsu tagi, gömul og
nýleg. Efnisflokkar eru greindir
í uppboðsskrá: ýmis rit, biöð og
tímarit, ríki náttúrunnar, rit
íslenzkra höíunda, íslenzk list,
ljóð, leikrit, trúmálarit, saga
lands og lýðs, æviminningar,
fornritaútgáfur, ferðabækur,
þjóðsögur.
Alls verða boðin upp 215 verk á
þessu síðasta listmunauppboði
fyrir sumarið. Af einstökum verk-
um má nefna: Islenzk fyndni,
1—25, sem Gunnar frá Selalæk
safnaði og gaf út, Bergþórssaga,
útgefandi Sigurjón á Álafossi,
Rvík 1950, Norsku lög Kristjáns V,
Hrappsey 1779, Fiskarnir eftir
Bjarna Sæmundsson, fyrstu pésar
Þórbergs Þórðarsonar, Spaks
manns spjarir og Hálfir Skósólar,
Rvík 1915 og 1917, bók Uttenreitt-
ers um Guðmund Thorsteinsson
(Mugg), Myndabækur Einars
Jónssonar I—II, ljóðabækur Vil-
hjálms frá Skáholti, frumútgáfu
ljóðabókar Jóns Helgasonar, Úr
landsuðri, Bólu-Hjálmars saga
eftir Brynjólf frá Minna-Núpi,
Eyrarbakka 1911, Dalamenn
I—III, Njáls sögu, Kaupmanna-
höfn 1772, gömlu Biskupasögurnar
I—II, Kh, 1858—78, Landfræði-
sögu íslands I—IV eftir Þorvald
Thoroddsen og Vulkaner og jord-
skjælf paa Island, Kh. 1897 eftir
sama, Hákarlalegur og hákarla-
menn eftir Theodór Friðriksson og
hina fágætu útgáfu Hugos Gering
á Islenzkum ævintýrum I—II,
Halle 1882-1883.
Teg: 4015
Nr: 36-41
Verð frá: 10.270,-
Litur: brúnn
Teg: 4004
Nr: 36-41
Verð frá: 10.550,-
Litur: rauður
Teg: 3526
Nr: 35-42
Verð frá: 10.290,-
Litur: natur
Teg: 3528
Nr: 35-40
Verð frá: 9.675,-
Litur: natur
Teg: 2372
Nr: 36-42
Verð frá: 6.885,-
Litur: natur
Teg:0064
Nr: 35-49
Verð frá: 6.860,-
Litur: natur
Teg: 3554
Nr: 28-45
Verð frá: 10.430,-
Litur natur
Teg: 2371
Nr: 35-49
Verð frá: 11.150,-
Litur: natur
Nr: 35-43
Verð frá: 10.835,-
Litur: natur
SENDINGIN AF PORTÚGÖLSKU FÓTLAGASKÓNUM
ER LOKSINS KOMIN
allar gerðir úr ekta leðri og með ekta hrágúmmísóla.
Domus Medica,
Sími 18519.
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Ath. Opið í dag,
laugardag frá 9—12.