Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 18

Morgunblaðið - 16.06.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 Wll:T*, ,, , 7—**’*^p! K W'* |1;11 H fB' 1 ]|)|Í '4 Whá 1 iflliilJ 1 i^flLjF' Ljósm. Mbl. RAX Frá Gamla Ford til Mustangs afnýjustu gerð BÍLASÝNING Fornbflaklúbbs ís- lands hefst í Laugardalshöllinni í Reykjavík í dag khikkan tvö. Á sýningunni er rakin 75 ára saga bflsins á íslandi. Af þeim sökum er sýningarsainum í Laugardals- höllinni skipt niður í fjórar deild- ir, gamlir bflar, uppgerðir bflar, óuppgcrðir bflar og svo nýir bflar. Eins og gefur að skilja kennir margra grasa á sýningunni. Þarna er t.d. elsti bíll á landinu, Ford árgerð 1917. Einnig líkbíll úr Hafnarfirði, Ford árgerð 1937, sem Ríkarður Jónsson myndhöggvari smíðaði paliinn á. Þarna er Lincoln Coupe árgerð 1947 sem ein auðug- asta kona í heimi, Barbara Hutton, sem nú er nýlátin, átti upphaflega og einnig má nefna Buick Eight árgerð 1947 sem aðeins er ekinn 17 þúsund kílómetra, er enn á upphaf- legum dekkjum og hefur aðeins verið sprautaður eini sinni og þá með „original“ Buick lakki. Bílar Hinrik Thorarensen, sem á sæti í stjórn Fornbílaklúbbsins, og Guð- mundur Bjarnason gengu með blaðamönnum Morgunblaðsins um sýningarsalinn í gær og voru með- fylgjandi myndir teknar við það tækifæri. Hinrik sagði að klúbbur- inn hafi verið stofnaður 17. maí 1977 og í honum væru nú um 200 meðlimir. Klúbburinn beitir sér að sögn Hinriks fyrir varðveislu gam- alla bíla og hefur í því sambandi haft milligöngu um kaup á bílum fyrir aðila sem áhuga hafa á því að gera þá upp. Einn bíl á klúbburinn sjálfur, Chevrolet kranabíl árgerð 1937. Eiganda eins bílsins á sýning- unni hittum við að máli, Eyjólf Brynjólfsson úr Reykjavík. Hann á bíl af gerðinni Ford Victoría ár- gerð 1934. Bílinn sagðist Eyjólfur hafa keypt á Flateyri 1969, en þar hafði hann verið í ein tíu ár. Sigmundur Jónsson, kaupmaður á Þingeyri, átti þennan bíl áður. Sigmundur keypti hann notaðan frá Bretlandi einhvern tíma á stríðsárunum og var bíllinn ein helsta „drossía" á Þingeyri í mörg ár. Þá sagði Eyjólfur það hafa tekið hann tæpt ár að gera bílinn upp, hann hafi síðar skipt um vél og gírkassa. Hann sagði að það væri sérstaklega gott að fá varahluti í bílinn, en varahlutina kaupir hann frá Ameríku. „Það er nánast hægt að fá allt í þetta", sagði Eyjólfur. Hann á auk Ford-bílsins Citroen árgerð 1947 sem hann hefur ákveð- ið að gefa Þjóðminjasafninu. í anddyri Laugardalshallar verða og sýndir evrópskir smábílar á ýmsum aldri. Sýningin verður opin til 24. júní. Þessi Buick Eight órgerð 1947 er aöeins ekinn 17 Þúsund kílómetra og hefur verið í eigu sama manns fró upphafi. Þess má og geta að bíllinn er á upphaflegum dekkjum og er allur sem nýr. Þessi bíll var lengi ein aðal „kerran“ á Þingeyri, en Sigmundur Jónsson kaupmaður par keypti bílinn frá Bretlandi á stríösárunum. Þetta er Ford Victoría árgerð 1934 og núverandi eigandi er Eyjólfur Brynjólfsson. Þessi „bodd(b(ll“ er af gerðinni Ford, B-módel árgerð 1931. Bíllinn var fyrst skráöur 9. ágúst 1930 og aftur 1978. Skýliö, sem tekur tólf manns ( sæti, var smíöaö árið 1935. Bfllinn er nýuppgeröur, en allir hlutar hans eru upprunalegir. Þennan Lincoln Coupe árgerð 1947 keypti Kjartan Jónsson í Víkingi til landsins á árunum ( kringum 1950, en fyrri eigandi var auðjöfurinn Barbara Hutton. Þetta er tólf-strokka „tryllitæki“ sem ekið hefur verið 35.235 þúsund mílur. Núverandi eigandi er Þorsteinn Baldursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.