Morgunblaðið - 16.06.1979, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinason.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstrœti 6, sími 10100.
Aðalstrsati 6, sími 22480.
Sími 83033
Áskriftargjald 3000.00 kr. á mánuði innanlands.
' lausasölu 150 kr. eintakið.
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingaatjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiðsla
Þá yrði léttara
yfir mönnum
Þótt senn séu sólstöður, er haustgeigur í mönnum.
Þeim lízt ekki á útlitið framundan og finna, að fátt
er til bjargar, þegar stefnuna vantar. Viðbrigðin eru
líka snögg. Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar tókst að
vísu ekki að koma verðbólgunni niður til frambúðar, en
hún reisti efnahaginn við. Þegar hún fór frá, var
atvinnuöryggi í landinu og lífskjör batnandi, eins og æ
fleiri eru farnir að gera sér grein fyrir.
Nú er þessu öfugt farið. Það er borðleggjandi, að
lífskjörin eiga eftir að versna verulega, enda út frá því
gengið af stjórnvöldum. Atvinnureksturinn heldur
áfram að dragast saman og atvinnuleysisvofan er
komin á stjá. Það er mat Svavars Gestssonar
viðskiptaráðherra að hér hafi skapazt „viðvarandi
kreppuástand“ og hann óttast, að það muni koma
harkalega niður á launafólki.
Það er vissulega rétt, að þjóðarbúið hefur orðið fyrir
þungum áföllum, þar sem eru olíuhækkanirnar. En þá
reynir líka á, að ríkisstjórnin hafi úrræði og kjark til
að beita þeim. En því er hvorugu til að dreifa. í sjö
vikur hafa sumir ráðherra talað um að grípa inn í
farmannaverkfallið, en ekkert verið gert. í verki hefur
vinstri stjórnin viðurkennt þá stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, að frjálsir samningar skuli ráða á vinnu-
markaðnum. Olíusamningarnir við Sovétríkin eru í
senn ósanngjarnir og óhagstæðir, eins og nú er komið,
en viðskiptaráðherra sér ekki ástæðu til að hreyfa
málinu. Rekstrargrundvöllur er enginn til, hvorki fyrir
útgerð né fiskvinnslu, ekkert hefur verið gert í
málefnum landbúnaðarins og þannig mætti áfram
telja. Allt er þetta látið danka. Ráðherrarnir gefa í
bezta falli persónulegt álit sitt, en um stefnumörkun
ríkisstjórnarinnar allrar er aldrei að ræða um neitt,
sem máli skiptir.
Fólkið í landinu finnur sárt til þess, að forystuna
skortir. Það er reiðubúið að leggja á sig fórnir til þess
að yfirstíga erfiðleikana og koma verðbólgunni niður
og það er búið að skerða kjör þess verulega. En það
sættir sig ekki við, að fórnirnar verði til einskis, af því
aö landsstjórnin fer í handaskolum.
Það er orðið viðkvæði æ fleiri manna, að samsteypu-
stjórnir hafi gengið sér til húðar. Þessi vinstri stjórn,
sem er hin þriðja í röðinni, er verst. Og ekki hefur vond
stjórn borgarmála Reykjavíkur bætt úr skák. Menn eru
hins vegar ekki trúaðir á að ríkisstjórnin hafi
manndóm í sér til þess að segja af sér í bráð, af því að
hún veit ekkert verra en kosningar eiris og á stendur.
Steingrímur Hermannsson tyggur það ofan í flokks-
menn sína að verkin tali. Það er áminning hans til
þeirra um að hafa hægt um sig í bili, því að mest bæri
á vesaldómi og óheilindum, ef handaverk ríkisstjórnar-
innar mættu tala. Hins vegar reyna stjórnarflokkarnir
þrír, hver í kapp við annan, að koma sér upp „máli“, ef
til kosninga drægi samt sem áður.
Eins og á stendur er ekki undarlegt, þótt haustgeigur
sé í mönnum um hásumarið. En það yrði á einu
andartaki léttara yfir öllum á þeirri stundu, sem
ríkisstjórnin færi frá. Þá snerist baráttan heldur ekki
um það, að enn ein samsteypustjórnin tæki við. Þá
myndi þjóðin gera það upp við sig, hvort hún vill
meirihlutastjórn eins flokks. í fyrsta skipti frá
lýðveldisstofnun eru nú pólitískar forsendur fyrir því,
að það geti gerzt.
☆
Sait II, hinn nýi samningur um
takmörkun kjarnorkuvopna sýnir
aö sambúð Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna mótast hvort
tveggja í senn al samstaríi og
árekstrum.
Það er von bandarísku stjórnar-
innar aö samningurinn muni bæði
auðvelda iausn alvarlegra ágrein-
ingsmála og draga úr kjarnorku-
vopnakapphlaupinu. En Carter
torseti heíur neitað að tengja
Salt-samninginn öðrum vandamál-
um og helur sagt að samkomulag
verði að takast um nýjan kjarn-
orkuvopnasamning þrátt fyrir
spennu á öðrum sviðum.
Þar með haía risaveldin bæði
tylgt stelnu sem gæti magnað
núverandi ágreining þeirra og
valdið spennu á mikilvægum svæð-
um I heiminum. Carter forseti
hetur sagt að ef öldungadeildin
neitaði að staðfesta Salt II gæti það
orðið Ijandsamlegum sovézkum
forystumönnum hvatning til að
hleypa af stað nýju köldu stríöi.
Samningaumleitanirnar um Salt
II virðast hafa leitt tii þess að
almenn samskipti Bandarfkjanna'
og Sovétríkjanna hafi batnað Iftið
eitt. En aðalástæðan fyrir batnandi
samskiptum virðist sú, að báðir
aðilar hafa viljað skapa andrúms-
loft, sem gerði þeim kleift að
komast að samkomulagi.
Byrjunin
Upphaflegar tillögur Bandaríkja-
stjórnar um Salt II voru lagðar
fram í janúar 1973, en viðurkennt
Brezhnev
Rússar svöruðu með tillögu um,
að staðið yrði við ákvæði í Salt I
þess efnis að samningsaðilar skyldu
ráða yfir jafnmörgum eldflauga-
skotpöllum. Þarna var skortur á
jafnræði og hann var Rússum í vil,
því að eldflaugar þeirra voru ekki
eins tæknilega fullkomnar og þær
bandarísku.
Rússar vildu einnig, að engar
takmarkanir yrðu settar á beitingu
MIRV-eldflauga og þeir vildu að í
heildartölunni væri gert ráð fyrir
bandarískum vopnakerfum í Evrópu
og kjarnorkuvopnum bandalags-
þjóða Bandaríkjamanna, Frakka og
Breta.
Vladivostok
Um það bil einu og hálfu ári síðar,
í júlí 1974, undirrituðu samningsað-
ilar viðbót við Salt I, þar sem ráð
var fyrir því gert að hvor þeirra réði
yfir einu gagneldflaugakerfi í stað
tveggja. Og það varð að samkomu-
menn fyrst til, að ný Back-
fire-sprengjuflugvél Rússa yrði
meðtalin í samningnum. Back-
fire-sprengjuflugvélin er aðeins í
meðalLagi langfleyg, en í vissum
tilfellum gæti hún komizt til Banda-
ríkjanna og lent á Kúbu. Rússar
höfnuðu þessari tillögu Bandaríkja-
manna.
Rússar sögðu jafnframt, að þeir
teldu hina nýju stýrisflaug (cruise
missile) Bandaríkjamanna flugvéla-
eldflaug og heyra þar með undir
2,400 mörkin, sem samkomulag varð
um í Vladivostok. Bandaríkjamenn
hyggjast koma fyrir allt að 20
stýrisflaugum í B-52 sprengjuflug-
vélum sínum og vísa staðhæfingum
Rússa um flaugina á bug. Stýris-
flaugarnar eru knúnar þotuhreyfli
og eins og litlar mannlausar flugvél-
ar, sem hægt er að skjóta frá
móðurflugvélum eins og B-52 eða
skipum, kafbátum og herstöðvum.
Þær geta borið kjarnaodda á 500
mílna hraða á klukkustund um það
bil 1,550 mílna vegalengd. Banda-
ríkjamenn segja, að Vladi-
vostok-samningurinn nái aðeins til
eldflauga, ekki stýrisflauga.
Ósamkomulag um þetta ágrein-
ingsefni tafði samningaviðræður
allt árið 1975.
í janúar 1975 gerðu Bandaríkja-
menn tillögu um sérstakt fimm ára
uppkast um takmörkun á fjölda
sovézkra Backfire-sprengjuflugvéla
við töluna 275. Tillögunni var hafn-
að. Bandaríkjamenn lögðu þá til, að
ágreiningurinn um stýrisflaugarnar
yrði leystur þannig, að hver
sprengjuflugvél búin stýrisflaugum
yrði talin samkvæmt ákvæðinu um
hámark MIRV-flauga. Henry
Kissinger utanríkisráðherra sagði,
að samningurinn væri nánast full-
gerður.
En í febrúar kom Backfire-vanda-
málið í veg fyrir samkomulag. Það
sem eftir var ársins 1976 gekk
II sar
nánast hvorki né rak í Salt-viðræð-
unum meðan Ford-stjórnin barðist
fyrir endurkosningu.
Tveir kostir
í marz 1977 tók stjórn Carters
forseta til við samningaviðræðurn-
ar. Cyrus Vance utanríkisráðherra
fór til Moskvu og gerði Rússum
grein fyrir tveimur valkostum.
Annar kosturinn var róttækur
niðurskurður, þannig að mörkin
sem samkomulag varð um í Vladi-
vostok yrðu lækkuð um rúmlega 500.
Samkvæmt tillögunni yrði einkum
mikil fækkun á eldflaugum Rússa á
landi, en eldflaugar í bandarískum
kafbátum yrðu látnar liggja milli
hluta.
Hinn kosturinn var sá, að náð
yrði skjótu samkomulagi er byggð-
ist á Vladivostok-samningnum, en
þannig að samkomulag yrði um að
tilraun yrði gerð síðar til þess að
semja bæði um stýrisflaugarnar og
Backfire-sprengj uflugvélarnar.
Rússar höfnuðu báðum þessum
tillögum. En einn liður í niðurskurð-
artillögum Carters hélt velli: sam-
komulag um að Backfire-sprengju-
flugvélarnar yrðu ekki taldar með í
nýja sáttmálanum. Um þær verður
fjallað í sérstöku bréfi undirrituðu
af Brezhnev, þar sem Rússar munu
fallast á að tefla þeim ekki fram
nálægt Bandaríkjunum og auka
ekki framleiðslu þeirra.
í maí 1977 gerði Vance nýja
tilraun. Samningsaðilar urðu ásátt-
ir um að fjallað yrði um takmarkan-
ir á framleiðslu nýrra eldflauga í
sérstöku þriggja ára uppkasti og
ekki í sáttmálanum sjálfum. En
samningsuppkastið yrði alveg eins
bindandi.
Samningurinn fór að taka á sig
núverandi mynd í september 1977.
Bandaríkjamenn samþykktu að
telja sprengjuflugvélar vopnaðar
stýriseldflaugum samkvæmt
ákvæðinu um hámark MIRV-eld-
flauga. Samningsaðilar urðu ásáttir
um neðri mörk, sem skyldu miðast
við töluna 1,200 fyrir MIRV-flaugar
og töluna 820 fyrir MIRV-flaugar
með bækistöð á landi.
í janúar 1978 samþykktu Rússar
Sovézkur kafbátur
lagi að Salt II skyldi ekki gilda til
tíu ára heldur í óákveðinn tíma.
í nóvember 1974 náðist síðan
meiriháttar árangur í þessum
samningaumleitunum. Rússar sam-
þykktu, að samningsaðilar skyldu
ráða yfir jafnmörgum langdrægum
eldflaugum og sprengjuflugvélum
og fjöldi þeirra yrði takmarkaður
við töluna 2.400 fyrir hvorn aðila.
Þessi tala var tiltölulega há, en í
staðinn samþykktu Rússar að um
það bil 500 sprengjuflugvélar
Bandaríkjamanna í Evrópu yrðu
ekki taldar með.
Nú gáfu Bandaríkjamenn upp alla
von um að koma mætti í veg fyrir að
Rússar hæfu framleiðslu í
MIRV-eldflaugum. Samningsaðilar
urðu ásáttir um svokölluð neðri
mörk, sem miðast við töluna 1.320
fyrir hvorn aðila. Rússum yrði leyft
að ráða yfir 308 mjög þungum
eldflaugum, annað hvort gömlum af
gerðinni SS-9 eða nýrri eldflaugum
af gerðinni SS-18. Bandaríkjamenn
hafa aldrei framleitt þunga eldflaug
og þeim yrði ekki leyft að gera það.
Gerald R. Ford forseti og Leonid
Brezhnev undirrituðu þetta sam-
komulag í Vladivostok og menn voru
vongóðir um að gerð nýs sáttmála
yrði fljótt lokið. En ný vandamál
skutu bráðlega upp kollinum.
Backfire
____&
1 janúar 1975 lögðu Bandaríkja-
Cruise
var í Washington þá að þær hefðu
aðeins verið „byrjunarleikur". í
tillögunum var ráð fyrir því gert að
fyrst yrði framleiðsla á eldflaugum
búnum mörgum kjarnaoddum, sem
má miða á mörg mismunandi skot-
mörk fjarri hverjum öðrum, MIRV.
Þá höfðu Bandaríkjamenn þegar
tekið slík vopn í notkun og Rússar
voru nýbyrjaðir á tilraunum með
þau, svo að tillagan hefði orðið til
þess, ef hún hefði verið samþykkt,
að Bandaríkjamenn hefðu haldið
yfirburðum sínum um langt skeið.
Samkvæmt tillögu Bandaríkja-
manna var líka gert ráð fyrir því, að
hvor aðili um sig hefði yfir að ráða
jafnmörgum skotpöllum fyrir lang-
drægar eldflaugar, svo og sprengju-
flugvélar, eða 2.350 alls. Jafnframt
var lagt til að engar takmarkanir
yrðu settar á bandarískar sprengju-
flugvélar og eldflaugar í Evrópu,
jafnvel þótt hægt væri að hæfa
sovézk skotmörk með mörgum
Eldflaug á Rauða torginu