Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 3 Siglir borgin ALLAR líkur bentu til þess í gær að Akraborgin myndi sigla að nýju i dag eftir um það bil 10 daga stöðvun. Fundur stjórnar Vélstjórafélagsins samþykkti í gær að vinna að því að fá sam- gönguráðuneytið til þess að fella úr gildi þær undanþágur, sem vélstjórar hefðu til vinnu á skip- inu án fullrar mönnunar skips- ins, en á meðan unnið yrði að því og gerð nýs kjarasamnings kvaðst stjórnin myndu beita sér Helga Marteins- dóttir látin HELGA Marteinsdóttir veit- ingakona lézt sl. sunnudag á 87. aldursári. Helga rak um árabil veitingastaðinn Röðul í Reykjavík, en hún hóf að taka fólk í fæði árið 1921 er hún var búsett á Akureyri og rak um tveggja ára skeið Hótel Norðurland. Þá rak hún veitingastofu að Laugavegi 44 og síðar Lauga- vegi 28 í Reykjavík og rak um skeið Vetrargarðinn áður en hún hóf rekstur veitingahúss- ins Röðuls. Þá tók hún þátt í félagsmálastörfum, gekkst m.a. fyrir stofnun Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna, starfaði í Mæðrastyrksnefnd, var í nokkur ár formaður Húsmæðrafélags Reykjavíkur og starfaði í Kvenréttindafél- aginu. Akra- í dag? fyrir því að skipið sigldi. Hér mun þó vera um að ræða skamm- vinnan vinnufrið á skipinu, þar sem Stýrimannafélagið hefur boðað verkfall á Akraborg frá og með 26. september svo og á Herjólfi. Þá hefur Vélstjórafélag- ið og boðað verkfall á þessum skipum frá og með 1. október, svo og á Sandey, skipi Björgunar h.f. Samkvæmt tilmælum ríkis- stjórnarinnar kannaði kjaradóm- ur hvort grundvöllur væri til þess að deilan leystist með dómsupp- kvaðningu. Formaður dómsins, Guðmundur Magnússon háskóla- rektor, ræddi af því tilefni við málsaðila og samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins, kvaðst Farmanna- og fiskimannasam- band íslands fallast á kjaradóm, ef Vinnuveitendasamband íslands félli frá bótakröfum vegna stöðv- unar skipsins. VSI mun hafa lýst því yfir að það gæti ekki leyst FFSI undan bótakröfuábyrgðinni, sem það telur að FFSÍ beri sam- kvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Jafnframt lítur VSÍ á stöðvun skipsins sem ólögmæta. Elva Guðnadóttir. Bflslysið á Akureyri: Pilturinn ennþámeðvit- undarlaus KRISTJÁN Jón Guðjónsson, sem slasaðist lífshættulega í bílslysinu við Akureyri aðfararnótt síðast- liðins laugardags, liggur ennþá meðvitundarlaus á gjörgæsludeild Borgarspítalans. Stúlkan sem lézt í sama bílslysi hét Elva Guðnadóttir. Elva var sextán ára að aldri, til heimilis að Tjarnarlundi 13E á Akureyri. Verður Landakots- spítali stœkkaður? „VIÐ teljum nauðsynlegt að stækka spítalann til þess að auka hagræði og þjónustu i rekstri hans,“ sagði Óttarr Möller stjórnarformaður Landakotsspítala, en að undan- förnu hefur verið unnið að undirbúningsvinnu fyrir all- mikla byggingu norðan við núverandi sjúkrahús. Óttarr Möller kvað þó of snemmt að segja til um það, hvenær unnt yrði að hefja fram- kvæmdir. Spítalinn er rekinn sem sjálfseignarstofnun, en hús- ið er í eigu ríkisins. Stækkun spítalans er því háð fjárveitingu og leyfi yfirvalda. Á meðfylgj- andi mynd sést líkan af spítalan- um eins og hann kemur til með að líta út eftir áðurnefnda stækkun. „Hef hugleitt, hvort ég ætti ekki að segja mig úr sexmannanefndinni” í UMRÆÐUM um búvöruhækkun þá, sem nýverið kom til fram- kvæmda hefur komið fram að Gunnar Hallgrímsson, einn þriggja neytendafulltrúa í sexmannanefnd, tilnefndur af Sjómannafélagi Reykjavikur, er starfsmaður Vinnumálasambands samvinnufé- laganna en aðild að Vinnumála- sambandinu eiga flest öll sláturhús i landinu. Þá hefur og komið fram að Ingi Tryggvason, einn þriggja fuiltrúa bænda i sexmanna- nefndinni, fékk sem starfsmaður við skinna- og ullarverkefni Út- flutningsmiðstöðvar iðnaðarins það verkefni hjá Útflutningsmiðstöð- inni að kanna verð á gærum erlendis. Var þessi könnun gerð að ósk sexmannanefndar og niðurstöð- ur könnunarinnar lagðar fram i sexmannancfnd og við þær stuðst við ákvörðun um gæruverðið. Morgunblaðið sneri sér til þessara tveggja manna og spurði þá, hvort þeir teldu að þessi störf þeirra og seta í sexmannanefndinni gætu farið saman. „Mér finnst þetta ekki eðli- legt,“ sagði Gunnar Hallgrímsson, „og ég hef verið að velta þessu mjög fyrir mér og hef hugleitt hvort ég — segir Gunnar Hallgrímsson ætti ekki að segja mig úr nefndinni. Eftir að ég tók við núverandi starfi mínu hjá Vinnumálasambandinu um síðustu áramót hefur mér fundist ég standa nokkuð höllum fæti hvað snertir starf mitt innan sexmanna- nefndar og þá á ég við gagnvart almenningsálitinu. Hins vegar hefur núverandi starf mitt ekki haft nein áhrif á gerðir mínar innan sex- mannanefndarinnar." Gunnar sagði að þegar hann hefði verið skipaður í nefndina sem full- trúi Sjómannafélagsins hefðu allir talið að það færi að styttast í að sexmannanefnd yrði lögð niður. „Það hefur stöðugt verið rætt um að breyta þessu kerfi og við héldum í vetur sem leið að verðákvarðanirnar þá yrðu þær síðustu, sem nefndin þyrfti að semja um. Hefði ég séð það fyrir hvernig þessum málum hefur reitt af hefði ég dregið mig til baka strax í fyrrahaust," sagði Gunnar er blaðið ræddi við hann þar sem hann var að störfum á vegum Vinnumála- sambandsins í sláturhúsi Kaupfél- ags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Sagði Gunnar að störf hans á Sauðárkroki væru fyrstu afskipti hans af sláturhúsamálum á vegum VMSI en fram að þessu hefði starf hans einkum beinst að fiskvinnsl- unni. „Ég hef ekki áttað mig á því að það þyrfti að vera óeðlilegt," sagði Ingi Tryggvason, er hann var spurð- ur, hvort fyrrnefnd störf hans færu saman. „Ég var ekki einn um það hjá Útflutningsmiðstöð iðnaðarins að afla upplýsinga um gæruverð á erlendum mörkuðum. Þessara upp- lýsinga er að mestu aflað skriflega og þau gögn eru fyrir hendi. Ég vil geta þess að sexmannanefnd fékk munnlegar upplýsingar hjá Búvöru- deild Sambandsins og til þeirra upplýsinga var tekið tillit engu síður en upplýsinga Útflutningssmið- stöðvarinnar. Þá vil ég geta þess að bændur hafa engar sérstakar ástæð- ur til að hækka gæruverðið sérstak- lega og allra síst umfram markaðs- verð, heildartekjur þeirra aukast ekki við það. Ef einhverjir njóta beins hags af háu gæruverði eru það neytendur eins og verðlagningu landbúnaðarvara er háttað," sagði Ingi. Ölfusá við Selfoss. Á myndinni sjást vel flúðirnar fyrir ofan Ölfusárbrúna, þar sem kajökunum hvolfdi. LjóNm. Mbl. Kristján. Drukknaði íÖlfusá ÞRJÁTÍU og eins árs kennari frá Hafnarfirði, Rúnar Már Jóhannsson, drukknaði er kaj- ak hans hvolfdi í ölfusá á laugardag. Rúnar Már hafði ásamt félaga sinum, Pétri Th. Péturssyni, lagt af stað ofan frá Sogsbrúnni i kajakferð niður ána. Skammt fyrir ofan Ölfusárbrú á Selfossi hvolfdi báðum bátun- um og tókst Pétri að losa sig úr sínum og komast á land skammt frá Selfosskirkju. Þetta mun hafa verið um kl. 16.35 á laugar- dag. Lögreglunni á Selfossi var strax tilkynnt um slysið og hófst þá þegar leit af Rúnari Má. Sú leit hefur enn engan árangur borið. í leitinni hafa tekið þátt björgunarsveitir úr Hafnarfirði og frá Selfossi, einnig þyrla frá Landhelgisgæzlunni. Rúnar Már Jóhannsson lætur eftir sig konu og tvö börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.